Morgunblaðið - 26.11.1985, Side 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
268^bl^2^rg^
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mannskæðasta flugrán sögunnar:
Egyptar kenna
iibýu um ránið
Valletu, 25. nóeember AP.
EGYPZK stjórnvöld hafa sent herlid til landamæranna við Líbýu. Halda
þau því fram, að stjórn Líbýu hafi staðið að baki ráninu á egypzku far-
þegaþotunni, sem átti sér stað um helgina. Sextíu manns biðu bana í þessu
flugráni og tugir manna særðust Á meðal hinna látnu voru 9 börn. Er því
Ijóst, að þetta er mannskæðasta flugrán sögunnar.
Á sunnudagskvöld sprengdi
egypzk vikingasveit sér leið inn i
þotuna með leifturárás, þar sem
hún stóð á flugvellinum í Valletta
á Möltu. Flugræningjarnir köst-
uðu þá handsprengjum að far-
þegunum og skutu á þá með byss-
um sínum. Mikill eldur kom upp
og breiddist hann hratt út um
þotuna. Er talið, að margir þeirra
58 manna, sem þarna týndu lifi,
hafi farizt í eldi og reyk. Áður
höfðu ræningjarnir myrt banda-
riska konu og varpað líki hennar
út úr flugvélinni. Enn einn far-
þeginn lézt af sárum sinum,
skömmu eftir að hann hafði verið
fluttur á sjúkrahús i Valletta.
Fjórir flugræningjanna létu lif-
ið, en sá fimmti er enn á lifi en
mikið særður.
Egypzka farþegaþotan, sem var
af gerðinni Boeing 737, var á leið
frá Áþenu til Kairó á laugardags-
kvöld, er henni var rænt. Neyddu
flugræningjarnir flugstjórann til
þess að fljúga til Möltu og lenda
þar. Með vélinni voru 92 farþegar
ogömanna áhöfn.
Egyptar sendu síðan herflugvél
með sérþjálfaða víkingasveit til
Möltu til þess að freista þess að
bjarga farþegum og áhöfn þotunn-
ar úr klóm flugræningjanna.
Sveitin lagði svo til atlögu á sunnu-
dagskvöld, eftir að flugrænin-
gjarnir höfðu skotið átta af far-
þegunum — þar af einn til ólífis
Egypzk stjórnvöld héldu því
fram i dag, að klofningshópur úr
Frelsisfylkingu Palestínumanna
(PLO) bæri ásamt Líbýu ábyrgð á
flugráninu. Af hálfu PLO hefur
því verið lýst yfir, að þau samtök
hafi ekki átt neina aðild að þessu
flugráni. Líbýustjórn sór í dag
einnig af sér alla ábyrgð á flugrán-
inu.
Bandaríkjastjórn lýsti því yfir í
dag, að hún styddi heilshugar þá
ákvörðun egypzku stjórnarinnar
að binda með hervaldi enda á flug-
ránið en harmaði jafnframt, hve
margir létu lífið. Brezka stjórnin
tók í sama streng og sagðist dást
að einarðri afstöðu Egypta og
Möltubúa en harma dauða svo
margra saklausra manna.
Sjá nánari fréttir á bls. 22 og 23.
Einn þeirra, sem særðust en komust þó lífs af í flugráninu, sést hér borinn í sjúkrabfl, sem flutti hann á sjúkra-
húsí Valletta.
Kaupmannahöfn, 25. nóvember. Frá Niln Jörgen Bruun, frélUrit-
vi Morpinblaósins.
DANSKI Grænlandsmálaráðherrann, Tom Höy-
em, hefur vakið pólitíska ólgu með ummælum
sínum um Grænland og Grænlendinga f dönsku
blaði, „Ugeavisen Kebenhavn".
Ráðherrann sagöi, að hann óttaðist útbreiðslu
alnæmis (AIDS) á Grænlandi vegna almenns
lauslætis landsmanna.
