Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985 Geir Hallgrímsson um Rainbow Navigation-málið: „Utiloka ekki lagasetningu“ Segist þó fremur kjósa aðrar leiðir „ÞESSI ÚRSKURÐUR er mér auðvitað mikil vonbrigði, og það því fremur að ■ gærdag sagði Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna mér að ríkisstjórnin teldi sig hafa mjög sterkan málsstað og fullvissaði mig um að þeir myndu leysa þetta mál svo viðunandi yrði,“ sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, er hann var spuröur álits á úr- skurði dómara í Bandarfkjunum í Rainbow Navigation málinu. Utanríkisráðherra sagðist í gær hafa fengið skilaboð frá Shultz þess efnis að orðsending hans væri á leiðinni til hans, með hans viðhorfi, eftir þennan úrskurð. Jafnframt sagðist Geir hafa rætt þennan úr- skurð við sendiherra Bandaríkjanna á fslandi og sendiherra íslands í Washington og eftir þeim upplýs- ingum sem hann hefði fengið, þá væri utanríkisráðuneytið vestra búið að leggja til að þessum úr- skurði yrði áfrýjað. Ákvörðun þar að lútandi væri hins vegar í höndum dómsmálaráðuneytisins, og þeirrar ákvörðunar væri ekki að vænta fyrr en eftir nokkra daga, því enn væri beðið eftir forsendum úrskurðarins. Utanríkisráðherra var spurður hvert yrði næsta skref íslenskra stjórnvalda í þessu máli: „Við munum auðvitað kanna nýjar leiðir af okkar hálfu, enda hefur þetta mál dregist alltof lengi. Það hefur þó verið okkar afstaða að Banda- ríkjamönnum sjálfum bæri að leysa málið, með því að gera hreint fyrir sínum dyrum. Við höfum rekið mál- ið á þeim grundvelli að íslensk skipafélög nytu jafnréttis og bæði Bandaríkjamenn og við, hagkvæmni frjálsrar samkeppni og þess vegna var ákvörðun flotamálaráðherra um að bjóða flutningana út, í samræmi við okkar kröfur," sagði Geir. „Þeg- ar úrskurðurinn kemur í veg fyrir það, a.m.k. í bili, þá er það fyrst og fremst skyida Bandaríkjamanna að haga svo málum heima hjá sér, að unnt sé fyrir vinaþjóð að njóta sama réttar í svo miklum samskiptum sem við, þessar tvær þjóðir eigum.' Utanríkisráðherra var spurður hvort lagasetning sem svar við dómsúrskurðinum kæmi til greina í hans huga: „Ég útiloka ekki þá leið, þótt ég kysi aðrar leiðir heldur. Enda tel ég ef til vill ekki þörf á slíkri lagasetningu. Það á hins vegar eftir að koma á daginn hvort það er rétt.“ Shultz var sagt að staðan væri sterk: Áfrýjum ekki ef það er fyrirsjáanleg tímasóun — segir Edward Derwinsky „NÚ STÖNDUM við frammi fyrir lögfræðilegu vandamáli en ekki pólitísku,“ sagði Edward Derwinsky, ráðgjafi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er leitað var álits hans á lögbannsúrskurði dómara í Washington um útboð á sjóflutning- um fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. „Lögmenn okkar munu fara ræki- lega yfir forsendur úrskurðarins þegar þær liggja fyrir á allra næstu dögum. Þá verður lagt á það lög- fræðilegt mat hvort þessum úr- skurði verður áfrýjað. Það veltur á niðurstöðu lögmanna utanríkis- ráðuneytisins og flotamáiaráðu- neytisins," sagði Derwinsky. „Hug- ur okkar stendur til að áfrýja úr- skurðinum en um það hefur engin ákvörðun verið tekin ennþá. Við munum ekki áfrýja ef allar líkur benda til að það muni verða tímasó- un ein.“ Spurningunni um hvort lögbanns- úrskurðurinn hefði komið honum á óvart svaraði Derwinsky neitandi. „Það get ég ekki sagt,“ sagði hann. „Hér var verið að dæma eftir rúm- lega áttatíu ára gömlum lögum, sem ekki hefur reynt mikið á. Það er rétt að taka fram, að það er ekki óvenju- legt hér í landi, að undirréttir felli tæknilega úrskurði og dóma um grundvallaratriði laga. Það er svo ekki fyrr en á efri dómsstigum, sem hægt er að fara að kljást með hár- fínum lagatúlkunum." - En hvernig má þá vera að utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna sagði starfsbróður