Morgunblaðið - 15.11.1985, Page 48

Morgunblaðið - 15.11.1985, Page 48
Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. AP/Símamynd Ungfrú heimur, Hólmfríður Karlsdóttir, með veldissprotann og kórónuna skömmu eftir krýninguna í gærkvöldi. Hólmfríður Karlsdóttir kjörin Ungfrú heimur: „Ég á ekki til orð, ég er svo hamingjusöm“ „ÉG ER svo hamingjusöm að ég á ekki til orð! Ég trúi þessu varla og veit ekki almennilega hvort þetta er vaka eða draumur,“ sagði Hólmfríður Karlsdóttir, 22 ára gömul fóstra úr Garðabæ, sem í gærkvöldi var kosin og krýnd Ungfrú heimur (Miss World) við hátíðlega athöfn í Royal Albert Hall í London, í samtali við frétta- ritara Morgunblaðsins ytra eftir krýninguna. Foreldrar Hólmfríðar, Ásta Hannesdóttir og Karl Guð- mundsson, voru ekki síður ham- ingjusöm þegar Morgunblaðs- menn hittu þau í gærkvöldi. „Við erum alveg í skýjunum," sagði Karl. „Við vonum bara að þetta verði stúlkunni til gæfu og að hún verði landi og þjóð til sóma.“ Hólmfríður sagðist í samtali við AP-fréttastofuna reikna með að hætta á dagheimilinu, þar sem hún vinnur, því næsta árið verð- ur hún á ferð og flugi um allan heim við að sinna „embættis- skyldu“ sinni - sem ljósmynda- fyrirsæta og við kynningu á ýms- um hlutum og fyrirtækjum. „Ég vona bara að krakkarnir sakni mín,“ bætti hún við á góðri ensku, að sögn AP-fréttastofunn- ar. „Eg mun gera mitt besta - mér finnst afskaplega gaman að ferðast og ekki síst vonast ég til að geta komist í hlýrra loftslag en ég á að venjast." Fóstran úr Garðabæ var ekki aðeins valin fegursta stúlka heims - hún var einnig kjörin fegurðardrottning Evrópu í úr- slitakeppninni í London í gær- kvöld. Hún brosti sínu breiðasta þegar úrslitin voru tilkynnt fyrir fullu húsi - og fyrir framan sjón- varpsmyndavélar, sem færðu keppnina inn á heimili hálfs milljarðs manna víðsvegar um heiminn. í öðru sæti í keppninni varð breska stúlkan Mandy Adele Shires, 19 ára ljósmynda- fyrirsæta, og í þriðja sæti 22 ára gömul háskólastúdína frá Bandaríkjunum, Brenda Denton. í verðlaun fékk Hólmfríður fimm þúsund sterlingspund, jafnvirði um 290 þúsund ís- lenskra króna, og henni eru tryggð að minnsta kosti 25 þús- und pund (tæplega hálf önnur milljón ísl. króna) fyrir fyrir- sætu- og kynningarstörf á næstu tólf mánuðum. Keppnin verður sýnd í heild í íslenska sjónvarpinu strax eftir fréttir i kvöld. Sjá nánar á bls. 2. Matthías Bjarnason um Útvegsbankann og Hafskip: Ekki ljóst hve miklum "peningum bankinn tapar Vantar mikið á að tryggingar bankans nægi fyrir heildarskuldbindingum Hafskips gagnvart bankanum SEÐLABANKINN fékk í júní sl. upplýsingar um stöðu Hafskips gagnvart Útvegsbankanum, þar sem fram kom að nokkuð vantaði á að tryggingar bankans nægðu fyrir heildarskuldbindingum Hafskips gagnvart bankanum. Þetta kom m.a. fram í svari Matthíasar Bjarnasonar viðskipta- og bankaráð- g^gþerra í Sameinuðu þingi í gær, við fyrirspurn Jóns Baldvins Hannibalssonar um skuldastöðu Hafskips gagnvart Útvegsbankanum og um það hvernig bankayfirvöld hefðu sinnt eftirlitsskyldu sinni í þessu máli. Jafnframt kom fram í máli ráðherra að skýrsla frá