Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 Endurskoðun Coopers og Lybrand: Súrálsverð lækk- að um 19 milljónir ENDURSKOÐENDAFYRIRTÆKIÐ Coopers og Lybrand, hefur komist að þeirri niðurstöðu að endurmeU beri verðlagningu á súráli, sem íslenska álfélagið notaði til framleiðslu sinnar á árinu 1984, að því leyti sem súrálið stafaði af innkaupum frá árinu áður. Leiðréttingin nemur um 19 milljónum króna og verður sam- kvæmt því hagnaður af rekstri ÍSAL árið 1984 um 600 þúsund krónur, ef miðað er við reglur að- alsamnings um framtal tekna til framleiðslugjalda. Þesi niður- staða hefur ekki áhrif til hækk- unar á framleiðslugjaldi ÍSAL fyrir árið 1984, þar sem hagnaður félagsins er mun lægri en fasta- gjaldið sem það hefur greitt. - Framleiðslugjald ÍSAL á sið- asta ári sem það greiddi án tillits Hólaskóli með sérfræðing í skógrækt HÓLASKÓLI befur ráðið til starfa sérfræðing f skógrækt, Þorberg Hjalta Jónsson, sem nýlega lauk námi í skógrækt við Háskólann í Ab- erdeen í Skotlandi. /Etlunin er að tengja skógræktina búnaðarnámi í auknum mæli. Sigurður Sigurðsson, skólastjóri Hólaskóla og síðar búnaðarmála- stjóri, hóf skipulega trjáplöntun i landi Hóla um 1910 og rak litla gróðrarstöð á staðnum. Síðan þá hefur trjám verið plantað reglu- lega á Hólum og eftir 1950 hefur þar verið aðalplöntunarsvæði Skógræktarfélags Skagfirðinga. Er þar nú kominn skógur i vexti á um 100 hektara svæði. til taps var rúm 51 milljón króna. Samkomulag ríkisstjórnarinn- ar og Alusuisse frá því í vor, þar sem samið var um viðmiðunar- reglur við verðlagningu á afurð- um og aðföngum ÍSAL eiga að koma í veg fyrir að ágreiningur varðandi þessi atriði komi upp. Morgunblaðið bar þessa frétt undir Eyjólf K. Sigurjónsson, endurskoðanda fslenzka álfélags- ins hf. Hann sagði, að þessi leið- rétting félagsins væru leyfar deilumálsins, sem leyst var í vet- ur, þar var m.a. deilt um hvernig meta bæri birgðir súráls frá ár- inu 1983. Áhrif gamla matsins á súrálsbirgðum fluttust í reikn- ingum félagsins yfir á árið 1984. Við þessa leiðréttingu eru þar með áhrif allra deilumála úr sög- unni, enda skilaði brezka endur- skoðendafyrirtækið mjög já- kvæðri umsögn um árið 1984, sagði Guðjón. Villa í fyrirsögn MEINLEG villa slæddist inn í fyrir- •sögn á baksíöu blaðsins í gær, þar sem greint var frá fundi sem æöstu ráöamenn íslands um iðnaðarmál áttu með háttsettum fulltrúum Alu- snisse í SvLss. Eins og ráða mátti af fréttinni átti að standa í fyrirsögninni: „Hugmyndir um 40 þús. tonna aukningu ræddar“, í stað „4 þús. tonna“. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Frá upptökum í Hallgrímskirkju. Morgunbiaðift/Júlíus Jólastemmning að sumarlagi ÞAÐ VAR ÓVENJU hljótt i Skólæ Nokkurn tíma tók að finna út hvers Hallgrímskirkju sló ekki. En klukkuslátturinn eða réttara sagt það að hann heyrðist ekki átti sínar skýringar. Um þessar mund- ir fara fram upptökur á plötu f messuhúsi Hallgrimskirkju og er áætlað að hún komi út um jóla- leytið. Á plötunni flytja Kristinn Sig- mundsson óperusöngvari, Mót- ettukór Hallgrímskirkju og hljóm- sveit jólalög frá Þýskalandi, Eng- landi, Danmörku og síðast en ekki sist íslandi. Að sögn Harðar Áskelssonar stjórnanda eru hér á ferðinni þekkt verk sem íslendingar kann- ast vel við en hafa ekki áður komið út á hljómplötu. Mætti nefna bresku jólalögin „Hark the Her- ald“ og „O, come all ye faithful“ i íslenskri þýðingu Trausta Þórs Sverrissonar. Sigurbjörn Einars- son biskup hefur endurbætt röröuholtinu siðastliðið rdstudagskvöld. vegna en loks rann upp Ijós. Klukkan í nokkra af eldri íslenskum textum og Atli Heimir Sveinsson útsett einstaka raddir og hljóðfæri i verkunum. Eflaust finnst einhverjum að verið sé að bera í bakkafullan læk- inn að sinna jólaplötu þegar sumarið hefur ekki kvatt og stuttbuxur og strigaskór enn full- gildur fatnaður, en plötugerð tek- ur lengri tima en svo að henni verði hespað af á nokkrum dögum. það