Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.10.1985, Blaðsíða 56
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra: Háskólakennsla ' á Akureyri hefst næsta haust SVERRIR HERMANNSSON menntamálaráðherra, sem tók við starfí menntamálaráðherra í gær, hefur tekið ákvörðun um að kennsla á háskóla- stigi verði hafin á Akureyri þegar á næsta ári, eða haustið 1986. Þetta stað- festi Sverrir í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. „Ég tel það afar brýnt að kennsla á háskólastigi hefjist á Akureyri hið fyrsta, og ekki síðar en haustið 1986," sagði mennta- málaráðherra í samtali við Morg- unblaðið í gær. Sagðist Sverrir nú mundu snúa sér til Háskóla ls- lands og byðja menn þar að undir- búa málið. Aðspurður um hvaða kennslugreinar hann hefði í huga að kenndar yrðu á Akureyri, sagði Sverrir „Það hef ég ekki gert upp við mig, en ég tel það mikilvægt fyrir þennan skólabæ Akureyri að efnt verði þar til kennslu á há- skólastigi. Mér er alveg ljóst að verkmenntun í landinu þarf að efla. Það er góður vísir að verk- menntaskóla á Akureyri, en það er misskilningur hjá mönnum að halda það að þróun og efling slíkrar skólastarfsemi gangi á misvíxl við háskólanám, því grein- arnar styðja hvor aðra. Það er Fjögur dufl á Ströndum UNDANFARNA daga hafa Land- helgisgæslunni borist tilkynningar um 4 torkennileg dufl sem rekió hefur á Ströndum. í fyrradag var tilkynnt um dufl í Munaðarnesi og Árnesi í Trékyllisvík. Gylfi Geirsson sprengisérfræðingur Landhelg- isgæslunnar fór til að athuga málið ásamt manni frá sprengi- deild Varnarliðsins. í gær barst síðan tilkynning um tvö dufl til viðbótar, annað í Munaðarnesi og hitt norður við Dranga. mjög mikilvægt fyrir Akureyri að fá svona kennslu í bæinn, því þannig helst henni á sínu mennt- aða fólki." Menntamálaráðherra var spurð- ur hvort fjármagn til slíkrar kennslu á Akureyri væri fyrir hendi: „Fjármagn til undirbúnings þessa er til. Það þarf ekki að kosta mikið fé að undirbúa málið. Að sinni hef ég ekki gert annað upp við mig en að ráðist verði í þennan undirbúning, en auðvitað stefni ég að því að kennsla á háskólastigi hefjist eigi síðar en næsta haust á Akureyri," sagði Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra. Ráðherraskipti Morgunblaftið/Árni Sjeberg Á ríkisráösfundi á Bessastööum í gær staðfesti forseti fslands breytingu á skipan ráðhcrraembætta í ríkistjórn fslands. Eftir að fundinum lauk fór Þorsteinn Pálsson, nýskipaður fjármálaráöherra, í Arnarhvol, þar sem hann tók við lyklum að ráðuneytinu úr hendi Alberts Guðmundssonar sem nú gegnir embætti iðnaðarráðherra. Sjá frétt ábls.4. Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra um skattlagningu sparifjár: Rætt um skattlagningu vaxta umfram verðbólgu „VIÐ VERÐUM að endurmeta í heild sinni tekjuöflunarkerfi ríkisins og það er eitt af þeim verkefnum sem ég mun ganga í nú á næstunni. Á þessu stigi vil ég ekki segja neitt til um með hvaða hætti það getur orð- ið,“ sagði Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra er blaðamaður Morg- unblaðsins spurði hann í gær, hvort það kæmi að hans mati til greina að sparifé landsmanna yrði skattlagt sérstaklega. f frétt Morgunblaðsins í gær var greint frá því að Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði að aflað hefði verið upplýs- inga frá öðrum löndum um það með hvaða hætti sparifé væri skattlagt, og að alls staðar þar sem stjórnvöld hefðu fengið upplýsing- ar væri sparifé skattlagt. Fjármaálráðherra sagðist þó telja að mönnum hefði ekki dottið í hug að skattleggja sparifé sér- staklega, heldur hefði komið til áiita að skattleggja raunverulegar fjármagnstekjur, með sama hætti og tekjur fyrir vinnu, en það væri gert í flestum löndum. Sagðist ráð- Sigurður Helgason forstjóri Flugleiðæ herra þar einvörðungu eiga við þann hluta vaxta sem væru um- fram verðbólgu. „Sem betur fer, hefur sparnaður verið að aukast," sagði Þorsteinn, „og við þurfum að halda okkar striki í því efni, þannig að það geti orðið varanlegt ástand. Það er ein af forsendum þess að við vinnum okkur út úr erfiðleikunum. Við munum ekki gera neinar þær ráðstafanir, sem draga úr mögu- leikum okkar á þvi að auka sparn- að.