Morgunblaðið - 11.09.1985, Page 56
HIBQOIRIHBMSKEDJU
KEILUSALUWIWW
OPIWW 1000-00.30
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1985
VERÐ I LAUSASOLU 35 KR.
Viðræður í Þorlákshöfn:
Aðgerðum frest-
að til föstudags
VIÐRÆÐUR um bónussamning fyrir liskvinnslufólk fóru fram í Þorláks-
höfn í gaer og að þeim loknum var ákveðið að fresta boðaðri bónusvinnu-
stöðvun á morgun til föstudags. Samkomulag varð á fundinum um nokkur
atriði nýs bónussamnings og hefur nýr fundur verið ákveðinn á fimmtudag.
Agreiningur er einkum um tvser kröfur, en samkomulag varð með aðilum um
að láta ekki uppskátt um efnisatriði viðræðnanna og sjá hver yrði niðurstaða
samningafundar VMSÍ og VSÍ sem fyrirhugaður er í dag.
„Það kom greinilega fram á
þessum fundi í dag að grundvöllur
er til að halda viðræðunum áfram
og því ákváðum við að fresta verk-
fallinu aftur,“ sagði Þórður
Ólafsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins, í samtali við Morgunblað-
ið. Hann sagði að vinnuveitendur í
Þorlákshöfn hefðu óskað eftir
þessum viðræðum á föstudaginn
og engin ástæða hefði verið til að
hafna því, en verkalýðsfélagið er í
samfloti með félögum í VMSÍ i
viðræðunum í Reykjavík, því sér-
samningur hefur ekki verið í gildi
um bónusmál í byggðarlaginu.
Drengur lenti
í drifskafti
dráttarvélar
TÓLF ára gamall drengur slasaðist
alvarlega þegar hann lenti í drif-
skafti dráttarvélar síðdegis í gær. At-
burðurinn varð í Aðaldal í
S-Þingeyjarsýslu og var drcngurinn
einn að heyvinnu um kílómetra frá
bænum.
Hann lenti með hönd í drif-
skafti með þeim afleiðingum að
hana tók af um úlnlið og brotnaði
illa upp að olnboga. Þannig á sig
kominn hljóp drengurinn um kíló-
metra heim að bænum og gat gert
viðvart um slysið.
Sjúkrabifreið var þegar kölluð á
vettvang frá Húsvaík og var
drengurinn fluttur til Akureyrar.
Vonir stóðu til að hægt yrði að
bjarga höndinni.
Arangurslaus
sáttafundur
LAUST FYRIR miðnætti í gær
var samningafundi iðnaðarmanna
í Áburðarverksmiðjunni í Gufun-
esi við vinnuveitendur slitið án
þess að samkomulag næðist.
Nýr fundur hefur ekki verið
boðaður. Fundurinn í gær stóð í
rúmar 10 klukkustundir. Verkfall
iðnaðarmanna hefur nú staðið í
rúman mánuð og síðast var samn-
ingafundur 27. ágúst síðastliðinn.
Þá hefur verið ákveðinn óform-
legur viðræðufundur samningsað-
ila í Vestmannaeyjum í dag, en af
honum gat ekki orðið í gær.
Vopnafjörður bættist í gær í
hóp þeirra staða, þar sem bónus-
vinnustöðvun er og í dag bætist
Akranes og Fáskrúðsfjörður einn-
ig í þann hóp. Hins vegar var
ákveðið að fresta bónusvinnu-
stöðvun, sem koma átti til fram-
kvæmda á Breiðdalsvík í gær, til
laugardags. Bónusvinnustöðvanir
koma til framkvæmda víðar síðar
í vikunni. Þá hafa félögin á
Sauðárkróki og í Hafnarfirði boð-
að samúðarbónusvinnustöðvanir
og félögin í Keflavík boðað stöðv-
un frá 18. þessa mánaðar.
Framkvæmdastjórnarfundur
Verkamannasambandsins verður í
dag klukkan 11.
^ Morgunblaðið/ÓI.K.Mag.
Ádráttur í Elliöaánum
Hinn árlegi ádráttur í Elliðaánum fór fram í gærdag og mætti
að venju stór hópur áhugamanna til að hjálpa til og horfa á.
Það eru Rafmagnsveita Reykjavíkur og Stangaveiðifélag
Reykjavíkur sem standa fyrir þessu í vertíðarlok á hausti
hverju og er markmiðið að ná klaklaxi. Talsvert gekk af laxi
í Elliðaárnar í sumar og yfir 1000 laxar lentu í klóm stang-
veiðimanna. Ádrátturinn gekk einnig vel.