Ráðherrann sagði einnig, samkvæmt því sem
blaðið segir, að unnt væri að draga verulega úr
„BlóÖþyrst villidýr
— sagði flugstjórinn, sem felldi foringja flugræningjanna með öxi
66
ValletU, Möltu, 25. nóvember. AP.
HANI GALAL, flugstjóri egypsku þotunnar, lýsti því f dag á frétta-
mannafundi þegar hann felldi einn flugræningjanna með öxi í sömu
mund og egypsku hermennirnir létu til skarar skríða.
„Þetta var sannkallað víti,“ sagði Galal um flugránið, sem endaði
með þeim ósköpum, að um 60 manns féllu þegar flugræningjarnir
köstuðu handsprengjum og skutu á farþegana. Sagði hann, að egypsku
hermennirnir hefðu bjargað því, sem bjargað varð.
Galal sagði, að foringi flug-
ræningjanna hefði beint að hon-
um skammbyssu allan tímann
og haft það að gamanmálum
þegar einhver farþeganna var
særður og hlegið dátt þegar ein-
hver var skotinn til bana. Þegar
egypsku hermennirnir sprengdu
gat á flugvélina til að komast inn
brást foringi flugræningjanna
við með því að kasta hand-
sprengju inn í farþegarýmið,
sneri sér síðan aftur að Galal og
skaut á hann. Kúlan straukst
aðeins við Galal, sem greip öxi
og keyrði hana í ræningjann. Féll
hann í gólfið og kvaðst Galal
halda, að hann hefði drepið hann.
Flugræningjamir tóku öll völd
í vélinni tfu mínútum eftir að
hún fór frá Aþenu. Skömmu
síðar kom til átaka og féll þá
einn egypskur öryggisvörður og
flugfreyja og einn flugræningj-
anna særðust. Var síðan áhöfnin
neydd til að lenda vélinni á
Möltu. Flugræningjarnir fóru
þar fram á að vélin yrði fyllt af
eldsneyti og kváðust ella mundu
drepa einn farþega á 15 minútna
fresti. Sagði Galal, að málhreim-
ur mannanna hefði bent til, að
þeir væru Palestínumenn.
Galal sagði, að flugræningj-
arnir hefðu verið „blóðþyrst villi-
Flugstjóri egypzku farþegaþotunnar
sýnir með flngrinum, hvar á höfðinu
hann særðist af byssukúlu, sem
skotiö var á hann af foringja flug-
ræningjanna.
dýr,“ sem hefðu safnað saman
vegabréfum allra farþeganna og
byrjað á þvf að drepa Israela og
Bandaríkjamenn.
Tom Höyem.
þessari hættu, ef heilbrigðisþjónust-
an, sem ríkið annast, léti Grænlend-
ingum ókeypis verjur í té — en,
bætti ráðherrann við — líklega yrði
það aöeins til þess, að verjurnar
yrðu blásnir út eins og blöðrur.
Höyem hefur reynt að skýra
ummæli sin nánar og sagt, að hann
hafi ekki meint neitt illt með þess-
um orðum. En formaður stjórnar-
andstöðuflokksins, Atassut, Otto
Steenholdt, hefur haft samband
við Poul Schlöter forsætisráðherra
og krafist afsagnar Höyems. Ste-
enholdt segir, að ummælin séu
langt fyrir neðan virðingu ráð-
herra og beri vitni um kynþátta-
fordóma.
Arkaluk Lynge, sem er í vinstri-
flokknum Inuit Ataqatigiit og fer
með félagsmál fyrir hönd græn-
lensku landsstjórnarinnar, hefur
krafist þeSs, að Tom Höyem biðji
Grænlendinga opinberlega afsök-
unar.
Afsökunarbeiðni ráðherrans
hefur þegar verið lögð fram og
kveðst hann mjög harma ummæli
sin f blaðinu.
Kolbrunnin flugvélin að innan blasir við í gegnum opnar farþegadyrnar, sem
sprengdar voru upp, er ráðizt var til uppgöngu í vélina.
Tom Höyem Grænlandsmálaráðherra:
Biður Grænlend-
inga afsökunar