Morgunblaðið - 24.11.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985
ÍSLENSK SAMHEITAORÐABÓK
AD KOMA ÚT:
„Á erindi
til allra sem
hafa áhuga
á íslensku máli“
— segir Svavar Sigmundsson
höfundur bókarinnar
ÍSLENSK samheiUorðabók er vaentanleg á markaðinn innan skamms, hin
fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Það er Styrktarsjóður Þórbergs Þórðar-
sonar og Margrétar Jónsdóttur sem gefur hiókina út, en þessi sjóður var
stofnaður af þeim hjónum og gefinn Háskóla íslands sem tók við honum
1. janúar 1971. Svavar Sigmundsson, dósent í íslensku við Háskólann, hefur
frá árinu 1974 haft veg og vanda af samningu bókarinnar, en það var ekki
fyrr en þá sem ákvörðun var tekin um úthlutun úr sjóðnum.
stofnskrá sjóðsins segir að
Itilgangurinn með honum
sé að styrkja samningu og
útgáfu íslenskrar sam-
heitaorðabókar, rímorða-
bókar og stílfræði. Höfuðstóllinn
var þrjár íbúðir í Reykjavík að
verðmæti 3,5 milljónir króna þegar
sjóðurinn var stofnaður. Skipuð
var þriggja manna stjórn sjóðsins
og eiga sæti í henni hverju sinni
orðabókarstjóri, rektor eða full-
trúi hans og fulltrúi heimspeki-
deildar sem frá upphafi hefur
verið Bjarni Guðnason. „Þetta fór
svo fremur seint af stað. Ég tók
verkið að mér árið 1974 og var þá
með það sem hlutastarf samhliða
sendikennarastöðu í íslenskum
fræðum við Kaupmannahafnar-
háskóla. Þar hóf ég efnissöfnunina
og lauk henni svo um áramótin
’79-’80, eða um sama leyti og ég
hætti kennslunni og sneri heim,“
segir Svavar Sigmundsson um
aðdraganda og upphaf starfsins
við gerð samheitaorðabókarinnar.
Hann segir að fyrst hafi verið
unnið að undirbúningi samheita-
orðabókar á árunum upp úr 1940,
og hafi Björn Sigfússon, síðar há-
skólabókavörður, átt frumkvæði
að því. Atvikin höguðu því þó
þannig að hann hvarf frá því verki
vegna annarra starfa árið 1943, en
Árni Kristjánsson cand. mag. hélt
undirbúningnum áfram. Bjarni
Vilhjálmsson tók síðan við, en af
ýmsum ástæðum féll verkið niður
upp úr 1950.
og nú er. Þetta var algjör frum-
vinna - og unnið á seðla eftir gamla
laginu. Eg kom svo heim með
seðlasafnið 1980 og byrjaði þá að
vinna úr og ganga frá seðlunum.
Ég var að því í tvö ár í fullu starfi,
en eftir áramótin ’82-’83 var svo
byrjað að slá safnið inn á tölvu
og var það feikileg hagræðing.
Tölvuvinnslan var gerð á vegum
Baldurs Jónssonar þar sem Magnús
Gíslason á Reiknistofnun Háskól-
ans sá um forritun. Með þessu móti
var hægt að slá inn allar samheita-
greinar og tölvan sá um millivísan-
ir. Tölvuvinnslan hefur gert
alla endurskoðun á bókinni héðan
í frá miklu auðveldari viðfangs."
Svavar segir að margir hafi spurt
sig hvort Þórbergur hafi skilið
eftir sig eitthvert safn samheita.
„Það er ekki teljandi. Hann safn-
aði miklu af orðum úr alþýðumáli
og sýndi málinu alltaf mikinn
áhuga, en svo virðist sem hann
hafi ekki safnað samheitum sér-
staklega. Ég hef ekki fundið í rit-
stórbær —* borg.
stóreflis stór sbr. mikill.
stórefnamaður. stóreignamaður -♦ auðjarl.
stóreignir ft —» auðœfi.
stóreygður, stóreygur glámeygður.
stórfeginn bráðfeginn.
stórfelldinn —♦ dramblátur\ —♦ geysistór.
stórfelldur —♦ mikill, sterkur 2; —♦ grófur, —♦
mikilfenglegur\ harðleikinn, ójafnaðarfullur;
—♦ dramblátur. Andh: smáfelidur.
stórfenginn —> mikilfenglegur\ —♦ ríkulegur.
stórfenglegur, stórfengur —♦ mikilfenglegur.
stórfiskaleikur hvalfiskaleikur, kaparaleikur
sbr. borgarleikur; —♦ höfrungahlaup.
stórfiskur —♦ golþorskur\ —♦ hvalur\ —♦ stórlax.
stórfjara stórstraumsfjara.
stórflón erkiflón, heimskingi.
stórflæður kv —♦ háflceði.
stórframkvæmdir ft —> stórræði.
stórfrægur —♦ víðfrægur.
stórgallaður lýtamikill, ómögulegur.
stórgeðja 1 ób —♦ stórlyndur\ —> geðríkur.
