Morgunblaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985
Flugleiðir:
110 milljón króna
hagnaður fyrstu
10 mánuði ársins
Vaxandi samkeppni framundan
BRÁÐABIRGÐATÖLUR um rekstr-
arafkomu Flugleiða fyrstu 10 mánuði
ársins benda til að hagnaður félags-
ins nemi um 190 milljónum króna.
Tapið fyrstu sex mánuðina var um
280 milljónir króna. Að sögn Sigurð-
ar Helgasonar, forstjóra Fiugleiða,
hafa síðustu mánuðir verið nokkuð
góðir, en hins vegar er útlitið fram-
undan ekki eins bjart. Eldsneytis-
verð hefur farið hækkandi á undan-
gengnum vikum og samkeppnin á
Atlantshafinu er stöðugt að aukast
Fundur Eimskips og
Útvegsbankans í gæn
Ekkert tilboð
var lagt fram
STJÓRNENDUR Eimskipafélags ís-
lands og bankastjórar Útvegsbankans
hittust að máli undir kvöld í gær, þar
sem farið var yfír stöðu Hafskipsmáls-
ins og það rætt á almennum grund-
velli, samkvæmt upplýsingum Harðar
Sigurgestssonar, forstjóra Eimskipafé-
lags Islands. Hann sagði að engin
niðurstaða hefði orðið á þessum fundi,
og málið væri áfram til yfírvegunar.
Hann sagði, aðspurður um tilboð frá
Eimskipafélaginu, að ekkert slíkt
hefði verið lagt fram, „en það var
rætt um gamlar hugmyndir og nýjar,“
sagði Hörður.
Lárus Jónsson, bankastjóri Út-
vegsbankans, sagði að ekki hefði
verið talað um neinar tölur á þess-
um fundi, heldur hefði staða máls-
ins almennt verið rædd. Óvíst væri
um hvenær næsti fundur yrði hald-
inn, en hann sagðist vonast til þess
að hann yrði haldinn fljótlega.
„Við höfum þurft að lækka far-
gjöldin á Atlantshafinu og fella
að meðaltali niður eina ferð af
fjórum á viku til New York vegna
samkeppninnar," sagði Sigurður.
„Öll stóru bandarisku flugfélögin
hafa lækkað fargjöldin, ekki síst
vegna sóknar Peoples Express inn
á markaðinn með mjög lágum
verðtilboðum. Nýjasta dæmið hjá
Peoples Express er boð þeirra frá
20. nóvember á flugfargjaldi frá
San Francisco til Brussel á 99
dollara. Þetta gjald gildir þó að-
eins til 11. desember, en þá hækkar
það upp í 249 dollara," sagði Sig-
urður.
Sigurður sagði að Fiugleiða-
menn fylgdust mjög vel með Peopl-
es Express og því væri ekki að
leyna að lág fargjöld þeirra hefðu
vakið töluverða eftirtekt: „Þeir
ætla sér greinilega að demba sér
á fullu inn á Atlantshafið og hafa
þegar náð nokkrum árangri. Önn-
ur flugfélög hafa lækkað sín far-
gjöld til að mæta þessari sam-
keppni og hafa sum bandarisku
félögin jafnvel farið út I að selja
sama fargjald til Evrópu hvað-
anæva frá Bandaríkjunum. Hið
sama hefur þýska flugfélagið Luft-
hansa gert,“ sagði Sigurður Helga-
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins sl. laugardag
var Jón Hákon Magnússon sagður
blaðafulltrúi Hafskips og íslenzka
skipafélagsins. Hið rétta er að Jón
Hákon er framkvæmdastjóri flutn-
ingadeilda fyrirtækjanna. Er hann
hér með beðinn velvirðingar á þess-
um mistökum.
h .
Skarphéðinn Árnason.
Frá slysstað við Keflavíkurveg. Bifreiðin valt niður 8 metra háan kant.
