Morgunblaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985 «■ Gæóagripur sem gleður augao BILDMEISTER FC 690 er vönduö vestur-þýzk gæöavara: 27“ — PIL-S4-myndlampi • frábær myndgæöi • sannir litir 15W — hátalari • mikil tóngæöi Orkunotkun aöeins 70W • staögreiðsluafsláttur eöa • greiðsluskilmálar SMITH — & NORLAND H/F Nóatún 4 — 105 Reykjavík sími: 28300 Troðfull búð af nýjum, spennandi tískufatnaði! Nýtt úrval daglega! Tískuverslunin X-ið Laugavegi 33 Frá stofnfundi Þróunarfélags (slands hf. sem haldinn var síðastliðinn laugardag. Áskrifendur að hlutura er 59, einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sjóðir og Ríkissjóður íslands. Þróunarfélag íslands hf. orðið að veruleika Hlutafé 344 milljónir króna STOFNFUNDUR Þróunarfélags íslands hf. var haldinn síðastliðinn laugar- dag að Hótel Sögu. Fjöldi áskrifenda að hlutum í félaginu eru 59 og nemur hlutafjáráskrift rúmlega 344 milljónum króna. Stærsti hluthafínn er Ríkis- sjóður íslands, 100 milljónir króna. Aðrir hluthafar eru einstakling- ar fyrirtæki, stofnanir og sjóðir. Meðal staerstu hluthafanna eru: Fiskveiðasjóður íslands (30 millj. kr.), Iðnaðarbanki íslands ( 20 millj. kr.) Iðnlánasjóður (30 millj. kr.), Iðnþróunarsjóður (40 millj. kr.), Landsbanki Islands (20 millj. kr.), Lífeyrissjóður SÍS (15 millj. kr.), Lífeyrissjóður verslunar- manna (20 millj. kr.), og Stofn- lánadeild landbúnaðarins (20 millj. kr.). Samkvæmt stofnskjali verða áskrifendur hluta að greiða W hlutafjár 1. október 1986, sama hlutfall ári síðar og loks eftirstöðv- arnar 1. október 1988. Hlutafé skiptist í hluta að nafnverði 10 þúsund krónur, 50 þúsund krónur, 100 þúsund krónur, 1 milljón kfona og 5 milljónir króna. í þriðju grein samþykkta fyrir Þróunarfélagið segir að tilgangur félagsins sé að örva nýsköpun í íslensku atvinnulífi og efla arð- sama atvinnustarfsemi. Til að vinna að þessu markmiði er félag- inu heimilt að: Fjármagna og/eða taka þátt í gerð forkannana og hagkvæmnisathugana. Hafa frum- kvæði að eða tekið þátt í stofnun, endurskipulagningu og samein- ingu fyrirtækja. Keypt hlutafé og skuldabréf fyrirtækja. Útvegað áhættulán eða ábyrgðir. Tekið þátt í og styrkt hagnýtar rannsóknir á nýjungum í atvinnulífinu og til- raunir með þær. Hafa frumkvæði að samvinnu innlendra og erlendra fyrirtækja í markaðsmálum, vöru- þróun og á tæknisviði. Og loks tekið lán til eigin þarfa og til endurlána. Sameinuðu þjóðirnar: Jólakort Barnahjálparinn- ar komin í bókaverslanir JÓLAKORT Barnahjálpar Sam- einuðu þjoðanna (UNICEF) eru nú komin á markaðinn. Það er Kvenstúdentafélag íslands sem í rúmlega 30 ár hefur séð um sölu kortanna hér á landi. Jólakortin eru til sölu í öllum helstu bókabúð- um landsins, auk þess sem þau eru fáanleg á skrifstofu Kvenstúd- entafélagsins á Hallveigarstöðum í Reykjavík. Jólakortin eru prýdd myndum eftir ýmsa þekkta listamenn. Margar myndanna hafa verið gerðar sérstaklega fyrir Barna- hjálpina auk þess sem sumar eru eftir gamla meistara málaralist- arinnar. Auk jólakortanna eru seld kort fyrir ýmis tækifæri, s.s. sérstök blómakort, Austurlanda- kort og ýmis kveðjukort. Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna hefur það að markmiði að bæta aðstæður barna og mæðra alls staðar i heiminum. Engu að síður leggur Barnahjálpin mesta áherslu á starf sem stuðlar að varanlegri lausn vandamála hvar sem er. Því vinnur starfsfólk Barnahjálparinnar mest að ýms- um Iangtímaverkefnum. Starf- semi Barnahjálparinnar byggir á frjálsum framlögum ríkja og ein- staklinga. Tekjur af sölu jólakor- tanna nema um 10-12% af þeirri fjárupphæð sem Barnahjálpin hefur til umráða. (Úr fréttatilkynningu) Á stofnfundinum var kjörin stjórn félagsins. Davíð Scheving Thorsteinsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Hörður Sigurgests- son, Jón Ingvarsson og Þorsteinn ólafsson. Athugasemd frá Arnarflugi: Ámælisverður fréttaflutningur sjónvarpsins MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá Arnar- flugi: Stjórn Arnarflugs hf. kom sam- an til fundar í dag, 25. nóvember 1985, vegna fréttaflutnings af fundi stjórnarinnar sl. fimmtudag 21. nóvember 1985 þar sem meðal annars voru til umræðu afkoma félagsins fyrstu sex mánuði ársins og uppsögn framkvæmdastjóra fé- lagsins, Agnars Friðrikssonar. Fréttaflutningur Sjónvarpsins af málinu þykir stjórn Arnarflugs hf. mjög svo ámælisverður. Vill stjórnin taka eftirfarandi fram: 1. Á stjórnarfundinum greindi stjórnarformaður frá því að framkvæmdastjóri félagsins hefði fyrir nokkru tjáð sér að hann hyggðist segja upp störf- um sínum hjá félaginu. Voru ástæður uppsagnarinnar ein- göngu persónulegs eðlis og starfslok ekki timasett. Sam- þykkt var einróma á fundi stjórnar Arnarflugs að kunn- gera uppsögnina ekki opinber- lega þar til eftirmaður hefði fundist í framkvæmdastjóra- stólinn, auk þess sem hún yrði ekki tengd rekstrarafkomu á nokkurn hátt. Leki í fjölmiðla af uppsögninnier því skýlaust trúnaðarbrot og harmar stjórn- in að slíkt hafi gerst. 2. Rekstrarafkoma Arnarflugs fyrstu sex mánuði ársins var neikvæð um 57 milljónir króna. Rekstur Arnarflugs eins og annarra flugfélaga er mjög árs- tíðabundinn. Reyndar óvenju- lega árstíðabundinn í ár, þar sem félagið tók að sér mjög umfangsmikil verkefni í Mið- austurlöndum. Rekstrarafkom- an fyrstu sex mánuðina gefur því á engan hátt rétta mynd af afkomu félagsins, þegar árið í heild er skoðað. Fréttir í fjöl- miðlum um að rekstrartap fé- lagsins hefði verið 80—85 millj- ónir króna eru því tilhæfulausar með öllu. Allt önnur mynd verð- ur síðan á rekstrarreikningi fé- lagsins, þegar fyrstu níu mán- uðir ársins eru gerðir upp. Nið- urstöður þess uppgjörs munu liggja fyrir á stjórnarfundi 4. desember nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.