Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
19
Algjört
Kvikmyndir
Snæbjörn Valdimarsson
HÁSKÓLABÍÓ: BESTA VÖRNIN
(BESTT DEFENSE) ★
Leikstjóri: Willard Huyck. Handrit
Huyck og Gloria Katz, byggt á
skáldsögunni Easy and Hard Ways
Out e. Robert Grossbach. Tónlist
Patrick Williams. Aöalleikendur
Dudley Moore, Eddie Murphy, Kate
Capsbaw, George Dzundza, Helen
Shaver. Bandari.sk, frá Paramount.
Frumsýnd 1984.
„Við viljum gera góðar myndir,
skemmta fólki... “ Williard
Huyck í viðtali í bókinni The New
Hollywood, e. Axel Madsen. Thom-
Dópog
Disney-
rónar
Myndbönd
Sæbjörn Valdimarsson
A Small Killing ★ ★
Leikstjóri Steven Hilliard Stern.
Handrit byggt á skáldsögu Ric-
hards Barth, The Rag Bag Clan.
Aðalhlutverk Edward Asner,
Jean Simmons, Sylvia Sidney,
Andrew Prine, Pat O’Malley,
Mary Jackson. Bandarísk
sjónvarpsmynd, gerö 1981. Dreif-
ing Regnboginn. 100 mín.
Það sem öðru fremur vakti
athygli mína á þeirri yfirlætis-
lausu mynd, A Small Killing,
var að Edward Asner fer með
annað aðalhlutverkið, en þessi
afbragðsskapgerðarleikari er
alltof sjaldséður hérlendis.
Annars lætur spólan lítið yfir
sér og fær sjálfsagt að hvíla að
mestu í friði. Hún hefur engan
þann dýrðarljóma til að bera
sem kitlar hégómagirnd hins
almenna leigjanda.
En A Small Killing á sinn
sjarma, þó hann framkalli
kannski ekki glýju i augun. Ed
Asner leikur leynilögregluþjón
sem vinnur í skuggahverfum
LA, og dulklæðist sem róni til
að komast betur inni mannlífið
í umdæminu. Flækingskerling
er myrt í hverfinu, að því er
örugglega er talið af fíkniefna-
sala. Málin þróast svo að Asner
fær virðulega, miðaldra ekkju
(Simmons) til að dulbúast sem
flækingur, „plastpokafrú", og
aðstoða sig við að fletta ofan af
eiturlyfjasölunum, sem gjarn-
an nota „frúrnar" til að annast
dreifingu á efninu.
Það er margt vel gert í A
Small KiIIing og kærkomin
breyting að söguhetjurnar eru
manneskjur komnar vel af létt-
asta skeiði, og verða meira að
segja ástfangnar upp fyrir
haus. Og Asner bregst ekki
frefar en fyrri daginn, hress og
atkvæðamikill sem róninn/lög-
reglumaðurinn. Simmons fer
með litlu minna hlutverk, en
það er auðvelt að sjá í gegnum
gervi hennar, það leggur
ábyggilega enginn trúnað á
hana sem „plastpokafrú“. Til
j>ess er hún of fáguð í fasi og
snyrtileg. Og það er fleira sem
stingur í augun. Fyrst og
fremst flækingslýður stórborg-
arinnar sem lítur út fyrir að
vera hið mesta sæmdarfólk
með hjarta úr gulli. Svona eins
og maður gæti ímyndað sér
róna í Disney-mynd. Þessi ólík-
indi gera það að verkum að úti-
lokað er að taka A Samll Kill-
ing alvarlega sem löggumynd,
þrátt fyrir einkar hressilega
frammistöðu Asners. Hins veg-
ar er hún ljúfur rómans um
samskipti tveggja roskinna
einstaklinga sem uppgötva að
þau eiga ennþá nægar heitar
tilfinningar sem þau héldu út-
kulnaðar.
varnarleysi
as Y. Crowell Co. N.Y. 1975. Svo er
að sjá að þau Huyck og Katz séu
haldin alvarlegu minnisleysi svo
fjarri sem Besta vörnin er þessum
ágætu framtíðarhugsjónum.
f sem stystu máli segir myndin
af mislukkuðum verkfræðingi
(Dudley Moore), sem vinnur við að
teikna búnað í hergögn. Eddie
Murphy (í gestahlutverki) gerir
hinsvegar tilraunir með ný vopn í
sandauðnum Kuwait.
Fyrirtæki það sem Moore vinn-
ur hjá, er að hanna nýja gerð af
gírókompás og gengur það allt á
afturfótunum uns okkar manni
berast í hendur frá verðandi
njósnara fullkomnar teikningar af
gripnum. Moore verður allt í einu
hetja en fær jafnframt fljótlega á
hæla sér óaldarlið eins og FBI,
KGB...
Þau Huyck og Katz voru borin á-
höndum Hollywood-framleiðenda
eftir að þau skrifuðu handrit Am-
erican Graffiti. Þá tók við stórskell-
urinn Lucky Lady, síöan hefur leiö-
in legiö niður á við.
Besta vörnin er einfaldlega léleg
gamanmynd þó hún státi af prýð-
isleikurum, sem í sjálfu sér standa
sig ekki illa. En hugmyndin og út-
færsla hennar, bæði hvað varðar
leikstjórn og handrit er ófyndin,
slöpp og ófrumleg, hvernig sem á
er litið. Furðulegt að tveir af bestu
karl-gamanleikurum á tjaldinu í
dag taka þátt í lágkúrunni.
Það er eitthvað meira en lltiö aö þegar tveir af bestu karhgamanleikurum
hvíta tjaldsins fá engu bjargaö I BesU rörnia.
HÚSNÆÐIS
REIKNINGUR
REGUJBUNDINN SPARNAÐUR
MEÐ SKATTAFRÁDRÆTTI
HÁRRI ÁVÖXTUN OG LÁNTÖKURÉm
Landsbankinn býður nú nýja sparireikninga fyrir verðandi húsráðendur.
Skattaf rádrá tt ur.
Fjórðungur árlegs sparnaðar er frádráttarbær frá
tekjuskatti.
Reglubundinn sparnaður.
Samið er um sparnaðarupphæð til eins árs í senn. Hún
þarf að vera á bilinu 3 til 30 þúsund krónur ársfjórðungs-
lega.
Há ávöxtun.
Ávallt er boðin besta ávöxtun sem Landsbankinn veitir
á almennum innlánsformum. Innstæður eru verð-
tryggðar og vextir þeir sömu og á 6 mánaða verðtryggð-
um reikningum. Áuk þess er reiknuð vaxtaupphót ef
ávöxtun annarra almennra innlánsforma reynist betri.
Lántökuréttur.
Lántökuréttur í lok 3ja til 10 ára sparnaðartíma er
tvöfaldur til fjórfaldur sparnaðurinn.
Hámark 400 þúsund til ein milljón krónur.
Úttekt.
Hægt er að taka út af Húsnæðisreikningi eftir 3 til 10 ár.
Upplýsingabæklingur.
Kynnið ykkur frekar þennan nýja sparireikning
Landsbankans í upplýsinga -
bæklingi sem liggur frammi
í afgreiðslum bankans.
LANDSBANK3NN
(írxddur er tptmiur eyrtr
HUSNÆÐIS
REIKNINGUR