Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 + Móðirmín, GUÐRÚN RÚTSDÓTTIR, andaðist í Landspitalanum aöfaranótt miövikudagsins 18. september. Anna Margrét Jafetsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞORLEIFUR TH. SIGUROSSON húsasmiöur, Básenda 8, andaöist 17. september. María Eyjólfsdóttir og dætur. + Útför móður minnar, ÖNNU ÁRNADÓTTUR, Þórarinsstöðum, Hrunamannahreppi, verður gerð frá Hrunakirkju laugardaginn 21. sept. kl. 15.00 e.h. Árni Magnússon. + Hjartkær sonur okkar og bróðir, ÞORVALDUR BREIÐFJÖRÐ ÞORVALDSSON, Öldugranda 7, Reykjavík, sem lést i Borgarspítalanum aðfaranótt 14. september. verður jarðsunginn í Fríkirkjunni föstudaginn 20. september kl. 13.30. Fyrir hönd aöstandenda, Ásta Sigfriedsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, S. Berglind Þorvaldsdóttir, Sigurður Þorvaldsson, Eggert K. Eggertsson, Garöar B. Þorvaldsson, Kjartan Þ. Þorvaldsson, Guðný Þorvaldsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir. + Minningarathöfn um hjartkæra móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORGERÐI EINARSDÓTTUR frá Akureyrí, Digranesvegi 50, Kópavogi, veröur í Fossvogskapellu fimmtudaginn 19. september kl. 16.30. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 20. september kl. 13.30. Hrafnhildur Jónsdóttír, Gréta Óskarsdóttir, Stella Jónsdóttir, Jóna Berta Jónsdóttir, Þorgerður Þorgilsdóttir, barnabörn Sígurður Þorsteinsson, Haukur Gunnarsson, Kjartan Sumarliðason, Helgi Aðalsteínsson, barnabarnabörn. og + Ástkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, SIGURGEIR GUÐJÓNSSON húsasmíðameistari, Grænuhlíð 5, Reykjavík, verður jarösunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 20. september kl. 13.30. Sigurbjörg Ólafsdóttir, Guörún Sigurgeirsdóttir, Guðjón V. Sigurgeirsson, Sigrún Jóhannesdóttir, Sigmundur Sigurgeirsson, Guöný Guönadóttir, Helga Sigurgeirsdóttir, Jón Borg Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faöirokkar, ERLING SMITH, Hrafnístu, Hafnarfirði, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. september kl. 10.30 fyrirhádegi. Elsa Smith, Paul Ragnar Smith, Óthar Smith. Valberg Sigurmunds- son — Minningarorð Fæddur: 30. janúar 1920 Dáinn: 11. september 1985 í dag er til moldar borinn Val- berg Sigurmundsson, Hraunbæ 44 Reykjavík. Venjulegustu og eðlilegustu við- brögð manna eru að þá setur hljóða þegar vinir eru brottkallað- ir. Svo fór einnig fyrir mér, þótt ljóst væri fyrir nokkru að hverju stefndi. Hverju fá orð áorkað þegar við stöndum á landamærum lífs og dauða. Við reynum að gera okkur grein fyrir þessu undri sem lífið og dauðinn eru, og hversu oft er skammt þar á milli, og þá um leið hversu skömm dvöl okkar hér á jörðu er. Hlýtur það að vera hugg- un í harmi öllum syrgjendum að í raun og veru er dvöl okkar hér sem örstutt leiftur, því skammt til endurfunda þeirra sem unna og syrgja. Nú þegar Valberg hefur kvatt þetta jarðlíf, hrannast upp minn- ingar í huga þeirra er best þekktu hann, minningar sem verma. Það var fyrir fimmtán árum að eg stefndi lítilli bátskel upp í Viðeyjarfjöru, beint niður að Við- eyjarstofu. Ferðinni var heitið þangað út til að ryðja grjóti úr fjörunni, hlaða grjótgarð sem ég hugðist tengja flotbryggju við, svo 'unnt yrði að hefja fólksflutninga út í þennan unaðsreit sem Viðey er. Hafði ég fengið leyfi til þess skömmu áður. Er í fjöruna kom var þar fyrir mér ókunnur maður, vörpulegur á velli, en rólegur í fasi. Ég heilsaði honum og kynnti mig, kvaðst hann heita Valberg Sigurmundsson, þetta voru okkar fyrstu kynni. Valberg hafði þá um nokkurra ára skeið stundað fjár- búskap í Viðey eða frá árinu 1963. Hafði hann þá tekið miklu ást- fóstri við eyna sem mér reynist mjög auðvelt að skilja eftir 15 ára kynni af manni og eynni. Valberg fæddist á Fossá Hjarð- arnesi, Barðaströnd, 