Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 Stjórn Frakklands kynnir fjárlög: Aðhaldsaðgerðum verður haldíð áfram Minningarathöfn um þá sem fórust meó s-kóresku flugvélinni fór fram á stórum leikvangi í Seoul, höfudborg Suður-Kóreu. Létu þá margir Kttingjar hinna látnu bugast. Mistök flugmannsins en ekki njósnaflug — segir v-þýskur rithöfundur um s-kóresku flugvélina sem Sovétmenn skutu niður París, 18. september. AP. RÍKISSTJÓRN sósíalista í Frakk- landi tilkynnti á miðvikudag að í fjár- lögum stjórnarinnar fyrir næsta ár myndi núverandi aðhaldsaðgerðum verða haldið áfram en kaupmáttur fólks þó aukinn lítillega. í fjárlögun- um felst m.a. þriggja prósenta lækk- un tekjuskatts sem lofað hefur verið annað árið í röð. Ahrif þessarar skattalækkunar koma væntanlega fram í byrjun næsta árs og fyrir þingkosningarnar í mars 1986. Ríkisstjórn sósíalista hefur haldið fast við fyrirætlanir sínar um takmörkun ríkisútgjalda, þrátt fyrir hættu á fylgistapi fyrir bragðið, sagði talsmaður ríkis- stjórninnar Georgina Dufoix, að loknum ríkisstjórnarfundi, en álit- ið er að ríkisstjórnin missi völdin eftir kosningar. Samkvæmt nýju fjárlögunum mun tekjuhalli þjóð- arinnar aukast í 145 milljóna franka árið 1986 úr 140 milljónum á þessu ári. Fjárlögin gera ráð fyrir ríkisútgjöldum uppá 1.034 trilljónir franka, sem er 3,9 pró- sent aukning frá í fyrra, og miða við 6,1 framleiðsluaukningu í Frakklandi á árinu. Áætlaður halli á fjárlögum um 145 billjónir franka samsvarar 3 prósentum af þjóðarframleiðslur Frakklands í samræmi við það markmið sem Francois Mitterrand hafði sett, sagði Dufoix. í uppkasti fjárlaga ársins 1986 kemur fátt á óvart enda höfðu flest aðalatriði þess spurst út undan- farna tvo mánuði. Almennt séð fela fjárlögin í sér áframhaldandi aðhald á sviði ríkisfjármála í því skyni að draga úr verðbólgu og tryggja efnahagsgrundvöll fram- leiðslufyrirtækja. Waxhington, 18. september. AP. SUÐUR-KÓRESKA nugvélin, sem Sovétmenn skutu niður með 269 manns innanborðs, flaug inn í sov- éska lofthelgi vegna mistaka flug- mannsins, ekki vegna þess, að hún væri í njósnaflugi. Kemur þetta fram í bók, sem nú er að koma út eftir vestur-þýskan rithöfund. „Mistök af þessu tagi hefðu ekki komið fyrir flugmenn á Vestur- löndum og eftir þá endurskipu- lagningu, sem átt hefur sér stað hjá suður-kóreska ríkisflugfélag- inu, er ólíklegt, að þau hendi aftur þar,“ sagði Franz A. Kadell, höf- undur bókarinnar, á fréttamanna- fundinum í gær. Kadell, sem er blaðamaður og sagnfræðingur og starfar nú í Washington, sagði, að það væri eftirtektarvert hve fjölmiðlar í Bandaríkjunum hefðu verið fúsir til að gleypa við þeim tilbúningi Sovétmanna, að flugvelin hefði verið í njósnaflugi fyrir banda- risku leyniþjónustuna. Sagði hann, að viðbrögð sovéska hersins eftir að flugvélin var komin inn í sovéska lofthelgi hefðu að vísu gefið leyniþjónustunni ómetanleg- Kaupmannahöfn: Ekkert sam- band á milli tilræðanna? Kaupmannahöfn, 18. aeptember. AP. NIU manns, sem handteknir voru í Kaupmannahöfn á þriðjudag vegna sprengjutilræðanna í júlí, hafa verið leystir úr haldi. Þetta voru fyrstu handtökurnar vegna júlí-sprenginganna, en þá urðu miklar skemmdir á banda- rískri ferðaskrifstofu í miðborg Kaupmannahafnar og samkundu- húsi gyðinga í borginni. Shita— samtökin „Heilagt stríð" í Beirút í Libanon lýstu ábyrgð á tilræðunum á hendur sér og kváðu þau framin í hefndarskyni fyrir árásir Israela í Suður-Líbanon. Engar vísbendingar hafa fundist um að samband sé milli júlí-tilræð- anna og sprenginganna á sunnudag, þegar stórskemmdir urðu á mat- vöruverslun og ferðaskrifstofu í eigu gyðinga. ar upplýsingar en um það gætu Sovétmenn engum kennt nema sjálfum sér. „Ef Sovétmenn hefðu raunveru- lega trúað því, að flugvélin væri í njósnaflugi, hefði það komið þeim miklu betur að neyða flugmennina til að lenda. Þeir hefðu þá komist yfir njósnabúnaðinn ef um hann hefði verið að ræða og þær upplýs- ingar, sem safnað hefði verið með honum. Þá hefði enginn maður þurft að týna lífi,“ sagði Kadell. í bókinni, sem heitir „KAL 007-morðin“, kemst Kadell að þeirri niðurstöðu, að Sovétmenn hafi vitað, að um var að ræða venjulega farþegaflugvél en þrátt fyrir það skotið hana niður og drepið alla, sem voru um borð. Norður-írland: 900 kg af sprengiefni fundust í bíl Belfast, Nordur-Irlandi, 18. sept AP. Á annað hundrað fjölskyld- ur, sem fluttar voru brott af heimilum sínum í Belfast, þegar um 900 kíló af sprengi- efni fundust í