Morgunblaðið - 11.09.1985, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11, SEPTEMBER 1985
Gengið
London, 10. sept. AP.
DOLLARINN lækkaöi nokkuð gagn-
vart helstu gjaldmiðlum í dag nema
kanadíska dollaranum. Er ástæðan
sögð sú, að menn halda að sér hönd-
um og bíða eftir nýjum hagtölum í
Bandaríkjunum síðar í vikunni.
í Tókýó fengust í kvöld 243 jen
fyrir dollarann en 242,95 1 gær-
kvöldi en í kauphöllinni í London
féll dollarinn hins vegar aftur í
það, sem var í gær. Fyrir pundið
fást nú 1,3150 dollarar en 1,3062 í
gær. Fyrir dollarinn fást nú:
2,9420 vestur-þýsk mörk (2,9450),
2,4262 svissneskir frankar (2,4290),
8,9650 franskir frankar (9,0545),
3,3020 hollensk gyllini (3,3040),
1.956,00 ítalskar lirur (1,957.75) og
1,3719 kanadískir dollarar (1,3710).
Gullverðið var stöðugt í dag og
fengust fyrir únsuna í kvöld 321,75
dollarar en 320,50 í gær.
Veður
víða um heim
Lagtt Haset
Akureyri 10 tkýieO
Amiterdwn vantar
Aþena 1« 30 heiðskírt
Barcetona 25 ekýjaO
Berftn 10 17 •kýjaó
BrOstet • 20 heióskirt
Chicago 17 30 •kýjaó
Oubttn S 20 heióskirt
Feneyjer 20 heióskfrt
Frenkfurt 2 17 •kýjeó
Genf 7 22 skýjaó
n-l-l-i.: i HJIhlHM 8 11 skýjaó
Honfl Kong 25 2« rigning
Jerúsetem 1« 26 heióskfrl
Keupmanneh. 10 15 akýjaó
Laa Patmea vantar
Ltseebon 10 27 haiðskirt
London 13 24 heióakirt
Loe Angefes 16 24 rigning
Lúxemborg 15 hsióskfrt
25 heíóskfrt
Mattorce 29 Mttskýjað
Miemj 26 30 skýjaó
Monfreal 13 20 rignlng
Moskvs 8 14 •kýjsO
New York 18 24 skýjaó
Osló « 17 akýjaO
■k- rarw 15 21 heióskírt
Peking 15 23 skýjaó
Reykiavik 11 skýjaó
Rtó de Janeiro 1« 27 hsióskfrt
Rómaborg 17 30 haióskírt
Stokkhólmur vantar
Sidney 12 22 rignfng
Tókýó 24 30 hetóskfrt
Vinerborg 10 12 •kyjað
bórshöfn vsntar
H
öföar til
fólks í öllum
starfsgreinum!
Sælkeraofninn
er alveg ótrú”
lega fjölhæfur
Verö aöeins
kr. 3.490.-
Ármúla 1a,
s. 686117.
Kosningaúrslitin í Noregi
Stjórnin situr áfram með
stuðningi Framfaraflokks
Ósln 10. sumf Rit7Jtn.
Osló, 10. sept. Ritzau.
Stjórnarflokkarnir héldu velli í
kosningunum í Noregi í gær og
Káre Willoch verður áfram forsæt-
isráðherra. Um stund virtist raunar
allt útlit fyrir að til stjórnarskipta
kæmi, en af því verður sem sagt
ekki. Ríkisstjórnin verður hins
vegar að reiða sig á stuðning Fram-
faraflokksins.
Verkamannaflokkurinn og for-
maður hans, Gro Harlem
Brundtland, eru óumdeilanlegir
sigurvegarar kosninganna, en
fylgisaukning stjórnarandstöð-
unnar hrökk þó ekki til að velta
stjórninni úr sessi. Stjórnar-
flokkarnir þrír, Hægriflokkur-
inn, Kristilegi þjóðarflokkurinn
og Miðflokkurinn, fengu saman
78 þingmenn en stjórnarand-
staðan, Verkamannaflokkurinn
og Sósíalíski vinstriflokkurinn
77. Þá eru eftir tveir, sem komu
í hlut Framfaraflokksins, og upp
á náð og miskunn þeirra er
stjórnin komin.
