Morgunblaðið - 26.09.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1985
51
Bestu og verstu
flugfélögin
___________Flug______________
Gunnar Þorsteinsson
NÝLEGA rak á fjörur okkar niður-
stöður úr skoðanakönnun sem al-
þjóðasamtök flugfarþega, _ IAPA,
gerði meðal félagsmanna. Á þriðja
hundraö íslendingar eru félagar í
samtökunum. f þessari nýjustu skoð-
anakönnun var spurt um allt milli
himins og jarðar varðandi ferðalög.
M.a. var spurt um með hvaða flug-
félagi menn vildu helst ferðast.
Uppáhaldsflugfélagiö reyndist vera
Swissair. Það óvinsælasta British
Airways.
Spurningalistar voru sendir til
rúmlega 93.000 aðila en aðeins um
20% svöruðu — 10.054 Bandaríkja-
menn og 9.072 annars staðar úr
heiminum.
Eins og gefur að skilja eru fé-
lagsmenn þessara samtaka mikið
á faraldsfæti og er flugið algeng-
asti ferðamátinn, jafnt i viðskipta-
sem skemmtiferðum. Karlmenn
eru í yfirgnæfandi meirihluta,
flestir hámenntaðir, með tekjur í
meðallagi eða þar fyrir ofan á
bandarískan mælikvarða.
Hér fer listi yfir fimm flugfélög
sem heimsborgararnir völdu sem
sín uppáhaldsfélög og einnig fimm
sem þeir reyndu fyrir alla lifandi
muni að forðast. Þetta er þeirra
mat á bestu og versu flugfélögum
heims. Eins og gefur að skilja
getur margt haft áhrif á val sem
þetta.
Bestu flugfélögin Verstu flugfélögin
Swissair Lufthansa Singapore Airlines Britis Airways 40,1% 27,5% 26,4% 21,8% British Airways .... PanAm Alitalia Aeroflot 15,8% 12,6% 12,1% 11,1%
KLM .'. 2M% Saudia 8,2%
Svisslendingum er fleira til lista lagt en að smíða úr. Svissnesk ná-
kvsmni, gsði og snyrtimennska er líka í hávegum haft hjá Swissair,
enda besta flugfélag heims að mati félaga í alþjóðasamtökum flugfarþega.
Flugklúbbur í Eyjum
Á landsbyggðinni hefur áhugi á
einkaflugi farið sívaxandi undan
farin ár og hafa víða verið stofnaðir
flugklúbbar eða eigendafélög um
einstakar flugvélar. Nýjast í þess-
um efnum er stofnun Flugklúbbs
Vestmannaeyja í sl. mánuði.
f Vestmannaeyjum er tals-
verður flugáhugi, að sögn Guð-
mundar A. Alfreðssonar, aðal-
hvatamannsins að stofnun FV
og nýkjörins formanns, og því
hafi verið löngu tímabært að
virkja þann áhuga og hefja
skipulagt starf flugáhugamanna.
Til að ná sem breiðustum hópi
og stuðla að eflingu flugs í Eyjum
er klúbburinn opinn áhugamönn-
um á öllum sviðum flugmála.
Stofnfélagar FV eru sautján.
Fjórtán manna virkur hópur hóf
nám hjá flugskólanum Flugfar í
Reykjavík í júlí sl. sem kom með
vél til Eyja. Síðan fóru Eyja-
skeggjar til Reykjavíkur og flugu
grimmt í nokkra daga og náðu
einliðsskírteini. Nú hefur hópur-
inn keypt eins hreyfils flugvél
af gerðinni Cessna 150 og kenn-
arar úr Reykjavík koma af og til
til Eyja. Nýja flugvélin ber ein-
kennisstafina TF ICE og á hún
eftir 850 klst. af svokölluðu
hreyfillífi. Flestir hafa þegar
lokið einliðaprófi (sóló) en sam-
tals hefur hópurinn flogið hátt í
þrjú hundruð klst. frá því í júlí.
I vetur verða klúbbfundir haldn-
ir reglulega fyrsta þriðjudag
hvers mánaðar og eftir áramótin
stendur til að halda bóklegt
einkaflugmannsnámskeið. Klúb-
burinn hefur aðstöðu í nýju flug-
stöðinni og verið er að kanna
flugskýlisaðstöðu. í Vestmanna-
eyjum eru tvö flugskýli í eigu
einkaaðila sem hafa hýst smá-
flugvélar Eyjamanna, sem eru
nú orðnar fjórar talsins. Stjórn
FV skipa: Guðmundur A. Al-
freðsson form., Kristján Krist-
insson varaform^ Rafn Pálsson
gjaldk., Stefán ólafsson ritari,
og Hreinn Sigurðsson meðstj.
