Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.09.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985 fclk í fréttum v; FYRIRSPURN BAR ÁRANGUR Mynd af braki togarans „Grimsby Townu fundin IMorgunblaðinu 30. ágúst sl. birtist á síðum þessum bréf frá enskum manni að nafni Lond þar sem hann biður okkur að aðstoða sig við að finna einhvern sem á mynd af braki breska togarans „Grimsby Town“ sem standaði hjá Hjörleifshöfða 23. apríl 1946. Faðir hans var einn af þeim er drukknuðu, þá aðeins 26 ára gamall. Lond hefur verið tjáð að brakið hafi verið sýnilegt í nokkur ár eftir atburðinn. Hann sagði ennfremur í bréfinu að hann hygðist heimsækja staðinn þar sem skipið sökk innan skamms. Nú hefur okkur borist mynd af skipinu „Grimsby Town“ á strandstað og birtum hana hér með. Myndina tók Gunnar Fred- riksen. „Grimsby Town" var að veið- um þegar það strandaði og skip- verjar því við vinnu á þilfari. Brotsjóarnir sem gengu yfir skipið tóku fimm menn fyrir borð og var tveimur þeirra bjarg- að en hinir drukknuðu, þar á meðal faðir bréfritara. Björgun- arsveit SVFÍ úr Vík í Mýrdal bjargaði 15 manns til lands og flutti þá til Víkur. En sandurinn hélt togaranum. k°nid á rJ. m **« óei, ^ '?n t»r £**»« 'Wn,, •*m •kip/ð ÆjuE***-* C?- Breski togarinn Grimsby Town á strandstað við Hjörleifshöfða, þar sem hann strandaði árið 1946. Kennedy-fjöl- skyldan hrelld Sennilega eru fáir sem geta stát- að af jafnmiklum áhuga almenn- ings á persónuhögum sínum og Kennedy-bræður hinir amerísku og fjölskyldur þeirra. Um það bil 300 bækur hafa verið skrifaðar um fjölskyldu þessa, margar líklega í allt annað en góðum tilgangi. En þessu má líklega venjast eins og öðru og eru Kennedy-ar farnir að láta sér fátt um finnast. Nú er þó væntanlega enn ein bókin á markaðinn sem gæti reynst þeim skeinuhættari en margar aðrar. Þetta er „Saga Joan Kennedy" („The Joan Kennedy story“) sem trúnaðarvinkona hennar, Marcia Chellis, hefur skráð. Joan Kennedy var sem kunnugt er eiginkona Edwards Kennedy sem er bróðir þeirra Roberts og John en þeir féllu báðir fyrir morðingjanendi, John meðan hann gegndi embætti forseta Bandaríkj- anna. Robert var hins vegar ekki orðinn forseti þegar hann var myrtur en á góðri leið með að verða það. Edward hefur lengi dreymt um að verða forseti Bandaríkj- anna, og sóttist um tíma eftir útn- efningu Demókrataflokksins bandarísk. Þá dró hann sig reynd- ar í hlé, en til eru þeir sem enn telja að hann eigi eftir að hreppa þetta eftirsótta starf fyrr eða síð- ar. Joan verður tíðrætt um frama- girni eiginmannsins fyrrverandi í bókinni og það sem hún þyrfti að láta yfir sig ganga af þeim sökum, svo mannorði hans væri engin hætta búin. 1972 og 1976 ákvað Edward Kennedy að gefa ekki kost á sér sem forsetaefni demókrata. Það hefur þó að öllum líkindum ekki verið vegna þess að hann hefði ekki hug á starfanum heldur vegna þess að slys nokkurt sem hann hafði lent í nokkrum árum áður við Chappaquiddick-eyju hafði spillt fyrir honum, hann var grun- aður um að hafa sýnt heigulshátt og ekki getað brugðist karlmann- lega við aðstæðunum. Þannig var að með honum í bílnum var ung stúlka, sem drukknaði þegar Edward ók fram af brú. Sjálfum tókst honum að synda í land. Þegar Kennedy ákvað 1980 að gefa loks kost á sér var þetta ásamt mörgu öðru notað gegn honum í kosningabaráttunni. Hjónaband hans og Joans hafði og verið los- aralegt sem þykir ekki traustvekj- andi þar vestra. Hann þurfti því á konu sinni að halda til að styðja við bakið á sér og sanna fyrir þjóð- inni að þau væru hin hamingju- sömustu hjón. í bókinni segist Joan hálfpart- inn hafa neyðst til að hella sér útí þessa baráttu með honum. Hún segist ekki geta deilt með honum framadraumunum en samt verið tilneydd að hjálpa til. Joan Kennedy hafði átt við alkó- hólisma að stríða en þau hjón fullyrtu, þegar Edward barðist fyrir útnefningu demókrataflokks- ins, að hún hefði unnið bug á honum. Um það voru alltaf á lofti einhverjar efasemdir svo hún slapp ekki við það að öll hennar vandamál væru dregin fram í dagsljósið. Allt þetta segist hún nú eingöngu hafa gert vegna skyldurækni sinnar við eigin- manninn og væntumþykju, án þess að hafa hrifist með honum inn í kosningabaráttuna af eigin áhuga. Hún fann fyrir þörf hans og vildi þess vegna berjast með honum. Saga Joans Kennedy er séð frá allt öðru sjónarhorni en bækur ókunnugs fólks um Kennedy-fjöl- skylduna, og það verður mun erfið- ara fyrir hana að hafna staðhæf- ingum Joans. Þessvegna verður það enginn gleðidagur á þeim bæ á morgun, þegar bókin kemur út. Yoko selur úr búi Lennons Yoko Ono mun leyfa sölu á ýmsum smámunum úr eigu Johns Lennon innan skamms, svo sem veggspjöldum, dagatölum og minnisbókum. Segist Yoko gera þetta vegna þess að fjölmargir geri sér mat úr ýmsu dóti sem ranglega sé sagt vera úr búi Lenn- ons. Ekki ætti það að spilla fyrir ákvörðun Yoko að hún fær um 200 milljónir fyrir söluleyfið. Robert er „pabbi“ minn Margir sneru sér við á götu New York- borgar, Broadway, er hinn kunni leikari Robert Wagner kom þangað til að sjá kvikmynd- ina „Big River“ í fylgd ungrar stúlku, Natöshu. Natasha er 15 ára dóttir Natalie Wood og Rich- ard Gregson. Natalie giftist síðar Robert Wagner en drukknaði er þau hjónin voru í fríi fyrir nokkrum árum. Natasha ólst upp með dætrum Roberts frá fyrra hjónabandi og segist sjálf hafa valið hann sem „föður“ sinn eftir móðurmissinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.