Morgunblaðið - 19.09.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985
LYFTARAR
Eigum til afgreiöslu nú þegar mikið úrval notaöra rafmagns- og diesel-
lyftara. ennfremur snúnlnga- og hliöarfærslur.
Tökum lyftara upp i uppgeröan, leigjum lyftara, flytjum lyftara.
Varahluta- og viögeröaþjónusta.
Líttu inn — við gerum þér tilboö.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
Vitastíg 3, símar 26455 og 12452.
u
HAGLASKOT
ódýr og örugg
® BRNO
®RREARMS
MEPKURIA
□■J PfíAHA CZECHOSICA/AKIA
Clever haglaskotin eru þekkt fyrir
gæði og nákvæmni. Nú fyrirliggjandi
í ótal stærðum og gerðum.
Einnig úrval af BRNO haglabyssum
og rifflum. Markviss skot!
örugg skotvopn!
Fást í sportvöruverslunum og
kaupfélögum um land allt.
VERSLUNARDEILD
HEIMILISVÖRUR ■ HOLTAGÖRÐUM SÍMI 8 12 66
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fl.
Danfoss VLT hraðabreytar fyrir þriggjafasa
rafmótora allt að 30 hö.
Hraðabreytingin er stiglaus frá 0-200% og mótorinn
heldur afli við minnsta snúningshraða.
Leitið frekari upplýsinga í söludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA
Félag skólastjóra og yfírkennara:
Fjallað um kosti og galla
einkaskóla — ríkisskóla
Á ÁRSÞINGI og aöalfundi Félags
skólastjóra og yfirkennara, sem
haldið var fyrir skömmu, var fjallað
um einkaskóla - ríkisskóla, kosti og
galla þessara tveggja skólagerða.
Framsögumenn voru Inga Jóna
Þórðardóttir aöstoðarmaður ráð-
herra, Gerður G. Óskarsdóttir endur-
menntunarstjóri Háskóla íslands,
Haukur Helgason skólastjóri í Hafn-
arfirði og María S. Héðinsdóttir
skólastjóri Tjarnarskóla.
í máli Ingu Jónu kom meðal
annars fram að ákvæði um heimild
til rekstrar einkaskóla hefði verið
í lögum allt frá 1946 og er þess
þar jafnframt getið að einkaskólar
eigi ekki kröfu til styrks af al-
mannafé. Sagði hún að viðtekin
skilgreining á einkaskóla virtist
vera sú að það sé skóli sem ekki
er rekinn af ríkinu óháð því hver
kostar rekstur hans. Að hennar
mati væri það ekki kjarni málsins
hver ætti skólann, heldur hverjum
væri gert kleift að reka skóla og
að það væri ekki sjálfgefið að hið
opinbera þyrfti að reka skólana til
að ná markmiðum laganna. Því
bæri að gera sem flestum kleift
að reka skóla og stuðla að fjöl-
breyttu framboði og samkeppni,
sem er nauðsynleg til að tryggja
mestu mögulegu gæðin um leið og
nemendur fá tækifæri til að velja
hvaða skóla þeir sækja. Hinu opin-
bera er skylt að greiða kostnað við
nám skyldunámsnema óháð hverj-
ir reka skólana.
Sjónarmið þeirra sem teldu að
tilkoma einkaskólans væri atlaga
að ríkisskólanum sagði hún vera á
misskilningi byggt og sýndi undra-
verða en ástæðulausa ótrú á því
Þrír þýskir bóksalar hafa dvalist
hér á landi undanfarna daga.
Ferð þeirra hingað til lands er
verðlaun sem þau unnu til í sam-
keppni sem fram fór í Vestur—
Þýskalandi um bestu gluggaút-
stillingu á bókinni Unter frostigen
Stern, sem er þýðing Jóns Laxdal
skólakerfi sem við búum við í dag.
Einkaskólinn gæti hinsvegar gefið
ríkisskólunum gullið tækifæri til
að laga sig að nýjum tímum og
breyttum kröfum ef í ljós kæmi-
að ríkisskólarnir geti ekki sinnt
þeim kröfum sem gerðar eru til
menntunar í nútímaþjóðfélagi.
Ef ætlast er til að skólarnir
standist samkeppni verður að
tryggja ákveðið sjálfstæði þeirra
og fela stjórnendum þeirra enn
meira ákvörðunarvald en þeir hafa
í dag og þannig gefa skólunum
ákveðinn sveigjanleika. En fyrst
og fremst verður að efla tengsl við
þá sem skólinn er orðinn til fyrir,
nemendurna sem þar stunda nám.
Þeirra rétt ber fyrst og síðast að
tryggja.
