Morgunblaðið - 13.09.1985, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985
37
Oheilladagur
að mun teljast afar eðlilegt,
að langa mest til þess þegar
vaknað er á morgnana að leggjast
fyrir aftur, breiða sæng yfir haus
og halda áfram að sofa. Brauð-
stritandi fólki þykir þetta þó
heldur óskynsamlegt því „ævi-
tíminn eyðist unnið skyldi langt-
um rneir", eins og skáldið sagði.
Því er þó þannig farið með
suma daga að þeir eru verri en
aðrir dagar, allt gengur á aftur-
fótunum og menn hugsa með sér
þegar kvölda tekur að betra hefði
verið að þjóna lundinni þann
morguninn og liggja áfram. I dag
er einmitt sá dagur sem verst
þykir til þess fallinn að taka sér
eitthvað fyrir hendur. Það er
nefnilega föstudagur og hann ber
uppá 13. dag mánaðarins.
Sú hjátrú er þekkt um alla
Evrópu að föstudagurinn þrett-
ándi sé mestur óhappadagur sem
til er. Aldrei skyldu menn byrja
verk á þeim degi og fara að öllu
með mikilli varúð. Ekki er vitað
nákvæmlega hvernig trú þessi er
tilkomin, en hún mun vera pápisk,
föstudagurinn er alltaf settur í
samband við krossfestinguna og
talan 13 táknar Júdas. Hingað til
lands hefur hún því væntanlega
borist með kristninni. Það bland-
ast svo inní hjátrúna að seinni
hluti vikunnar hefur alltaf þótt
verri til þess að hefja verk en
fyrri hlutinn.
En hvað um það, menn ættu
að minnsta kosti að hugsa sig
tvisvar um, áður en þeir hella sér
útí önn dagsins.
Hún
kyssti
þrjótinn
Diana Ross er söngkona sem
flestir kannast við. Hún
hefur ekki farið á mörg
tónleikaferðalög síðustu ár, en
er nú á leið til Bretlands og
þarlendir mega vart vatni halda
af spenningi og hrifningu.
Diana þessi ku ekki deyja
ráðalaus þegar hættu ber að
höndum. Til dæmis ruddist
einhverntíma óður maður með
hníf í lúkunum uppá svið þar
sem hún var að syngja og ætlaði
að ráða hana af dögum. Með því
að kyssa þrjótinn blíðlega á
vangann gerði hún hann svo
dolfallinn að hann var leiddur
gapandi út af sviðinu án
nokkurra málalenginga.
COSPER
C PIB
- - Dóttir min ætlar aó fara að gifta sig og maðurinn minn vill að
hún fái íbúðina hér fyrir ofan.
ARNOLD
-L Nýtt fyrirtœki á traustum grunni
o> LANDSSMIÐJAN HF.
■V SÍMI91-20680
Viltu losna við bakverkinn
og eymslin í hálsinum?
Pá skaltu reyna heilsudýnu og -kodda frá
Bay Jacobsen, viðurkennda frainleiðslu sem skilar
ótrúlegum árangri.
Dýnan sér um að dreifa
þunga líkamans í svefninum,
þannig að blóðstreymi haldist
jafnt um allan skrokkinn, hún
heldurgóðum hita á bakinu og
hefur notaleg nuddáhrif á
vöðvana.
Ummál: 70/80/90x190 cm.
Þykkt: Aðeins 3 cm og því
leggst hún ofan á dýnu sem
fyrir er.
Þyngd: 1,9 kg.
Verð: 3.600.- kr.
r'
Vinsamlegast sendið mér
□ .....stk. heilsudýnu, breidd
□ .....stk. kodda á kr. 1.390,-
Nafn:
Koddinn tryggir höfðinu
og hálsinum rétta hvíldarstöðu
og réttur þéttleiki ásamt
góðum hita gerir það að
verkum að þú vaknar með
slaka háls- og axlarvöðva eftir
góðan nætursvefn.
Ummál: 45x55 cm.
Þykkt: 9-11 cm.
Verð: 1.390,- kr. —‘tPr
. cm x 190, á kr. 3.600
Simanr.
Heimili:
Póstnr.:
Svcitarfél.
Klippið seðilinn út og sendið með pósti til: Blistoð Pósthólf 192 230 Keflavfk
V__________________________________________________________/
Hvernig vœri að slá til strax í dag og senda okkur
útfylltan pöntunarseðilinn og við sendum þér vöruna
um hæl ípóstkröfu. 14 daga skilafrestur.
DREIFING
A iSLANDf
BUSTOÐ
Sími: 923377
230 Keflavík