Morgunblaðið - 09.08.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.08.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985 ÚTVARP / S JÓNVARP Ylsálir Nú ríkir hin alræmda gúrku- tíð hjá blessuðu sjónvarpinu rétt eins og hjá ððrum fjölmiðl- um lands vors. En neyðin kennir naktri konu að spinna og hafa þeir sjónvarpsmenn brugðið á það ráð þessa dagana að hnýta aftan við dagskrána þætti sem nefnist Úr safni sjónvarpsins. Ég kann þessari ráðabreytni bara vel þótt auðvitað megi ekki þreyta áhorfendur um of á endurtekn- ingum og stagli. Hvað um það þá var nú á miðvikudagskveldið á dagskránni þáttur er var áður sýndur 25. ágúst 1970 og nefndist Maður er nefndur Sigurbjörn Þor- kelsson í Vísi. Ræddi Sverrir Þórðarson við Sigurbjörn og kom víða við. Tvennt vakti helst at- hygli mína í máli Sigurbjarnar. í fyrsta lagi hið jákvæða lífsviðhorf hans. Ég elska alla meðbræður mina án tillits til skoðana þeirra eða lífsviðhorfs, því þeir hafa ódauðlega sál. Þessi ummæli Sig- urbjarnar í Vísi og sú birta er fylgdi orðum hans leiddi hugann að þeim miklu jákvæðu áhrifum er slíkt lífsviðhorf hefir ekki aðeins á líf mannsins sjálfs heldur og á líf meðbræðranna. í þessu sam- bandi verður mér hugsað til af- mælisgreinar er birtist hér í blaðinu laugardaginn 3. ágúst og árnaði Einari á Einarsstöðum heilla á sjötugsafmælinu. Þar segir meðal annars um afmælis- barnið: Þau eru að verða æði mörg árin síðan fólk veitti því at- hygli, að skaparinn hafði búið hann úr garði öðruvísi en okkur flest hin, því liði betur í nálægð hans með sviða sinn og kvöl, stað- hæfir reyndar margt að það gangi heilt af slikum fundi. Tilvist sálarinnar Persónulega finnst mér að til- vist manna á borð við Sigurbjörn í Vísi og Einar á Einarsstöðum sanni tilvist sálarinnar. Bænin hefir verið mönnum þessum nærtæk og eins konar lykill að hinum sálræna heimi. Áhrif bæn- alífsins endurspeglast I ásjónu þessara manna svo ekki verður um villst og virðast hafa mótað hið jákvæða viðhorf þeirra til annarra manna og þar með auð- veldað samskipti þeirra við um- heiminn, eða eins og segir í bréfi Páls til Títusar: Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samviska. Lífsviðhorf athafnamanns Það er ekki ofsögum sagt að lífsviðhorf manna hafi mikil áhrif á líf þeirra sjálfra og með- bræðranna. Þannig minntist Sig- urbjörn í spjallinu við Sverri Þórðarson á kynni sín af Tryggva Gunnarssyni (1835—1917) en Tryggvi var einhver mesti at- hafnamaður er land vort hefir al- ið, smiður góður er byggði meðal annars Ölfusárbrúna 1891, skóg- ræktarmaður, ljósmyndari, þing- maður, Landsbankastjóri, útgef- andi og svo mætti lengi telja. En Sigurbjörn tjáði Sverri að Tryggvi hefði ekki alltaf grætt á framkvæmdum sínum, til dæmis á ölfusárbrúarsmfðinni. Þegar Sigurbjörn spurði Tryggva hví hann hefði lagt út i þá smiði svaraði hann: Það varð að vinna þetta verk. Einhver varð að taka þetta að sér. Þessi ummæli Tryggva Gunnarssonar ættu að verða okkur íslendingum um- hugsunarefni einkum i ljósi þess að sumir sigldir menn telja nú lífshætti landans taka æ meira mið af lífsviðhorfi því er ríkir á Ewing-búgarðinum. Ólafur M. Jóhannesson Einar Vil- hjálmsson í heimsókn? ■■■■ Á dagskrá rás- 1 A 00 ar 2 kl. 10 er AU«— Morgunþáttur þeirra Ásgeirs Tómasson- ar og Páls Þorsteinssonar. Hann stendur í tvær klukkustundir. „Við von- umst til að Einar Vil- hjálmsson sjái sér fært að mæta til okkar í þáttinn, en hann var kjörinn mað- ur júlímánaðar af hlust- endum fyrir skemmstu. Að öðru leyti verður spil- uð létt tónlist eins og venjulega. Þá verður einn- ig fjallað um það sem ofarlega er á baugi í skemmtanalífi lands- manna. Einnig koma til okkar gestir og spjalla," sagði Páll Þorsteinsson, annar umsjónarmanna Morgunþáttarins. Páll Þorsteinsson, annar umsjónarmanna