Gerður G. Oskarsdóttir lagði
áherslu á að það væri fráleitt að
nefna Tjarnarskóla einkaskóla,
hann væri í raun ríkisskóli með
„ábót“ og gagnrýndi hún af-
greiðslu yfirvalda á málum Tjarn-
arskóla og benti á að erlendis væru
skólar með þessu sniði látnir
standa undir sér. Hún sæi ekki að
Tjarnarskólinn byði upp á nýjung-
ar í kennslu, sem ekki hefðu þegar
verið reyndar í grunnskólum, en
reyndar hefði fjárskortur oft
hamlað því að slíkar tilraunir
fengju að dafna og þróast. Verði
áfram haldið á þessari braut, að
sérhópar geti gengið að því sem
vísu að fá fulla fjárveitingu frá
ríkinu til skóla, sem þeir ætla svo
að greiða viðbótarframlag til,
munum við þegar tímar líða
standa uppi með tvö skólakerfi,
annars vegar úrvalskerfi fyrir þá
ríku og annars flokks fyrir hina.
á Undir kalstjörnu eftir Sigurð
A. Magnússon. Það var útgefand-
inn Touristbuch Verlag í Hanno-
ver, sem gekkst fyrir samkeppn-
inni í samvinnu við Flugleiðir.
Þjóðverjarnir dvöldu hér í fjóra
daga og skoðuðu sig um í Reykja-
vík og á Suðurlandi.
María Héðinsdóttir skólastjóri
Tjarnarskóla gagnrýndi grunn-
skólann og sagði hann vera svifa-
seinan í að fylgja þróun í sam-
félaginu og nefndi sem dæmi val
á námsefni. í þjóðfélaginu hefðu
orðið miklar félagslegar breyting-
ar á undanförnum árum, sem
gerðu þær kröfur til skólanna, að
þeir tækju enn frekari þátt í upp-
eldisstarfi nemendanna með lengri
og samfelldari skóladegi. f Tjarn-
arskóla yrði reynt að leyta nýrra
leiða til að uppfylla þessar kröfur
með það meginmarkmið í huga að
efla uppeldis- og fræðslustarf ís-
lenskra barna.
Skólagjaldið sem svo harðlega
hefur verið gagnrýnt réttlætti ekki
að hætta við stofnun skólans. Að
mati stofnenda skólans leiddu
skólagjöldin til aukins aðhalds
kennara og þá um leið nemenda.
Þegar ákveðið var að stofna skól-
ann var treyst á dómgreind fólks,
sem hefði hug á að leita nýrra leiða
í menntun unglinga. Astæðuna
fyrir stofnun Tjarnarskóla má
rekja til þess að ekkert tækifæri
gafst til að breyta skólunum eins
og þeir eru reknir í dag, hvorki
fjármálastefnu né menntastefnu.
Þess vegna var skólinn stofnaður
til að sýna hvað hægt væri að gera
ef skólinn fengi meira sjálfræði.
Loks talaði Haukur Helgason
skólastjóri og taldi hann meginá-
stæðuna fyrir stofnun Tjarnar-
skóla vera hagnaðarvon og að nýir
straumar í stjórnmálum með nýu
íhaldsstefnunni þar sem allt á að
vera í einkarekstri hafi gert skól-
ann að veruleika. Stefnan hingað
til hefði verið að skólinn ætti að
vera skóli allra barna og þvi hefði
verið fagnað en nýja íhaldsstefnan
væri að ganga af skólanum dauð-
um. Gagnrýndi hann harðlega
Guðmund Magnússon blaðamann
Morgunblaðsins fyrir greinarskrif
í blaðið þar sem Guðmundur varp-
aði fram þeirri hugmynd að for-
eldrar fengju senda ávísun fyrir
skólagjöldum barnanna og þeim
væri síðan í sjálfsvald sett, hvaða
skóla börnin sæktu. Þannig stend-
ur stærsti stjórnmálaflokkur
landsins að ómaklegum árásum á
ríkisreknu skólana á meðan við
búum við fjársvelti, lágum laun
kennara og kjarabaráttu.
Hann taldi að rétt væri að gera
ráð fyrir einkaskólum eins og fram
kæmi í lögum, en þáttur ríkisins
í stofnun og rekstri hans væri ekki
réttur eins og sértrúarafl í Sjálf-
stæðisflokknum vildi knýja í gegn.
Því vildi hann berjast gegn þeim
öflum, sem mismunuðu börnum
eftir efnahag foreldra.
Að framsöguerindunum loknum
fóru fram pallborðsumræður með
þátttöku skólastjóranna Kára
Arnórssonar og Ragnars Júlíus-
sonar þar sem svarað var fyrir-
spurnum fundarmanna.
. Morgunblaðiö/Bjarni
Bóksalarnir þýsku ásamt Sigurði A. Magnússyni. F.v. Rudolf Schwanz og
kona hans Hildegard, Kania Waltraut, Sigurður A. Magnússon, Edgar
Waltraut, maður Kaniu og Irmela Bornemann.
BALLETT
KENNSLA
HEFST
ÍBYRJUN
OKTÓBER
Byrjenda- og framhalds-
flokkar frá 5 ára aldri
INNRITUN DAGLEGA
í SÍMA 15359
RAD
R0YAL
ACADEMY
0F DANCING
BALLETTSKÓLI
Guðbjargar Björgvins
Iþróttahúsinu
Seltjarnarnesi.