sínum á Íslandi á þriðjudaginn, að Bandaríkjastjórn teldi stöðu sína í málinu mjög sterka? „Það var vegna þess að Shultz hafði þær upplýsingar frá sínum lögmönnum. Það hefur ævinlega verið stefna okkar að gera allt, sem i okkar valdi stendur til að leysa þetta mál í góðri samvinnu við Geir Hallgrímsson. Ráðherrann hefur gefið mér þau fyrirmæli að veita utanríkisráðherra íslands alla hugsanlega aðstoð í þessu má)i,“ svaraði Edward Derwinsky. Ríkisstjórn íslands ásamt forseta íslands á ríkisráðsfundi í gær eftir að forseti hafði staðfest breytingar á skipan í ráðherraembætti. Frá vinstri: Sverrir Hermannsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Helgason, Alexander Stefánsson, Geir Hallgrímsson, Vigdís Finnbogadóttir, Steingrímur Hermannsson, Þorsteinn Pálsson, Ragn- hildur Helgadóttir, Albert Guðmundsson og Matthías Bjarnason. Starfið leggst ágætlega í mig — sagði Þorsteinn Pálsson er hann tók við lyklum fjármálaráðuneytisins í gær FORSETI íslands Vigdís Finn- bogadóttir skipaði Þorstein Páls- son formann Sjálfstæðisflokksins til þess að gegna embætti fjármála- ráðherra í ríkisstjórn íslands á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær. Á fundinum veitti hún Matth- íasi Á Mathiesen lausn frá embætti viðskiptaráðherra og ráðherra Hagstofu íslands. Ríkisráðsfundurinn hófst klukkan 11 í gærmorgun. Ganga þurfti frá ýmsum málum ráðu- neytanna áður en ráðherraskipt- in fóru fram en þegar því var lokið gekk Þorsteinn Pálson inn á fundinn og bauð forseti hann velkominn. Þá tók Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra til máls og flutti tillögu til forseta íslands um skipun og skipting starfa ráðherra sem forseti stað- festi síðan. Auk þess las hann bréf um lausn Matthíasar Á. Mathiesen úr embætti viðskipta- ráðherra og skipunarbréf Þor- steins Pálssonar í embætti fjár- málaráðherra. Skipting starfa ráðherra í rík- isstjórn Isiands er þannig að Steingrímur Hermannsson fer með forsætisráðuneytið, Geir Hallgrímsson fer með utanríkis- ráðuneytið, Albert Guðmunds- son fer með iðnaðarráðuneytið, Alexander Stefánsson fer með félagsmálaráðuneytið, Halldór Asgrímsson fer með sjávarút- vegsráðuenytið, Jón Helgason fer með landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðuneytið, Matthías Morgunblaðið/Árni Sæberg Ráðherraskipti í iðnaðarráduneytinu. Albert Guðmundsson tekur við lykl- um ráðuneytisins úr hendi Sverris Hermannssonar, sem tekið hefur við embætti menntamálaráðherra. Bjarnason fer með samgöngu- ráðuneytið og viðskiptaráðuney- tið. Ragnhildur Helgadóttir fer með heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið, Sverrir Her- mannsson fer með menntamála- ráðuneytið og Þorsteinn Pálsson fer með fjármálaráðuneytið og Hagstofu fslands. Þegar fundinum var lokið hélt Albert Guðmundsson í fjármála- ráðuneytið, þar sem hann tók á móti nýja fjármálaráðherranum Þorsteini Pálssyni klukkan 12.30. Albert afhenti Þorsteini lyklana að Arnarhváli og skrifstofu ráð- herra og óskuðu þeir hver öðrum velfarnaðar í njum störfum. Aðspurður sagði Þorsteinn að það leggðist ágætlega í sig að taka við þessu embætti. „En þetta verður erfitt. Er það ekki? spurði hann. „Það verður að minnsta kosti nóg að gera“ svar- aði Albert. Þorsteinn sagðist ætla að nota fyrsta daginn til að heilsa upp á starfsfólk ráðu- neytisins. „Eg kveð þetta ráðu- neyti með trega" sagði Albert Guðmundsson „og þá á' ég aðal- lega við starfsfólkið. Þetta hefur verið afskaplega lærdómsríkur tími og gagnlegur að mörgu leyti“. Skömmu stðar fór Albert í iðnaðarráðuneytið þar sem hann tók við lyklum úr hendi Sverris Hermannssonar. „Þú tekur við góðu búi og góðu fólki" sagði Sverrir. „Nú afhendi ég þér lykl- ana, eins og þeir voru þegar ég tók við þeim af Hjörleifi Gutt- ormssyni. Sá blái gengur að Arnarhváli, en sá