Morgunblaðið - 26.09.1985, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1985
>
MorgunblaJið/RAX
Fraeið er þurrkað í stokkum í kornhlöðunni i Sámsstöðum.
in if^ ■ |
■ ^ ipíHj
r
Grasfrærækt ínnanlands
er að verða að veruleika
Hreinsunarstöð
fyrir 100 tonn að
komast í gagnið
á Sámsstöðum í
Fljótshlíð
UNDANFARIN ár hefur yerið
unnið að því að koma upp aðstöðu
til grasræktar hér á landi. Upp-
bygging er langt komin á aðstöðu
á tilraunastöð RALA á Sámsstöð-
um til stofnfræræktar, hreinsunar
og leiðbeininga við bændur sem
kynnu að vilja stunda frærækt
Blaðamaður Morgunblaðsins
kom við á Sámsstöðum á dögun-
um og ræddi við Kristin Jónsson
tilraunastjóra um þessi mál,
hann sagði: „Síðustu níu árin
hefur verið unnið að athugun á
möguleikum þess að rækta fræ í
nokkuð stórum stíl hér á landi.
Aðaláhersian hefur verið lögð á
íslenskar grastegundir, það er
túnvingul og vallarsveifgras.
Síðari árin hefur einnig verið
lögð nokkur áhersla á að rækta
fræ af beringspunti en hann er
frá Alaska og er landnemi í gróð-
urríki okkar. Beringspunturinn
hefur reynst duglegur, bæði til
uppgræðslu og í túnrækt og eru
bændur mjög spenntir fyrir
honum. Fræræktin hefur verið
samvinnuverkefni Landgræðslu
ríkisins, Búnaðarfélags íslands
og Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins.
„Bændur opnir fyrir
þessu“
Svo til allt grasfræ er nú flutt
inn til landsins. Ekki var hægt
að fá nægilega harðgerða stofna
Beringspuntsfræi safnað í Gunnarsholti. Lj6am. D.P.
af þessum tegundum, einkanlega
til landgræðslu. Á allra síðustu
árum hafa þó komið erlendir
stofnar sem eru mun harðgerð-
ari. Þrátt fyrir það teljum við
að íslensku stofnarnir séu betur
aðlagaðir aðstæðum hér. Það er
meginástæðan fyrir því að rétt
er talið að fara þessa leið.
Við höfum verið að vinna að
aðferðum við sáningu og áburð-
argjöf. Síðan höfum við verið að
þróa tækni við hreinsunina í litlu
rannsóknaherbergi. Þar í gegn
hafa farið mest 3 tonn á ári. Við
erum núna að verða í stakk búnir
til að gera þetta í meira mæli
og gefa bændum sem kynnu að
vilja stunda þetta leiðbeiningar.
Okkur hér er ekki ætlað að fram-
leiða venjulegt fræ, heldur stofn-
fræ, sérstaklega gott og hreint,
fyrir fræræktendur. Þá erum við
langt komnir með að byggja upp
afkastameiri hreinsunaraðstöðu,
sem hreinsað getur 100 tonn á
ári, og getum við þá boðið fræ-
ræktendum aðstöðu til hreinsun-
ar.“
Kristinn sagði að einn bóndi,
Guðlaugur Jónsson á Voðmúla-
stöðum í Austur-Landeyjum,
væri byrjaður á frærækt og hefði
hann komið með fyrstu fræupp-
skeruna að Sámsstöðum i haust.
„Bændur eru ábyggilega opnir
fyrir þessu,“ sagði Kristinn. „En
þeir geta ekki framleitt í sam-
keppni við hömlulausan inn-
flutning á fræi. Ég tel að við
ættum að nota okkur þessa
möguleika og framleiða veruleg-
an hluta af okkar fræi sjálfir."
„Ekki fjárhags-
legur grundvöllur
fyrir einstaklinga“
Guðlaugur Jónsson á Voð-
múlastöðum sagðist hafa sáð í 3
ha akur til fræræktar fyrir
þremur árum í tilraunaskyni
fyrir áeggjan Kristins á Sáms-
stöðum sem lagt hefði fræið til.
í fyrra hefði átt að þreskja en
fræið hefði ekki reynst nógu
þroskað og því hefði akurinn
verið sleginn til heyöflunar í það
skiptið. Isumar hefði fræið hins-
vegar náð að þroskast og því
verið þreskt um miðjan ágúst.
Fræinu var ekið að Sámsstöðum
til þurrkunar og hreinsunar.
Ekki sagðist Guðlaugur vita um
endanlega útkomu úr þessu, en
af þessum akri hefði hann fengið
um 1 tonn af óhreinsuðu fræi.
