Morgunblaðið - 13.09.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
Kórskóli Pólýfónkórs-
ins - Kristján Jóhanns-
son meðal kennara
Á ANNAN áratug hefur Pólýfónkórinn rekið kórskóia sinn við mikla aðsókn
og góðar undirtektir, enda býðst almenningi þar gott tækifæri til að ná réttri
undirstöðu í nótnalestri og söng.
um kl. 8—10 í 10 vikur. Kennslu-
greinar eru nótnalestur og taktæf-
ingar, öndun, raddbeiting og söng-
Margar ágætar söngraddir hafa
verið „uppgötvaðar" í Kórskólan-
um og leið þeirra síðan legið í
Pólýfónkórinn og til frekara
söngnáms.
Að þessu sinni, sem og oft áður,
hefur kórskólinn úrvalslið kennara
á að skipa, og meðal þeirra er sjálf-
ur stórsöngvarinn Kristján Jó-
hannsson, óperusöngvari, sem
mun leiðbeina um 8 vikna skeið.
Aðrir kennarar verða Helga Gunn-
arsdóttir, sem lokið hefur háskóla-
prófi í tónlist og tónlistarkennslu
í Svíþjóð, Margrét Pálmadóttir,
sópran, nýkomin frá söngnámi í
Mílanó, og Friðrik Guðni Þorleifs-
son, tómenntakennari. Umsjón
með kennslunni hefur Ingólfur
Guðbrandsson, söngstjóri, sem
einnig mun þjálfa söngfólkið og
æfa kórsöng.
Námskeið Kórskólans hefst
mánudaginn 23. september og fer
kennsian fram í Vörðuskóla á
Skólavörðuholti á mánudagskvöld-
„Ljóð-
skálda-
salat“
— nýr dagskrárliður
á Norrænu ljóölist-
arhátíðinni
Einn dagskrárliður hefur bæst
við Norrænu ljóðlistarhátíðina í
Reykjavík. Laugardaginn 14. sept-
ember verður fólki gefinn kostur
á að hlýða á uppiestur 13 af yngstu
skáldum þjóðarinnar. Dagskráin
er kölluð „ljóðskáldasalat". Ald-
urshámark flytjenda er 30 ár, og
hópurinn valinn með það markmið
í huga að spegla sem best þá
strauma sem uppi eru meðal þessa
aldurshóps. Dagskráin hefst kl.
16.30. Eftirtaldir höfundar munu
koma fram: Linda Vilhjálmsdóttir,
Bragi ólafsson, Björk Guðmunds-
dóttir, Sigfús Bjartmarsson, Þorri
Jóhannsson, Elisabet Þorgeirs-
dóttir, Þór Eldon, Jóhamar, Sjón
Gyrðir Elíasson ísak Harðarson,
Kristján Kristjánsson, Einar Már
Guðmundsson. Aðgangur er
ókeypis.
Kennslugjald er aðeins kr. 1.500
fyrir allan timann.
Innritun fer fram næstu daga í
símum 26611, 36355 eða 76466 á
daginn en 44031 og 45799 á kvöldin.
Nýir umsækjendur sem óska að
ganga í Pólýfónkórinn gefi sig
einnig fram í sömu simum.
(Frétutilkynning)
V iðskiptaráherra
til Seoul og Japans
Kristján Jóhannsson
HÓPUR íslenskra útfiytjenda fer til
Japans í næsta mánuði til að huga að
markaðsmálum fyrir íslenskar afurðir
þar í landi. Eftir upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér mun
Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráð-
herra, fara fyrir íslendingunum og
eiga viðræður við japanska ráðamenn
á sviði viöskiptamála. Matthías mun
sækja ársfund Alþjóðabankans í Seoul
í Suður-Kóreu dagana 5.—11. október
og mun hann að þeim fundi loknum
fara til Japans ásamt íslensku útflytj-
endunum.
Matthías Á. Mathiesen, viðskipta-
ráðherra, staðfesti i samtali við
Morgunblaðið í gær að þessi ferð
væri á döfinni. Hann sagði að frum-
kvæðið hefðu átt fulltrúar úr ís-
lensku atvinnulifi sem teldu að i
Japan væri mikill og vaxandi mark-
aður fyrir íslenskar afurðir. Hefðu
þeir talið ákjósanlegt að nýta ferð-
ina fyrst hann væri á þessum slóð-
um á annað borð. Meðal þeirra sem
Matthías Á. Mathiesen mun eiga
viðræður við eru utanríkisviðskipta-
ráðherrann og utanríkisráðherrann.