því í októbermánuði sl. sýndi fram á að til enn frekari rýrnunar hefði komið á tryggingum Hafskips gagnvart Útvegsbankanum. Ráðherrann sagði að Seðlabankinn hefði fylgst náið með framvindu þessa máls, samningaviðræðum og fleiru. Bankaráðherra sagði að á þessu stigi væri ekki hægt að segja til iim hversu miklu fé Útvegsbank- inn tapaði vegna viðskipta við Hafskip. Það færi eftir því hvort fyrirtækið yrði tekið til gjald- þrotaskipta eða ekki. Jón Baldvin hafði áður látið að því liggja að skuldir Hafskips við Útvegsban- kann væru nú um 700 milljónir króna. Jóhanna Sigurðardóttir benti á að í nágrannalöndunum vkru regl- ur í gildi sem bönnuðu að einu fyrirtæki væri lánað meira en næmi ákveðinni upphæð af bók- færðu fé viðkomandi banka. Sagð- ist hún hafa lagt til, þegar ný bankalög voru samþykkt á Alþingi sl. vor að slíkt ákvæði væri tekið inn, en því hefði verið hafnað. Valdimar Indriðason, formaður bankaráðs Útvegsbankans rakti nokkrar ástæður fyrir erfiðleikum Hafskips. Hann sagði að bankaráð Útvegsbankans hefði sl. vor gert kröfu um hlutafjáraukningu Haf- skips, upp á 80 milljónir króna. Hlutaféð hefði verið aukið, en það ekki nægt til. Ræðumenn véku að því að upp- lýsa þyrfti sérstaklega um við- skipti Hafskips og Útvegsbankans frá 1981 fram á mitt ár 1983, þegar Albert Guðmundsson gegndi stjórnarformennsku í báðum fyr- irtækjunum. Albert sagði í ræðu sinni: „Var það hluti af stórum glæp að ég tók að mér að gegna því starfi sem Alþingi kaus mig til?“ Albert sagði að nauðsynlegt væri að rannsaka þetta mál til hlítar, til þess að fram kæmi hvort þær fullyrðingar sem beindust gegn honum, ættu við rök að stjðj- ast. Sjá nánar frásögn af Al- þingi á bls. 4. Morgunblaðið/Júlíus Lögreglumaður á leið um borð í Viðey með sérþjálfaðan hund til leit- ar á eiturlyfjum. Amfetamín fannst um borð í Viðey Einn skipverja gengst við 40 grömmum af amfetamíni TOLLVERÐIR og lögreglumenn fíkniefnadeildarinnar fundu í gær 40 grömm af amfetamíni falið um borð í togaranum Viðey í Reykjavík- urhöfn. Einn skipverja hefur gengist við amfetamíninu, sem hann kveðst hafa ætlað til eigin nota. Honum var sleppt úr haldi í gær, þar sem málið er talið upplýst og fleiri komi ekki við sögu. Amfetamínið í Viðey tengist ekki smygli í Karlsefni og Breka á dögunum, en hins vegar leiddi rannsókn þeirra mála lögreglu á slóð fíkniefnasmyglarans í Viðey. Maðurinn hefur áður komið við sögu fíkniefnamála hér á landi. Amfetamínið í Viðey fannst í þvottaherbergi uppundir lofti. Umfangsmikil leit fór fram um borð í togaranum. Tollverðir og lögreglumenn leituðu dyrum og dyngjum og notuðu hasshunda. Togarinn Viðey var í söluferð til Þýzkalands. Amfetamínið var keypt þar ytra, en söluverð þess á markaði hér á landi er talið vera um ein milljón króna. Á miðvikudag lagði fíkniefna- deildin hald á 70 grömm af hassi. Lögreglan hafði fylgst með manni, sem grunaður er um fíkniefnamis- ferli, og var hann handtekinn og fannst hassið. Manninum hefur verið sleppt úr haldi. Leitað var nákvæmlega um borð f skipinu og oft við erfiðar aðstæður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.