í útvarps- og sjónvarpsþætti
strax eftir að úrslitin lágu fyrir
tók Willoch það skýrt fram, að
ekki yrði orðið við ósk Fram-
faraflokksins um viðræður við
stjórnarflokkana. Carl Hagen,
formaður Framfaraflokksins,
hefur hins vegar lýst því yfir, að
flokkurinn muni ekki verða til
að fella stjórnina.
Hægriflokkurinn tapaði mestu
einstakra flokka í kosningunum
eða 1,6% miðað við þingkosning-
arnar árið 1981 og þremur þing-
mönnum. Ef miðað er aftur á
móti við sveitarstjórnarkosning-
arnar árið 1983 bætti flokkurinn
viðsig3,8% atkvæða.
Aldrei
fleiri
konur
Ósló, 10. sept. Ritzau.
STAÐA kvenna á norska stór-
þinginu styrktist mjög í kosningun-
um í gær, mánudag. Eru þær nú
54 af 157 þingmönnum en voru
áður41.
Konur skipa nú 34,4% þing-
sætanna eða rúman þriðjung, en
nefna má til samanburðar að í
sænska þinginu, Ríkisdeginum,
eru þær 27,5% og um 25% í
Danmörku og Finnlandi. Á það
ekki minnstan þátt í þessari sókn
norsku kvennanna að Verka-
mannaflokkurinn ákvað að setja
kvóta á frambjóðendur flokksins,
þannig að konur skyldu skipa
a.m.k. 40% sætanna. Þingkonum
fyrir alla aðra flokka en Fram-
faraflokkinn fjölgaði einnig.
í herbúðum tveggja flokka ríkti fögnuður með kosningaúrslitin, hjá Verkamannaflokknum og Sósíalíska
vinstriflokknum. Hér er Hanna Kvannmo, formaður SV, (I.t.v.), ásamt öðrum foringjum flokksins, Kristin
Halvorsen og Theo Koritzinsky, og liggur augljóslega vel á þeim.
Viðbrögðin á Norðurlöndum:
Ólíkt mat á
úrslitunum
Kaupmannahöfn og Helainki, 10. sepL Ritzau
VIÐBRÖGÐIN við kosningaúrslit-
unum í Noregi eru ekki öll með
sama hætti á Norðurlöndum eins
og við er að búast. Jafnaðarmenn
fagna þeim og telja, að aftur sé
farið að falla frá í sókn hægri-
manna en talsmenn borgaraflokk-
anna eru ekki á sama máli í því.
Segja þeir, að þegar á allt sé litið
og einkum kosningabaráttuna
sjálfa, megi norsku borgaraflokk-
arnir vel við una.
„Ef við höfum í huga kosninga-
baráttuna í Noregi má stjórnin
una vel við sinn hlut,“ sagði Palle
Simonsen, fjármálaráðherra
dönsku stjórnarinnar og starf-
andi forsætisráðherra í fjarveru
Schluters. „Þegar tekið er tillit
til þess, að norski Verkamanna-
flokkurinn nýtti sér efnahags-
lega viðreisn í landinu til stór-
kostlegra yfirboða, er ekki hægt
að segja annað en að úrslitin
hafi verið góð.“
Formenn tveggja stærstu
flokkanna í Finnlandi, Jafnaðar-
manna og Hægriflokksins, voru
ekki alveg sammála um hvernig
túlka bæri niðurstöðurnar. Liik-
anen, formaður jafnaðarmanna,
sagði, að úrslitin sýndu, að
hægrisveiflunni væri lokið og
benti í því sambandi á kosninga-
úrslit í einstökum kjördæmum i
Vestur-Þýskalandi og Bretlandi.