Varamenn eru Eiríkur Guðnason
og Viðar Óskarsson.
Flug frá upphafi
Strax árið 1919, eftir stofnun
fyrsta Flugfélags íslands, var
farið að huga að flugi til Vest-
mannaeyja, sem þóttu afskekkt-
ar og fjarri alfaraleið. f fyrstu
flugferðinni varð að hætta við
lendingu vegna sviptivinda og
greip flugmaðurinn þá til þess
ráðs að henda út pósti og var sá
háttur hafður á lengi. Árið 1928
lentu fyrstu vélarnar í Eyjum,
sjóflugvélar, en fyrsta landflug-
vélin lenti þar ekki fyrr en árið
1938. Það var Agnar Kofoed
Hansen á „Klemminum". Eftir
síðari heimsstyrjöld var farið að
byggja upp þann flugvöll sem er
í notkun í dag og fljótlega keyptu
Eyjaskeggjar sína fyrstu einka-
flugvél. Ymsir aðilar hafa haft á
hendi flugrekstur í Eyjum og var
flugfélagið Eyjaflug langstærst
og þekktast. Af öðrum aðilum
má nefna Eyjaflug Bjarna Jónas-
sonar og Vals Andersen. Áhugi
Eyjamanna á flugi hefur lengi
verið viðloðandi, en svo virðist
sem einkaflug hafi átt erfitt
uppdráttar og telja margir að
Það er ekki að sjá að þetta flugfólk þjáist af streitu. Hins vegar er í meðfylgjandi grein greint frá niðurstöðum
erlendra rannsóknar á streitu flugmanna. Á myndinni eru Flugleiðaflugfreyjur og flugþjónn frá flugfélaginu
Air Algerie sem er með einkennishúfu Flugleiða á kollinum. Ljósm. Gunnar Þorsteinsson
Streita í stjórnklefa
Sagt frá erlendri rannsókn
Einn af hverjum 50 atvinnuflug-
mönnum á við andlega sjúkdóma
að stríða ef marka má niðurstöður
rannsóknar á streitu flugáhafna.
Þetta er fyrsta stóra rannsóknin á
þessu sviði. Þessar fréttir berast á
sama tíma og flugmenn víða um
heim mynda hópa til sjálfshjálpar
gegn streitu og áfengissýki.
Margir færustu sérfræðingar
heims er fjalla um streitu í starfi
unnu að rannsókninni. Tveir pró-
fessorar við háskólana í Manc-
hester og Wales skoðuðu 442
breska flugmenn og reyndust 9
haldnir kvíða, hræðslu, þrá-
hyggju, geðtruflun, þunglyndi og
móðursýki eftir nánari rann-
sóknir á göngudeild. Niðurstöð-
urnar, sem gefnar verða út bráð-
lega, koma einmitt í kjölfar þess
að margir eru orðnir áhyggju-
fullir vegna hins sívaxandi álags
á flugmenn. Önnur skýrsla, sem
kemur úr síðar á árinu, unnin
af sérfræðingum alþjóðasam-
taka atvinnuflugmanna í lækna-
vísindum, leiðir í ljós að áfengis-
sýki er verulegt vandamál. Alls
eru um 65 þús. félagar frá öllum
heimshornum í alþjóðasamtök-
um atvinnuflugmanna.
Geðrænar truflanir, skortur á
einbeitni vegna einkavandamála
og rifrildi milli flugáhafnar hafa
verið þættir er ollu flugslysum
sl. 3 ár. Mistök flugmanna leiða
til 45% flugslysa. Næst á eftir
hjartasjúkdómum eru andlegir
sjúkdómar aðalástæðan fyrir því
að flugmenn í Bandaríkjunum
og Bretiandi missa réttindi sín.
Flugmennirnir sem bresku
prófessorarnir rannsökuðu
reyndust almennt vera andlega
heilbrigðir og bar hlutfallslega
miklu minna á geðtruflunum en
meðal flestra starfsstétta. En
undantekningarnar 9 eru nóg til
að vekja ugg. „í áhættustarfi,
sem flugmannsstarfi, er ein
undantekning meira en nóg,“
v
Ljósm. Hlynur Ólafsson
Nokkrir stjórnarmenn Flugklúbbs Vestmannaeyja. Frá vinstri: Hreinn
Sigurðsson, Kristján Kristinsson,
Óskarsson og Eiríkur Guðnason.
líkleg skýring á því sé, að margir
hafi beinlínis verið hálf hræddir
við flugvöllinn, sem hefur löng-
um þótt fremur erfiður fyrir flug.
