Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 30

Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 Innbrot í leit að eiturlyfjum f lyfjakistum skipa: „Engin eiturlyf lengur í lyfjakistum skipa“ —segir siglinga- málastjóri BROTIST var inn í Gúmmí- bátaþjónustuna i Örfirisey nótt eina í vikunni, í annað skiptið á nokkrum vikum, en auðsætt var á ölium verksum- merkjum að verið var að leita að opíum í lyfjakistum gúmmíbjörgunarbáta. Það eru hins vegar um þrjú ár liðin síðan hætt var að hafa opíum í lyfjakistum björgun- arbáta og lyfjakistum skipa og hafðist því ekkert upp úr krafsinu í innbrotinu. Innbrotsþjófurinn fór í fjórar lyfjakistur sem stóðu óinnpakk- aðar, gramsaði i þeim en tók ekkert úr þeim. Hins vegar var hurð í húsinu eyðilögð. í inn- brotinu fyrir nokkrum vikum var aftur á móti einn gúmmíbjörgun- Ein lyfjakistan sem faríð var í, ea eafin eitarlyf ern (lyfjakistam í skipum. 30Z afsláttur Við veitum 30% afslátt af barnamyndatök- um með 12 prufumyndum og 2 13 x 18 cm stækkunum. Ath.gildir til 15.september Pantið tíma strax. bama&fjölskyldu- Ijósmyndir Austurstræti 6, sími 12644. Bergþóra og Graham Smith rugla saman reitum sínum Hljómplötur Sigurður Sverrisson Bergþóra Árnadóttir og Graham Smith Það vorar Þor Bergþóra Árnadóttir hefur vaxið mjög ört á síðustu árum, ekki aðeins sem söngvari heldur og sem laga- og textasmiður. Þessi tilraun hennar nú á plöt- unni Það vorar með Graham Smith er mér hins vegar ekki alls kostar að skapi á köflum. Svo ólíkir tónlistarmenn eru þau tvö aö samkrull þeirra gæti aldr- ei orðið annað mislitur blending- ur. Svo er og raunin. Lögin á plötunni eru 10 talsins og á Bergþóra 6 þeirra. í það heila á litið finnst mér lögin hennar miklu betri og lög Gra- hams á fyrri hliðinni eru ekki aðeins tormelt heldur i mínum eyrum síbylja einfalds stefs sem er ofnotað. Lögin hans á B-hlið- inni eru hins vegar miklu áheyri- legri. Það hlýtur alltaf að vera tvf- eggjaö fyrir tónlistarmann eins og Bergþóru aö klæða lög sín i búning eins og þann sem er að heyra á þessari plötu. Ekki að- eins eru útsetningar mjög breytt- ar frá fyrri plötum hennar held- ur er hljóðfæraskipan allt önnur. Mér finnst lög Bergþóru ekki samin fyrir þessa meðferð. Þegar rennt er yfir plötuna nokkrum sinnum verður það ennfremur Ijósara með hverri hlustun að eðlilegra hefði verið að aðskilja lög þeirra Bergþóru og Grahams, þ.e. hafa t.d. lög hennar öll á sömu hlið. Langsamlega besta lag plöt- unnar er hið gullfallega Lffs- bókin, þar sem eðli laga Bergþóru kemur hvað skýrast fram. Ein- falt, blátt áfram og hrifandi. Heildaryfirbragð plötunnar er aftur á móti fremur ruglingslegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.