Morgunblaðið - 26.09.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1985
Hafskip:
Laxá og Langá
seldar fyrir um
19 milljónir
HAFSKIP hefur í sumar selt tvö af
elztu skipum sínum, Langá og Laxá,
fyrir samtals um 19 milljónir króna.
Laxá verður afhent kaupendum í
næstu viku, en Langáin var afhent
í sumar.
Ragnar Kjartansson hjá Haf-
skip sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að skip þessi væru um 20
ára gömul og nánast orðin úrelt.
Það hefði lengi staðið til að selja
þau, en markaður fyrir notuð
kaupskip hefði verið ákaflega erf-
iður að undanförnu. Verð á skipum
sem þessum var því heldur lágt, 8
milljónir hefðu fengizt fyrir Langá
og 11 fyrir Laxá.
Sýning á störf-
um kvenna í
nýja Seðla-
bankahúsinu
SÝNING á störfum kvenna verður
opnuð þann 24. október nk. í nýju
Seðlabankabyggingunni við Arnar-
hól og mun hún standa til 31. októ-
ber.
Það er ’85-nefndin sem stendur
fyrir sýningunni og er hún liður i
aðgerðum nefndarinnar vegna
loka kvennaáratugs Sameinuðu
þjóðanna. Nefndin hefur fengið
afnot af hluta af Seðlabankabygg-
ingunni endurgjaldslaust.
I frétt frá ’85-nefndinni segir
að sýningunni sé ætlað að verða
einhvers konar þverskurður af
þeim störfum og starfsgreinum
sem konur sinna og þar verða
einnig veittar upplýsingar um
launakjör, starfsaðstöðu og kröfur
sem gerðar eru til náms eða starfs-
reynslu í viðkomandi greinum.
Þess er vænst að sýningin muni
nýtast við starfs- og námsval jafnt
yngra kvenna sem eldri, sem eru
að leita út á vinnumarkaðinn á ný.
Einnig verða veittar upplýsingar
um störf viðkomandi fag- og
verkalýðsfélaga. Hver dagur verð-
ur helgaður ákveðinni starfsgrein.
Þegar hafa 20—30 stéttarfélög
tilkynnt þátttöku.
Ragnar sagði, að ekki væri fyrir-
hugað um þessar mundir að kaupa
önnur skip í staðinn. Hafskip væri
með fjögur leiguskip á Atlants-
hafsleiðinni, og fjögur eigin skip á
siglingarleiðum til Norðurlanda,
Þýzkalands, Bretlands og á öðrum
styttri leiðum.
4,5 % launa-
hækkun um
mánaðamótin
LAUN hækka almennt um 4,5%
frá næstu mánaðamótum - að
minnsta kosti fyrir félaga í ASÍ,
BSRB og BHM. Laun þessara hópa
hækkuðu síðast um 2,4% hinn 1.
ágúst.
Þetta eru siðustu launahækk-
anirnar, sem samið var um í
kjarasamningunum í byrjun
sumars.
Samningar ASÍ og BSRB falla úr
gildi um áramót en samningar
BHM gilda til febrúarloka á
næsta ári.
Einstök félög fengu þessum
hækkunum í ágúst og október
slegið í eina 7% hækkun frá 1.
september sl.
MorgunblaðiA/Sigurgeir
Sighvatur Bjarnason kemur með fullfermi loðnu til heimahafnar, fyrsta skipið með loðnu til Eyja á þessari vertíð.
100.000 tonn af
loðnu komín á land
Þriðjudagsaflinn tæp 13.000 tonn
LOÐNUAFLINN er nú að nálgast
100.00 tonn frá því veiðar hófust í
ágúst síðastliðnum. Á þriðjudag til-
kynntu 19 skip um samtals 12.880
tonna afla og er það langmesti sól-
arhringsaflinn á vertíðinni. Loðn-
unni er nú landað um allt norðan-
vert og austanvert landið, allt frá
Bolungarvík til Vestmannaeyja.
Fyrsta loðnan á þessari vertíð
barst til Eyja um langan sjóveg
þegar Sighvatur Bjarnason kom
þangað síðasta laugardag með 680
tonn. Loðnunni var landað hjá
Fiskimjölsverkmiðjunni í Vest-
mannaeyjum, sem er eigandi
skipsins. Siglingin af loðnumiðun-
um fyrir Norðurlandi til Eyja tók
Iðja og vinnuveitendur
sömdu um nýjan bónus
Vinnuveitendur og Iðja, fé-
lag verksmiðjufólks, undirrit-
uðu samning á þriðjudaginn
um nýja reiknitölu kaupauka í
bónus. Reiknitalan hækkar úr
81 krónu í 90,75 kr. frá og með
16. september að telja, en taki
frá þeim tíma grunnbreyting-
um samkvæmt kjarasamning-
um aðildarfélaga Alþýðusam-
bands íslands við Vinnuveit-
endasamband íslands og
Vinnumálasamband íslands.
Þessi samningur er sambæri-
legur við þann sem Verka-
mannasamband íslands gerði
við bónusfólk í fiskvinnslu og
undirritaöur var 16. september
sl.