Þá er ekki ólíklegt að heima-
menn, sem eru þekktir fyrir
vinnusemi, hafi einfaldlega ekki
gefið sér tíma til flugs í frístund-
um fyrr en nú seinni árin.
Guðmundur A. Alfreðsson
sagði ýmsar skýringar á þessari
miklu drift að undanförnu: „Við
fjórtánmenningarnir höfum ver-
ið mjög samhentir og hvatt hvern
annan til dáða. Eftir að við eign-
uðumst eigin flugvél óx áhuginn
til muna og nú eru jafnvel eigin-
konurnar farnar að hugleiða
flugnám næsta ár. Þeim leist,
blessuðum, ekki alltof vel á þetta
Guðmundur A. Alfreðsson, Viðar
flugbrölt í upphafi, en þegar þær
sjá hvað við, tilraunadýrin,
stöndum okkur vel langar þær
lika að geta flögrað um loftin
blá. Sama má segja um fjöl-
marga Eyjamenn. Því má svo
ekki gleyma að góða veðrið hér
sl. sumar hefur áreiðanlega ýtt
við mörgum okkar."
Guðmundur sagði að lokum,
að ef menn vildu bregða sér í
skemmtiferð til meginlandsins á
góðviðrisdegi væri um tvær leiðir
að velja, loftleiðina og sjóleiðina.
„Maður er aðeins 5—10 mín. á
flugvél upp á Suðurlandsundir-
lendið en á bát tekur það miklu
lengri tíma. Því er þetta engin
spurning."
sagði annar bresku prófessor-
anna.
Eitt af markmiðunum með
rannsókninni var að kanna
hvaða ástæður leiddu til streitu
er ylli minni hæfni, verri heilsu
og minni ánægju í starfi. Banda-
ríski flugherinn styrkti þennan
hluta sérstaklega. Niðurstöðurn-
ar leiddu í ljós að þess konar
streita þjakaði einkum flugmenn
sem voru eldri, þreyttari, fengu
ekki að fljúga eins mikið og þeir
vildu og óttuðust reglubundna
hæfnisþjálfun.
Flugmannsstarfið hefur
breyst gífurlega gegnum árin.
Flugvélarnar eru orðnar miklu
flóknari, flugáætlanirnar mun
flóknari og nákvæmari og ábyrgð
fyrir öryggi vaxið.
Kunnasta dæmið um flugslys
af völdum andlegra sjúkdóma
var árið 1982. Japanskur flug-
maður, sem hafði haft geðtrufl-
anir á sjúkraskrá sinni, ýtti stýri
DC 8-þotu sinnar allt í einu fram
með þeim afleiðingum að vélin
stakkst í Tókýóflóa. Tuttugu og
fjórir létust. Ári síðar las
spænskur flugmaður Boeing
747-risaþotu vitlaust á hæða-
mælinn og vélin rakst á hæð í
aðflugi að Madridflugvelli. Alls
lést 181. Þegar slysið átti sér stað
var hann að ræða um fjöl-
skylduvandamál.
Alþjóðasamtök atvinnuflug-
manna hafa staðfest að í sjö
löndum hafi verið myndaðir
leynilegir ráðgjafarhópar til að
fást við streituvandamálið.
Samtökin hvetja nú 60 flug-
mannafélög innan sinna vébanda
að mynda svipaða hópa í þeim
tilgangi að skapa meiri samúð
með streituhrjáðum flugmönn-
um. Talsmaður flugmannasam-
takanna sagði um þetta: „Með
smá hvíld, hjálp og ráðgjöf er
oftast unnt að hefja öruggt flug
áný.“
Flugmenn eru oft hræddir við
að leita til trúnaðarlækna flug-
félaganna af ótta við að geta
misst starfið. Áfengissýki getur
verið sérstaklega hættuleg í
þessum efnum. í vísindagrein um
streitu flugmanna, sem kemur út
nú í haust, segir áðurnefndur
talsmaður flugmannasamtak-
anna: „Þar sem ráðgjafarhóp-
arnir hafa starfað, hefur áfengis-
sýki undantekningalaust verið
verulegt vandamál og komið
niður á starfi og líkamlegri vel-
líðan fjölmargra flugmanna í
mörg ár.“
Tvisvar sinnum á ári þurfa
atvinnuflugmenn að gangast
undir stranga læknisskoðun og
flughæfnispróf. Það síðarnefnda
fer fram í svokölluðum flug-
hermi" (Flight Simulator) þar
sem hægt er að kanna hæfnina
við hinar ólíklegustu aðstæður.
En andleg heilsa þeirra er ekki
formlega tekin til vandlegrar
athugunar.
— G. Þorst. tók saman úr Sunday Times.