Morgun- þáttarins. Næturvaktin: Léttur andi svífur yfir vötnunum Úr myndinni Heim til Marseille. Föstudagsmyndin: Heim til Marseille ■■ í kvöld er á Ot 35 dagskrá sjón- m 1 ““ varps franska bíómyndin Heim til Mars- eille (Retour a Marseille), frá árinu 1980. Leikstjóri er René Allio og með aðal- hlutverk fara Raf Vallone og Andrea Ferreol. í myndinni greinir frá Michel sem yfirgefur Marseille og heimili sitt i Frakklandi og flyst til ít- alíu tvítugur að aldri. Með ákveðni og festu tekst honum að festa sig þar f sessi og verður að lyktum vel stæður. Þrjátíu árum síðar snýr hann til Mars- eille að nýju til að vera viðstaddur jarðarför frænku sinnar. Þá taka ýmsir óvæntir atburðir að gerast. Bifreið hans er stolið og brátt berast böndin að ungum frænda hans sem er f slagtogi við vafasaman flokk atvinnu- lausra unglinga. Michel vill þó ekki láta kæra þjófana, þvi að f bifreið- inni eru vafasöm skjöl sem geta komið honum illa, komist þau undir hendur lögreglunnar. Þýðandi er Ragna Ragn- IHHM Næturvakt rás- nn 00 ar 2 hefst kl. íaó— 23.00 og stend- ur til kl. 3.00 eftir mið- nætti. Umsjónarmenn eru Þorgeir Ástvaldsson og Vignir Sveinsson. „Við höfum lagt okkur í líma við að ná sambandi við fólk úti á landsbyggðinni, auk þess fólks sem vakir með okkur. Við reynum að taka á móti kveðjum og koma þeim áleiðis. Það er alltaf mikið hringt í okkur og má ef til vill segja að örli á ballstemmningu hjá okkur á Næturvaktinni. Það fer fremur litið fyrir tormeltum fróðleik og há- stemmdum vísindum, enda vart rétti tíminn fyrir slíkt efni. í þættin- um eru sjaldnast eða aldr- ei viðtöl, og tónlistin er af léttara tagi. Tónleikar í Bústaðakirkju ■■■■ Á dagskrá út- OQ 15 varps kl. 23.15 f — kvöld eru tón- leikar Kriesler-strengja- sveitarinnar sem haldnir voru i Bústaðakirkju 10. apríl f vor. Stjórnandi er Michael Thomas og ein- leikari er Ian Belton. Fyrst verður flutt til- brigði eftir Benjamin Britten um stef eftir Frank Bridge. Þá verður fiölukonsert eftir Johann Sebastian Bach fluttur. Að honum loknum er á efnisskrá strengjaseren- aða í E-dúr op. 44 eftir Antonin Dvofak. Síðast verður flutt verk Samuels Barber, Adagio. Að tón- leikunum loknum verða sagðar fréttir, en þvf næst verða rásirnar samtengd- ar og Næturvakt Þorgeirs Ástvaldssonar og Vignis Sveinssonar tekur við. Rokkhátíð í Montreux ■i^H Fyrri hluti 90 40 rokkhátíðar- 45U— innar í Mont- reux verður á dagskrá sjónvarps kl. 20.40 í kvöld. Fram koma margir víð- frægir popparar og ættu því islenskir unglingar og aðrir áhugamenn um popptónlist að sjá hag sinn vænkast. Meðal þeirra sem fram koma eru Elton John, Millie Jack- son, Paul Young, Men at Work, Frankie Goes to Hollywood, Depeche Mode, Huey Lewis, Tears for Fears og hin sívinsæla og umdeilda Duran Dur- an. Siðari hluta rokkhá- tíðarinnar verður sjón- varpað síðar. ÚTVARP FÖSTUDAGUR 9. ágúst 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7J5 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur Siguröar G. Tóm- assonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorö — Þórhildur Ölafs talar. »4» Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: .Matthlas" eftir Barbro Lindgren. Sigrlöur Sigurö- ardóttir les þýöingu slna (5). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 1000 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir. Forustugreinar dag- blaðanna (útdr ). Tónleikar. 1005 .Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Her- mundarfelli sér um (Dáttinn. RÚVAK. 11.15 Morguntónleikar Tónlist eftir Vaughan-Willi- ams, Gershwin og Smetana. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12J0 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 14.00 ,Lamb“ eftir Bernard MacLaverfy. Erlingur E. Hall- dórsson les þýöingu slna (3). 