Þá munu íslendingar ræða við jap-
anska bankastjóra, japanska versl-
unarráðið og fulltrúa islenskra út-
flutningsfyrirtækja í Japan.
í fylgd með viðskiptaráðherra í
Japansheimsókninni verða m.a.
sendiherra íslands í Tókíó, ráðu-
neytisstjóri viðskiptaráðuneytisins
og Seðlabankastjóri.
Þrjú skip
seldu
erlendis
ÞRJÚ íslenzk skip seldu afla sinn
erlendis í gær og fengu gott verð
fyrir hann. 35,55 krónur fengust
að meðaltali fyrir karfa í Þýzka-
landi og 43,69 að meðaltali fyrir
þorsk i Bretlandi.
Skarfur GK seldi 79,6 lestir í
Hull. Heildarverð var 3,2 milljónir
króna, meðalverð 40,88. Bjartur
Nk seldi 123,5 lestir í Grimsby.
Heildarverð var 5,3 milljónir
króna, meðalverð 43,69. Bessi ÍS
seldi 134,3 lestir, mest karfa í
Bremerhaven. Heildarverð var 4,7
milljónir króna, meðalverð 35,55.
Þrátt fyrir að 29 lestir karfans
færu í þriðja flokk vegna smæðar
var meðalverðið gott.
HINN EINI OG SANNI
ÚTSÖLU
MARKAÐUR
AÐ FOSSHÁLSI 27 —
Opið aðeins í dag
frá 13—19
og á morgun
frá 10—16
FJÖLDI
FYRIRTÆKJA
GIFURLEGT VÖRUURVAL
Karnabær
Flauelsföt frá 2500,-
Svartar kakhi buxur frá 790.-
Stretch buxur frá 750.-
Stretch buxur barna frá 550,-
Aðrar buxur frá 650,-
Herra- og dömupeysur frá 450.-
Barnapeysur frá 390.-
Dömujakkar frá 990,-
Dömudragtir frá 1590.-
Vatt úlpur frá 1790,-
Pólarúlpur frá 2800,-
Stakir herrajakkar frá 990.-
Belti — klútar — slæður frá 90.-
Mjög gott úrval af bolum frá 150.-
Barnabuxur flauel — denim —
kakhi — stretch frá 450.-
Barnafataverzlunin Fell
Mikið úrval barnafatnaðar á
mjög góöu verði.
Belgjagerðin
Denim efni 150 cm breitt frá 250.-
Ullar efni frá 250,-
Kakhi efni frá 100,-
Fóður efni frá 100.-
Polyester frá 100.-
Vinnusloppar frá 350.-
Vinnugallar frá 550.-
Rafsuðugallar frá 990,-
Hlífðarsamfestingar frá 990.-
Axel Ó
Gúmmístígvél og strigaskór 299.-
Mikið úrval af kven- og karl-
mannaskóm á góöu verði.
Hummel
Henson og Hummel jogging-
gallar og glansgallar frá 899 kr.-
Hummel kuldajakkar 1490 kr,-
íþróttaskór frá 26—39 kr. 399.-
Vattúlpur frá 399.-
Garbó
Tískufatnaður kvenna í úrvali
— Mjög gott verð!
Vogue
Bútar, bútar, bútar
Mikið úrval af góðum efnum.
Blómabás
Ódýr og falleg blóm, leikföng og
búsáhöld og gjafavara.
Viktoría
Mikiö úrval af buxum frá kr. 300.-
Peysur, dömupils. Allt á mjög
góðu veröi.
Skartgripabúðin Issa
Mikið úrval af skartgripum á
mjög góðu verði.
Basthúsgögn (reyrhúsgögn)
Ótrúlegt verð. Hillur, borð, stól-
ar og barnarúm.
Steinar
Mikið úrval — plötur, kassettur.
Ótrúlega lágt verð. Allt frá kr. 10,-
3 E
VÖFFLUR, RJOMI OG KAFFI Á KÖNNUNNI
STRÆTISVAGNAFERÐIR Á 15. MÍN. FRESTI — LEIÐ 10