“ Flugfreyjur krefjast 126,4% launahækkunar að meðaltali „Leggjum megináherslu á að fá vaktaálag,“ segir formaður samninganefndar Flugfreyjufélagsins FLUGLEIÐIR meta kröfur Flugfreyjufélagsins um hækkun á launaliöum sem 95,9% hækkun að meðaltali en 126,4% hækkun þegar búið er að meta aðrar kröfur til launahækkana. Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða sagði í Morgunblaðinu í gær að ef gengið yrði að þessum kröfur kostaði það fyrirtækið 99 milljónir kr. á ári. Flugleiðir hafa boðið flugfreyjum 15,2% launahækkun. Stjórn og samninganefnd Flugfreyjufélagsins hefur boðað verkfall hjá Flugleiðum frá og með næstkomandi miðvikudegi, 23. október. Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndirnar til sáttafundar klukkan 14ídag. Sigurður Helgason sagði að Flugfreyjufélagið hefði uppi viða- miklar kröfur um breytingar á kjarasamningnum, bæði á upp- byggingu hans og fjárhæðum. Sagði hann að kröfur þeirra um hækkanir á launum væri á bilinu 72,1 til 167,7%, en 95,9% að meðal- tali. Ef aðrar kröfur þeirra væru — metnar til launahækkana væri kröfugerðin á bilinu 111,6 til 192,8%, en 126,4% að meðaltali. Hér er eingöngu verið að tala um launahækkanir til 1. janúar. Sig- urður sagði að Flugleiðir hefðu strax boðið starfsmönnum sinum hliðstæðar hækkanir og samdist um á milli VSÍ og ASÍ, og hefðu náðst samningar við alla nema flugfreyjur. Erla Hatlemark, formaður samninganefndar Flugfreyjufé- lagsins, sagðist ekki geta lagt neinn dóm á útreikninga Flug- leiða, hún hefði engan aðgang að gögnum þeirra. Hún sagði þó að þær fengju ekki sömu útkomu út úr útreikningum sínum. Hún sagði að flugfreyjur legðu megináherslu á það í kröfugerð sinni að fá vaktaálag á laun sín utan venju- legs dagvinnutíma eins og aðrar stéttir í þjóðfélaginu. Sagði hún það viðurkennt að yfir 60% af vinnutima flugfreyja væri utan venjulegs dagvinnutíma. Þess utan færu þær fram á leiðréttingu mála sinna á ýmsum öðrum sviðum. Sigurður Helgason undraðist það að Flugfreyjufélag íslands hefði aðeins boðað verkfall hjá Flugleiðum en ekki Arnarflugi. Hann sagði mjög óvenjulegt að stéttarfélag gerði þannig upp á milli fyrirtækja. Erla svaraði því til þegar hún var spurð um þetta atriði að viðræður við Arnarflug hefðu hafist miklu seinna en við Flugleiðir af ýmsum ástæðum og viðræður við þá væru komnar það skammt áleiðis að ekki hefði þótt rétt að boða verkfall hjá Arnar- flugi. Sigurður vonaðist til að ekki kæmi til verkfalls því það myndi hafa í för með sér mikil óþægindi fyrir landsmenn og fjárhagstap fyrir Flugleiði. Þá myndi það hafa mikil áhrif á markaðsstarfsemi félagsins erlendis og verkfalls- boðunin ein sér hefði þar mjög slæm áhrif. Sigurður sagði að fram til 7. nóvember væru 40 þúsund farþegar bókaðir hjá Flugleiðum. Hólmadrangun 47 tonn af rækju FRYSTITOGARINN Hólma- drangur frá Hólmavík kom í gær inn til Hafnarfjarðar með um 47 lestir af frystri rækju að verðmæti um 14 milljónir króna eftir 24 daga veiðiferð. Aflann fékk skip- ið á Dohrnbanka. Skipstjóri á Hólmadrangi er Hlöðver Har- aldsson. Þorsteinn Ingason, fram- kvæmdastjóri Hólmadrangs hf. sagði í samtali við Morgun- blaðið, að aflinn væri allur frystur um borð og seldur til Japan. Þetta væri einn stærsti rækjutúr íslenzks skips til þessa. Hann sagði rekstur Hólmadrangs ganga mjög vel og væri aflaverðmæti skipsins frá áramótum orðið 115 til 120 milljónir króna. Það hefði því nánast tekizt að standa í fullum skilum við stofnfjársjóði, þrátt fyrir spár um hið gagnstæða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.