er ekki nóg að kirkjuklukk- ur Hallgrimskirkju hljóðni meðan á upptðku stendur sem fer fram „digital“ eða stafrænt. Bókaútgáf- an Örn og örlygur sem sér um útgáfu plötunnar fór þess á leit við yfirvöld að götum yrði lokað i kringum kirkjuna og flugumferð yrði beint frá henni meðan á upp- tðkum stæði. Tók Iðgreglan beiðn- inni vel og voru félagar úr Flug- björgunarsveit Reykjavíkur fengnir til aðstoðar. Að sögn upptökustjórans eru allar þessar ráðstafanir ekki að ástæðulausu. Upptökutækin eru geysinæm og flugvéladrunur og bílaumferð heyrast greinilega i gegnum sönginn sem varla eykur jólastemmninguna. „Þetta á að vera fallegt en ekki of sætt,“ heyrist frá messuhúsinu þar sem snúrur, hljóðnemar og sterk Ijós minna Iftið á jóla- stemmninguna. Hér er á ferðinni Kristinn Sigmundsson söngvari sem flestir landsmenn ættu að kannast við. Reyndar er hann ný- kominn til landsins eftir sumar- dvöl i Washington í 35 stiga hita og dálítið rámur vegna hitabreyt- ingarinnar. „Hingað til hefur upp- takan gengið mjög vel. Við erum búin að taka upp fjórar mfnútur á þremur tímum sem er vel af sér vikið og hér innan dyra er jóla- skapið haft í hávegum þótt sumar- blíða ríki utan húss.“ Braut ómengaðrar peninga- hyggju er nógu langt gengin — segir Björn Þórhallsson, fyrsti varaforseti ASÍ, um þau ummæli Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstædisflokksins, að peningakerfi landsins sé vanþróað og staðnað ÞORSTTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í raeðu á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna, að pen- ingakerfi þjóðarinnar væri staðnað og vanþróað og væri ein- staklingum og atvinnuvegunum andsnúið. Vegna þessara ummæla Þorsteins leitaði Morgunblaðið álits fjögurra full- trúa banka atvinnulífs og alþýðu og fer það hér á eftir: „Ég tel að þegar hafi verið gengið nógu langt á braut ómengaðrar peningahyggju. Mér sýnist Þorsteinn vera að boða enn lengri göngu á þessari braut, og ég tel okkur vera of langt komna á henni. Sú hávaxta- stefna, sem verið hefur hér við lýði undanfarin misseri, er helzta orsök vandræða einstakl- inga og fyrirtækja,” sagði Björn Þórhallsson, fyrsti varaforseti Alþýðusambands íslands. „Ég tel töluvert vera rétt í þeirri fullyrðingu Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæð- isflokksins, að peningakerfi landsins sé vanþróað og staðnað, enda höfum við mátt sætta okkur við skömmtunarkerfi á þessum vettvangi í mörg ár, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Peningakerfið hefur skroppið saman og rýrnað. Ríkisstjórn og Alþingi hvers tíma hefur ráðið þessu og mótaö. Þorsteinn er þó aö segja, að núverandi ríkis- stjórn hafi gert ákveðna hluti til að breyta þessu, en nógu mikið hefur enn ekki verið að gert. Ég held að það sé enginn vafi á því, að íslenzka peningakerfið sé það skroppið saman, að íslenzkt at- vinnulíf á í hinum mestu erfið- leikum með að fjámagna sig í því. Peningarnir hafa einfald- lega rýrnað og óðaverðbólgan á síðasta áratug hefur valdið því að peningakerfið I dag er ekki nógu burðugt til að fjármagna íslenzkt atvinnulíf. Það er engin einföld lausn á þessum málum nema að sparnaður aukist aftur í þjóðfélaginu. Það er höfuðlausn- in. Þó er kannski eitt til ráða og það er að þessi ríkisstjórn, eins og undanfarnar ríkisstjórnir, er mjög frek til fjárins á innlend- um peningamarkaði. Ríkis- stjórnirnar eru í samkeppni við atvinnulífið, þær yfirbjóða það I vöxtum í krafti þess, að stjórn- málamenn þurfa ekki að standa persónulega reikningsskil gerða sinna og það er annar hluti vandans. Stjórnvöld vilja pen- ingana hvað sem það kostar og hrifsa þá frá atvinnulífinu. Þvi verður að Ijúka. Það gengur ekki að halda áfram að telja fólki trú um það, að við getum lifað á þvi að taka lán, hvort sem það er innanlands eða i útlöndum," sagði Víglundur Þorsteinsson, formaður félags íslenzkra iðn- rekenda. „Mér finnst peningakerfi þjóð- arinnar illa á