rauði að því allra helgasta, skrifstofunni. Og hér er stóllinn þinn kominn" sagði Sverrir. „Já“ sagði Albert. „það tekur hann enginn af mér“. Úrskurðurinn kom skipafélögunum ekki á óvart: Málið þarf að leysa með einhliða aðgerðum okkar — segir Ragnar Kjartansson stjórnarformaður Hafskips hf. LÖGBANNSÚRSKURÐURINN í máli Rainbow Navigation Inc. gegn banda- ríska flotamálaráðuneytinu kom forstjórum íslensku skipafélaganna, sem áður sinntu flutningunum til varnarliðsins, ekki á óvart. Það kom fram í samtölum, sem Morgunblaðið átti við þá í gær. „Þetta eru engar gleðifréttir en þessi úrskurður undirstrikar að það er búið að draga okkur á asnaeyrunum í hálft annað ár og að það er enn verið að því. Nú verða íslensk stjórnvöld að gera upp við sig hvort siglingar milli íslands og annarra landa eiga að fá að þróast í skjóli útlendra einok- unarlaga. Ég vona því að málinu verði áfrýjað," sagði Ómar Jó- hannsson, framkvæmdastjóri skipadeildar Sambandsins. ómar sagði að þessi niðurstaða hefði ekki komið sér á óvart - hann hefði haft ávæning af því í nokkra daga að líklegast myndi Rainbow vinna málið. Hann minnti á, að hér heima hefði lengi verið samstaða um að í siglingum milli íslands og Banda- ríkjanna ættu allir að sitja við sama borð, frjáls samkeppni ætti að ríkja í flutningunum til varnar- liðsins hér. „Nú er búið að kippa fótunum undan þeirri samkeppni og þá veltir maður fyrir sér hvern- ig íslensk stjórnvöld bregðast við,“ sagði Ómar. - En á þá að grípa til lagasetn- ingar sem bannar siglingar hingað í skjóli útlendra einokunar- eða verndarlaga? „Ég á mjög erfitt með að svara því á þessari stundu," sagði Ómar Jóhannsson. „Þetta er í mínum huga fyrst og fremst spurning um hvort við ætlum að horfa aðgerðar- lausir á að erlendir aðilar hafi stjórn á flutningum til landsins og frá því. Ég held að það stangist á við hugmyndir okkar um sjálf- stæði og fullveldi landsins.“ Ragnar Kjartansson, stjórnar- formaður Hafskips hf., tók mjög í sama streng í samtali við blm. Morgunblaðsins. „Ég hef um skeið verið þeirrar skoðunar," sagði hann, „að þetta mál verði aðeins leyst með einhliða aðgerðum af hálfu íslenskra stjórnvalda - að það verði komið í veg fyrir að út- lent skipafélag haldi uppi áætlun- arsiglingum hingað í skjóli er- lendra einokunarlaga. Það hefur lengi verið til umræðu en nú verða íslensk stjórnvöld að taka afstöðu til þess.“ Ragnar sagði að í hálft annað ár hefði verið reynt að leysa málið „eftir diplómatískum leiðum. Sú leið hefur verið fullreynd, hún gengur ekki. Það er komið að leiks- lokum." Úrskurðurinn kom Herði Sigur- gestssyni, forstjóra Eimskipafé- lags íslands, heldur ekki á óvart. „Við höfum að undanförnu fengið það mat frá kunnáttumönnum hér heima og vestur í Bandaríkjunum, að litlar líkur væru á sigri Banda- ríkjastjórnar í málinu," sagði hann. Hörður sagðist nú hafa mestar áhyggjur af því, að málinu yrði áfrýjað. „Það getur tekið 3-4 mán- uði,“ ságði hann, „og svo verður þeim úrskurði áfrýjað til enn æðra dómsstigs. Það getur tekið aðra 3-4 mánuði, svo ég sé fram á að það líði allt að átta mánuðir þar til málið fær endanlega afgreiðslu fyrir bandariskum dómstólum. Það hefur valdið mér miklum vonbrigðum hversu langan tíma þetta hefur tekið. Rainbow Nav- igation byrjaði siglingar hingað á fyrri hluta árs 1984 og þegar í febrúar á síðasta ári var vitað um áform félagsins um siglingar hing- að. Því miður hefur ekki tekist að leysa málið á þessum tíma.“ - Á þá að grípa til lagasetningar hér heima til að banna flutninga hingað í skjóli bandarísku vernd- arlaganna frá 1904? „Því get ég ekki svarað með einföldu já eða nei. íslensk stjórn- völd verða nú að íhuga með hvaða hætti er hægt að bregðast við þessum úrskurði," sagði Hörður Sigurgestsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.