Morgunblaðið - 19.09.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
15
„Úrslitin ráðast
á öðrum degi"
— Rætt við Bretann Chris Lord á 360
hestafla Audi Quattro
„ÉG ER ástfanginn af „henni“,
„hún“ er frábær. Ég hef farið illa
með „hana“ stundum og „hún“
hefur valdið mér vonbrigðum. En
„hún“ er frábær." Þannig lýsti Bret-
inn Chris Lord kraftmesta bfl Ljóma-
rallsins, 360 hestafla Audi Quattro
sem hann segist í gamni ástfanginn
af. Hann ekur ásamt íslenskum
aðstoðarökumanni, Birgi Viðari
Halldórssyni. Spjallaði Morgunblað-
ið við Lord um keppnina.
Christ Lord hefur keppt í rall-
akstri í 13 ár og er nú orðinn
framarlega í keppni í Bretlandi.
Fyrstu átta árin ók hann með
styrk frá Vauxhall-bílaverksmiðj-
unum, en skipti síðan yfir á Talbot
í tvö ár. Árið 1983 ók hann sem
atvinnuökumaður fyrir Mazda—
bílaverksmiðjurnar á Mazda RX
7. Núna ekur hann hinum fjór-
hjóladrifna Audi Quattro og nýtur
aðstoðar Audi í Englandi. Er
blaðamaður spjallaði við Lord var
hann nýkominn frá því að skoða
keppnisleiðir. „Mér líst mjög vel á
vegina, en þeir eru þröngir. Ég
verð að passa bílinn vel, hann má
lítið hreyfast til hliðanna á vegin-
um. Ég held að úrslitin muni ráð-
ast á Kjalvegi á öðrum degi. Það
verður því mikilvægt að vera i
forystu eftir fyrsta dag, því fram-
úrakstur er erfiður á Kili. Mér
finnst gott að vera með rásnúmer
fjögur, þá get ég séð hve hratt
fremstu bílarnir fara á fyrstu leið-
unum og get hagað mínum akstri
eftir því,“ sagði Lord.
„Ef vegirnir verða hálir mun
Quattro-bíllinn hafa mikla yfir-
burði, en ég veit ekki enn hvs
mikill hraði er I keppninni hér.
Við sjáum til. Við Birgir höfuiu
aldrei unnið saman áður, en okkur
kemur mjög vel saman. Andinn í
bílnum er góður, sem er mikilvægi
í svona langri keppni.
Við erum með viðgerðarmann
frá Englandi, en það er spurning
um hve mikið verður hægt að laga
bílinn ef eitthvað alvarlegt gerist.
Hann er það tæknilega flókinn að
það þarf marga sérþjálfaða við-
gerðarmenn. Quattro-inn er góður
þegar hann er í lagi, en ef bilar,
þá er hann hræðilegur. Því mun ég
keyra varlega. Ég held að helsti
andstæðingurinn verði Finninn
Geitel og hann mun reyna mikið
Audi Quattro Chris Lord og Birgis V. Halldórssona í keppni í Bretlandi. Samskonar bflar hafa verið framarlega í
heimsmeistarakeppninni. Bfll Lord er keppnisbfll fyrrum heimsmeistara, Finnans Hannu Mikkola.
til að vinna. Ef ég næ forystu þá
mun Geitel keyra grimmt.
Þið hafið úrval vega hér og
keppnin getur auðveldlega orðið
liður í Evrópumeistarakeppninni
ef skipulagið er gott. í Bandaríkj-
unum eru áætlanir um að rall-
keppni þar verði liður í heims-
meistarakeppninni, en þeir byrj-
uðu rallakstur á svipuðum tíma
og íslendingar. Þið hafið því gott
tækifæri hér,“ sagði Lord. Að-
spurður um hvernig tilfinning það
væri að eiga að keppa í bíl, sem
hefur verið framarlega í heims-
meistarakeppninni sagði Birgir.
„Þetta er stórkostlegt tækifæri.
Draumur allra ralláhugamanna.
Ég þekki ekki bílinn og veit ekki
hver hraðinn verður, en hann
verður örugglega mikill. Við eigum
mikla möguleika á sigri, enda
vanir að keppa til sigurs. Ég vona
að Lord verði ekki of kappsfullur
við stýrið, þvi keppnin er löng. Ég
gæti trúað að úrslitin ráðist á
fyrstu tveimur dögunum," sgði
Birgir.
G.R.
„Traustur bíll er mikilvægastur
— segir Ómar Ragnarsson
«
ÞAÐ ER sannarlega skarð fyrir skyldi að Ómar Ragnarsson skuli ekki taka
þátt í Ljómarallinu. Hann sigraði keppnina í þriðja sinn á sl. ári og hlaut
þá einnig fslandsmeistaratitilinn. Vegna meiðsla verður hann fjarri góðu
gamni. Þar sem Ómar er öllum hnútum kunnugur í Ljómarallinu spjallaði
Morgunblaðið við hann um keppnina.
„Mér er nokkuð sama þó ég keppi
ekki núna. Mér leið verr fyrir
tveimur mánuðum, þegar það varð
ljóst að ég yrði að hætta. Þá var
staðan ágæt í íslandsmeistara-
keppninni. Mér er sama núna,“
sagði Ómar. „Ljómarallið núna
verður íslendingum erfitt. Er-
lendu keppnisbílarnir eru mjög
góðir. Það hefði ekki veitt af því
að „setja allar fleytur á flot“ gegn
þeim. Þekking heimamanna á
aðstæðum skiptir máli, en þessir
ökumenn sem koma núna eru í
mikilli æfingu og eru fjótir að átta
sig á aðstæðum. Því finnst mér
ekki rétt sem verið er að gera með
Ljómarallið. Það hefur verið stytt,
erfiðar kaflar hafa verið teknir út
mikið vegna tilmæla útlendinga.
Ég samþykki ekki þetta væl um
grófar leiðir. Keppendur verða
bara að vara sig á grófum leiðun-
um. Þetta má ekki verða eintómur
hraðakstur, þá verður Ljómarallið
eins og hver önnur keppni í Evr-
ópu. Keppnin á að vera erfið,
ögrandi. Þannig að mönnum finnst
afrek að ljúka keppni. Það er
smám saman verið að draga tenn-
urnar úr Ljómarallinu," sagði
Ómar.
„Galdurinn við að ná árangri í
keppninni er að fara ekki of geyst
af stað, eins og menn gera alltaf.
Menn keyra eins og brjálæðingar
í byrjun og eru fljótlega komnir
með bílinn í hengla. Það þarf að
fara skynsamlega af stað og meta
síðan stöðuna á öðrum degi. Þetta
verður hörkukeppni. Ef hraðinn
veðrur mikill þá er betra að vera
á einföldum bíl. Því er ég hræddur
við bilanir í Audi Quattro Chris
Lord og Birgis Viðars. Finninn
Peter Geitel lærði lexíu í fyrra, ég
hef trú á honum í þessari keppni.
Bjarmi hefur líka sterkan bíl, held
ég. Það er númer 1, 2 og 3 að hafa
traustan bíl og aka skynsamlega,"
sagði ómar.
G.R.
ASEA framleiddl fyrsta 3ja fasa rafmótorinn árið 1890. í dag er ASEA MOTORS einn af
stærstu mótorframleiðendum í heimi.
Nýi mótorinn frá ASEA, gerð MBT, er hljóðlátur, sterkbyggður og sparneytinn á orku.
Rönning á ávallt til mótora í birgðageymslum og veitir tækniþjónustu. Endurseljendur