14J0 Miðdegistónleikar a. Þáttur úr Ungverskum konsert op. 11 eftir Joseph Joachim. Aaron Rosand leikur á fiölu meö Útvarps- hljómsveitinni I Lúxembúrg; Siegfried Köhler stjórnar. b. Sellókonsert I Ddúr op. 101 eftir Joseph Haydn. Em- anuei Feuermann leikur meó Sinfónluhljómsveit Lundúna; Malcolm Sargent stjórnar. 15.15 Létt lög 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 164)0 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 A sautjándu stundu Umsjón: Sigrlöur Ö. Har- aldsdóttir og Þorsteinn J. Vilhjálmsson. 17.00 Fréttir á ensku 174)5 Barnaútvarpið Stjórnandi: Ragnheiður Gyöa Jónsdóttir. 17 J5 Frá A til B Létt spjall um umferöarmál. Umsjón: Björn M. Björgvins- son. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19JZ5 Ævinfýri Berta (Huberts sagor) 4. þáttur Sænskur teiknimyndaflokk- ur. Þýöandi Jóhanna Þráins- dóttir. (Nordvision — Sænska sjón- varpiö) 19J0 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Rokkhátið I Montreux Fyrri hluti Meðal þeirra sem koma fram eru Elton John, Millie Jack- son, Paul Young, Men at 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til- kynningar. Daglegt mál. Valdimar Gunnarsson ffytur þáttlnn. 19.55 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.35 Kvöldvaka a. Þilskipaútgerð á Norður- landi (1). Jón frá Pálmholti tekur saman og flytur fyrsta þátt af sjö. b. Ljóö af lausum blööum. Sigrlður Schiöth les Ijóö eftir Armann Dalmannsson á Ak- ureyri. c. Hleypt heimdraganum — Bogi I Gljúfraborg segir frá. Auðunn Bragi Sveinsson tekur saman og flytur. Um- sjón: Helga Agústsdóttir. 21.25 Frá tónskáldum Work, Frankie Goes to Hollywood, Depeche Mode, Huey Lewis, Tears for Fears og Duran Duran. Seinni hluti tónleikanna verður á dagskrá siöar. 21M Heldri manna Iff (Aristocrats) Annar þáttur Breskur heimildarmynda- flokkur I sex þáttum um aö- alsmenn I Evrópu. Að þessu sinni er hertoginn af West- minster sóttur heim. Þýðandi Þorsteinn Helga- son. .Largo y Largo" ettir Leif Þórarinsson. 22.00 Hestar Þáttur um hestamennsku I umsjá Ernu Arnardóttur. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Ur blöndukútnum — Sverrir Páll Erlendsson. RÚVAK. 23.15 Frá tónleikum Kreisler- strengjasveitarinnar ( Bú- staðakirkju 10. aprfl I vor. Stjórnandi: Michael Thomas. Einleikari: lan Belton. a. Tilbrigði ettir Benjamin Britten um stef eftir Frank Bridge. b. Fiðlukonsert I a-moll eftir Johann Sebastian Bach. c. Strengjaserenaða I E-dúr op. 44 eftir Antonln Dvorák. 22.35 Heim til Marseille (Retour á Marseille) Frönsk blómynd frá árinu 1980. Leikstjóri: René Allio. Aöalhlutverk: Raf Vallone og Andrea Ferreol. Michel snýr aftur til heim- kynna sinna I Marseille eftir langa fjarveru. Bifreiö hans er stoliö og berast böndin aö ungum frænda hans sem er I slagtogi viö vafasaman flokk atvinnulausra unglinga. Þýöandi Ragna Ragnars. 23M Fréttir I dagskrárlok d. Adagio eftir Samuel Barber. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. 104)0—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Asgeir Tómas- son og Páll Þorsteinsson. 14.00—16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdls Gunnars- dóttir. 16.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Ólafsson. Þriggja mlnútna fréttir sagö- ar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00. Hlé 20.00—21.00 Lög og lausnlr Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnandi: Adolf H. Emils- son. 21.00—22.00 Bðgur Stjórnandi: Andrea Jórts- dóttir. 224)0—23.00 A svörtu nótun- um Stýirnandi: Pétur Steinn Guðmundsson. 234)0—03.00 Næturvaktin Stjórnendur: Vignir Sveins- son og Þorgeir Astvaldsson. (Ftásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1.) Atli Heimir Sveinsson kynnir SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 9. ágúst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.