Morgunblaðið - 19.09.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.09.1985, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 Um útúrsnún- inga og gífuryrði * ^ — eftir Arna Arnason framkvœmdastjóra í Innansveitarkroniku sinni seg- ir Halldór Laxness: „Því hefur verið haldið fram að íslendíngar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármuna- rökum varla heldur, og þó enn síð- ur fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“ Þessi gullkorn Nóbelsskáldsins koma gjarnan í hugann, þegar sést til viðbragða forystu bændasam- takanna vegna umræðna eða skrifa um landbúnaðarmál. Þar er flest flokkað sem rógur og árás á bændur. í Árbók landbúnaðarins fyrir árið 1984, sem nú er nýkomin út, ritar Gunnar Guðbjartsson rit- stjóri Árbókarinnar og fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins nokkurs konar forystugrein. í sjálfu sér er grein- in öll hin ómerkilegasta enda full af órökstuddum, röngum og meið- andi ummælum. Venjulegast eru slík skrif ekki svara verð, en þegar í hlut á opinber embættismaður, er óhjákvæmilegt annað en koma því á framfæri, að hér sé ósmekk- lega að verki staðið og ekki manni í stöðu Gunnars samboðið. Ásakanir þess efnis, að Verzlun- arráðið vinni „gegn íslenskum at- vinnuvegum" og undirbyggi og fylgi eftir rógsherferðum í því skyni, dæma sig sjálfar. Á sjötta hundrað félagar Verzlunarráðsins úr nær öllum greinum atvinnulífs- ins eru að sjálfsögðu besta sönnum hins gagnstæða. f grein sinni gerir Gunnar til- raun til að vera málefnalegur, er hann segir: „Til dæmis hefur það (þ.e. Verzlunarráðið, innskot mitt) tvo lögfræðinga á launum í því skyni að fá tvenn lagaákvæði sem Al- þingi hefur sett og varða landbún- aðinn dæmd ógild. Það eru ákvæði í lögum um Búnaðarmálasjóð og ákvæði um kjarnfóðurgjald í lög- unum um Framleiðsluráð land- búnaðarins." Því miður misskilur hann gjör- samlega um hvað þessi málarekst- ur snýst. Bæði málin snerta stjórnarskrá lýðveldisins. Það fyrra snertir fé- lagafrelsi, þ.e. spurninguna: Má neyða menn gegn vilja sínum til þátttöku í félögum og greiðslu fé- lagsgjalda til þeirra? Stjórnar- Árni Árnason Ásakanir þess efnis, að Verzlunarráðið vinni „gegn íslenskum at- vinnuvegum“ og undir- byggi og fylgi eftir rógsherferðum í því skyni, að dæma sig sjálfar. skráin áskilur mönnum, sem kunnugt er, rétt til að stofna félög í öllum löglegum tilgangi. Hér er því einungis verið að reyna á, hvort þessi réttur er ekki líka sá, að fá að standa utan félaga, sem menn vilja taka þátt í, en þetta frelsisákvæði er skilið þessum skilningi í nágrannalöndum okkar. Hér á landi er hins vegar al- gengt að menn öðlist aðild að fé- lögum án þess að vera sérstaklega spurðir. Þannig er t.d. oftast nóg að ráða sig í vinnu til að verða sjálfkrafa félagi I stéttarfélagi. Félagsgjald til verkalýðsfélagsins er svo tekið af laununum. Hitt málið snertir 40. gr. stjórn- arskrárinnar, sem segir að álagn- ing skatta og breyting á þeirri álagningu skuli gerð með lögum. 1 þjóðfélagi okkar eru hins vegar margir skattar, sem virðast ekki samrýmast þessu ákvæði. Lengst er þó gengið í tilviki kjarnfóð- ursgjaldsins, en sá skattur er 0—200% að geðþótta eins ráð- herra, en auk þess fer innheimta gjaldsins og ráðstöfun fram utan fjárlaga og afskipta alþingis. Mál- ið snýst því um það, hvort svo víð- tækt valdframsal og slík útfærsla á skattheimtu samrýmist stjórn- arskránni og geti verið til eftir- breytni á öðrum sviðum. Vissulega getur það verið skilj- anlegt að það komi mönnum á óvart, að reynt skuli á það, hvort eitthvert hald sé í lýðfrelsis- ákvæðum stjórnarskrárinnar. Það er þó eina lýðræðislega leiðin til varnar, þegar á það skal reynt hvort réttlæti, jafnrétti og frelsi einstaklingsins sé einhvers metið í