Morgunblaðið - 24.11.1985, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985
63
hafði fengið neitt viðhald frá
upphafi.
„Orgelið hafði staðið í 25 ár án
þess að því væri nokkuð sinnt. Það
verður að líta eftir hljóðfærum,"
segir Ojvind Solbach til skýringar
þegar vikið var að viðgerð hans á
orgelinu. „Maður varð satt að segja
alveg undrandi að finna hve slæmt
það var, svo slæmt að fyrstu jólin
urðum við að hafa jólamessurnar
án þess. Komu bara óhljóð úr því.
Ég ákvað þá að reyna að bæta
það, þótt það verði aldrei gott. Tók
það í sundur og pípurnar fengu
yfirhalningu. Varð að senda þær
til framleiðandans erlendis og
sumum varð að skipta fyrir nýjar.
Svo þurfti að setja það saman
aftur. I þetta fór allt sumarið. En
hú er orgelið eins gott og það getur
orðið. Ég vona bara að fólki líki
það núna.“
Efnt til Steingrímskvölds
í fyrravetur tók svo kórafólkið
og hljómsveitin sig saman og kom
upp tónlistarkvöldi með skemmti-
legu sniði í Félagsheimilinu undir
forustu Ojvinds Solbacks og þótti
takast mjög skemmtilega. „Já,
þetta var sett á svið í nokkurs
konar léttum óperettustíl," útskýr-
ir Ojvind. „Ég hefi stjórnað óper-
ettum og er ekkert óvanur að setja
saman svona prógram. Eftir að ég
hafði verið hér nokkurn tíma var
mér sagt frá Steingrími Sigfús-
syni, organista, sem var lengi á
Patreksfirði og eftir að hafa heyrt
tónlistina sem hann samdi, þá
fannst mér mörg af lögunum hans
nijög góð. Stakk þá upp á að efnt
yrði til Steingrímskvölds honum
til heiðurs. Við settum þetta upp
á sviði með viðeigandi búningum.
Lúðrasveitin, barnakórinn og
kirkjukórinn tóku þátt í þessu.
Ætli það sé ekki einasti kirkjukór-
inn á landinu sem stendur fyrir
kabarett. Annars opnuðum við
skemmtunina með Steingríms-
sálmum og það var mjög hátíðlegt,
en síðan tók við skemmtipró-
grammið. Þetta tókst ágætlega.
Við ætluðum að vera með eina
hljómleika, en aðsókn var svo
mikil að þeir urðu þrír hér á Pat-
reksfirði. Fórum líka til Bíldudals
með skemmtunina. Jú, talað var
um að fara lengra en af því gat
ekki orðið. Við ætlum okkur að
halda þessu áfram. Nú eru áform
um að heiðra Jenna Jóns, sem er
héðan, á sama hátt. Setja saman
dagskrá með lögunum hans og
færa hana upp i óperettustíl eins
og hina. Höfum raunar hugsað
okkur að koma upp svona skemmt-
un á hverju ári.“
Við komuna höfðum við litið i
gluggann á hljóðfæraversluninni,
sem er til húsa á neðri hæðinni
og séð þar margvísleg hljóðfæri.
„Hljóðfærasalan er nú alveg fyrir
utan þetta", segir Ojvind. Hún
byrjaði eiginlega sem hobbý. Ég
fór að panta hljóðfæri, notaði góð
sambönd sem ég hafði áður og
keypti þau beint. Með mér í þessu
er Hilmar Árnason. Þetta hefur
svo undið upp á sig. Við fáum
hljóðfæri frá Japan, Hollandi,
Vestur-Þýskalandi, Noregi, Tékkó-
slóvakíu og eigum orðið viðskipta-
vini víða um land.“ Þegar Ojvind
er spurður hvort ekki sé um hönd
að reka svona viðskipti frá Pat-
reksfirði, segir hann að það sé
ekkert vandamál. Hafi maður góð
hljóðfæri sé ekkert í veginum með
að senda þau hvert sem er.
