Morgunblaðið - 17.10.1985, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1985
Af alhug þakka ég þá virðingu og vinarþel
sem svo margir sýndu mér í tilefni af 75 ára
afmæli mínu þann 30. sept. sl.
Guðs blessun fylgi ykkur.
Jón G. Sólnes.
Hjartanlegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem
með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlýju
hjartaþeli, glöddu mig sunnudaginn 29. sept-
ember síðastliðinn.
Drottinn blessi ykkur.
ÓlöfAnna Björnsdóttir,
Bergþórugötu 25, Reykjavík.
AMERÍSKIR
SNJÚHJÓLBARÐAR
I
Einstaklega ódýrír
hjólbaröar m/hvítum
hringum.
Flrestone snjóhjólbarðar:
t STÆRÐIR:
VERÐ KR.:
8 A 78x13 (165x13) 3.231.-
f B 78x14 (165x14) 3.480.-
C 78x14 (175x14) 3.699.-
Sólaðir amerískir snjóhjói-
barðar m/hvítum hrlngum.
STÆRÐIR:_________VERÐ KR.:
B 78x13 (165x13) 1.380.-
D 78x14 (175x14) 1.620.-
E 78x14 (185x14) 1.789.-
HJÓLBARÐAVIÐGERÐ
KÓPAVOGS
SKEMMUVEGI 6, KÓPAVOGI
SÍMI 75135
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Viltu auðvelda þér námið og vinnuna?
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Viltu bæta náms- og vinnutækni þína?
Viltu margfalda lestur þinn á fagur-
bókmenntum?
Viltu auka frítíma þinn?
Ef svörin eru játandi þá skaltu drífa þig
á næsta hraölestrarnámskeið sem hefst
miðvikudaginn 6. nóvember nk.
Skráning á kvöldin kl. 20—22 í síma
16258.
HRAÐLESTRARSKÓLINN
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær Fiókagata 1—51 Leifsgata
Ingólfsstræti Óöinsgata Barónstígur
HSÍ semur við Adidas
Handknattleikssamband Is-
lands hefur fengiö tilboð frá
íþróttavörufyrirtækinu Adidas
sem hljóöar upp á um 5 milljónir
íslenskra króna. Samningur þessi
á aó vera til þriggja ára, frá 1.
desember 1985 aö telja.
Aö sögn Jóns Hjaltalín Magnús-
sonar var rætt viö forráöamenn
fyrirtækisins á síöasta ári, en þar
var íslenska liöiö í 6. sæti. Styrkur
þessi veröur fatnaöur, skór, töskur
og boltar og síöan veröur ákveöin
greiösla í peningum á hverju ári og
ef vel gengur í heimsmeistara-
keppninni og á Ólympiuleikum
veröur greitt aukalega.
Samningurinn á aö gilda til 1.
desember 1988 og veröur samn-
ingur undirritaöur mjög fljótlega.
MíÍ
Alex Walker, framkvæmdastjóri Cove Rangers (t.h.) á velli félagsins ásamt Jóni Gunnlaugssyni,
íþróttafulltrúa á Akranesi sem var aó skoða aöstæöur á vellinum. „Viö Skagamenn gætum mikió
læræt af þessu félagi, vió þurfum einmitt að skapa svona fjölskylduandrúmsloft í kringum liðiö
okkar,“ sagói Jón.
Merki ÍA hefur verió sett upp á bar félagsheimilis Cove Rangers.
.rr-
Félagsheimili Cove Rangers. Þarna eru billjaróboró og fleiri leikir
til dægrastyttingar.
COVE Rangers FC nefnist knatt-
spyrnufélag í Aberdeen í Skot-
landi. Þetta er lítið félag, skipaö
leikmönnum, sem eru í knatt-
spyrnunni af áhuga fyrst og
fremst en ekki vegna pening-
anna, sem eru af skornum
skammti. í liói félagsins eru
aðallega ungir upprennandi
leikmenn og svo leikmenn sem
hafa lokiö ferli sínum hjá at-
vinnumannalióum, en vilja vera
með í nokkur ár í viðbót.
Cove Rangers FC lánaöi leik-
mönnum ÍA völl sinn til æfinga
fyrir Evrópuleikinn viö Aberdeen
á dögunum. Undirritaöur blaöa-
maöur kom þangaö I heimsókn
og þar sem skipulag þessa félags
er á þann hátt aö íslenzk félög
gætu af lært, var Alex Walker,
framkvæmdastjóri félagsins og
þjálfari tekinn tali.
„Cove Rangers teflir fram einu
aöalliöi og þremur unglingaliö-
um,“ sagöi Walker. „Ennfremur
leggjum viö mikla áherslu á gott
samband leikmanna og stuön-
ingsmanna og höfum því opið hús
öll kvöld og á eftirmiödögum á
laugardögum. Félagar eru 650 aö
tölu, flestir úr nágrenni vallarins.
f félagsheimilinu er oftast margt
um manninn, menn rabba saman,
spila billjarö eöa á spil og stund-
um erum viö meö happdrætti,
bingó og aörar uppákomur. Bar-
inn er opinn hér í félagsheimilinu
og menn geta rabbaö saman yfir
bjórglasi eöa sterkari drykkjum.
Eftir leiki á laugardögum er troö-
fullt hér í heimilinu, menn ræöa
saman um leikinn og biöa eftir
úrslitum úr öörum leikjum. Viö
leggjum mikla áherslu á aö hafa
fjölskyldu-stemmningu hérna og
ég fullyröi hiklaust aö þaö hefur
tekist vel,“ sagöi Walker enn-
fremur.
Áhorfendur aö leikjum liösins
eru venjulega 4—500 talsins en á
stórleiki koma mest um 1000
manns. Völlurinn tekur ekki fleiri
áhorfendur meö góöu móti. En
forráöamenn Cove Rangers eru
ekkert bangnir. Þeir ætla aö fara
aö stækka félagsheimiliö og
áhorfendastæöin, svo fleiri geti
veriö meö.
„Þaö er okkar skoðun að knatt-
spyrnan sé ekki bara leikurinn á
vellinum, heldur ekki síður félags-
skapurinn utan vallarins," sagöi
Alex Walker aö lokum.
íslenzk lið gætu
mikið lært af Cove
Rangers FC