sendibfl þar í nágrenninu, sneru heim í morgun. Sprengiefnið var falið í stál- tunnun í bílnum, og voru sérfræð- ingar frá hernum kvaddir á vett- vang til að annast meðhöndlun þess. Lögreglan sagði, að bílnum hefði verið stolið í gær heima hjá fjölskyldu nokkurri og vopn- aðir menn haldið heimafólki í gislingu í nokkrar klukkustundir. Stöðvuðu lögreglumenn bílinn eftir að hafa umkringt hús á Andersonstown-svæðinu í Bel- fast, en þar er eitt helsta hreiður Irska lýðveldishersins, IRA, í borginni. Fimm menn voru handteknir og færðir til yfirheyrslu, að sögn lögreglunnar. Hosni Mubarak í fjögurra landa ferð Kairó, 18. september. AP. HOSNI MUBARAK, forseti Egyptalands, leggur af stað á morgun í fjögurra landa ferð og er förinni fyrst heitið til Spánar. Mun hann þar leggja áherslu á, að Bandarikjastjórn gangist strax í að koma á viðræðum milii Araba og ísraela um frið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. forsetanna, hans og Reagans. Auk þess mun hann fara fram á meiri hernaðarlega og efnahagslega aðstoð, en aðstoð Bandaríkja- manna við Egypta nemur nú 2,1 milljarði dollara. Eftir nokkurra stunda viðdvöl í Portúgal fer Mubarak til Spánár í opinbera heimsókn og þaðan til Bandaríkjanna. Á heimleiðinni mun hann svo heilsa upp á Mitter- rand, Frakklandsforseta. í ræðu, sem Mubarak flutti í gær við komu Margaretar Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði hann, að ef ekki yrði þegar í stað reynt að koma á friðarviðræðum myndu ofbeldis- og öfgaöflin fær- ast í aukana. Mubarak hefur að undanförnu verið nokkuð þungorð- ur í garð Bandaríkjastjórnar vegna afstöðu hennar til Palest- ínumanna og munu þessi mál verða ofarlega á baugi í viðræðum Sænsku bæjar- og sveitarstjórnakosningarnar: Skánarflokkurinn vann sterkasta virki jafnaðarmanna í Malmö Laftdi, 18. aeptember. Fri Pétri PéturHKyní. Jafnaóarmenn fara áfram meó völdin í landinu, þ.e.a.s. ríkis- stjórnin — en þeir misstu Malmö og því hefóu fáir trúaó fyrir kosn- ingar. Úrslit bæjar- og sveitar- stjórnarkosninganna, sem fóru fram samtímis þingkosningunum, sýna að jafnaóarmenn hafa tapað töluveröu fylgi á Skáni. Þeir misstu meirihluta sinn á nokkrum stöóum bæói í bæjarstjórnum og sýslunefndum, svo sem í Malmö, Helsingborg, Eslöv og Kristjáns- staó. Jafnaðarmenn hafa setið við völd í Malmö í samfleytt 66 ár, eða frá 1919. Þar hefur jafnan verið þeirra sterkasta virki og þar á bæði flokkurinn og verka- lýðshreyfingin djúpar rætur — sem sagt stolt hinnar glæstu hefðar hreyfingarinnar. Alveg frá því kosningarétturinn var rýmkaður og alþýðan fékk fé- lagsleg og stjórnmálaleg rétt- indi, hefur Sósíaldemókrata- flokkurinn getað treyst á fylgis- menn sína þar hvað sem á gekk í landsmálapólitíkinni. Þar var fyrsta alþýðuhús landsins reist, þaðan komu leiðtogar eins og August Palm og Per Albin Hansson. Þar var blað hreyf- ingarinnar, Arbetet, lengi gefið út. En hvaða afl er það sem tekist hefur að brjóta á bak aftur þetta stolta vígi jafnaðarmanna. Jú, það heitir Skánarflokkurinn, sem er einskonar óánægjuflokk- ur af Glistrup-gerð. Undirritað- ur hefur gert stuttlega grein fyrir þessum flokki í Morgun- blaðinu (10/9 ’85). Hann fékk óvænt 5 sæti í bæjarstjóm af 61 og þegar borgaralegu flokkarnir og Skánarflokkurinn leggja sam- an krafta sína hafa þeir meiri- hluta. Sósíaldemókratar hafa þegar lýst því yfir að þeir muni ekki undir neinum kringum- stæðum vinna með Skánar- flokknum sem þeir telja ólýð- ræðislegan flokk, en borgara- flokkarnir geta vel hugsað sér að styðjast við fýlgi hans þegar um er að ræða málaflokka þar sem hagsmunir þeirra fara saman. Formaður Skánarflokksins hef- ur lýst yfir stuðningi flokks síns við sameiginlega stefnuskrá borgaraflokkanna og þar með var valdatímabili jafnaðar- manna lokið. Skánarflokkurinn hefur í raun og veru ekki sett fram neina sér- staka stefnuskrá í bæjarmálum Malmö. Stefnuskrá flokksins fjallar öll um Skán — bæði inn- anríkis- og utanríkismál þessa landshluta, sem flokkurinn vill að verði frjalst og fullvalda ríki í tengslum við NATO og Efna- hagsbandalag Evrópu. Flokkur- inn vill einnig stöðva straum innflytjenda og flóttamanna til Skánar, innleiða frjálsa fjöl- miðlastarfsemi og auglýsingar í sjónvarp og útvarp. Fylgi flokksins er bending um það að fólkið hafi viljað ein- hverja breytingu, án þess að hafa hugmynd um í hvaða átt. Það má einnig túlka það þannig að stjórnmálamennirnir hafi fjarlægst fólkið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.