Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 28

Morgunblaðið - 19.09.1985, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 „Ávallt viöbúinn" Newenl, Englandi, 18. september. AP. FREDERICK Cooper, sem er 85 ára að aldri, vissi upp á hár, hvað hann átti að taka til bragðs, þegar stiginn hans féll til jarðar og hann sat bjarg- arlaus uppi í háu tré, sem hann var að grisja. Hann dró þráðlausan síma upp úr vasa sínum og hringdi á slökkvi- liðið. En þar trúðu menn honum ekki. Þegar hann var búinn að bíða árangurslaust eftir þeim í u.þ.b. hálfa klukkustund, hringdi hann á lögregluna. Og þeir trúðu sögunni. Sendu þeir þegar tvo menn á vett- vang og hjálpuðu gamla mannin- um niður. Bæjarblaðið Dean Forest Merc- ury sagði frá því í dag, að það hefði spurt Cooper að því heima í Newent í Gloucester-skíri, hvernig það hefði viljað til, að hann hafði síma með sér upp í tréð. „Eg var skáti, þegar ég var ungur,“ sagði hann, „og kjörorð skátanna er „Avallt viðbúinn“.“ Frakkland: Flugið lamað París, 18. september. AP. NÆRRI ekkert var um innanlands- flug í Frakklandi í dag og mikilar truflanir á utanlandsfluginu einnig vegna tveggja daga verkfalls flugum- ferðarstjóra, sem hófst í dag. Að sögn flugmálayfirvalda er það aðeins flug á langieiðum, sem er ótruflað, innanlandsflug til eyjarinnar Korsíku. Verkfall flug- umferðarstjóranna tekur einnig til erlendra flugvéla, sem fara yfir Frakkland, og hefur spænska flug- félagð Iberia af þeim sökum hætt við margar ferðir til Norður— Evrópu. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sett í fertugasta sinn: Alvarleg vanda- mál blasa við New York, 18. september. AP. ALLSHERJARÞING Sameinuðu þjóðanna var sett í gær í fertugasta sinn. Forseti þingsins, Jaime de Pinies, sagði í upphafi þingsins, að það stæði frammi fyrir alvarlegum vandamálum og sagði eigingirni aðildarríkjanna vera orsökina, fremur en samtökin sjálf. Þá sagði hann stórveldin augljóslega ekki líta svo á að Sameinuðu þjóðirnar væru nauðsynlegar til varnar hagsmunum þeirra. „Sameinuðu þjóðirnar gera hvorki meira né minna en aðildarríkin vilja að þær geri... Ef aðildar- ríkin reyndu að bera sameiginlega hagsmuni mannkyns fyrir brjósti í stað þess að láta eiginhagsmuni ráða ferðinni, værum við á leið til lausnar margra vandamála," sagði hann ennfremur. Talið er að eitt aðalmál þings- Þá er búist við að ástandið í íns verði tillaga Bandaríkja- manna um að aðildarþjóðirnar hafi áhrif á fjárhagsáætlun Sameinuðu þjóðana í samræmi við framlag sitt, en þeir greiða nú fjórðung af útgjöldum Alls- herjarþingsins. Með Japönum, Vestur-Þjóðverjum og Frökkum myndu þeir þannig hafa meiri- hlutavald yfir útgjöldunum, en samkvæmt núverandi reglum hefur sérhvert ríki eitt atkvæði. Suður-Afríku beri mjög á góma og Sovétríkin munu ýta á eftir tillögu sinni um að hernaðarum- svif í geimnum verði bönnuð áður en til fundar stórveldana í nóv- ember í Genf kemur. George P. Schultz, utanríkisráðherra, er annar ræðumaður þingsins eftir að almenn umræða hefst næsta mánudag. Daginn eftir mun Shevardnadze, sovéski utanríkis- ráðherrann, taka til máls. Afvopnimarvióræóumar í Genf: Soyétmenn beðn- ir um afdráttar- lausar tillögur í.pnf. 1K Mpntpmhpr AP ^ ^ (jíenf, 18. september. AP. VILJI Bandaríkjamanna til aö kom- ast aö samkomulagi viö Sovétmenn er óbreyttur þrátt fyrir yfirlýsingu Ronalds Reagan um að rannsóknum varðandi geimvarnaráætlun Banda- ríkjamanna veröi haldið áfram, sagöi Max M. Kampelman í upphafi þriöja samningarfundar Sovétríkjanna og Bandarfkjanna í Genf á miðvikudag. Max Kampelman, sem er aðalsamn- ingamaður Bandaríkjamanna í af- vopnunarviöræðunum, sagöi aö á fundinum yröi unniö aö undirbúningi tillagna um afvopnunarmálin fyrir fund Regans og Gorbachevs dagana 19.