Morgunblaðið - 24.11.1985, Síða 66

Morgunblaðið - 24.11.1985, Síða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 Kammermúsíkklúbburinn: Tónleikar í Bú- staðakirkju í kvöld Kammermúsíkklúbburinn heldur þriðju tónleika þessa starfsárs í Bústaðakirkju í kvöld, sunnudag, klukkan 20.30. Á efnisskránni eru þrjú verk. Fyrst verður fluttur strengja- kvartett eftir Joseph Hyden, keis- arakvartettinn. >ví næst verður fluttur strengjakvartett eftir Béla Bartók. Loks verður leikinn kvint- ett fyrir 2 fiðlur, lágfiðlu og 2 knéfiðlur eftir Franz Schubert. Flytjendur eru Guðný Guð- mundsdóttir, fiðla, Sean Bradley, fiðla, John Roberts Gibbons, lág- fiðla, Carmel Russill, knéfiðla og í kvintettinum bætist við Gunnar Kvaran, knéfiðla. Hljóófæraleikararnir, sem fram koma á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Jólamyndin 1985 Sérstök frumsýning kl. 14.00 í dag Allur ágóði af sýningunní rennur óskertur til Blindrafélagsins Hamrahlíð 17 Öllu því fé sem inn kemur veröur variö til þess aö efla atvinnumöguleika blindra og sjónskertra. Ein dýrasta kvikmynd sem gerö hefur veriö og hún er hverrar krónu viröi. Mynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 5 og 7. Hafnarfjörður: Hátíðarvika í tilefni árs æskunnar í tilefni að ári æskunnar gengst Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnar- fjarðar fyrir hátíðarviku dagana 23.- 30. nóvember. Opnuð verður sýning í Hafnarborg í dag, laugardag, kl. 14.00. Á sýning- unni eru myndverk og Ijósmyndir Hafnfirðinga á aldrinu 7 til 20 ára. Sýningin er haldin i tengslum við samkeppni sem Æskulýðs- og tómstundaráð hefur staðið fyrir undanfarnar vikur á meðal barna og unglinga í Hafnarfirði undir kjörorðinu „Þekking, Þjálfun, Þroski". Á níunda hundrað börn og unglingar tóku þátt í sam- keppninni. Bæjarstjóra og bæjar- fulltrúum Hafnarfjarðar hefur verið boðið til opnunar sýningar- innar auk þess sem þingmönnum kjördæmisins, menntamálaráð- herra og öðrum gestum hefur verið boðið. Við opnun sýningarinnar verður verðlaunaafhending og þar munu verðlaunaritgerðir og ljóð verða lesin. Á morgun, sunnudag, verður haldin hljómsveitarkeppni í íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst hún kl. 17.00. Þar verður valin „Unglingahljómsveit Hafn- arfjarðar" af áhorfendum og sér- staklega skipaðri dómnefnd, en í henni eiga sæti þeir Magnús Kjart- ansson, Björn Thoroddsen og Björgvin Halldórsson. Hljómsveit- in „Cosa Nostra“ mun spila og að lokinni keppninni verður haldin flugeldasýning. Ýmislegt annað verður á dag- skrá vikunnar, en henni lýkur 30. nóvember. „Exocet- flugskeytin“ Ný bók eftir Jack Higgins HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hefur gefið út nýja bók eftir Jack Higgins. Nefnist hún ,,Exocet-flugskeytin“. Efni sögunnar er sótt í Falk- landseyjastríðið og lýsir miskunn- arlausum átökum. „Þetta er fyrst og fremst harðsoðin spennubók, bók sem þú lest í einni lotu,“ segir m.a. í frétt frá útgefanda. Jack Higgins er m.a. kunnur hér á landi fyrir bók sína „örninn er sestur“, sem víða hefur verið met- sölubók og bókin „Exocet-flug- skeytin" hefur einnig komist í efstu sæti yfir söluhæstu bækur. Gissur ö. Erlendsson þýddi bók- ina, en káputeikning er eftir Kristján Jóhannsson. Bókin er 195 bls. að stærð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.