1920 og ólst þar upp í foreldrahúsum. Fluttist til Reykjavíkur um 1949, hóf þar búskap með eftirlifandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Gísladóttur, og áttu þar heima síðan. Þrjátíu og sex ára gamall varð Valberg fyrir nokkrum heilsu- bresti en áhuginn á lífinu og lífs- baráttunni brast ekki þó líkams- hreystin væri ekki sú hin sama og áður. Eyjabúskapur hefur ævinlega verið talinn nokkuð erfiður og það með réttu. Stafar það fyrst og fremst af óblíðri veðráttu hér á norðurhveli jarðar. Öll þau ár sem Valberg hefur stundað fjárbúskap í Viðey, hefur hann farið á lítilli trillu á milli lands og eyju, jafnt sumar sem vetur, til að hirða um og hlúa að fénaði. Það gerði hann af mikilli samviskusemi og alúð sem hirðin- um góða einum er lagið. Á vorin fór hann út til að annast sauðburðinn, á sumrin til að slá hin grasmiklu og fögru tún Viðeyj- ar. Gegndi sá sláttur tvíþættu hlutverki, í fyrsta lagi til öflunar fóðurs handa ánum, í öðru lagi til að snyrta umhverfi Viðeyjarstofu. Hann fór á vetrum út í eyju til að fóðra ærnar, sem fyrr segir á lítilli trillu, trillu sem honum þótti mjög vænt um, skildi ég það mæta vel eftir að hafa fylgst með honum og hans Viðeyjar vetrarferðum í fimmtán ár. Þær ferðir voru ekki allar farnar á spegilsléttum haf- fleti. Ég verð að segja það eins og er, að oft staldraði ég við og horfði á Valberg á sundunum á sinni litlu bátskænu, sem hann nefndi Uða, er hann var að fara eða koma frá skyldustörfum í Viðey, þegar vetr- arstormarnir æddu svo sterkir að með ólíkindum var að einn maður gæti komist að og frá hafnar- og bryggjulausri eyju eins og Viðey er á vetrum. Til að slíkt mætti takast, þurfti góðan bát, góð hand- tök, sterkan vilja, greind og kjark. Ekki varð vinátta okkar Val- bergs til á einni nóttu, heldur þró- aðist hún með tímanum, ég held traustari og betri eftir því sem árin urðu fleiri, kannski var hann ekki fljóttekinn, sem kallað er, hans eðli var að flana ekki að hlutunum, hann var athugull og orðvar. Hann var glaðlyndur að eðlisfari og oft stutt í húmorinn, hann gætti þess að sá húmor særði ekki. Hreinskiptinn var hann og sagði umbúðalaust það sem honum bjó í brjósti, hverju sinni og þá sama hver átti í hlut. Greiðvikinn var hann og hjálp- samur. Hann bar virðingu fyrir umhverfi sínu og öllu sem lífsanda dró. Hver sem það gerir, býr yfir ákveðnu ríkidæmi, það ríkidæmi er ekki mælt í krónum, enda held ég að Valberg hafi ekki sóst eftir þeim. Hræddur er ég um að næsta vor þegar ég fer að bjástra, ef líf og heilsa leyfir, bjástra við grjót og flotbryggju í Viðeyjarfjöru, að mér finnist fjaran tómlegri en endranær, þegar enginn Valberg er þar til staðar, glaður og reifur eins og hann hafði ævinlega verið síðastliðin 15 vor þá er ég hef komið þar út til starfa í fjörunni. Valberg og Jóhanna eignuðust eina dóttur, Jónu Sigríði, er hún gift Sigfúsi Karlssyni, eiga þau þrjá sonu, þeir eru Varlberg, Karl og Hjalti. Hætt er við að þessum ungu mönnum finnist skarð fyrir skildi, þegar enginn afi er lengur í Viðey til að heimsækja, því þar ríkti sönn og gagnkvæm vinátta á milli, eins og ævinlega gerir hjá kærleiksríku og góðu fólki. Ég veit að það er mikill söknuður og eftir- sjá í góðum afa, hjá þessum ungu mönnum sem eru að byrja lífið og eiga erfitt með að skilja hlutina rétt eins og við hin sem eldri erum. Ég heimsótti Valberg á sjúkra- húsið örfáum dögum fyrir andlát hans, sú heimsókn verður mér minnisstæð. Hann var þá mjög farinn af kröftum en sálarþrekið óbugað, ég gat ekki annað en dáðst að þeirri sálarró er hann sýndi, sárþjáður af þeim miskunnarlausa sjúkdóm sem engum hlífir, vitandi það að senn væri komið að leiðar- lokum. Þrátt fyrir þessar aðstæður færðist bros yfir andlit hans þá er við ræddum saman í hinsta sinn, þvílíkt sálarþrek. Svo var Guði fyrir að