En hvernig skyldi nú skammdegi
í djúpum firði með háum fjöllum
fara í aðkomufólkið í skammdeg-
inu? „Okkur líkar ákaflega vel hér
á Patreksfirði," sagði Ojvind Sol-
bach. „Þetta eru nú eiginlega ekki
fjöll eftir mínum kokkabókum. Ég
hefi búið í Sundalsöra þar sem
fjöllin rísa alveg úr fjörunni og
upp í 2000 metra hæð, svo að sólin
hverfur í októberbyrjun og kemur
ekki aftur fyrr en í byrjun mars.
Maður býr bara við þetta og mér
finnst engin ástæða til að kvarta.
Eina sem við söknum eru skógarn-
ir. En við höfum eignast hér góða
vini og verið mjög vel tekið. Við
þrífumst vel og erum ákveðin í að
búa áfram á Patreksfirði."
- E.Pá.
Hinn margrómaði
f jöðrunar- og
beltabúnadur El Tigre
El Tigre
CHEETAH
El Tigre er hraðskreiöasti
sleðinn frá Arctco, búinn 500
cc vökvakældri Spirit vél með
tveimur VM 38 Mikuni blönd-
ungum. Framfjöörun er löng A
arma f jöörun meö jafnvægis-
stöng. Afturfjöðrun er einnig
mjög löng.
KITTY CAT
Kitty Cat er eini barnasleöinn sem fram-
leiddur er og hefur notiö mikilla vin-
sælda. Vélin er mjög lítil og búin gang-
ráði þannig að ekki er hægt aö aka hraö-
aren 12km.Tilöryggislogastööugt
fram og afturljós. Siálflýsandi boröi er
hringinn um kring. Oryggislykill.
Cheetah vélsleöinn hentar vel í leik og starfi, en einkum viö hinar
erfiöustu aöstæöur. Hann er búinn langri A arma fjöörun aö
framan. Beltiö er mjög langt (156“ eöa 396,2 cm) sem gerir þaö
aö verkum aö sleöinn flýtur vel viö erfiöustu aöstæöur. Á hinn
bóginn erCheetah eini „long track" sleöinn sem lætur aö stjórn
eins og stuttur sleöi á haröfenni vegna
þess aö ca. 1 /3 af beltinu er uppsveigt
á lið aö aftan sem nýtist í mjúkum snjó.
Cougar vélsleöinn er ódýr
sport-sleði en jafnframt kraft-
mikill og lipur meö langri A arma
fjöörun að framan. Fjöörunar-
möguleikar eru 7“ (17,8 cm) aö
framan og 7,5“ aö aftan!
JAG
Jag vélsleöinn er ótrúlega ódýr miö-
aö viö gæöi, en hann er búinn 2 cyl.
vél meö sjálfvirkri olíubiöndun. Sam-
kvæmt úrskuröi bandaríska tímarits-
ins „Snow Goer" er Jag vélsleöinn sá
sparneytnasti á markaönum.
«Cr BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVELAR HF
'11 '11* ^ cnvmvmv aAmcnn avwr 1 j m aaa
SUÐURLANDSBRAUT 14 S
S. SOLUDEILD: 31236
mnúsúí
miiattm
0P»«riída9
“TunnudaS
El Tigre árg. ’85 ca85 hö Kr. 369.534,-
Cougar árg. ’86ca 60 hö Kr. 336.235,-
Jag árg. '86 ca45hö Kr. 265.303,-
Cheetah árg. ’86ca70hö Kr. Til björgunarsveita Kr. 378.248,- 202.318,-
Cheetah árg.’86ca90hö Kr. Til björgunarsveita Kr. 449.327,- 239.003,-
Kitty Cat árg. ’86 Kr. 94.082,-
Ofangreint verð er miöað við gengi í dag og háð breytingum.
Bifreiöarog
Landbúnaöarvélar hafahafiö
innflutning á þessum vinsælu vélsleöum
sem reynst hafa vel hér á landi.