Morgunblaðið - 24.11.1985, Side 25
Verdi ásamt óperunni og haldið
ánægður á braut. Hann varð því
miður frá að hverfa er Anne-Maria
Mutter kom fram með sinfóníunni,
því Háskólabíó var troðfullt. Segi
svo einhver að ekki sé áhugi á
klassískri tónlist! „Ég fór líka á
stórkostlega myndlistarsýningu
um daginn. Ég þekkti ekki Kjarval
fyrir, en hann er stórkostlegur
málari!"
Tónlistarstörfin hafa borið
Barbacini víða um heim. Hann
hefur starfað í Sviss, Þýskalandi
og mikið í Suður-Ameríku auk
heimalands sins, Ítalíu.
„Jú, það fylgir böggull skamm-
rifi, því þótt það sé yndislegt oft
að ferðast, er maður langtímum
saman fjarri fjölskyldunni. Ég er
kvæntur söngkonu og starfa okkar
vegna sjáumst við nánast aldrei!
Ég var t.d. í fimmtíu daga að störf-
um við Grímudansleik áður en hlé
var gert. Ég á litla sex ára dóttur
sem ég dái og það er erfitt að vera
svo lengi í burtu frá henni."
Héðan heldur Barbacini til Tór-
ínó þar sem hann setur upp nýja
ítalska óperu eftir Luigi Della
Piccolla.
Sveitungi Verdis
Það ætti ekki að koma neinum
á óvart hvaða óperuhöfundur er í
mestum metum hjá Barbacini.
„Verdi. Ekki aðeins vegna þess
að hann er einn sá albesti eins og
alkunna er, heldur og að við erum
sveitungar. Mér finnst óperur
Verdis standa mér nær en ella
vegna þess að oft hafa heimaslóð-
irnar haft mikil áhrif á hann. En
auðvitað held ég mikið upp á alla
snillinga ítalskrar óperu."
— Telurðu að þjóðareinkenni
endurspeglist í óperuhefð hvers
lands?
„Já, vissulega. Og ég held að
Þjóðverjar hafi til dæmis sérstaka
tilfinningu fyrir óperum Wagners,
Austurríkismenn fyrir óperum
Mozarts, Italir fyrir óperum Verd-
is og svo framvegis. Ég held að
það sé ávallt erfiðara að endur-
skapa listaverk sem sprottið er úr
öðrum jarðvegi en manns eigin.
Og það var meðal annars þess
vegna sem efasemdir sóttu á mig
um hvort það væri mögulegt að
gera Verdi góð skil á ísiandi. ís-
lendingar eru sannarlega af öðru
sauðahúsi en ítalir og margt ólíkt
í fari þeirra. En ég komst að því
að íslendingar og ítalir væru ef
til vill ekki eins ólíkir og ætla
mætti. Þrátt fyrir þá gjá sem
tungumálaerfiðleikar mynda
komst ég að raun um að hugsunar-
hátturinn er ekki ólíkur. Maður
kemur merkingu sinni til skila og
leggur sömu merkingu í marga
hluti en það get ég ekki sagt um
samskipti mín við allar aðrar þjóð-
ir.“
Domingo og Pavarotti
eru farnir að eldast...
— Telurðu að sýningin hafi þró-
ast og batnað með tímanum?
„Já, vafalaust hefur hún gert
það. Menn eru alltaf taugaóstyrkir
á frumsýningu en það hverfur
smám saman. Og með hverri sýn-
ijigu kynnast listamennirnir betur,
og finna eitt og annað sem fer
þetur. En svo er annað, að sýningin
er misgóð. Margir hljóðfæraleikar-
ar og söngvarar eru að vinna að
öðru, og koma oft dauðþreyttir á
sýningu um kvöldið. Því miður er
ekkert við því að gera en sýningin
verður ekki jafngóð og ella. Menn
skortir einbeitingu og leika ekki
eins vel þegar þeir eru þreyttir."
— Það líður að lokum viðtalsins.
Barbacini segist vona að hann eigi
þess kost að vinna að öðrum spenn-
andi verkefnum með Kristjáni Jó-
hannssyni þegar sýningum á
Grímudansleik ljúki.
„Kristján er sérlega geðugur
maður. Hann hefur frábæra rödd
og möguleikar hans eru gríðarlega
miklir. Hann hefur þegar sungið
hjá mörgum helstu óperum heims,
og margt áhugavert framundan.
Og nú eru stjörnur eins og Pava-
rotti og Placido Domingo farnir
að eldast. Kristján gæti hagnast á
því.“
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985
25
Nokkrar fínar ferðatillögur fyrir þig
SKIÐAPARADISIN
MAYRHOFEN
Beint flug til Salzburg í Austurríki.
Boðiö upp á 5 hótel i mismunandi
veröflokkum. Mayrhofen býður upp á
frábærar brekkur, ölstofur, fína veit-
ingastaði og diskótek. Eins og tveggja
vikna ferðir.
Verd fró kr. 21.758.- (2 vikur). 0
Skemmtilegar skoðunarferðir —
sleðaferð — dagsferð til Ítalíu o.fl. Far-
arstjórinn vinsæli Rudi Knapp verður
á staðnum.
