Morgunblaðið - 19.09.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
Upplagseftirlit Verzlunarráðs íslands:
Morgunblaðið efst
með 45.351 eintak
„Settum skilyrði sem ekki var gengið að og vorum
þess vegna ekki með í könnuninni,“ segir Hörður
Einarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar
Slasaðist í bflveltu í Kópavogi
MorKunblaAið/Júlfus
Tveir menn slösuðust í bílveitu á nýju Keykjanesbrautinni skammt frá hesthúsum Kópavogs á ellefta tímanumí
gærkvöldi. Annar maðurinn, farþegi í bílnum, var fluttur á slysadeild Borgarspítalans, en ekki var vitað um
hversu alvarleg meiðsl hans voru þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Keflavík:
Eignir Heimis hf.
slegnar á 80 millj.
Kröfur í þrotabúið námu 235 millj. kr
Triton bauð hæst í skip fyrirtækisins
SAMKVÆMT upplagseftirliti Verzl-
unarráðs íslands, sem nú birtist öðru
sinni, er Morgunblaðið í efsta sæti,
með 45.351 eintak í meðaltalsdreif-
ingu í lausasölu og áskrift. Hefur
dreifingin aukist um liðlega 1.000
eintök frá fyrstu könnun ráðsins.
Helgarpósturinn er meö 14.863 ein-
tök og tímaritið Mannlíf 13.605 ein-
tök. Morgunblaðið er eina dagblaðið
sem tekur þátt í þcssari könnun.
Könnun þessi nær yfir tímabilið
janúar til júní 1985 og sýna tölurn-
ar meðaltalsfjölda eintaka blaða og
tímarita, sem dreift var á tímabil-
inu. Framkvæmd eftirlitsins er sú,
að útgefendur gefa upp upplags- og
dreifingartölur, en löggiltur endur-
skoðandi annast eftirlitið. Hefur
hann aðgang að bókhaldi fyrir-
tækjanna til þess að sannreyna
framkomnar upplýsingar.
„Við hjá Verzlunarráðinu höfum
ekki fengið neinar haldgóðar skýr-
Frumsýning á Amadeus:
Gæti skilað
hjartaskurð-
lækningum
150 þúsundum
VERÐI uppselt á frumsýning kvik-
myndarinnar „Amadeus", sem verð-
ur í Háskólabíói klukkan 21 í kvöld,
safnazt tæplga 150 þúsund krónur,
sem renna munu tii styrktar hjarta-
skurðlækningum á íslandi, sem hefj-
ast næsta vor. Framleiðandi mynd-
arinnar og Háskólabíó hafa ákveðið
að gefa andvirði þessarar fyrstu sýn-
ingar til styrktar þessu málefni.
Kvikmyndin Amadeus, sem
fjallar um líf og tónlist Mozarts,
hefur hlotið 8 Óskarsverðlaun,
m.a. sem besta kvikmyndin, fyrir
beztu leikstjórnina og fyrir beztan
leik í aðalhlutverki karlmanns.
Hún hefur slegið öll aðsóknarmet
á Norðurlöndum, þar sem hún var
tekin til sýningar fyrir rúmu ári.
ingar hjá útgefendum hvers vegna
þeir eru ekki með í upplagseftirlit-
inu hjá okkur," sagði Árni Árna-
son, framkvæmdastjóri Verzlunar-
ráðs íslands, er blaðamaöur Morg-
unblaðsins spurði hann hvort hann
hefði einhverjar skýringar á því að
Morgunblaðið væri eina dagblaöið
sem tekur þátt í upplagskönnun
ráðsins. Árni sagði að NT og DV
hefðu tekið þátt í undirbúningi að
þessu eftirliti, en þegar að eftirlit-
inu hefði komið, hefði komið í Ijós
að DV vildi ekki taka þátt í eftirlit-
inu. „Ég hef aldrei fundið út hvers
vegna,“ sagði Árni. Hann sagði
jafnframt að hjá NT hefðu ný við-
horf komið með nýjum mönnum, en
taldi að NT myndi koma inn í
svona könnun bráðlega.
Markmiðið með þessari könnun
sagði Árni vera það að veita aug-
lýsendum trúverðugar og sannar
upplýsingar um upplag dagblaða,
þannig að þeir gætu borið saman
hvað kostaði að auglýsa og hvert
upplag blaðanna væri.
„Við settum tvö skilyrði fyrir
þátttöku okkar að þessu upplags-
eftirliti," sagði Hörður Einarsson,
framkvæmdastjóri Frjálsrar fjöl-
miölunar, er blaðamaður spurði
hann hvers vegna DV væri ekki
með í könnuninni. „í fyrsta lagi að
auglýsingastofurnar sem standa
fyrir þessu skuldbindi sig til þess
að greiða auglýsingar til blaðanna í
hlutfalli við útbreiöslu þeirra og að
auglýsingastofurnar greiði kostn-
aðinn við framkvæmd upplagseft-
irlitsins. Við myndum strax taka
þátt í þessu, ef þessi tvö skilyrði
væru samþykkt," sagði Hörður.