stórgerður flassalegur, groddalegur, grófur\ —>
mikilfenglegur\ —♦ stórbeinóttur\ —> stoltur.
stórgígja —> kontrabassi.
stórgjöfull —♦ gjafmildur, örlátur.
stórgripabein ft hnútur, hraun, +skrunkur,
+skröltur.
stórgrýti björg, klettar, urð.
stórheppinn —♦ Ijónheppinn.
stórhissa —♦ forviða.
stórhlið kv langhlið.
stórhrið fjármannahríð sbr. blindöskubylur.
stórhuga 1 ób áhugamikill, áhugasamur, rík-
lundaður, stórlyndur, stórmannlegur, stór-
tækur.
stórhýsi —> höll.
stórhöfðingi —> burgeis, höfðingi, valdsmaður.
stóriðja, stóriðnaður þungaiðnaður. \
Stórkarlahlátur —> hrossahlátur.
stórkarlalegur —> grófur, klunnalegur, stór-
skorinn.
stórkaup ft —♦ heildsala.
stórkaupmaður —♦ heildsali.
stórkona —♦ tröllkerling.
stórkostlegur fárlegur, gífurlegur, grófur,
hremmilegur, stórlegur; —> forkostulegur
mikilfenglegur.
stórlax burgeis, dólpungur, höfðing/
paur, stórfiskur, valdsmaður sbr
maður.
stórlátur —> dramblátur, stoltur\ sk'
tækur; -♦ gjafmildur\ —> heimtuj
stórlega —> mjög.
stórlegur —> stórkostlegur.
stórleitur grófgerður, mikilleitur, stórskorinn.
Stórlygari —♦ haugalygari.
stórlygi —> haugalygi.
stórlyndi —♦ bráðlyndi\ —> höfðingsbragur.
stórlyndur bráðlyndur, geðríkur, ofsafenginn,
stórbrotinn, stórgeðja, stórhuga, stórrita-
samur.
stórlæti —> dramb, mont\ —♦ örlæti\ —> heimtu-
frekja.
stórmannlegur -♦ höfðinglegur, rausnarlegur,
stórhuga, örlátur.
stórmeiðsli ft lemstur, slys.
stórmenni —> göfugmenni, mikilmenni\ —> fyrir-
fólk, höfðingjar.
stórmennska —> dramb, mikillæti, mikil-
mennska, —> göfgi', rausn, skörungsskapur.
stórmerki ft —♦ jarteikn.
stórmerkur gagnmerkur.
stórmikill —> ógnarlegur.
stórmæli ft —> stóryrði.
stórnetla notrugras sbr. brenninetla.
stórorður hvassyrtur, +kofurmá!ugur, +köpur-
máll, stóryrtur, þungorður, þungyrtur;
skömmóttur, tannhvass\ vera s. taka upp í sig.
stórráður —> ráðríkur.
stórrigning —> slagveður.
stórritasamur —> fyrirferðarmikili, —> stór-
lyndur.
stórríkur —> vellauðugur.
stórræðamaður —> framkvæmdamaður.
stórræði ft stórframkvæmdir, stórverk; —♦
afrek.
stórsala —> heildsala. Andh; smásala.
stórsild hæringssíld sbr. sfld.
stórslá. s á e-m vera meiddur; s. eftir e-u
otsjór, hafrót, haugasjór,
pjór, stórvelta, stórveltu-
jubrim, öldurót.
a gerskemma, gerspilla,
ostulegur.
'fur\ hrikalegur, mikilfeng-
, mikilúðugur, stórbeinótt-
, stórleitur. Andh: smáfelld-
Sýnishorn úr bókinni.
Svavar Sigmundsson
„Ég vann þetta þannig að ég fór
í gegnum Orðabók Menningarsjóðs
og danska orðabók Freysteins
Gunnarssonar frá árinu 1926 og
skráði niður samheiti á seðla jafn-
framt því sem ég skráði jafnóðum
millivísanir þannig að hægt er að
slá upp hverju orði sem fyrirfinnst
í bókinni. Orðabók Freysteins er
mikil náma af samheitum, og
hefur hún í raun og veru verið eina
samheitaorðabókin sem nýtileg
hefur verið um íslensku til þessa.
Ég hafði til afnota tvö eintök af
orðabók Freysteins sem Björn
Franzson kennari átti. Að Birni
látnum voru þau gefin Orðabók
Háskólans, enda var þar feikilegur
fróðleikur á spássíum sem Björn
hafði skráð og ég hafði mikið gagn
af og vann úr. Björn hafði ekki
síst aukið við fleiryrtum samheit-
um, þ.e. orðasamböndum, en við
orðtöku á Orðabók Menningar-
sjóðs lagði ég áherslu á einyrt
samheiti, þ.e. einstök orð,“ segir
Svavar. Alls verða í bókinni 44.014
uppflettiorð.
Tölvuvinnsla
„Á þeim árum þegar ég byrjaði
að safna í bókina var ekki komin
til tölvuvinna í jafn ríkum mæli
um hans neitt um samheiti fyrir
utan það sem fram kemur í skrif-
um hans um esperanto, en það var
sem kunnugt er sérstakt áhugamál
hans,“ segir hann.
