Morgunblaðið - 13.09.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
1
Mótettukór Hallgrímskirkju:
Söngfólk vantar í allar raddir
SÖNGFÓLK vantar nú í allar raddir í Mótettukór Hallgrímskirkju, þar
sem ákveóið hefur verið að stækka kórinn. Skilyrði fyrir inntöku er að
fólk hafí einhverja reynslu af kórstarfí, sé á aldrinum 16—40 ára og
kunnátta í nótnalestri er æskileg. Æfingar eru á miðvikudagskvöldum
og laugardagsmorgnum. Inntökupróf fyrir þá sem áhuga hafa verða í
kvöld, föstudaginn 13. september, milli kl. 18 og 20, og á morgun, laugar-
dag, milli kl. 11 og 14, í Hallgrímskirkju. Hörður Áskelsson söngstjóri
kórsins veitir nánari upplýsingar í síma 32219.
Mótettukórinn er um þessar
mundir að hefja fjórða starfsár
sitt. Síðasta starfsári lauk með
tónleikum á Akureyri og Húsavík
í júni sl. í mars voru haldnir
Bach-tónleikar í samvinnu við
kór Hamrahlíðarskóla. Einnig
var flutt kantata á síðustu pásk-
um.
Síðustu vikurnar hefur kórinn
sungið jólalög inn á hljómplötu
ásamt Kristni Sigmundssyni
óperusöngvara, sem bókaforlagið
örn og örlygur mun gefa út.
Kórinn mun halda hátíðartón-
leika hinn 27. október nk. Þar
verða fluttar þrjár kantötur:
„Ein feste Burg ist unser Gott“,
„Christ lag in Todesbanden" og
einsöngskantatan „Jauchzet
Gott“, sem Margrét Bóasdóttir
syngur. Þessir tónleikar eru eins-
konar lokaframlag Mótettukórs-
ins á Bach-árinu.
Fleiri tónleikar eru síðan ráð-
gerðir eftir áramótin og síðar í
haust verður tekið til við að æfa
nýja og fjölbreytta efnisskrá með
mótettum frá ýmsum tímum.
(Úr fréttatilkynninpi)
Mótettukór Hallgrfmskirkju á tónleikum. Nú á að stækka kórinn og vantar söngfólk í allar raddir.
Sé ekkert betra en
kvótann sem grund-
völl veiðistjórnunar
— segir Halldór Ásgrímsson
„ÉG VEIT að sjálfsögðu ekkert um það, hvað Matthías Bjarnason hefur fyrir
sér í því, að ekki sé meirihluti á Alþingi fyrir áframhaldandi kvótakerfí. Ég
vil nú benda á það, að þótt þetta stjórnunarkerfi gangi undir nafninu kvóta-
kerfí, þá er í þvf valfrelsi. Annars vegar aflamark og hins vegar sóknarmark.
Það liggur að sjálfsögðu fyrir að endurskoða þarf þessar reglur með tilliti til
reynslunnar. Ég hef sagt það áður og segi það enn, að ég sé ekkert annað,
sem getur verið betri grundvöllur fyrir stjórnun veiðanna. Ég hef ekki heyrt
neinn nefna betri leið í því sambandi, en það er sjálfsagt að taka allar slfkar -
hugmyndir til athugunar,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra.
„Ég legg á það áherzlu að við
byggjum áfram á sama grunni og
gert hefur verið á undanförnum
tveimur árum. Hins vegar tel ég
nauðsynlegt að marka stefnuna til
lengri tíma, meðal annars til þess,
að það sé hægt að setja um það
reglur með hvaða hætti botnfisk-
kvóti eigi að skerðast vegna rækju-
veiða og veiða á öðrum tegundum
en helztu botnfisktegundum. Það
er auðvitað ekki hugmyndin, að þau
skip, sem verið hafa á rækjuveiðum,
fái endalaust að halda botnfisk-
veiðikvóta. Þetta er svona dæmi um
breytingar, sem geta orðið. Ég tel
einnig nauðsynlegt, að skip, sem
velur sóknarmark, geti átt kost á
aflamarki síðar og fengið metna þá
reynslu, sem fæst af sóknarmark-
inu. Til að þetta sé hægt, þarf að
marka stefnuna til lengri tíma en
eins árs.
Það skiptir megin máli hve mikið
magn verður leyft að veiða. Það
finnst mörgum að sér hert og vilja
geta veitt meira, en það er enginn,
sem vill láta eitthvað á móti og það
er ekkert, sem getur létt á þessu í
heildina en meiri afli. Ég get hins
vegar ekkert um það sagt hvort
leyfður verður meiri afli á næsta
ári en þessu.
Það er ekkert nýtt mál að tala
um kvótafærslu milli ára. Aðal-
fundur LÍÚ samþykkti í fyrrahaust
með nokkrun meirihluta að skora
á mig að leyfilegt yrði að færa afla
frá árinu 1984 yfir á þetta ár. Það
var ekki unnt að verða við því vegna
þess að stjórnunarreglur giltu að-
eins til eins árs. Verði stefnan
mörkuð til lengri tíma, þarf að nota
tækifærið til að auka sveigjanleik-
ann. 31. desember er engin heilög
dagsetning, það getur verið að það
séu þær aðstæður, að betra sé fyrir
aðila að veiða í nóvember en í jan-
úar og svo framvegis. Ég tel því að
það þurfi að skapa þennan sveigjan-
leika og einnig myndi draga úr
færslum milli skipa með þessu.
Vegna þess hef ég litið svo á, að
almennur vilji væri fyrir því, að
geta haft einhvern hreyfanleika
milli áranna. Ég hef ekkert annað
gert en að rifja upp þessa staðreynd
og einnig sagt að það gæti komið
til greina að taka slíka reglu I
notkun strax seinna i haust. Það
finnst öllum að sér þrengt og vilja
meiri afla og kenna stjórnunarkerf-
inu um það í stað þess að líta á
ástand stofnanna. Ég er sannfærð-
ur um það að þörf sé á stjórnun
veiðanna og að það þurfi að byggja
upp stofnana. Ég vænti þess og
veit, að það eru fleiri í þjóðfélaginu,
sem sjá þá þjóðarhagsmuni,“ sagði
Halldór Asgrimsson.
4 gerðir af 90
Jú, þetta er ekki misritun
Viö bjóöum viöskiptavinum okkar nú þegar kvenleðurstígvél í slíku úrvali og þó eigum viö von á
fleiri geröum næstu daga og vikur. Mismunandi litir, breiddir, hælar, fóöur og verð. Hjá okkur
ætti sérhver aö fá viö sitt hæfi. í mörgum tilvikum fást töskur í stíl.
Sýnishorn af nokkrum geröum
P. Kaiser 01815
litir: svart-dökkblátt
verö: 4.668.00
Oswald 1201
litir: svart-dökkblátt
verö: 3.895.00
Panzl 2511
litir: svart-grátt-brúnt
verö: 3,699.00
Salamander 73951
litur: steingrátt
verö: 4.490.00
Vimark 2126
litir: svart-brúnt
verö: 5.885.00
age hi
Domus Medica,
Simi 18519
DiNERS CLUB
INTERNATtONAL
POSTSENDUM
Opiö föstudaga til 6.30 og
á laugardögum frá 9.30 — 12.30