Fjárhagsvandi ríkissjóðs
fjórir milljarðar króna
— Niðurskurður fjármálaráðherra í vegamálum stefnir
byggðum í landinu í hættu, segir Matthías Bjarnason
FJARLAGAGERÐ ríkisstjórnarinnar
virðist vera kominn í algjöran hnút,
því niðurskurðartillögur fjármála-
ráðherra eru svo gífurlega miklar að
einstakir ráðherrar segja það af og
frá að þeir sætti sig við slíkan niður-
skurð. Til dæmis segir Matthías
Bjarnason, heilbrigðis-, trygginga- og
samgönguráðherra, að það komi ekki
til greina að hann sætti sig við tillög-
ur fjármálaráðherra, sem hann nefnir
ekki niðurskurðartillögur, heldur seg-
ir fjármálaráðherra vilja skera
ákveðna málaflokka, eins og vegamál
niður við trog, og stefna þar með
byggð í landinu í hættu. Morgunblað-
ið hefur heimildir fyrir því að fjár-
málaráðherra, Albert Guðmundsson,
leggi til að fjárveitingar til ráðuneyta
Matthíasar Bjarnasonar verði nálægt
einum milljarði minni en fjárveitinga-
óskir Matthíasar hljóðuðu upp á.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gera tillögur fjármála-
ráðherra ráð fyrir því að fjárveit-
ingar til fagráðuneytanna verði um
tveimur milljörðum minni en óskir
hljóðuðu upp á, auk þess sem hann
leggur til að um tveggja milljarða
verði aflað hér innanlands á næsta
ári með auknum óbeinum sköttum.
Samtals er því verið að ræða hér
um fjögurra milljarða fjárhags-
vanda ríkissjóðs.
Mikill ágreiningur var á fundi
ríkisstjórnarinnar í gær, þar sem
fjárlagagerð var rædd. Bæði var
ágreiningur á milli stjórnarflokk-
anna um hvaða leiðir skulu farnar,
svo og á milli einstakra fagráð-
herra um hvaða málaflokkar skuli
helst skornir niður. „Því fer víðs-
fjarri að ég sé sáttur við þessar
tillögur," sagði Matthías Bjarnason
heilbrigðis- og samgönguráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Þessar tillögur um niðurskurð á
mínum málaflokkum eru svo of-
boðslegar, að ekki tjóir að tala um
þær. Enda kemur það ekki til
greina, á meðan ég sít í þessu
starfi, að framkvæmdir verði
skornar niður með þessum hætti.
Ég er tilbúinn í niðurskurð og að-
haldsaðgerðir, en ég er ekki til-
búinn til þess að skera ákveðna
málaflokka niður við trog, eins og
vegamál og fleira," sagði Matthías.
Matthías sagði að útilokað væri
að sætta sig við slíkar tillögur,
„nema þá að við ætlum að leggja
byggð úti um landið niður og lifa á
því að lána fé til náms og húsnæð-
ismála.*
Niðurstaða ríkisstjórnarfundar-
ins í gær varð sú að vísa þeim til-
lögum sem fyrir liggja til þing-
flokksfunda stjórnarflokkanna sem
verða á morgun og föstudag, og að
halda ríkisstjórnarfund á nýjan
leik á föstudagskvöld, þar sem
reynt yrði að ganga frá fjárlaga-
dæminu.
Sjóflutningar varnarliðsins:
Útboð flutninganna aftur-
kallaö vegna formgalla
Verður endurtekið í byrjun október
BANDARÍSKA flotamálaráóuneytið
hefur afturkallað útboð Sjóflutninga-
deildar bandaríska flotans á sjó-
flutningum fyrir varnarliðið á Kefla-
víkurflugvelli vegna formsgalla við
framkvæmd þess. Tilboðsfrestur átti
að renna út á morgun, 12. september.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verða flutningarnir boðnir
aftur út og þá með réttum hætti,
væntanlega í byrjun október með
tiiboðsfresti til mánaðamóta októ-
ber-nóvember. Engar breytingar eru
fyrirhugaðar á útboðsskilmálum, og
er reiknað með að samningurinn
muni gilda frá 1. desember til 30.
september á næsta ári.
Tvenns konar formsgallar voru
á útboði Sjóflutningadeildarinnar:
í fyrsta lagi var ekki birtur lög-
formlega úrskurður um að farm-
gjöld Rainbow Navigation Inc.
væru óeðlilega há, en á þeim
grunni byggja bandarísk stjórn-
völd þá ákvörðun sína að bjóða
flutningana út. í öðru lagi láðist
að auglýsa að réttum hætti þá
fyrirætlun að bjóða flutningana
út, en lögum samkvæmt verður það
að gerast með 15 daga fyrirvara.
Mál Rainbow á hendur flota-
málaráðherra Mark Lehman fyrir
meint brot á flutningalögunum
frá 1904 og fleiri lögum með því
að láta bjóða flutningana út verður
væntanlega tekið fyrir á morgun
eða á föstudaginn.
Smygl í
þremur
skipum
TOLLVERÐIR fundu 116 flöskur
af áfengi, liðlega 60 kassa af bjór
auk nokkurs magns af matvælum,
sjónvarpstækis, myndbandstækis
og hljómflutningstækja við tollleit
um borð í þremur skipum úti á
landi í byrjun vikunnar. Tollverð-
ir fóru norður í land um helgina
og við tollleit um borð í Snæfelli
frá Hrísey á sunnudag fundust 25
kassar af bjór, 24 flöskur af
áfengi og 220 kfló af matvöru —
einkum kjöti.
Á mánudag fundu tollverðir
svo 37 kassa af bjór, 30 flöskur
af áfengi, myndbandstæki og
hljómflutningstæki við tollleit í
Siglufjarðarhöfn um borð í Sól-
berginu frá Ólafsfirði, sem var
að koma frá Cuxhaven. Ellefu
skipverjar hafa viðurkennt að
eiga varninginn,
í fyrrinótt fundust 62 flöskur
af áfengi við tollleit í Keflavík
um borð i Sveinborginni frá
Siglufirði. Áfengið fannst í
kortaborði. Sveinborgin var að
koma frá Þýzkalandi.