—20. nóvember. Yfirvöld í Sovétríkjunum hafa lýst yfir vilja sínum um að „gera allt sem í þeirra valdi stæði" til að árangur næðist á ráðstefnunni, þrátt fyrir „að Bandaríkin hefðu gert allan árangur óhugsandi". „Því miður leggja Bandaríkin allt kapp á geimvopnaáætlanir sem gerir okkur ómögulegt að ná árangri í samningaviðræðum," sagði Viktor P. Karpov, aðalsamn- ingamaður Sovétmanna er hann kom til fundarins á þriðjudag. Kampelman beindi því til Sovét- manna að þeir stæðu víð fyrri yfirlýsingar og legðu fram skil- merkiiegar tillögur. Talið er að hann hafi átt við viljayfirlýsingar Sovétmanna um að þeir séu til- búnir til að draga verulega úr vígbúnaði sínum slái Bandaríkja- menn geimvarnaáætlun sinni á frest. Agca ákærir Hvíta húsið og Páfagarð Róm, 18. september. AP. MEHMET Ali Agca, sá er reyndi morðtilræöi við páfa, sagði við réttar- höld í dag aö aðild Búlgara að tilræð- inu megi rekja til leynilegs sam- komulags milli Hvíta hússins og Vatikansins, sem vilji ráða yfir ver- öldinni meö lygum, en réttarhöldin hófust í dag á nýjan leik eftir átta vikna hlé. Agca, sem nú er eitt aðalvitni ríkisins, er ástæðan fyrir því að réttarhöld eru hafin yfir þremur Búlgörum og fjórum Tyrkjum, en þeir eru ákærðir fyrir að hafa átt hlutdeild að tilræðinu við páfa. Agca sagði einnig að hlutdeild Búlgara í samsærinu væri einungis hluti sannleikans. 7 farast í járnbrautar- slysi í Tékkóslóvakíu Prag, TékkÓNlóvakíu, 18. september. AP. SJÖ MANNS létu lífið og tíu slösuö- ust á mánudagskvöld er lest rakst á dráttarvél meö tengivagni sem flutti hóp manna, aö sögn DTX-fréttastof- unnar. Allir farþegar lestarinnar sluppu ómeiddir. Slysið varð ná- lægt Pelhrimov um 100 km suð- austur af Prag. Fullyrt var að öku- maður dráttarvélarinnar hefði valdið slysinu með því að virða ekki umferðarreglur við járn- brautarteinana. Eftir sænsku kosningarnar: Hægrimenn áfellast frjáls- lynda fyrir að bregðast í bar- áttunni gegn jafnaðarmönnum Lundi, 18.september, frí Pétri Péturssyni. SEINUSTU skoöanakannanirnar um fylgi flokkanna fyrir kosningarnar nú 15. september reyndust hafa svipað gildi og áöur. Þær gáfu nokkuð örugga vísbendingu um stööu fylkinganna tveggja, en reyndust ekki standast þegar um fylgi borgaraflokkanna innbyröis var að ræöa. Frjáls- lyndi þjóðarflokkurinn fékk næstum því 4% meira fylgi en SIFO stofnun- in reiknaði með þremur dögum fyrir kosningar, móderatar 3% minna og Miöflokkurinn u.þ.b. einu prósenti minna en skoðanakönnunin benti ta. Bjartsýni á hægri vængnum Sé miðað við úrslit kosning- anna næst á undan, sem er öllu raunhæfara, kemur í ljós að mikil hreyfing hefur orðið á fylgi borgaraflokkanna innbyrðis. Móderataflokkurinn er ekki lengur stærri en miðflokkarnir báðir til samans. Við kosning- arnar 1982 fékk Móderataflokk- urinn 23,6% atkvæða og 86 þing- sæti, en nú 21,4% og 76 þingsæti. Þetta er fyrsta áfall flokksins í kosningum allt frá 1970, en síðan þá hefur hann sífellt fengið aukið hlutfall atkvæða. En flokkurinn tekur þetta áfall alvarlegar en tölurnar gefa tilefni til vegna þess að miðað er við fylgið sam- kvæmt skoðanakönnunum fyrr á þessu ári. í júní bentu kannan- irnar til þess að flokkurinn nyti stuðnings rúmlega 30% kjós- enda. Það var mikill hugur í móderötum að fylgja þessu fast eftir í kosningabaráttunni og leiða fylkingu borgaranna til sigurs. Formaðurinn lagði sig allan fram og mikil stemmning ríkti á kosningafundum flokksins — allir lögðu sitt fram til þess að borgaraleg stjórn tæki við stjórnartaumunum undir forystu móderata. Kosningabarátta