Fáðu bæklinga og nánari upplýs-
ingar um ferðatilhögun hjá okkur.
ARAMOTAFERÐ
TIL AMSTERDAM
Áramótaferð með Ferðamiðstöðinni
er eitt af því sem ekki er hægt að lýsa,
þú verður að upplifa það.
Farið verður frá Keflavík 28. desem-
ber og dvalið á hinu frábæra hóteli
Pulitzer.
Á gamlárskvöld verður áramóta-
fagnaður á hinum einstaka skemmti-
stað Lido, þar sem boðið verður upp á
kalt borð, drykki, desert, dans og
skemmtiatriði með heimsþekktum
dönsurum og skemmtikröftum. Allir
drykkir án endurgjalds, að undan-
skildu kampavíni.
Á nýársdag er svo „Brunch" (sam-
bland af morgunverði og hádegis-
verði) á hótel Pulitzer.
Flogið verður heim frá Amsterdam 2.
janúar.
Amsterdam hefur upp á margt að
bjóða, þar er gott og gaman að versla
og alltaf líf og fjör — sem sagt
ógleymanleg áramótaferd.
Verð á mann í tvíbýli Kr. 15.645.-
— aukagjald f. einbýli — 3.800.-
Innifalið: Flug, gisting i 5 nætur,
ferðir til og frá flugvelli að hóteli,
áramótafagnður og Brunch.
/L/ .M//' 4V
ARAMOTAFERÐ
TIL KAUPMHAFNAR
30. DESEMBER 1985
Endurtökum nú hina frábæru ára-
mótaferð til Kaupmannahafnar.
Gist verður á SAS ROYAL hóteli, sem
er fyrsta flokks hótel í miðbæ Kaup-
mannahafnar. Innifalið í verð er flug,
akstur til og frá flugvelli að hóteli, og
gisting á SAS ROYAL.
Á gamlárskvöld verður áramótafagn-
aður á hótelinu:
MATSEÐILL
Fordrykkur: Kampavínskokteill
Forréttur: Consommé Madrilene
Kjúklingaseyði
Aðalréttur Saumon fumé á chaud et
epinards en branch
Heimareyktur lax með spínati
Eftirréttur: Grand Marnier soufflé
Eftir miðnætti verður boðið upp hlað-
borð með blönduðu dönsku áleggi.
Boðið verður upp á frönsk vín, kaffi og
koníak með og eftir mat.
Verð á mann: IKR. 2.990.- (DKK. 598)
Kvintett Ernst Herdorff leikur.
-Sannkölluð áramótastemmning-
6NT Má-Su 4NT Ma-Fö
kr. 19.250 kr. 16.395
Verð á mann í
tvíbýll
— aukagj. v/einb. kr. 5.808 kr. 3.872
Verð miðað við skráð gengi
þann 10/10/85.
a Ji rs
FLJUGIÐ TILKANARI
Þriggja vikna ferðir til KAN ARÍ í allan
^ vetur. Beint flug eða með viðkomu í
Amsterdam. fbúðir eða hótel.
Verð frá kr. 29.343.- (3 vikur).
SIGLING TIL KANARI
14 DAGA FERÐ MEÐ
M/S BLACK PRINCE
Skipafélagið FRED OLSEN LINES býð-
ur þægilega 14 daga siglingu með
hinu glæsilega 300 farþega skemmti-
ferðaskipi frá Rotterdam til Madeira,
Las Palmas, Tenerife, Lanzarote,
Madeira, Tilbury/London, Rotterdam.
Verð frá kr. 71.900.- 2 í klefa, 53.000,-
3 í klefa, 48.950.- 4 í klefa.
Innifalið í verðinu er flug til og frá
Amsterdam, ferð með m/s PRINCE
með fullu fæði.
Brottför: 9. og 23. janúar — 6. og 20.
febrúar — 6. og 20. mars — 3. og 17.
apríl.
jOL 0G ARAMOT I
LONDON
JÓLAFERÐ TIL LONDON 23. des. til
27. des. 1985. Fimm daga ferð. Njótið
jólanna í London á fyrsta flokks hóteli
við Oxford Circus, ST. GEORGES. Verð
í tvíbýli kr. 22.470.
Innifalið í verðinu er: Flug og gisting
með enskum morgunverði. Á að-
fangadagskvöld verður framreiddur
fimm rétta kvöldverður með for-
drykk. Á jóladag fimm rétta hádegis-
verður við píanóundirleik.
Sannkölluð jólastemmning.
Verð í tvíbýli kr. 22.470.
ÁRAMÓTAFERÐ TIL LONDON 30.
des. 1985 til 3. jan. '86. Fagnið nýja ár-
inu í London í góðu yfirlæti á ST.
GEORGES hótelinu við Oxford Circus.
Innifalið ■ verði er: Flug og gisting
með enskum morgunverði. Á gamla-
árskvöld verður borðaður fimm rétta
kvöldverður við kertaljós og hljómlist,
síðan dansað. Á nýársdag, hádegis-
verður í frábærum veitingasal St.
Georges hótelsins.
Sérstök áramótastemmning.
Verð í tvíbýli kr. 21.950.
m
[^FEROA..
IMU MIDSTODIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
a vNtívre is-s