21 árs maður lést
er bifreið valt
Steinar Skúlason
21 ÁRS gamail maður, Steinar
Skúlason, til heimilis að Kúrlandi
18 í Reykjavík, lést þegar bifreið,
sem hann var farþegi í, valt á
Keflavíkurvegi til móts við Fögru-
vík, skammt frá Kúagerði. Ung
kona ók bifreiðinni. Hún var flutt
í sjúkrahús, en er ekki talin alvar-
lega slösuð. Mikil hálka var á
Keflavíkurvegi þegar slysið varð,
laust fyrir klukkan hálfþrjú að-
faranótt mánudagsins.
Til móts við Fögruvík fór bif-
reiðin, Mercedes Benz, út af
veginum og valt niðör átta metra
háan kant. Steinar heitinn mun
hafa kastast út úr bifreiðinni og
var látinn þegar komið var með
hann í slysadeild Borgarspítal-
ans. Hann fæddist 20. apríl 1964.
Nauðvörn gegn aðför
að lífsafkomu okkar
— segir Skarphéðinn Arnason, trillukarl á Akranesi, sem á sunnudag
var tekinn fyrir ólöglegar veiðar og sektaður um 85.000 krónur
„NAUÐVÖRN okkar gegn aðför
sjávarútvegsráðherra að lífsafkomu
okkar hefur knúið mig tii að brjóta
lög. Hafí mér tekizt með landhelgis-
broti mínu að vekja nægilega athygli
á aðstöðu eigenda smábáta er vel.
Dugi það ekki, sé ég ekki aðra leið
en að flýja land og setjast að þar,
sem menn eru ekki drepnir niður
með reglugerðarofsóknum," sagði
Fjölmennur fundur starfsmanna Hafskips:
Óaðgengilegt að Eim-
skip yfirtaki reksturinn
A FJOLMENNUM fundi starfs-
manna Hafskips í gær með fulltrúum
stéttarfélaga, borgarfulltrúum og
alþingismönnum kom fram fullur
stuðningur stéttarfélaga við þá hug-
mynd að reyna að styrkja stöðu fs-
lenska skipafélagsins hf. svo það
mætti halda áfram starfsemi sinni
og koma þannig f veg fyrir að rúm-
lega 300 manns missi atvinnuna.
Valur Páll Þórðarson formaður
starfsmannafélagsins sagði að
mikill beygur væri í starfsmönn-
um Hafskips vegna óvissu um
atvinnu þeirra. 300—320 manns
ættu það á hættu að missa atvinnu
Siglufjörðun
Báti sökkt við bryggjuna?
LÍTILL bátur sökk við bryggjuna á
Siglufírði aðfaranótt sunnudagsins.
Á sunnudagsmorguninn þegar
eigandi bátsins ætlaði aö vitja
hans sá hann hvar báturinn var
sokkinn við bryggjuna.
Að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði er hugsanlegt að hér hafi
verið um skemmdarverk að ræða.
Vatnsrennsli var í slöngu á bryggj-
unni þar sem báturinn lá og lítur
út fyrir að vatn hafi verið látið
renna í bátinn og hann sokkið af
þeim sökum.
Eigandi bátsins fékk aðstoð
lögreglunnar við að ná bátnum
upp. Báturinn er óskemmdur og
tókst fljótlega að setja vélina í
gang.
sína og afkoma a.m.k. 1200 manna
væri stefnt í voða. Valur sagði að
aðeins tveir kostir væru nú fyrir
hendi að því er virtist, sá fyrri að
fslenska skipafélagið haldi áfram
rekstrinum og sá seinni að Eim-
skip yfirtaki reksturinn. Seinni
kosturinn væri með öllu óaðgengi-
legur fyrir starfsmenn Hafskips,
því þá myndi þorri þeirra missa
atvinnuna.
Þröstur ólafsson framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar upplýsti að fé-
lagið hefði óskað eftir viðræðum
við Sambandið um málefni Haf-
skips og starfsmanna þess, en um
100 Dagsbrúnarmenn vinna hjá
Hafskip. Sagði Þröstur að það
hefði orðið félaginu mikil von-
brigði er slitnaði upp úr viðræðum
Sambandsins og íslenska skipafé-
lagsins um helgina.
