Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.09.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 „ísland? Þekkirðu sterkasta mann í heimi? Hann er íslendingur ef ég man rétt, eða er hann írskur?“ Leigubílstjórinn leitar svara við þessum spurningum á fleygiferðinni út á Schiphol-flugvöll, reyndar búinn að lofa að gera sitt besta til að koma farþeganum tímanlega á áfangastað, segist þó ekki gera ráð fyrir neinum kraftaverkum. Hann tilheyrir greinilega einhverj- um hinna lituðu minnihlutahópa þjóðarinnar sem nú eru samanlagt um 10 prósent landsmanna, fólk sem heldur fast í fornar venjur og siði en er smám saman að öðlast meiri réttindi í Hollandi, taka t.d. í fyrsta sinn þátt í kosningum á næsta ári. Við hálffljúgum fram hjá íþróttaleikvanginum og bílstjórinn upplýsir að fyrirhugað sé að byggja nýjan leikvang, sem taki 200 þúsund manns í stað þeirra hundrað þúsunda sem rúmast á þessum velli, fyrir Ólympíuleikana sem verða að öllum líkindum haldnir í Amsterdam 1992. Hann segist yfirleitt ekki lesa dagblöð, og er ókunnugt um að forseti þess lands, sem fætt hefur af sér sterkasta mann í heimi, er svo að segja rétt ókominn í opinbera heimsókn. Og áfram er brunað, fram hjá kúluhúsi sem hýsir flugminjasafn og eftir mörg hundruð metra löngum undirgöngum, bílstjórinn kvartar um hita, er klæddur vattúlpu og segist vera eins og í saunabaði í sólinni fyrir ofan. „Það var rigning og suddi í morgun þegar ég fór af stað en veðrið hér er síbreytilegt, skiptast á skin og skúrir.“ f huganum rifjar farþeginn upp veðráttu heimalandsins, kannast við svipaða veðurfars- lýsingu og minnist orða erlends ferðamanns er hann sagði: „Á íslandi er ekkert veður, bara sýnishorn.“ Og meðan ekið er í loftinu út á flugvöll þjóta nokkrir minnis- punktar úr nýlokinni fimm daga kynnisferð í boði hollensku ríkis- stjórnarinnar a.m.k. á leyfilegum hámarksökuhraða um lönd hug- ans. Fljótt á litið virðist fátt annað sameiginlegt með löndunum tveim en síbreytileg veðrátta. Hollend- ingar eru þó ekki ósvipaðir fslend- ingum í útliti oggætu vegfarendur í Amsterdam auðveldlega einnig verið á gangi í Austurstræti án þess þeir skæru sig úr. Landið sjálft er þó ólíkt, Hollendingar sem eru 14,4 milljónir búa á landi sem er 37.305 ferkílómetrar eða um það bil þriðjungur íslands. Hollendingar hafa um aldir barist við náttúruöflin eins og íslend- ingar, en það eru ekki eldgos sem hrella þá heldur reynir sjávarguð- inn stöðugt að leggja undir sig stóran hluta landsins. Talið er að um helmingur landsins sé undir sjávarmáli, og á því búa um 60% þjóðarinnar, lægsti skikinn er 6,7 metra undir yfirborði sjávar á flóðlandi í nágrenni Rotterdam. í suðausturhlutanum eru hæðir og hólar og talsvert skóglendi, en þar mælist landið hæst, 321 metrar yf- ir sjávarmál. Glíman við hafið hefur verið óvægin, kostað lönd og mannslíf. Norðursjórinn hefur brotið skörð í ströndina, þannig myndaðist m.a. Suðursjór, og árnar Rín, Maas og Schelde, sem jafnframt eru aðal- flutningaæðar Evrópu, hafa margsinnis flætt yfir bakka sína. Allt frá 15. öld hafa vindmillur verið notaðar til að þurrka upp landið, í dag eru þó flestar þeirra minjar um liðna tíð, nútimadælu- stöðvar sjá um að Hollendingar geti gengið þurrfættir um landið í dag. Delta-áætlunin, vörn gegn innrás sjávar Arið 1953 var síðasta stórflóðið sem kostaði eyðileggingu ótal mannvirkja, stórfelldan dauða húsdýra og 1835 mannslíf. Sjórinn flæddi yfir stórt svæði í suðvestur hluta landsins og í kjölfar þess ákváðu stjórnvöld að slíkar hörm- ungar mættu alls ekki endurtaka sig. Var þá ráðist í undirbúning Delta-áætlunarinnar, en hún felur í sér að ármynnum, vogum og vík- Heimsins snúnasta skegg? Einn af vegfarendum (Amsterdam. Tilbúinn garður eftir Jean Dubuffet, fyrir utan Kröller Miiller-safnið. V'atnsgeymar hjá Gist-brocades þar sem bakteríur sjá um að hreinsa mengað vatn. um þar sem sjávarfalla gætir er lokað, búin til nokkurs konar gerviströnd. Delta-áætlunin er í fullum gangi, bygging sjógarð- anna er nú senn ólokiö og gert ráð fyrir að endahnúturinn verði hnýttur fyrir október ’86. Bygging sjógarðanna hefur í för með sér breytingar á lífríkinu í suðvest- urhluta landsins, vogar og víkur verða að stöðuvötnum, saltmagn vatnsins minnkar smám saman og í kjölfarið verða talsverðar breyt- ingar. Því var ákveðið að loka ekki öllum víkum til fullnustu, og nú er verið að leggja síðustu hönd á mannvirki sem eingöngu verða notuð á hættutímum, nokkurskon- ar stormvarnarvirki, gríðarstórar járnlokur halda yfirborðshæð sjávarins stöðugu. Víkurnar hafa verið heimkynni margskonar skel- fiskstegunda og m.a. verið að reyna að viðhalda þeim með þess- um stormvarnarvirkjum. Hollendingar þekkja þó fleira en innrás sjávar í land sitt. Löngu áður en sögur hófust komu þjóð- flokkar frá Mið-og Suður-Evrópu niður stórárnar og tóku sér þar bólfestu, landið var á miðöldum í tengslum við aðalsveldi nágranna- Hrá sfld og hanthíjahjd — Heimsókn til Hollands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.