Morgunblaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÖVEMBER1985
23
Bandaríkjastjórn:
Styður Egypta en
harmar mannfallið
Waflfaington, London og ví6ar, 25. nóvember. AP.
Bandaríkjastjórn telur, að egypska stjórnin hafí brugðist rétt við með því
að láta sérþjálfaða hermenn ráðast til atlögu við flugræningjana. Segir í
tilkynningu frá henni, að hörmulegt sé hve margir létu lífíð en ekki dugi
þó að taka hryðjuverkamenn neinum vettlingatókum.
„Bandaríkjastjórn styður heils-
hugar þá ákvörðun egypsku stjórn-
arinnar að binda með hervaldi
enda á flugránið en harmar jafn-
framt hve margir létu lífið," sagði
í yfirlýsingu Bandaríkjastjórnar
en nokkrum stundum áður en flug-
vélinni var rænt sagði George
Shultz, utanríkisráðherra, í viðtali
við NBC-sjónvarpsstöðina, að við
hryðjuverkamenn ætti ekki að
ræða, aðeins snúast strax gegn
þeim af fullri hörku.
í yfirlýsingu bresku stjórnar-
innar sagði, að hún dáðist að ein-
arðri afstöðu Egypta og Möltubúa
og harmaði dauða margra sak-
lausra manna.
Yfirmaður öryggismáladeilar
IATA, Alþjóðasamtaka áætlunar-
flugfélaga, gagnrýndi það í gær-
kvöldi, að vopnaðir verðir skyldu
vera um borð í flugvélum sumra
flugfélaga. Sagði hann, að eina
raunverulega öryggið fælist í
strangri gæslu í flughöfnunum
sjálfum.
Háttsettur, grískur lögreglufor-
ingi, sem ekki vildi láta nafns síns
getið, sagði í dag, að rannsókn
væri hafin á því í Aþenu hvort
flugræningjarnir hefðu verið
vopnaðir þegar þeir fóru þar um
borð. Kvaðst hann ekki trúa, að
svo hefði verið, því að tvöföld
gæsla væri í flughöfninni, lögregl-
unnar og flugfélagsins. Samtök
breskra flugmanna hafa tekið
undir þessar efasemdir en Peter
Bruinvels, breskur þingmaður,
telur, að bresk flugfélög eigi að
velta því fyrir sér í alvöru hvort
rétt sé að fljúga til Aþenu.
AP/Símamynd
Hermenn frá Möltu standa fyrir framan egypsku farþegaþotuna meðan
verið er að skoða skemmdir eftir bandsprengjur á vélarskrokknum.
PLO sver af sér aðild
Kaíró, 25. nóvember. AP.
FRELSISFYLKING Palestínu-
raanna (PLO) sendi frá sér yfírlýs-
ingu þar sem samtökin segjast enga
aðild hafa átt að ráni egypsku far-
þegaþotunnar, sem rænt var eftir
flugtak í Aþenu og flogið var til
Möltu.
í yfirlýsingunni er ráni þotunn-
ar lýst sem „bjánalegri aðgerð",
sem væri til þess eins fallin að
rýra orðstír araba. Yfirlýsingin
var gefin út í höfuðborg íraks,
Bagdað, þar sem helztu leiðtogar
PLO eru nú samankomnir.
Hvatt til flugbanns
á Aþenuflugvöll
Aþenu, 25. nórember. AP.
STJÓRNVÖLD í Grikklandi hafa borið ákaft á móti því að þeim vopnum,
sem ræningjarnir notuðu við ránið á egypsku þotunni, hafí verið smyglað
um borð á flugvellinum í Aþenu. Öryggisvarsla á flugvellinum hefur verið
gagnrýnd harðlega af breskum ráðamönnum og samtök franskra flugmanna
hafa krafíst flugbanns á landið verði öryggisvarsla ekki bætt.
Innanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands, Friedrich Zimmer-
mann, hvatti til þess á mánudag
að flugbann yrði sett á Aþenuflug-
völl. „Við getum ekki horft upp á
það að hryðjuverkamenn finni svo
auðveldlega smugur í öryggiseftir-
litinu og komi handsprengjum um
borð í flugvélar," sagði hann í
samtali við þýska dagblaðið Bild.
Gríska ríkisstjórnin segir í til-
kynningu vegna flugránsins að
vopnunum hafi e.t.v. verið komið
fyrir í þotunni áður en hún fór
frá Kaíró til Aþenu. Grísk stjórn-
völd fullyrtu á sínum tíma að
vopnum flugræninga, sem rændu
þotu TWA-flugfélagsins í júní sl.,
hefði verið komið fyrir í flugvél-
inni í Kaíró þó flugræningjarnir
hefðu sjálfir farið um borð í
Aþenu. Einn flugræningjanna sem
handtekinn var eftir flugránið
sagði hins vegar að vopnunum
hefði verið komið um borð í Aþenu.
Afleiðingar þessa máls urðu m.a.
þær að bandarísk stjórnvöld vör-
uðu þegna sína við að ferðast um
flugvöllinn. Fyrir bragðið hætti
mikill fjöldi Bandaríkjamanna við
ferðalög til Grikklands síðastliðið
sumar og grískur ferðamannaiðn-
aður varð af tekjum upp á milljón-
ir dollara.
KjARABRÉFIN
em stórmerk nýiung.
Aháfuán
hafa pau skilad
eipendum sfnum
26,8%
ÁPSÁVÖXTUN
UMFRAM
VERÐTRYGGNGU‘
Sérfræðingar Verðbréfasjóðsins
leitast við að ná hámarksávöxtun
á kjarabréfum með því að velja saman
hagkvæmustu verðbréfín á hverjum tíma.
Með stöðugri endurskoðun á samvali
verðbréfa, yfirsýn og þekkingu á verðbréfa-
markaðnum tryggja sérfræðingarnir eigendum
kjarabréfa hámarksávöxtun.
Kjarabréfin eru stórmerk nýjung:
■ Þú færð hámarksávöxtun en tekur lágmarks áhættu.
■ Þú getur innleyst kjarabréfin hjá Verðbréfasjóðnum með
nokkurra daga fyrirvara.
■ Þú lætur sérfræðinga í verðbréfaviðskiptum vinna fyrir þig.
■ Þú sparar tíma og fyrirvara.
■ Þú veist alltaf hvert verðgildi kjarabréfanna er, vegna
daglegrar gengisskráningar þeirra.
■ Mafnverð kjarabréfanna er kr. 5.000 og 50.000, þannig geta
allir verið með.
■ Kjarabréfin eru handhafabréf.
■ Þú getur keypt kjarabréf í næsta pósthúsi eða í Verðbréfa-
markaði Fjárfestingarfélagsins, Hafnarstræti 7, Reykjavík.
ÓSA/SlA