Einsog áður segir var meðaltals-
dreifing Morgunblaðsins á þessu
tímabili 45.351 eintak. Dagur á Ak-
ureyri hafði 5.990 eintaka dreifingu
og Helgarpósturinn 14.863 eintök.
Samkvæmt könnuninni er Mannlíf
með mesta dreifingu tímarita, eða
13.605 eintök, Gestgjafinn er þar í
öðru sæti, með 9.940 eintök og Heil-
brigöismál í 3. sæti með 7.113 ein-
tök. Æskan er í 4. sæti tímarita
með 7.026 eintök, Lopi og band í 5.
sæti með 6.880 eintök, Gróandinn í
6. sæti með 6.822 eintök og Tölvu-
blaðið í 7. sæti með 5.530 eintök.
EIGNIR útgcrðar- og fiskvinnslufyr-
irtækisins Heimis í Keflavík voru í
gær seldar hæstbjóðendum á upp-
boði hjá bæjarfógetanum í Keflavik
vegna gjaldþrots. Kröfur í gjald-
þrotabúið námu 235 milljónura
króna, en eigirnar voru slegnar á
80,5 milljónir. Helgi S, skip Heimis
hf., var slegið Umboðs- og heild-
versluninni Triton á 61,5 milljónir,
en aðrar eignir voru slegnar Lands-
bankanum á 19 milljónir króna.
Fyrirtækið var í eigu fjölskyldu
Harðar Falssonar og hefur verið
innan vébanda sömu fjölskyldu í
39 ár. Hörður hefur rekið það í 23
ár. Miklar líkur eru á því að fjöl-
skyldan missi allar eigur sínar í
kjölfar uppboðsins.
Jón Eysteinsson, bæjarfógeti í
Keflavík, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að uppboðið á eignum
Heimis hefði farið fram í þrennu
lagi. Skipið hefði verið boðið upp
að kröfu Fiskveiðasjóðs, sem átt
hefði á því áhvílandi skuldir að
upphæð 63,2 milljónir króna. Fisk-
veiðasjóður hefði hins vegar ekki
boðið meira en 61,1 milljón króna í
skipið og það því verið slegið Trit-
on fyrir 61,5 milljónir. Trygginga-
verð skipsins væri 60,7 milljónir
króna. Á skipinu hefðu auk þess
verið áhvílandi lögveðskröfur að
upphæð 2,9 milljónir króna. Sagð-
ist hann telja, að aðrir veðhafar
eins og Landsbankinn, Byggða-
Fimm á
slysadeild
úr árekstri
FIMM manns voru fluttir á slysa-
deild Borgarspítalans eftir harðan
árekstur á gatnamótum Fellsmúla
og Háaleitisbrautar seint í gær-
kvöldi.
Ekki var vitað hvað fólkið var
mikið slasað þegar Morgunblaðið
fór í prentun í gærkvöldi. Bílarnir
skemmdust svo mikið að flytja
varð þá í burtu með kranabíl.
sjóður, Samábyrgð íslenskra fiski-
skipa og Olíuverslun íslands
fengju ekkert greitt úr þrotabú-
inu, en þessir aðilar hefðu átt
nokkrar fjárhæðir hvílandi á því.
Aðrar eignir fyrirtækisins, fisk-
móttaka, skrifstofuhúsnæði,
hraðfrystihús og fleira hefðu síð-
an verið slegnar Landsbankanum,
sem hefði verið stærsti kröfuhaf-
inn í þær eignir. Jón Eysteinsson
sagði þetta vera langstærsta mál
sinnar tegundar, sem tekið hefði
verið fyrir hjá embætti hans, eng-
in fyrri mál af þessu tagi væru
þessu lík.
Erfiða stöðu Heimis hf. má
rekja til breytinga, sem gerðar
voru á skipi þess, Helga S. Skipið
var upphaflega byggt í Austur-
Þýzkalandi 1959, en yfirbyggt
1982. Þegar samið var um breyt-
inguna á skipinu, var áætlaður
kostnaður 7 milljónir króna, að
breytingu lokinni var kostnaður-
inn 14 milljónir og skuld eigand-
ans vegna breytingarinnar nemur
nú um 85 milljónum króna. Þegar
breytingunni var lokið, átti Heim-
ir hf. 50% í skipinu. Á síðasta ári
skilaði fyrirtækið 11,4 milljónum
króna í hagnað fyrir fjármagns-
kostnað.
Hollandsheimsókn forseta:
Grænfriðungar hætt-
ir við að mótmæla
Áttu fund með sendiherra íslands og afhentu
honum bréf og styttu af steypireyð
Wageningen, Hollandi. Prá Kggerti H.
KjarUnasyni, frétUritara MorgunblaðHÍnH.