Sjá nánar á bls. 30 „Með öllu
óaðgengilegt fyrir starfsmenn Haf-
skips ef Eimskip yfirtekur rekstur-
inn.“
Skarphéðinn Árnason, trillukarl á
Akranesi, í samtali við Morgunblað-
ið, eftir að hann hafði verið staðinn
að ólöglegum veiðum á trillu sinni,
Rún AK 27.
Það var varðskipið óðinn, sem
stóð Skarphéðin að netaveiðum
rétt utan Akraness á sunnudag.
Honum var gert að halda til hafn-
ar og hann dæmdur í 62.000 króna
sekt auk þess sem afli að verðmæti
23.000 krónur var gerður upptæk-
ur. Veiðar smábáta voru bannaðar
með reglugerð frá og með miðjum
nóvember til áramóta. I frumvarpi
um stjómun fiskveiða næstu tvö ár
er ákvæði þess efnis, að veiðar
smábáta skuli bannaðar til 9. febr-
úar með þeirri undantekningu að
veiðar á línu séu heimilar þetta
tímabil. Þetta hefur ekki verið
samþykkt enn og veiðar þetta
tímabilþví óljósar.
Skarphéðinn Árnason sagði, að
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir eig-
enda smábáta hefði engin leiðrétt-
ing fengist á ofstjórn veiðanna.
Ekkert tillit væri tekið til mikillar
fjölgunar og harðnandi sóknar
þessara báta og ennfremur notaði
ráðherra ekki heimildir til að
bæta hlut þeirra og skilja á milli
þeirra, sem hefðu af þessum veið-
um fulla atvinnu og hinna, sem
stunduðu þær I hjáverkum. Hann
sagðist ekki geta séð réttlætið í
því, að yfirbyggður bátur frá
Akranesi og stærri en 10 lestir,
mætti samkvæmt lögum koma á
sama stað og hann hefði verið og
leggja net sín i sama far og hann
hafði verið neyddur til að taka þau
úr, eins og gerzt hefði á sunnudag.
Eigendur smábáta færu ekki fram
á annað en að fá að veiða með
sömu sóknartakmörkunum og
aðrir. Hins vegar væri sífellt vegið
að atvinnufrelsi þeirra. Árið 1984
hefðu veiðar þeirra verið bannaðar
í 53 daga en á þessu ári í nær
þrefalt lengri tíma. „Jafnvel geng-
ur ofstjórnin svo langt, að mér er
bannað að kaupa kvóta af stærri
bát, sem auðvitað má halda áfram
að veiða," sagði hann.
Skarphéðinn sagði, að siðastlið-
inn föstudag hefðu nokkrir bátar
lagt net sín í Flóanum og dregið
þau á laugardag án þess að at-
hugasemd hefði verið gerð við það.
Afli í netum hans hefði verið svo
mikill, að hann hefði orðið að
leggja tvær trossur aftur til að
skemma ekki aflann í þeirri þriðju.
Er hann sótti þær á sunnudag,
hefði hann verið tekinn. „Nú hef
ég orðið að láta mannorðið til að
vekja athygli á málstað okkar,
vonandi verður það til þess, að
vekja Alþingi og almenning til
umhugsunar," sagði Skarphéðinn
Árnason.
Vinnuslys
í Eyjum
UNGUR maður fótbrotnaði og úln-
liðsbrotnaði 1 vinnuslysi í Vest-
mannaeyjum ígærmorgun.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum vildi slysið til þegar
maðurinn var að fara niður af gröfu.
Hann hrasaði og festi fótinn á milli
þrepa á gröfunni og fótbrotnaði illa.
Maðurinn féll síðan í gólf gröfunnar
og úlnliðsbrotnaði.
Hann var fluttur I Sjúkrahúsið í
Vestmannaeyjum.