Morgunblaðið - 09.08.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.08.1985, Blaðsíða 37
MOfifiUNBlAPiP, .FQgTODAGffR 9. ÁpÚST.^ Þetta er meira að segja ekki Herbie greyið Þetta er ekki Herbie úr Walt Disney-myndunum í sjóferð heldur ósköp venjulegur Volkswagen. En hvernig hann fer að því að aka á vatninu ásamt bátnum og stúlkunni á sjóskíðum er ofar skilningi tíðindamanns. A.m.k. er þetta eitt af atriðum á vatnaskíðasýningu í Florida í sumar. „Brosferjan“ nýtur míkíllar hylli Geimferjur hafa verið umtal- aðar í Bandaríkjunum og víðar undanfarið og furðulegustu fyrirbæri þeim lík skjóta þar upp kollinum. Hvað einkennilegasta formbirtingin af þessu tagi er e.t.v. „Brosferjan" þeirra Roberts og Heike Pfeiffer. Þetta er hið skrítnasta farartæki, Douglas DC-3-flugvélarbolur sem hefur verið settur á strætisvagnsund- irvagn. Hafa Kaliforníubúar fengið að njóta þessa uppátækis í rúmlega eitt ár þegar brosferj- S93-Í COSPER Cvn an hefur farið í skemmtiferðir. Það kostaði um 800.000 krónur að koma þessu furðufyrirbæri saman en hefur þó borgað sig meira en tvöfalt til baka. Frá því að byggingu lauk hefur ferjan verið fullbókuð af hálfu ýmissa samtaka sem nota hana sem sýn- ingartæki, við bílasýningar, eða jafnvel er hún leigð fyrir einka- samkvæmi. Ef um slík sam- kvæmi er að ræða kostar leigan einungis nálægt 60.000 fyrir dag- inn. Tónabíó: Barn ástarinnar TÓNABÍÓ hefur hanð sýningar á kvikmyndinni Bam ástarinnar. Myndin segir frá lífi ungrar stúlku, Terry Jean Moore að nafni, sem lendir á hrakningum milli foreldra sinna þegar þeir skilja. 17 ára gömul flyst hún til Flórída og fær þar vinnu, en lendir skömmu síðar í fangelsi vegna samsektar í ránstilraun frænda síns. Hún fær þungan dóm en í fang- elsinu kynnist hún einum fanga- verðinum sem tælir hana til fylgi- lags við sig með því að látast ætla að hjálpa henni við að fá dóminn mildaðan. Hún verður ófrísk en tekst að leyna því þar til hún er komin of langt á leið til að geta gengist undir fóstureyðingu. Seinni hluti myndarinnar fjallar svo um baráttu hennar fyrir því að fá að hafa barnið hjá sér. (ílr rrétutilkvnnittgu) Sími 68-50-90 veiTINGAHÚS HÚS GÖMLU DANSANNA. Hljómsveitin DREKAR ásamt hinni vinsælu söngkonu MATTÝ JÓHANNS Sænski harmonikkusnill- ingurinn Lars EK leikur (konsert) frá kl. 20.30 til kl. 22.00. Dansað í efri og neðri sal frá kl. 22.00 til 3. e.m. Allir velkomnir. Ártún. Hljómsveitin BOGART á dúndur dansleik um helgina. Gleðjumst með gódum í öðLnQöoL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.