Seppo Isotalo, leiðtogi Hægri-
flokksins, sagði, að stjórnar-
flokkar ættu jafnan heldur undir
högg að sækja og því mætti
norska ríkisstjórnin vel við una.
Auk þess væri í raun að myndast
í Noregi tveggja flokka kerfi og
við þær aðstæður hefði stjórnar-
andstöðuflokkurinn allt að vinna
við kosningar.
Lokatölur úr kosningunum
Hér á eftir fara lokaúrslit (
þingkosningunum i Flokkur Noregi: atkv. % +/♦'81 +/+’83
A 1.055.508 40,8 30,4 +3,6 +1,9
H 785.870 +1,3 +4,0
KRF 214.2&1 8,3 +1,1 -0,5
SP 169.963 6,6 +0,1 +0,6
SV 140.583 5,4 +0,5 +0,1
FRP 96.158 3,7 +0,8 +2,6
V 80.583 3,1 +0,8 +1,3
RV 14.673 0,6 +0,1 +0,6
DLF 12.867 0,5 0,0 +0,2
NKP 4.201 0,2 +0,1 +0,2
Aðrir 9.907 0,4 +0.3 +0.1
Skammstafanirnar standa fyrir þessa flokka: A er Verka-
mannflokkurinn, H Hægriflokkurinn, KRF Kristilegi þjóðar-
flokkurinn, SP Miðflokkurinn, SV Sósialíski vinstriflokkurinn,
FRP Framfaraflokkurinn, V Vinstriflokkurinn, RV Rauða
kosningabandalagið (marxistarnir/leninistarnir), DLF Frjáls-
lyndi þjóðarflokkurinn (borgaraflokkur, áður hluti af Vinstri-
flokknum) og NKP er Norski kommúnistaflokkurinn.
Plús eða mínus ’81 á við þingkosningarnar þá en plús eða
minus ’83 á við sveitarstjórnarkosningarnar fyrir tveimur ár-
um.
Elsti flokkurinn
horfinn af bingi
Ósló, lO.sept. Ritzau.
ÞINGKOSNINGARNAR í Noregi
voru míkíll harmleikur fyrir
Vinstriflokkinn, elsta stjórnmála-
flokkinn í landinu, sem fyrir 101
ári kom á þingræði í Noregi og
takmarkaði völd konungsins. Nú á
hann engan fulltrúa á norska stór-
þinginu.
Vinstriflokkurinn átti fyrir
kosningarnar tvo þingmenn en
þegar komið var á kjörstað að
þessu sinni ákváðu 20% af fyrri
kjósendum hans að leggja öðrum
flokkum lið. Virðist það einkum
hafa verið Verkamannaflokkur-
inn, Miðflokkurinn og Sósíalíski
vinstriflokkurinn sem högnuðust
á þessum sinnaskiptum.
Vinstriflokkurinn hefur átt
menn á þingi allt frá árinu 1884
og hefur komið mikið við norska
stjórnmálasögu. Á millistríðsár-
unum tók Verkamannaflokkur-
inn við þvi hlutverki Vinstri-
flokksins að vera helsti and-
stæðingur Hægriflokksins, en
eftir sem áður voru ítök hans
nokkuð mikil. Ágreiningur, sem
kom upp í flokknum um aðildina
að Efnahagsbandalaginu, olli því
hins vegar, að flokkurinn klofn-
aði árið 1972 og hefur síðan ekki
borið sitt barr.
Á síðustu árum hefur Vinstri-
flokkurinn reynt að hasla sér
völl sem umhverfisverndarflokk-
ur en það virðist engan árangur
hafa borið. Það sem gerði svo
útslagið, var sú yfirlýsing flokks-
forystunnar að hún myndi styðja
hugsanlega stjórn jafnaðar-
manna eftir kosningar. Fannst
þá mörgum kjósendum flokksins
tími til kominn að styðja þá
heldur Verkamannaflokkinn
heilshugar eða einhvern annan
flokk.