Bjarni Jakobsson formaður
Iðju sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hann væri ánægð-
ur með samningana. „Með þess-
um samningum hefur náðst fram
sú leiðrétting sem við höfum
verið að vinna að. Ég er ánægð-
astur með að samningarnir tók-
ust á jafnstuttum tíma og raun
ber vitni,“ sagði Bjarni.
Grunnskólanemi kaupir bát
Vogum, 24. september.
15 ARA gninnskólanemi í Stóru-
Vogaskóla, Vogum, Kristján
Kristmannsson hefur nýlega fest
kaup á bátnum Hafdísi frá Grinda-
vík, sem er 2'A tonn aó stærð. Bát-
inn kaupir Kristján í samstarfi viö
fööur sinn, Kristmann Klemens-
Kristján var 9—10 ára þegar
hann fór að stunda sjóinn fyrst.
Það var með Þórði Vormssyni á
grásleppuveiðum. Síðan hefur
Kristján stundað sjósókn á
hverju ári, bæði á grásleppuveið-
um og á handfæri.
— Til hvaða veiða fer Hafdís?
„Við hugsum okkur að fara á
færi næsta sumar, en báturinn
verður í landi í vetur. Þá verður
sinnt nauðsynlegu viðhaldi."
— Hvernig hefurðu aflað fjár
til kaupanna?
„Það hefur komið til með
vinnu á sumrin, síðastliðin tvö
sumur.“
Kristján Kristmannsson um borö í Hafdísi.
Monfunblaðið/E.G.
— Hvernig hafa
þínir tekið þessu?
jafnaldrar
„Þeir hafa tekið
sagði Kristján.
þessu vel,“
E.G.
Óbreytt
vísitala
greiðslu-
jöfnunar
LAUNAVÍSITALA til greiðslujöfn-
unar fyrir október hefur verið reikn-
uð út af Hagstofunni á grundvelli
upplýsinga frá Kjararannsókna-
nefnd og Þjóðhagsstofnun. Vísital-
an er 1.043 stig, hin sama og í
september.
Vísitala þessi er notuð við út-
reikninga á greiðslujöfnun hús-
næðisstjórnarlána.
um tvo sólarhringa. Sighvatur er
nú aftur á landleið með fullfermi
og landar í heimahöfn. Átta Eyja-
bátar eru byrjaðir á loðnunni og
tveir til viðbótar halda bráðlega af
stað. Alls eru um 35 skip farin til
veiðanna og orðið tregt um lönd-
unarpláss víða.
Auk þeirra skipa, sem getið var
í Morgunblaðinu á miðvikudag,
tilkynntu eftirtalin skip um afla á
þriðjudag: Gullberg VE, 620,
Húnaröst ÁR, 620, Jón Kjartans-
son SU, 1.100, Guðrún Þorkels-
dóttir SU, 700, Ljósfari RE 570 og
Grindvíkingur GK 1.170 tonn. Síð-
degis á miðvikudag höfðu Keflvík-
ingur KE með 540 tonn og Sigurð-
ur RE með 1.400 tonn tilkynnt um
afla.
Tvö skip seldu
erlendis
TVÖ skip seldu afla sinn erlendis á
miðvikudag. Fengu þau þokkalegt
verð fyrir hann.
Hegranes SK seldi 158,7 lestir,
mest karfa, í Cuxhaven. Heildarverð
var 5.449.100 krónur, meðalverð
34,34. Vísir SF seldi 43,5 lestir,
mest kola, í Grimsby. Heildarverð
var 1.692.000 krónur, meðalverð
38,86.
Skáldin á Norrænu
ljóðlistarhátíðinni:
Biðja Gorbashov
um fararleyfi fyrir
son Tarkovskis
SKÁLDIN sem þátt tóku í
Norrænu Ijóðlistarhátíðinni í
Reykjavík í byrjun þessa mán-
aðar sendu Gorbashov, leiðtoga
Sovétríkjanna, áskorun um að
leyfa syni Tarkovski-hjónanna
að fara frá Sovétríkjunum.
Áskorunin fer hér á eftir:
„Norræn sem og skáld frá
öðrum löndum stödd á fyrstu
norrænu ljóðlistarhátíðinni í
Reykjavík í september 1985,
biðja yður innilega og virð-
ingarfyllst, herra Gorbashov,
að veita syni kvikmyndahöf-
undarins Andrei Tarkovski
og Larissu, konu hans, leyfi
til að fara frá Sovétríkjunum
til foreldra sinna, sem dvelj-
ast erlendis.
Virðingarfyllst: David Gas-
coyne, Seamus Heaney, Uffe
Harder, Harald Sverdrup,
Lars Huldén, Georges Asta-
los, Einar Már Guðmundsson,
Karsten Hoydal, Marianne
Larsen, Britta Marakatt—
Labba, Harald Forss, James
Tate, Mimmo Morina, Sigurð-
ur Pálsson, Thor Vilhjálms-
son, Ivan Malinowski, Stefán
Hörður Grímsson, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Sigmund
Mjelve, Þorsteinn frá Hamri,
Matthías Johannessen, Ge-
orge Johnston, Knut ödeg&rd,
Einar Kárason, Sigurður A.
Magnússon, Einar Bragi,
Justo Jorge Padrón.