Morgunblaðið - 19.09.1985, Page 41

Morgunblaðið - 19.09.1985, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. SEPTEMBER1985 41 Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Forðast má gagnrýni með þvíað — segja ekkert — gera ekkert — og vera ekkert. — reynsla kynslóðanna. Rétturinn sem hér fylgir, er að sjálfsögðu, hafinn yfir alla gagnrýni. Þetta er mjög bragðgóð Pönnusteikt smálúða með sveppum og möndlum 800 gr smálúðuflök 50 gr smjörvi Ví> bolli mjólk 1 tsk. salt Vi bollihveiti Vt bolli möndlur 100 gr sveppir Vi bolli fínsöxuð púrra 'Æ bolli vatn og 1 ten. kjúklinga- kraftur (kemur í stað víns) 1. Roðflettið smálúðuna og sker- ið í hæfilega stór stykki. Saltið er leyst upp í mjólkinni og eru fisk- stykkin lögð i mjólkina. 2. Hreinsið sveppina og sneiðið niður. Hitið helminginn af smjörv- anum á pönnu. Möndlurnar eru afhýddar og klofnar í tvennt. Þær eru steiktar í feitinni ljósbrúnar og síðan teknar af pönnunni. Sveppirnir steiktir í sömu feitinni í 2—3 mín. og eru þeir einnig teknir af pönnunni. 3. Bætið á pönnuna því sem eftir er af smjörvanum ásamt 1—2 matsk. af matarolíu. Setjið hveitið i plastpoka. Látið sem mest af mjólkinni renna af fiskstykkjun- um og hristið þau með hveitinu í pokanum þar til þau hafa fengið léttan hveitihjúp. Þau eru steikt í feitinni fallega brún á báðum hlið- um og síðan tekin af pönnunni og látináheittfat. 4. Púrrulaukurinn saxaður er settur á heita pönnuna og steiktur í um Vi mín. því næst er sveppun- um bætt á pönnuna og þeir steiktir með 'k mín. til viðbótar. Vatni með uppleystum kjúklingakrafti er bætt út í og að síðustu möndlun- um. Hristið pönnuna til að jafna sósuna og bætið við salti ef þurfa þykir. 5. Setjið yfir fiskinn á fatinu og berið fram með soðnum kartöflum. Verd á hráefni 800 gr smálúðuflök kr. 160 100 gr sveppir kr. 39 möndlur kr. 15 púrra kr. 10 mmmmSmUmRMmmm Kr. 244 Til kartöfluframleið- enda og -seljenda: Vilji menn aukna sölu á kartöfl- um, þá verður meðhöndlun nyju uppskerunnar að vera mun betri en hún er í dag. Það er allt of mikið af grænum og hálfgrænum kartöflum í verslunum. Orðsendmg (fl fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri Skattrannsóknarstjóri hefur ákveöið að kanna bókhald þeirra aðila sem eru skyldir til að gefa út reikninga í viðskiptum sínum við neytendur. Kannað verður hvort farið er eftir þeim reglum sem gilda um skráningu viðskipta á nótur, reikninga og önnur gögn, Dagana 23. september til 7. október verða 400 fyrirtæki úr 27 atvinnugreinum heimsótt af starfsmönnum Skattrannsóknarstjóra í þessu skyni. Könnunin nær til fyrirtækja úr eftirtöldum atvinnugreinum: Númeratvlnnu- grelnar: Heltl atvlnnugreinar: 261 Trésmíði, húsgagnasmíði 262 Bólstrun 332 Gleriönaður, speglagerð 333 Leirsmlði, postulínsiðnaður 339 Steinsteypugerð, steiniðnaður 350 Málmsmlði, vélaviðgerðir 370 Rafmagnsvörugerð, raftækiaviðgerðir 383 Bifreiðaviðgerðir, smurstöðvar 385 Reiðhiólaviðgerðir 395 Smíöi og viðgerð hljóðfæra 410 Verktakar, mannvirkiagerð 420 Bygging og viðgerð mannvirkia 491 Húsasmfði 492 Húsamálun 493 Múrun 494 Pípulögn 495 Rafvirkiun 496 Veggfóðrun, dúklagning 497 Teppalögn 719 Ferðaskrifstofur 826 Tannlækningar 841 Lögfræðiþjónusta, fasteignasalar 842 Bókhaldsþjónusta, endurskoðun 843 Tæknileg þjónusta 847 Innheimmtustarfsemi 867 Ijósmyndastofur 869 Persónuleg þjónusta ót. a.,t.d. heilsuræktarst. SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI A/ýr W&KÓUNN innritun stendur yfir í síma: Reykjavík 38830 Hafnarfjörður 52996. Kl. 10-12 og 14-19

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.