Morgunblaðið - 24.11.1985, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1986
59
Mynd 3. Framleiðni vinnuafls í iðnaöi á íslandi
1980 = 100
Atvinnii'
greinanúmer 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982
31 103,2 103,1 106,8 113,2 108,9 104,0 100,0 92,2 93,5
32 75,8 88,4 98,8 95,5 91,5 94,3 100,0 95,6 102,3
33 73,9 60,6 65,5 77,5 92,9 94,7 100,0 114,8 132,6
34 78,2 78,7 89,3 100,4 95,2 96,1 100,0 105,8 115,6
35 113,6 104,5 96,2 103,9 101,7 93,1 100,0 94,3 95,4
36 106,8 93,0 91,3 93,2 82,8 84,1 100,0 86,2 85,5
37 117,9 95,0 92,5 109,4 113,1 100,9 100,0 98,8 103,0
38 69,9 70,3 89,6 92,0 96,2 94,6 100,0 99,4 102,5
39 72,7 80,2 129,6 145,9 139,6 128,5 100,0 96,0 99,4
31-39 89,2 85,1 93,3 98,3 98,1 97,8 100,0 99,2 104,6
og verið hæg hér á næstliðnum
árum (sjá meðfylgjandi töflu um
framleiðniþróun í níu ríkjum, auk
íslands, á árunum 1960-1975).
Framleiðniþróun var langörust í
Japan. Það er hinsvegar eðlilegt
að framleiðni aukist hægar þar
sem hún er hvað mest fyrir, eins
og í Bandaríkjunum. En hátt fram-
leiðnistig er „hvorki afsökun hægr-
ar framleiðniþróunar á Bretlandi
né hér á landi“, segir í greinargerð-
inni.
Þriðja taflan sýnir framleiðni-
þróun vinnuafls í iðnaði hér á landi
frá árinu 1974 til ársins 1982.
Framleiðniaukning var hér um það
bil 2% á ári þetta tímabil eða
svipuð og í Bretlandi. Á sama tíma
var framleiðniaukning í Japan,
Frakklandi, V-Þýzkaiandi og Belg-
íu um 4% að meðaltali á ári.
Framleiðnistig á fslandi hefur því
ekki hækkað - í samanburði við
aðrar þjóðir - frá því sem var á
árinu 1976 (sjá töflu 1).
Þjóðarátak
f greinargerð er meðal annars
vitnað til árangurs sem náðst
hefur í Japan en jafnframt Singa-
pore og Hong Kong á síðastliðnum
20—30 árum. Um hina tvo síðastt-
öldu staðina segir að þeir hafi
„þróast af stigi almennrar örbirgð-
ar upp á stig tiltölulega mikillar
velmegunar, en Japanir úr rústum
styrjaldar í hóp efnuðustu og
tæknivæddustu þjóða heims. Sér-
staklega er athyglisvert að þessum
þjóðum, sem er það öllum sameig-
inlegt að eiga nánast engar nátt-
úruauðlindir að byggja á, hefur
tekizt að halda nokkurn veginn
stöðugum hagvexti og atvinnu,
þrátt fyrir sviptingar og samdrátt
í alþjóðaviðskiptum á undanförn-
um árum.“
Samkeppni er sterkur þáttur
efnahagsstefnunnar í þessum
löndum, bæði milli fyrirtækja
innanlands og ekki siður á alþjóða-
vettvagi. Árangurinn byggist ekki
hvað sízt á stjórnunaraðferðum,
sem lýst hefur verið efnislega svo:
1) Viðfangsefnin vóru vel skil-
greind og sett fram í formi skýrra
þjóðfélagsmarkmiða, sem endur-
spegluðust í aðgerðum stjórn-
valda; 2) Kappkostað var að ná
samstöðu meðal þjóðarinnar um
þessi markmið; 3) Áherzla var lögð
á samráð og samvinnu stjórnenda
og starfsmanna um aðgerðir að
settum markmiðum; 4) Frjáls
samkeppni og verðmyndun á
grundvelli einkarekstrar; 5) Fram-
leiðnihreyfingin er í senn drif-
kraftur og stýritæki efnahags-
framfara. Efnahagsstefna stjórn-
valda og stefnan í kjaramálum
ráðast af þróun framleiðninnar;
6) f hverju fyrirtæki er yfirleitt
starfandi verkalýðsfélag sem nær
til allra starfsmanna þeirra; 7)
Gæðahringar starfa í fyrirtækj-
um; 8) Alþjóðleg tækniþróun er
nánast gjörnýtt; 8) Menntakerfið
er lagað að þörfum atvinnulífsins.
f greinargerð flutningsmanna
segir loks:
„Það er skoðun flutningsmanna
að framleiðniátak þetta (sem til-
laga þeirra fjallar um) þurfi að
ná til allra höfuðatvinnuvega
landsmanna en ekki einskorðast
við einstakar atvinnugreinar. Því
er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin í
heild, eða forsætisráðherra fyrir
hennar hönd, hafi frumkvæðið um
að skipa stjórnarnefnd til að stýra
framkvæmd átaksins. Lagt er til
að sú ncfnd verði skipuð þrem
fulltrúum samtaka vinnuveitenda
og þremur fulltrúm samtaka laun-
þega, ásamt þremur fulltrúum
ríkisvaldsins. Annað form á skipun
stjórnarnefndar kæmi til álita ef
henta þætti, enda væri þá tryggt
jafnræði milli aðila f þeim anda
að hér væri um þjóðarátak að
ræða, sem byggðist á samstöðu
þessara aðila.“
I
I
af léttuog stílhreinu MOBElfABRIK AjS H
sófasettunum frá Danmörku. 3 geróir. I
Grindin fáanleg í hvítu, gráu og svörtu. I
Húsgagnasýning
í dag kl. 2—5. ■
BORG/IR. kúsqöqnl
Hreyfilshúsinu viö Grensásveg I
______ símar: 686070 og 685944.
Smáenkná
Olympia Reporter
skóla-, ferða og heimilisritvél
með leiðréttingarbúnaði.
Léttbyggð og áreiðanleg
ritvél sem þolir mikið
vinnuálag og ferðalög.
Leitið nánari upplýsinga
um aðrar gerðir
Ekjaran
ÁRMÚLA 22, SÍMI83022,108 REYKJAVÍK
VraM^oð
I REYKTAVÍK
ÞORUNN
GESTSDÓTTIR
Wladaniaóitr
I araborga rfulItrái og
formadur Eandssambands sjálfstœóiskvenna
Tryggjum Þórunni öruggt sæti í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Stuðningsmenn