Morgunblaðið - 05.10.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.10.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 5. OKTÓBER1985 Atli og Lárus ekki í náðinni • Bikarmeistarar Vals leika seinni leik sinn í Evrópukeppni bikarmeistara í dag. Þær unnu tyrri leikinn gegn Elkerlic Tongeren meö þriggja marka mun og eru ákveðnar í að komast í aðra umferö. Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik kvenna: Valsstúlkur hafa mikla möguleika á að komast áf ram Frá Jóhanni Inga Gunnarsayni, trátta- manni Morgunblaóslns í V-Þýskalandi. MARGIR skemmtilegir leikir veröa í Bundesligunni t knatt- spyrnu í Þýskalandi í dag. Uerd- ingen mætir Dortmund á útivellí og veröa þeir Lárus og Atli að öllum líkindum ekki með. Ásgeir og félagar hjá Stuttgart leika við Dusseldorf á heimavelli. . Atli og Lárus léku ekki með lið- inu í Evrópukeppninni í vikunni og aö sögn blaöa veröa þeir ekki í byrjunarliðinu í dag. Uerdingen veröur aö vinna leikinn og sanna getu sína, áhangendur liðsins heimta sigur. Feldkamp, þjálfari segir aö áhangendur liösins séu farnir aö krefjast of mikils af liöinu þótt þeir hafi oröiö bikarmeistarar á síöasta ári. „Vandamál liösins er aö allir búast viö of miklu af liöinu, margir leikmenn liösins veröa aö bæta sig töluvert, Atli hefur ekki náö aö sýna sitt rétta andlit í leikj- um liösins til jaessa," sagöi Feld- kamp. Dortmund vann heimaleikinn í fyrra með fjórum mörkum gegn engu. Þeir voru þá einnig í neösta sæti eins og nú. Stuttgart leikur heima Stuttgart á leik á heimavelli Nantes gegn Partizan DREGIÐ var í gær í aðra umferö Evrópukeppni félagsliöa. Eftirtal- in félög leika þá og er fyrrnefnda liöiö á heimavelli fyrst. Fyrri leik- urinn er miövikudaginn 23. októ- ber, en síðari leikurinn tveim vikum síðar, eða 6. nóvember. Eindhovon — Dnjepr Dnjepropetrowsk Waregen — Osasuna, Spáni AC Milan — Lok Leipzig Nantes — Partizan Betgrad Inter Milan — Linzer Ask Bohemians Prag — Köln Dundee Utd. — Vardar Skopje Real Madrid — Tschernomoretz Odessa FC Brugge — Spartak Moscow Videoton — Legia Warsaw St. Mirren — Hammerby Sparta Rotterdam — B.M. Gladbach Lok Sofia — Neuchatel Kamak Luettich — Athletic Bilbao Torino — Hajduk Split - Sporting Lissabon — Dinamo Tirana gegn Dusseldorf sem vann svo óvæntan sigur á Bayern Múnchen, 4— 0 um síðustu helgi. Guido Buchwald veröur ekki meö í þess- um leik þar sem hann fékk aö sjá rauöa spjaldiö um síöustu helgi. Júgóslavinn sem nýlega var keypt- ur leikur sinn fyrsta leik í dag. I fyrra vann Stuttgart heimaleikinn, 5— 2 og veröa þeir aö teljast sigur- stranglegir í þessum leik. Liöiö hefur fengiö 8 stig úr siöustu fimm leikjum sínum og viröist liöiö vera aö ná vel saman. Bayern Múnchen leikur á heima- velli gegn Mannheim sem hefur komiö mikiö á óvart f deiidinni til þessa. Bayern tapaöi sem kunnugt er síöasta leik gegn Dusseldorf á útivelli og hefur gengiö illa aö skora mörk, en liðiö hefur ekki tapaö leik heima. Bayern vantar tilfinnanlega markaskorara og hafa þeir haft áhuga á aö kaupa Rudi Völler frá Bremen en hann hefur ekki áhuga, vill fara eitthvaö annaö og þá aðal- lega til ítalíu. Tennissprengja í Vestur-Þýskalandi Nú stendur yfir í Vestur-Þýska- landi, landskeppni i tennis milli heimamanna og Tékka og snýst allt um tennis. Boris Becker stelur öllum sjónvarpsáhorfendum og er sýnt beint frá öllum leikjunum. Öll liöin í 2. deild hafa frestað leikjum sínum til sunnudags vegna tenn- iskeppninnar, auk þess hefur Werda Bremen frestaö leik sínum viö Frankfurt til kvöldsins vegna þessa. Þannig aö þaö má búast viö aö áhorfendur á leikjunum í dag veröi færri en vanalega. í DAG fer fram í Laugardalshöll seinni leikur Vals og Elkerlíc Tongeren frá Belgíu í Evrópu- keppni bikarhafa í handknattleik kvenna. Leikurinn hefst kl. 13.30. Valur vann fyrri leik þessara liða í Belgíu meö 18 mörkum gegn 15. Þær hafa því þriggja marka forskot fyrirleikinnídag. Fyrri leikur þessara liöa var mikill baráttuleikur