Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 33

Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 33 Kanada- menn með kynlífs- vanda Myndbönd Árni Þórarinsson Kanadamenn hafa síðustu árin verið drjúgir í gerð ansi straum- línulagaðra spennumynda af ýmsum sortum. Fremstur í flokki hefur verið leikstjórinn og hand- ritahöfundurinn David Cronen- berg með sína skrýtnu blöndu af skrímslamyndum, vísinda- skáldskap, þjóðfélagskrítík og sálarfræði. Aðrir leikstjórar hafa haldið sig innan viðtekinna hefða hins sálfræðilega þrillers eða sakamálamyndarinnar. Á myndbandaleigunum má finna töluvert gott úrval af þessum kanadísku myndum sem þrátt fyrir misjöfn gæði eru ávallt áhugaverðari vegna frísklegs handbragðs og öðruvísi umhverf- islýsingar en fæst í sams konar myndum Bandaríkjamanna. Tveir sálfræðilegir þrillerar sem báðir fást við voveiflega atburði tengda afbrigðilegu eða háskalega djörfu kynlífi skulu nefndir hér. Þetta eru annars vegar The Surrogate, gerð 1984, og hins vegar Cross Country, gerð 1983. Sú fyrrnefnda segir frá ófullnægðu hjónalífi stressaðs bílasala og eiginkonu hans, sem Art Hindle og Shannon Tweed túlka með ágætum. Leikstjórinn Don Carmody sem einnig skrifar handritið við annan mann tengir þennan kynlífsvanda með fremur óljósum hætti dularfullum morð- um sem framin eru á götum úti. Ekki gengur sú tenging upp frek- ar en annað í þessari spennu- mynd sem þjáist af vanhugsuðu og kjánalegu handriti, en heldur þó athygli lengst af. Miklu meira púður er í Cross Country sem Paul Lynch leikstýrir einkar snöfurmannlega. Þar er í mið- punkti annar kanadiskur bissn- issmaður sem er tæpur á taug- inni vegna flókins ástarlífs. Hann stekkur á brott þegar ást- kona hans er myrt og böndin berast að honum sjálfum. Hann heldur af stað út á þjóðvegina áleiðis suður yfir landamærin en flýr hvorki þrúgandi fortíð sína né þær uppákomur og fólk sem mæta Ronum á leiðinni. Þetta er virkilega krassandi þriller á köflum og Richard Beymer, sem varð unglingastjarna fyrir mörg- um árum í Hollywood, gerir örvæntingu og innri spennu aðalpersónunnar nánast áþreif- anlega með leik sínum. Þess má geta að í báðum þessum myndum leikur sá magnaði skapgerðar- leikari Michael Ironside (Scann- ers, Visiting Hours) rannsóknar- lögreglumann sem fæst við við- komandi morðmál, en fær því miður ekki úr nógu að moða. Stjörnugjöfín: The Surrogate *Vi Cross Country **'A Tilraunir meö mótefni gegn ónæmistæringu á næstu grösum San Antonio, Texas, 30. ágúsL AP. VÍSINDAMENN við líftæknistofnun suðvesturríkjanna segjast reiðubúnir að hefja tilraunir á kanínum og músum með mótefni við ónæmistær- ingu (AIDS). Vonast þeir til að hefja tilraunir á öpum innan skamms. Vísindamennirnir hafa fram- leitt tvö prótein, svokölluð peptíð, sem er að finna á yfirborði veir- unnar, sem veldur ónæmistær- ingu. Eru próteinin svipuð að gerð og veiran sjálf og vonast vísinda- mennirnir eftir að þau valdi því að líkaminn framleiði mótefni gegn veirunni, sem veldur ónæm- istæringu. Tilboðsverð á IMordmende IMú getur þú eignast sjónvarp eða myndbandstæki með aðeins 8.000 króna útborgun. Eftirstöðvar greiðast á átta mánuðum Staðgreitt kostar myndbandstækið aðeins kr. 43.980 Sjónvörpin eru til í mörgum stærðum og fást einnig á sérlega hagstæðu staðgreiðsluverði. Notaðu tækifærið og tryggðu þér nýtt Nordmende á góðum kjörum. NORDMENDE SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.