þessu landi. Þessi misskilningur er eitt, en hitt er furðulegra, hversu óstinnt forystumenn bændasamtakanna taka upp alla umræðu um land- búnaðarmál. í þessu efni verður þeim að fara að skiljast, að mál- efni landbúnaðar eru ekki einka- mál forystunnar. Erlendar lántökur, styrkir, út- flutningsbætur og niðurgreiðslur, sem renna til landbúnaðar skipta auðvitað alla skattgreiðendur máli. Þegar því er svo einnig bætt við, að fullyrt er að t.d. sauðfjár- búskapurinn sé afar óhagkvæmur og eigi stóran þátt í gróðureyðingu landsins, þá þarf engum að koma á óvart að menn spyrji hvort önn- ur skipan á þessari atvinnugrein muni skila okkur betri árangri. Viðbrögð bændaforystunnar eru hins vegar að allar efasemdir, hversu hógværar og vel rökstudd- ar, séu rógur og árás á bændur. Þetta er e.t.v. þeirra leið til að draga athyglina frá því, að hverju gagnrýnin beinist, sem er kerfið sjálft, en það hefur forystan ein- mitt átt sinn þátt í að skapa og virðist umfram allt vilja vernda. Höíundur er frnmk ræmdtsíjóri Verzlunarráds ínlands. Lýst stuðningi við hugmyndir um fast aðsetur biskups á Hólum HÉRAÐSFUNDUR Húnavatnspró- fastadæmis var haldiaa á Hvamms- Ljómandi fflof Einkaumboð á Islandi. Fagurlega hönnuð hnífapör úr vesturþýzku gæðastáli Rokoko 9300 30 stk. í gjafakassa. Verð kr. 5.160- & '4 Westminster 9700 30 stk. í gjafakassa. Verð kr. 6.215,- Contrast 529 WTO Chrom-Níckel-Start 90 g versilberl Viener Barock 7000 30 stk. í gjafakassa. Verð kr. 6.215,- Contrast 529 30 stk. í gjafakassa. Verð kr. 8.260,— ATH.: Stórir gjafakassar með 72 stk. til stærri hátíðargjafa. VISA og EUROCARD R.AMMAGERÐIN KRISTALL & POSTULÍN HAFNARSTRÆTI19 SIMI 91-11081 Sendum í póstkröfu. tanga sunnudaginn 1. september. Áður en gengið var til fundarins var haldin guðsþjónusta í Hvamms- tangakirkju. Altarisguðsþjónustu önnuðust sr. Guðni Þór Ólafsson á Melstað og sr. Oddur Einarsson á Skagaströnd, en sr. Baldur Rafn Sig- urðsson í Bólstað predikaði. Að guðsþjónustunni lokinni bauð sókn- arnefnd Hvammstangasóknar til kafTisamsætis í félagsheimilinu. Sr. Róbert Jack prófastur setti héraðsfundinn og flutti yfirlits- ræðu sína. Gat hann um þá við- burði sem hæst hafði borið í kirkjulegu starfi sl. ár og um breytingar á prestaskipan í pró- fastsdæminu, en sr. Flóki Krist- insson prestur á Hólmavík sagði starfi sínu lausu eftir að hafa hlotið kosningu í Stóra-Núps- prestakalli I Árnesprófastsdæmi. Þá hefur sr. Einar Jónsson prestur í Árnespresta kalli á Ströndum fengið veikindaleyfi og sr. Yngvi Árnason á Prestbakka verið settur til að gegna aukaþjónustu fyrir hann. Prófastur lagði fyrir fundinn til kynningar og umræðu nýsett lög um kirkjusóknir, safnaðarfundi, sóknarnefndir, héraðsfundi o.fl., svo og lög um sóknargjöld sem gildi taka hinn 1. janúar 1986. Fundurinn kaus bá sr. Guðna Þór ólafsson og Jón Isberg sýslumann og safnaðarfulltrúa á Blönduósi til að taka sæti í héraðsnefnd, en þá sr. Árna Sigurðsson og Ólaf Óskarsson í Víðidalstungu til vara, en prófastur er formaður nefndarinnar. Umræður urðu um stofnun héraðssjóðs og var ný- kjörinni héraðsnefnd falið að vinna að stofnun hans. Sr. Árni Sigurðsson flutti erindi á fundinum og fjallaði i því um Lima-skýrsluna og samskipti hinna ýmsu kirkjudeilda. Þá fluttu og erindi þau Gunnlaugur Stefánsson fræðslufulltrúi Hjálp- arstofnunar kirkjunnar og Pálína Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðing- ur. Fjallaði Gunnlaugur um hjálp- arstarfið, en Pálína greindi frá dvöl sinni i Eþíópíu á vegum Hjálparstofnunarinnar, en hún vann þar að líknarstörfum. Umræður urðu miklar á fundin- um og var m.a. ályktað um stuðn- ing við hugmyndir um fast aðsetur víglubiskups á Hólum. (FrétUtilkrnniag.) V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.