og veröur leikurinn í dag örugglega ekki minni baráttu- leikur, Tongeren byggir mikiö á hraðaupphlaupum. Þjálfarl liösins er Pólverji og þykir mjög haröur og hefur sett mark sitt á leik liösins og notaöi hann ekki nema átta leik- mennífyrri leiknum. Valsstúlkurnar eiga mikla mögu- leika á aö komast áfram í 2. umferð og væri stuöningur viö þær ekki illa séöur. Þær stilla veröinu mjög í hóf, 75 kr. fyrir fulloröna og 10 kr. fyrir börn. Áhorfendur geta síöan fengiö tvo leiki í kaupbæti í 1. deild karla, en þeir fara fram strax eftir Evrópu- leikinn. Valsliöiö er mjög sterkt um þess- ar mundir og hafa þær stöllur komiö mjög vel undirbúnar til þess- arar keppni. Valsstúlkur vilja því hvetja fólk til að sjá leikinn og styöja viö bakiö á þeim og koma þeim í 2. umferð. Tjarnarhlaup á sunnudag TJARNARHLAUPIÐ, minningar- hlaup um Jóhannes Sæmunds- son íþróttakennara við Mennta- skólann í Reykjavík, verður háð sunnudagínn 13. október. Fyrst veröur keppt í boðhlaup- um, 4ra manna karlasveitum og 3ja manna kvennasveitum. Siöan veröur skemmtirokk einstakl- inga. Hver þátttakandi hleypur um 2 km kringum Tjörnina og Hljómskálagaröinn. Keppendur komi til skráningar sunnudaginn 13. október ki. 9 í anddyri Menntaskólans í Reykja- vík. Keppnin hefst síðan klukkan 10. Um hádegi, aö keppni lokinni, fer fram verölaunaafhending, og veitingar veröa á Sal Menntaskól- ans í Reykjavík. „Getum unnið þá með góðum leik“ HAUKAR og Táby Basket leika fyrri leik sinn í Evrópukeppni bikarhafa í körfuknattleik í íþróttahúsínu í Hafnarfirði í dag kl. 14.00. Þetta er fyrsti Evrópu- leikur íslensks félagsliös í körfu- knattleik um árabil. Það má búast viö fjörugum og skemmtilegum leik og spennandi að vita hvar Haukarnir standa samanborið við sænsku bikarmeistarana. Haukar hafa fengið til liös við sig eldfljót- an bakvörð sem kemur til með að styrkja liöíö verulega. Sænsku bikarmeistararnir voru á æfingu í Hafnarfiröi í gærkvöldi og ætluöu þeir Pálmar og Einar Bollason aö skoöa þá kappa, en var vísaö á dyr. „Já okkur var bara vís- aö á dyr þeir vildu greinilega ekki fá okkur inn, en svona fljótt á litiö eru þessir karlar ekki yfirnáttúrlegir og viö getum unniö þá ef við náum upp góöum leik og góöri stemmn- ingu,“ sagöi Pálmar Sigurðsson einn af máttarstólpum Hauka í samtali viö blaöamann Morgun- blaösins í gærkvöldi. „Ég ætla aö gefa mig aö fullu í leikinn á morgun, er viö lékum gegn ÍBK á fimmtudag hlíföi ég fætinum um of, en spelkyrnar sem ég er meö eiga aö halda vel, þannig aö ég tek alla áhættu á morgun,“ sagöi Pálm- Morgunblaöiö/Frlöþjótur • Þeir verða í eldlínunni í dag, bakverðirnir Páimar og bandaríski ieikmaðurinn, Mike Scheib og þjálfar- inn, Einar Bollason. Þeir félagar eru að athuga umbúðirnar á ökla Pálmars, en hann mun leika með sérút- búnar spelkur um ökklann t þessum leik. — Er Mike Scheib góður leik maður? „Já, hann er geysilega fljótur ck útsjónarsamur og hefur góöa hittn og veit vel hvernig á aö leika körfu bolta. Hann spilar aö vísu sömi stööu og ég, en ef viö náum ve saman þá ætti þetta aö geta gengii upp. Hann hefur aöeins verið me< okkur á æfingum í sjö daga en ham er fljótur aö komast inn í þetta og é á von á því aö viö sýnum góöan lei ámorgun". Þaö veröur því gaman aö fylgjas meö þeim Pálmari og Mike í leikn um í dag. Mike Scheib kemur fr Bandarikjunum í gegnum banda ríska þjálfarann James Dolley ser þjálfaöi ÍR og landsliöiö fyrir nokkt um árum. Mike er ekki mjög hár loftinu, hann var kosinn besti leik maðurinn undir 1.80 m. á hæö bandarísku háskólunum. Ef Haukunum tekst aö ná samai í dag, geta þeir örugglega veit sænska liöinu veröuga keppni oc jafnvel lagt þá aö velli. Stuöningui áhorfenda kemur öruggiega til meö aö vega þungt á metunum í Hafnar- firöi í dag. Körfuknattleiksáhuga- menn ættu því ekki aö láta þennan leik fram hjá sér fara, því þaö er ekki á hverjum degi sem slíkir leikir eruíboöi hérálandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.