þakka, að Valberg stóð ekki einn og óstuddur í þjáningum sínum, við hlið hans stóð eiginkona hans, Jóhanna Gísladóttir, sem lagði sig alla fram af þeirri samviskusemi, þolinmæði og þeim kærleika sem aðeins heil- steyptar manneskjur búa yfir. Þegar mótlætið er mest koma mannkostir einstaklinganna best í ljós. Hún létti honum byrðina eftir því sem í hennar valdi stóð. Veit ég að honum var það ómetan- legt. Allir sem þekktu Valberg náið, trúa því og treysta að jafn góður drengur og hann var, eigi góða heimkomu og stefni nú til enn meiri birtu og þroska á þeirri ei- lífðarbraut sem öllum er ætlað að ganga handan móðunnar miklu. Eiginkonu, dóttur og dótturson- um svo og öllum ástvinum, votta ég mína dýpstu samúð. + Útför eiginkonu minnar, PETREU GEORGSDÓTTUR, fer fram föstudaginn 20. september kl. 15.00 frá Fossvogskapellu. OddurJónsson og aörir vandamenn. Ég veit að minningin um góðan dreng mun lifa og létta þjáningar þeirra sem syrgja. Hafi hann þökk fyrir kynnin. Hafsteinn Sveinsson Þann 11. þessa mánaðar lést í Landspítalanum Kristinn Valberg Sigurmundsson. Hann fæddist á Fossá í Barðastrandarhreppi 20. janúar 1920 og var yngsta barn hjónanna Sigurmundar Guð- mundssonar bónda þar og Kristín- ar Kristjánsdóttur konu hans. Sigurmundur var sonur Guð- mundar Oddgeirssonar í Sauðeyj- um og Sigríðar Andrésdóttur konu hans, en Kristín var dóttir Krist- jáns Jónssonar hreppsstjóra í Hergilsey og Magdalenu Ólafs- dóttur. Drengurinn var látinn heita eftir Valborgu Þorvalds- dóttur húsfreyju á Auðshaugi sem dó árið áður, og í höfuðið á móður hennar, Kristínu prófastsfrú á Brjánslæk. Börn Sigurmundar og Kristínar voru sex auk Valbergs. Haraldur, síðar bóndi á Fossá, og Kristján, eigandi sælgætisgerð- arinnar Kristal í Reykjavík, sem báðir eru á lífi, og Yngvi, Sigríður og Magdalena, sem öll eru nú lát- in. Valberg fór ungur að starfa við búskapinn. Hann eignaðist fljót- lega nokkrar kindur og einn hest. Einnig stundaði hann sjóróðra með föður sínum og var eins og sjómennskan væri honum í blóð borin. Um tvítugsaldur hafði hann eignast eigin bát sem hann nefndi Úða og var hann smíðaður af Gísla Jóhannssyni á Bíldudal. Þann bát átti Valberg lengi. Ég sem þetta rita er systurdóttir Valbergs og ólst upp á'Fossá. Og þar sem við vOrum einu börnin á bænum áttum við mikið saman að sælda. Það voru átta ár á milli okkar og hann var stundum þreyttur á þessari litlu frænku sinni sem elti hann hvert fótmál. Þá vildi slettast upp á vinskapinn eins og gengur. En þegar frá leið urðum við góðir félagar. Hann lánaði mér oft hestana sína, en hann átti alltaf góða hesta og var annt um þá og lánaði þá ekki hverjum sem var. Þær voru marg- ar ferðirnar sem við fórum saman á hestum. Oft vorum við í sjóferð- um og þá var maður öruggur að hafa Valla við stýrið. Oft var heyskapur stundaður út í eyjum, jafnvel út í Sauðeyjum og flytja þurfti hey á litlum vélbáti þessa löngu leið fyrir opnu hafi. Þá skall oft hurð nærri hælum ef veður breyttist. Valberg var kominn undir þrí- tugt þegar hann flutti til Reykja- víkur. Fram að því hafði hann fé sitt á Fossá og vann þar á sumrin en stundaði í nokkra vetur vinnu í Reykjavík. í Reykjavík kynntist hann þeirri stúlku sem síðar varð kona hans, Jóhönnu Gísladóttur frá Hnappavöllum í Öræfum, og bjuggu þau allan sinn búskap í Reykjavík. Jóhanna var Valla ómetanlegur lífsförunautur. Dugnaður hennar er einstakur og ást hennar og umhyggja fyrir manni sinum brást aldrei. Ég man að móðir Valla talaði oft um það hvað hún Hanna væri honum góð og hvað hún væri hugulsöm við þau gömlu hjónin. Skrifaði þeim alltaf svo góð bréf. Valberg og Jó- hanna eignuðust eina dóttur, Jónu Sigríði, f. 1949. Jóna er kennari, gift Sigfúsi Karlssyni og eiga þau þrjá syni: Valberg, Karl og Hjalta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.