„Það er ljóst að fræræktin
getur engan veginn staðist fjár-
hagslega hjá okkur en eigi að
síður er gaman að fást við hana
og athuga hvort hún er möguleg.
Af þessari tilraun virðist mér að
það sé hægt að rækta fræ, en
vegna mikils kostnaðar er enginn
fjárhagslegur grundvöllur fyrir
einstaklinga til að standa í þessu.
Verulegur stuðningur verður að
koma til ef ætlast er til að menn
fari út í fræræktun," sagði Guð-
laugur.
- HBj.
Sinfóníuhljómsveit Æskunn
ar heldur tvenna tónleika
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar á cflngu f vikunni. Morgunbisftið/Bjami.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
heldur tónleika í Menntaskólanum
við Hamrahlíð laugardaginn 28.
september kl. 17. og í Ytri—Njarð-
víkurkirkju daginn eftir, sunnudag,
kl. 16. Á efnisskrá er Flugeldasvítan
eftir Hándel, The Quiet City eftir
Aaron Copland, Serenade fyrír 13
blásara eftir Richard Strauss og
Sinfónía nr. 3 (Eroica) eftir Beet-
hoven.
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar
(SÆ) var stofnuð í janúar sl. f
beinu framhaldi af Zukofsky—
námskeiðunum sem haldin voru
hér árlega frá 1977 til 1983. Nám-
skeiðin þóttu nokkuð einangruð og
utan við tónlistarskólaárið, svo í
byrjun Árs æskunnar og Árs tón-
listarinnar var látið til skarar
skríða og skólastjórar tónlistar-
skóla landsins ákváðu að standa
að stofnun SÆ. Starf sinfóníu-
hljómsveitarinnar verður í nám-
skeiðaformi, þrisvar til fjórum
sinnum á ári, undir leiðsögn hæfra
stjórnenda og kennara.
Fyrsta námskeiðið var haldið í
febrúar sl. undir stjórn bandaríska
fiðluleikarans og hljómsveitar-
stjórans Pauls Zukofsky. Kennar-
ar auk hans voru Bernard Wilkin-
son á tréblásturshljóðfæri og Jos-
eph Ognibene á málmblásturs-
hljóðfæri. Fjöldi tónlistarnema
sótti námskeiðið sem lauk með
tónleikum 1 Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
Annað námskeið SÆ hófst 14.
september og lýkur laugardaginn
28. með tónleikum sem fyrr segir.
Þáttakendur eru rúmiega 70 á
aldrinum 14 til 22 ára, aðallega
frá Reykjavík og Akureyri. Nám-
skeiðið er undir stjórn Bretans
Marks Reedman, sem dvalið hefur
hér á landi sl. fimm ár og stjórnað
bæði strengjasveit og hljómsveit
Tónlistarskólans í Reykjavík.
Kennarar eru hinir sömu og á
fyrra námskeiðinu. Björn Jónsson,
skólastjóri Hagaskóla, hefur lánað
skólahúsnæði fyrir æfingar, lfkt
og fyrir fyrra námskeiðið.
Rut Magnússon, framkvæmda-
stjóri Tónlistarfélagsins, hefur
umsjón með rekstri SÆ. Sagði hún
í samtali við Morgunblaðið að
geysilegur áhugi væri meðal ungra
tónlistarmanna fyrir hinni ný-
stofnuðu sinfóníuhljómsveit. Eng-
inn einn tónlistarskóli hefði mögu-
leika á að halda úti fullskipaðri
sinfóníuhljómsveit og því eina leið-
in að tónlistarskólar landsins
sameinuðust þannig um eina
hljómsveit.
Rekstur SÆ er fjármagnaður á
ýmsan hátt. Þáttakendur greiða
námsgjald fyrir hvert námskeið,
tónlistarskólar landsins sem varð-
ar þetta mál greiða árgjald og eru
þeir nú orðnir níu talsins, lítill
hópur styrktarfélaga greiðir ár-
gjald og leitað hefur verið til fyrir-
tækja og hins opinbera.
Rut Magnússon sagði að endingu
að vissulega væri fjárhagshliðin
áhyggjuefni, en nú þegar loksins
væri búið að koma langþráðri
sinfóníuhljómsveit ungra tónlist-
armanna á fót, væru aðstandendur
hennar ákveðnir í að gefa sig ekki.
Allir ungir tónlistarmenn hefðu
aðgang að Sinfóníuhljómsveit
æskunnar og fyrirhugað væri að
halda áðurnefnd námskeið fyrir
meðlimi hljómsveitarinnar þrisv-
ar til fjórum sinnum á ári, sem
lyki með tónleikum hverju sinni.