„Ég hef haft það að aðalmark-
miði við val á orðum í bókina, að
taka orð úr nútímamáli, en í bók-
inni er einnig að finna talsvert af
fornyrðum. Eg hef ekki leitast við
að safna öllu saman, enda tel ég
það ekki vera tilganginn með
svona bók. Þetta á að vera með-
færileg bók fyrir skóla og alla
alþýðu manna og ég mat það
þannig, að það íþyngdi henni ef
hún væri of umfangsmikil. En það
er erfitt að draga mörkin, því er
ekki að neita. Ég þykist þess full-
viss að margir sakni einhverra
orða úr bókinni, en það er þá hægt
að bæta um þegar endurútgáfa
verður gerð. í bókinni er heilmikið
af tökuorðum sem eru almennt
mál. Ég hef ekki verið að hreinsa
út orð þó sumum þyki kannski að
einungis ættu að vera alíslensk orð
i henni. Sama gildir um slangur.
Lítið er um sérfræðiorð í bókinni,
ég hef ekki tekið nema það sem
er á allra vörum í þeim efnum.
Sjaldgæf og staðbundin orð eru
merkt með piús fyrir framan, en
óstaðfest nýyrði, slangur og töku-
orð eru merkt með gráðumerki.
Það er þá um að ræða mál sem
ekki allir viðurkenna."
Svavar segist hafa valið þann
kostinn þegar um fleiri samheiti
er að ræða en eitt, að nota stafrófs-
röð í stað að hafa merkingarlík-
asta orðið fremst, eins og
stundum tíðkast í samheitaorða-
bókum. „Maður hefur ekkert fyrir
sér í þessum efnum nema máltil-
finninguna þannig að ég taldi rétt
að nota stafrófsröðina. Aðalatriðið
er að orðin og tilvísanirnar eru
þarna. Ég hafði hliðsjón af dönsku
og norsku samheitaorðabókunum
við gerð bókarinnar og þar er þessi
lausn valin. Ég gæti hins vegar
hugsað mér að einhvern tíma
seinna væri hægt að vinna út frá
þessari bók aðra þar sem orðin
væru skýrð og þess til dæmis getið
hvaða orð væri hægt að nota ná-
kvæmlega í stað annars. í rauninni
er sjaldnar en ekki hægt að skipta
um orð án þess að merkingarblær
eða stíll breytist.“ Að sögn Svavars
eru allvíða tekin fram andheiti í
bókinni. „Ég hef þó ekki gert það
nema þar sem mér hefur fundist
það liggja í augum uppi, sbr. heitur
- kaldur, hvítur - svartur. Stundum
skýrir maður merkingu með því
að setja andheiti þegar ekkert
samheiti er til. 1 þessu sambandi
fór ég í kennslubækur og tók upp
það sem þar er, enda vonast ég til
að skólafólk geti haft mikið gagn
af bókinni."
Veriö aö minna á orðin
„Það er eitt sem ég vil undir-
strika varðandi notkun þessarar
bókar og það er að ég tel nauðsyn-
legt að leita til annarra orðabóka
samhliða. Með þessari bók er
meira verið að minna á og leið-
beina fólki við að finna rétta orðið.
Svo er nauðsynlegt að fletta upp
í öðrum orðabókum til að fá vitn-
eskju um hvernig orðið er notað,
nákvæma merkingu þess og í
hvaða samhengi það á við,“ segir
Svavar. Hann kveðst búast við að
skólafólk og þeir sem fást við
skriftir, s.s. rithöfundar, þýðend-
ur, blaðamenn og fleiri hafi mest
not af bókinni en engu að síður
eigi hún erindi til allra þeirra sem
áhuga hafa á íslensku máli. „Þeir
sem mest hafa haft samband við
MorgunblaðiÖ/Bjarni
mig vegna bókarinnar núna síðari
árin eru þeir sem hafa verið að
gefa verslunum og fyrirtækjum
nöfn. Mín reynsla er sú að alltaf
sé að aukast viðleitni í þá átt að
finna fyrirtækjum góð og gild ís-
lensk nöfn þó því miður séu líka
dæmi um annað.“
Svavar hefur að mestu leyti
unnið einn að samheitaorðabók-
inni, en hann kveðst hafa fengið
aðstoð við efnissöfnun í Kaup-
mannahöfn og einnig við tölvuinn-
slátt, textasamlestur og leiðrétt-
ingar hér heima. Ásgeir Blöndal
Magnússon cand. mag. las svo
handritið yfir og gerði tillögur um
áðurnefndar merkingar orða. Mál
og menning sér um dreifingu á
bókinni, en hún er prentuð í prent-
smiðjunni Odda. Svavar er nú í
eins árs leyfi frá kennslu til að
sinna rannsóknastörfum og er
viðfangsefnið íslenskt málvernd-
arstarf á 19. öld. „Þetta felst m.a.
í því að athuga orðafar, orðasmíð
og breytingar á orðaforðanum á
fyrri hluta 19. aldar. Menn þurfa
ekki að kvíða verkefnaleysi í þess-
um fræðum," sagði Svavar að
endingu.
EJ
I