flokksins var skipulögð með þetta fyrir augum — flokksfor- inginn, tilvonandi forsætisráð- herra, reyndi að breiða yfir þau mál sem borgaraflokkana greindi á um, og beindi spjótum sínum aldrei að þeim, heldur að jafnaðarmönnum og stuðnings- flokki þeirra, kommúnistum. Stjórnlist sem brást I upphafi kosningabaráttunn- ar virtist þetta vera rétta leiðin, en þegar á leið brást hún. Olof Palme og jafnaðarmenn fengu hagstætt tækifæri til þess að bera sig saman við uppáhalds- andstæðing sinn og settu allt á móti. Miðflokkarnir reyndusl ekki eins fylgisspakir og forystu- menn móderata reiknuðu með. Torbjörn Fálldin neitaði að vera með um sameiginlega stefnuskrá og þegar á leið gerði Bengt Westerberg, formaður Þjóðar- fiokksins, kjósendum skilmerki- lega grein fyrir muninum á sín- um flokki og móderötum og gagnrýndi ýmislegt í stefnuskrá þeirra. Forystumenn Móderata- flokksins vonsviknir Gösta Bohman fyrrverandi formanni flokksins hitnaði í hamsi er líða tók á kosningavök- una — en hann á enn sæti á þingi eftir þessar kosningar. Honum þótti ekki verst að Bengt Wester- berg hefði tekið eitthvað af at- kvæðum frá sínum flokki, heldur það að hann hefði svikið sam- stöðu borgaraflokkanna þegar mest á reyndi. Að hans mati var kosningaáróður jafnaðarmanna gegn móderötum óheiðarlegur og fjölmiðlar brugðust þeirri sjálf- sögðu skyldu sinni að fietta ofan af því sem Bohman kallaði hrein- ar lygar. Áróðursherferð jafnað- armanna við þessar aðstæður hafði sín áhrif á kjósendur þegar á leið, en í stað þess að snúa AP/.SÍmamjnd Bengt Westerberg, leiötogi Frjálslynda þjóöarflokksins, hafði sigurmerkiö tvöfalt þegar hann fagnaði kosningaúrslitunum og ekki að ástæðulausu því að fylgi flokksins tvöfaldaðist og meira en þaö. Þótti Westerberg bera af öörum frambjóöendum í kosningabaráttunni fyrir hófsaman en rökfastan málflutning. bökum saman við hina borgara- fiokkanna snerist Westerberg og tók undir árásirnar frá jafnaðar- mönnum. Bohman gekk jafnvel svo langt að tala um að þarna hefði formaður Þjóðarflokksins rekið rýting í bak móderata þrátt fyrir það að hann hefði marglýst því yfir að þeir þyrftu að vinna saman að því að fella stjórn jafnaðarmanna. Ulf Adelsohn vildi ekki nota sömu orð en tók undir það að Þjóðarflokkurinn hefði háð sína kosningabaráttu í upphafi í skjóli Móderataflokksins sem einn hefði tekið á sig orrahríðina frá Olof Palme og áróðursmask- ínu jafnaðarmanna. Kom, sá og sigraði Það er ekki laust við að nokkuð sé til í þessu. Fyrr á þessu ári bentu skoðanakannanirnar til þess að móderatar hefðu rúmlega 30% af fylginu, og jafnaðarmenn væru á niðurleið, undir 40%. Það var því sjálfsagt að móderatar yrðu aðalanstæðingar jafnaðar- manna. Olof Palme hefur sjaldan lagt sig eins mikið fram og í þessari kosningabaráttu. Hann hamraði sífellt á því að móderat- ar væru hættulegir velferðarrík- inu og félagslegu öryggi þeirra sem verst eru settir í þjóðfélag- inu. Ýmis gáleysisleg ummæli Ulfs Adelsohn, voru notuð til hins ítrasta til að undirstrika að formaður Móderataflokksins væri ábyrgðarlaus og óhæfur til að taka við stjórnartaumunum. Þetta hafði sín áhrif á loka- spretti kosningabaráttunnar og þá kom Bengt Westerberg fram sem ábyrgur og traustvekjandi valkostur. Hann kom vel fyrir, var einbeittur og öruggur í mál- flutningi. Þegar hann tók að gagnrýna stefnu móderata dugði ekki hin vonumglaða kosninga- barátta þeirra til. Fylgið hrundi af flokknum og færðist yfir á Bengt Westerberg og Þjóðar- flokkinn. Þessi hreyfing fylgisins hefur þó vart breytt nokkru um styrkleikahlutföll höfuðfylking- annatveggja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.