vegi statt, en ég held að hin langvarandi verð- bólga, sem við höfum búið við, sé kannski undirrót þess. Menn hafa anzi mikið gert út á hana. Ég held að við höfum ekki verið búin að ná okkur niður á eðli- legan grundvöll, þegar vextir voru gefnir frjálsir á síðasta ári og það hefur aðeins leitt af sér vaxtahækkun, sem hefur verið þungbær fyrir atvinnulífið. Menn hafa nú verið að leita ráða, en vandinn er að atvinnulff okkar er mjög illa statt, meira að segja er ástandið þannig að þegar verið er að fitja upp á nýj- um atvinnugreinum til að renna stoðum undir atvinnulífið er bankakerfið lokað. Vilji menn síðan leita á erlendan peninga- markað, er sú útgönguleið I mörgun tilfellum lfka lokuð. Þessi staða er því mjög alvarleg. Atvinnuvegirnar hafa ekki feng- ið að byggja upp nauðsynlegt eigið fjármagn og það er satt að segja nöturlegt að höfuðatvinnu- vegur þjóðarinnar, sjávarútveg- ur og fiskvinnsla, skuli vera eins illa staddur og raun ber vitni. Fjármálakerfi þjóðarinnar er þannig á vegi statt núna, að það verður að finna einhverjar leiðir til þess, að þeir aðilar, sem vilja byggja upp atvinnurekstur og geta gert það án þess að leita til opinberra aðilja, fái að leita á hinn alþjóðlega peningamarkað eins og gengur og gerist meðal annarra þjóða. Við erum í úlf- akreppu og það er margt, sem hefur farið úr böndunum. Það skýtur skökku við að vera að tala um frjálsræði, þegar bannað er að fara á alþjóðlega peninga- markaði til að fjármagna fyrir- tæki á sviði gjaldeyrisöflunar,“ sagði Erlendur Einarsson, for- stjóri Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga og formaður banka- ráðs Samvinnubankans „Ég er sammála Þorsteini Pálssyni hvað snertir peninga- málin. Sé litið á fortfðina, er það ekki bara þetta miðstýrða kerfi, sem við lýði hefur verið öll þessi ár, sem á sökina, heldur Ifka efnahagsstefnan. Bankarnir eru ekkert einangrað fyrirbrigði, að- eins þjónustuþáttur f stóru efna- hagskerfi og lúta þeim lögmál- um, sem stjórnvöld ákveða hverju sinni. Ég held lfka að verðbólguþátturinn sé mjög veigamikill. Þorsteinn horfir fram á veginn og þetta tekur allt sinn tíma. Ég held að við sjáum nokkrar breytingar til batnaðar á næstu tveimur til þremur ár- um, takist að halda verðbólgunni niðri. Um næstu áramót taka gildi ný lög um bankana og það tekur sinn tfma að þau hafi áhrif. Til marks um stöðu bank- anna má nefna, að við lýði er skömmtun á útibúum, sem er enginn forsenda eðlilegs rekstr- ar. Þar verða markaðslögmálin að ráða,“ sagði Sverrir Norland, formaður bankaráös Verzlun- arbankans. Kvikmyndasjóður: „Eins og skepnan deyr“ fær 1,9 milljónir í viöbót LoftmawUrfirftL 30. ágisL Frá blaftamanni MorKunbUftHÍnn Vilborgn Eiurndftttur. ÞAÐ var hamingjusamur hópur sem vann að kvikmyndatökum hér í Loðmundarfírði í dag. Bæði var veð- ■r gott, í fyrsta sinn síðan tökur hóf- ust íyrir 10 dögum, og síðan bárust þær fréttir að kvikmyndin „Eins og skepnan deyr... hefði hlotið 1,9 milljón krónur styrk fri Kvikmynda- sjóði, til viðbótar þeim 2 milljónum sem voru veittar fyrr i irinu. „Þegar það gerðist hoppaði ég hæð mína af gleði, en þessar fregnir eru svo stórkostlegar að ég veit vart hvað segja skal annað en stórt takk til þeirra sem sýna okkur og handritinu svo mikið traust. Það eykur enn okkar ábyrgð og vonandi stöndum við undir henni,“ sagði Hilmar Odds- son, leikstjóri og handritahöfund- ur. Eins og skepnan deyr er hans fyrsta mynd. Það er kvikmyndafyrirtækið Bíó hf. sem framleiðir myndina og hljóðar kostnaðaráætlun uppá rúmar sjö milljónir króna. Aðal- leikarar eru þau Edda Heiðrún Backman og Kristinn J. Gunn- arsson, en auk þeirra fer Jóhann Sigurjónsson með veigamikið hlutverk. Kvikmyndatökumaður er Sigurður Sverrir Pálsson og aðstoðarleikstjóri Þorgeir Gunn- arsson. Alls vinna 12 manns við kvikmyndatökuna hér í Loðmund- arfirði en þeim lýkur síðast í sept- ember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.