EKKI verður af mótmælum
grænfriðunga gegn hvalveiðum ís-
lendinga sem þeir ætluðu að efna
til við heimsókn Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands, til
Hollands á morgun, fimmtudag og
á Tóstudag. Komið var á fundi Lies
Vedder frá grænfriðungasamtök-
unum og Emars Benediktssonar,
sendiherra íslands, og fór hann
fram í Haag í dag. Ræddust þau
við og athenti Lies sendiherranum
bréf frá grænfriðungum til ís-
lenskra stjórnvalda og styttu af
steypireyð til forsctans.
Á fimmtudaginn í síðustu viku
hringdi fréttaritari til höfuð-
stöðva grænfriðunga í Hollandi
vegna þess að þeir höfðu undir-
búið mótmælaaðgerðir til að
vekja athygli á hvalveiðum ís-
lendinga við heimsókn forseta
íslands, Vigdísar Finnbogadótt-
ur, til Holiands dagana 19. og 20.
september. í þeim viðræðum
stakk fréttaritari upp á því við
Lies Vedder að í staðinn fyrir
mótmælaaðgerðir þeirra yrði
reynt að koma á fundi grænfrið-
ungasamtakanna og sendiherra
íslands, Einars Benediktssonar,
í London. Samtökin gengust inn
á þessa tillögu og í dag, miðviku-
dag, kl. 15.30 hittust þau á fundi
á Hótel Promenade í Haag, Lies
Vedder og Einar Benediktsson.
Grænfriðungar afhentu sendi-
herranum bréf í nafni 70 þúsund
hollenskra félagsmanna, þar
sem rakin er saga þátttöku ís-
lendinga í alþjóðasamþykktum
gegn mengun sjávar og fyrir
verndun dýra í útrýmingar-
hættu. Einnig afhenti Lies hon-
um litla styttu af steypireið sem
hann lofaði að koma til forseta
fslands ásamt þeim skilaboðum
að það væri von samtakanna að
hvalir dæju ekki út.
Lies Vedder sagði að viðræðu-
aðilar hefðu gefið sér tíma til að
skýra skoðanir sínar. Sendiherr-
ann lýsti þeirri skoðun íslenskra
stjórnvalda að með því að halda
áfram hvalveiðum til rannsókn-
astarfa yrði hvalastofnunum
ekki stefnt í hættu. Grænfrið-
ungar lýstu aftur á móti áhyggj-
um sínum með því að nefna
dæmi um það fordæmi sem þess-
ar veiðar gæfu, og sjá mætti til
dæmis af viðbrögðum Suður-
Kóreu. Lies sagi ennfremur að
islenski sendiherrann hefði verið
mjög vel upplýstur um aðrar að-
gerðir samtakanna, til dæmis
gegn mengun Norðursjávarins.
Með þessum fundi hefur verið
komið í veg fyrir að mótmælaað-
gerðir af hálfu grænfriðunga-
samtakanna gegn hvalveiðum
fslendinga verði á meðan á opin-
berri heimsókn Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands, til
Hollands stendur. Grænfriðung-
ar voru ánægðir með þær
opinskáu viðræður sem áttu sér
stað og bentu á að það væri ekki
þeirra ósk að skaða vinsamleg
samskipti á milli íslands og
Hollands. Forsetaheimsóknin og
fslandskynningin munu því ef að
líkum lætur fara vel fram.
MorgunblaAið/Bjarni
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra opnar sýninguna.
íslenska fiskeldissýning-
in sett í Laugardalshöll
ÍSLENSKA fiskcldissýningin (Ice-
landic fish farming exhibition) í
Iaugardalshöll var sett í gær.
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráöhcrra, opnaði sýninguna form-
lega. í ávarpi sínu sagðist hann
sannfærður um að fiskeldið yrði
einn af hornsteinum íslensks at-
vinnulífs og gæti verið ein leiðin,
kannski sú mikilvægasta, til þess að
leiða þjóðina út ur þeirri efnahags-
kreppu sem hún er í.
John V. Legate, forstjóri Ind-
ustrial & Trade Fairs Internation-
al Limited, fyrirtækisins, sem
v.oM»w ovnínmtnq spfTftí í úvprni
sínu við setninguna að þótt sýn-
ingin væri ekki stór vonaðist hann
til að hún hjálpaði til við þróun
fiskeldis á íslandi.
fslenska fiskeldissýningin er
fyrsta sýning sinnar tegundar hér
á landi. Um 40 fyrirtæki, innlend
og erlend, taka þátt í henni. Áber-
andi er ýmis búnaður til atvinnu-
greinarinnar, svo sem eldisker
bæði sjó- og strandkvíar, fóður og
ýmis tæknibúnaður, en margt
fleira er þar einnig að finna.
Sýningin stendur fram á sunnu-
dag og er opin frá kl. 11 til 19 aua
dagana.