Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLADID. FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
21
Jón Guðjónsson formaður HVÍ
Mikill hugur
að ráðast ístór
verkefni
„MÉR fínnst þetta bafa verið með
skárri þingum sem ég hef setið,“ sagði
Jón Guðjónsson formaður HVÍ.
„Umræður hafa verið líflegar og sýnt
að mönnum er ekki alveg sama hvern-
ig málin snúast eða um hvað. Það er
athyglisvert við stjórnarkjör að ungt
fólk kemur inn. Þetta eru ákveðin
kynslóðaskipti og unga fólkið kemur
með nýjar hugmyndir bæði í stjórn
og varastjórn.
Áhersluatriðin á þessu þingi sýna
að hugur manna er nógu mikill að
ráðast í stór verkefni s.s. að gera
Þrastalund að stærri stað en til
þess þarf peninga og hreyfingin er
fjárvana. Áð efla íslenskt og hvetja
til þess að íslenskar vörur séu settar
fram undir íslensku nafni er mark-
vert. Við viljum fá iðnrekendur tii
að taka meira tillit til þessa og
mættu þeir leggja hreyfingunni
meira lið í tilefni af þessu framtaki.
Hjá okkur í HVÍ er aðaláherslan
á íþróttastarfinu. Nú í sumar vor-
um við með sumarbúðir 9. árið í röð
í Núpsskóla. Aðsókn var mjög góð,
alls 120 krakkar 6—14 ára.“
Sig. Jóns
Landsmótið
eykur
íþróttaáhugann
„ÞAÐ MÁ segja að undirbúningur
Landsmótsins sé ekki langt kominn,“
sagði Kristján Yngvason formaður
HSÞ, en mótið verður haldið á sam-
bandssvæði Þingeyinga á Húsavlk
1987. Kristján tók við formennsku sl.
vor. Hann sagði að í byggingu væri
íþróttahús á Húsavík og lagfæringar
yrðu gerðar á íþróttaaðstöðunni.
„Sundaðstaða hefur verið nokkur
höfuðverkur. Við sóttum um að
flytja sundið að Reykjahæð í Mý-
vatnssveit þar sem er 25 m laug en
þingið hafnaði því, þannig að við
verðum að setja upp bráðabirgða-
laug fyrir mótið. Hér á þinginu
hafa komið upp athyglisverðar
hugmyndir um útileikhús á lands-
mótinu þar sem léttar sýningar yrðu
í gangi og meira höfðað til barna í
dagskránni.
Starfið í HSÞ hefur verið í nokk-
urri lægð en með Landsmótinu
vonumst við til að blása lifi í starf-
ið. Fjármálin hafa verið erfið en við
erum með ýmsar hugmyndir að
rétta þau við.
Kristján Yngvason formaður HSÞ
Ég geri ráð fyrir að við verðum
með algjörlega nýtt lið á Lands-
mótinu á Húsavík, í frjálsum íþrótt-
um og í sundi sem er vaxandi grein
með tilkomu n’yju laugarinnar í
Reykjahlíð.
Það sem mér finnst athyglisvert
við þetta þing er að hér er meira
af ungu fólki sem tekur þátt í starf-
inu. Umræður hafa verið snarpar
hér um störf stjórnarmanna sem
sýnir að líkur eru á að kynslóða-
skipti verða innan UMFÍ á næstu
árum.“
Sig. Jóns.
Gaman að sjá
hverjir það eru
sem stjórna
„Mér fínnst mjög gaman að sjá
hvað er að gerast innan UMFÍ og að
vita hverjir það eru sem stjórna. Sér-
staklega gaman var að fylgjast með
umræðum um sundmálið á Húsavík,"
sagði Svanhildur Kristjónsdóttir
íþróttakona úr Kópavogi sem var
meðal þingfulltrúa á Flúðum.
„Hjá okkar félagi verður við sem
erum þátttakendur að hafa áhuga á
félagsstarfinu sjálf og sjá um hlut-
ina, fjáröflun og þess háttar. Við
hjá frjálsíþróttadeild Breiðabliks
höfum enga sterka karla sem
standa á bak við okkur.
Svanhildur Kristjónsdóttir
Það er þokkalegur áhugi fyrir
starfinu, svona 15—20 sem æfa
frjálsar að staðaldri eftir ieiðsögn
frá þjálfara," sagði Svanhildur.
Athyglisvert
hvað fólk er
sammála
um starfið
„Það sem mér fínnst athyglisvert
hér á þessu þingi er hvað fólk hvað-
anæva af landinu er sammála um
hlutina og kemur sér vel saman um
starfíð," sagði Þórgunnur Torfadóttir
framkvæmdastjóri ÚSÚ. Hún er frá
Hala í Suðursveit og ungmennafélag-
ið þar heitir Vísir með 80—100 félaga
og aðalstarfíð í kringum frjálsar
íþróttir.
Þórgunnur Torfadóttir
„Starfið hjá ÚSÚ lá að verulegu
leyti niðri í fyrra en er núna á upp-
leið. Við höfum verið með sumar-
búðir og leikjanámskeið fyrir
krakka sem sýna þessu starfi mik-
inn áhuga. Við stefnum að þvi að
vera með gott lið á Húsavík á
næsta Landsmóti," sagði Þórgunn-
ur.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF HAGRÆÐINGAR HF.
( nútímafyrirtækjum skiptir miklu máli að finna réttan starfskraft fyrir hvert starf. Val þetta getur verið vandasamt og tímafrekt. HAGRÆÐING hf. býður nú uppá ráðning- arráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir. ( ráðgjöf HAGRÆÐINGAR hf. felst m.a. aðstoð við flokkun umsókna, mat á um- sækjendum, val starfskrafta, gerð ráðn- ingasamninga, gerð starfslýsinga og kynn- ingu fyrirtækja fyrir nýjum starfskröftum. 7// Ráðgjöf þessi er sveigjanleg í eðli sínu þannig að hægt er að fá aðstoð á hvaða stigi ráðningar sem er. Hringið í síma 28480 og fáið sendan upplýsingabækling. Kristján Sturluson, ráðgjafi. HAGRÆÐING hf. býður einnig uppá samskiptagrein- ingu, aðgerðagreiningu, þjónustugreiningu, vinnusál- fræðilegar rannsóknir og námskeið. HAGRÆOINGhf
// STARFSMENN STJÓRNUN SKIPULAG
Til starfa í Thai-
landi á vegum RKÍ
JÓN Karlsson, hjúkrunarfræðingur,
er nýfarinn til Khao-i-Dang á landa-
mærum Thailands og Kambódiu, þar
sem hann mun starfa næstu sex mán-
uði í sjúkraskýli sem Alþjóðarauði-
krossinn rekur.
Kristín Ingólfsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur er nýkomin heim eftir sex
mánaða starf á vegum Rauða kross
íslands í fjarlægum löndum, fyrst i
Sómalíu og síðar í Kenýa. Rauði
kross íslands sendi fyrst hjúkrunar-
fræðinga til Thailands árið 1979 og
æ síðan hefur verið þar starfandi
hjúkrunarfræðingur á vegum RKÍ.
Jón Karlsson er sá sextándi í röð-
inni. Þess má geta að nýlega bárust
RKÍ sérstakar þakkir frá Alþjóða-
rauðakrossinum fyrir framlag sitt
til starf seminnar í Thailandi.
(Frétutilkjnning)
Jón Karlsson hjúkrunarfræðingur.