Morgunblaðið - 26.11.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER1985
47
lr spurt og svarad
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Um viðskiptahætti
bókaklúbba
Spurt: Félagi f bókaklúbbi
hringdi til Velvakanda og þótti
honutn viðskiptahættir klúbbanna
undarlegir.
Fyrir skemmstu fékk ég sent
sameiginlegt bréf frá bókaklúbb-
um AB, Arnar og Örlygs og bóka-
klúbbnum Veröld. Þar áskildu þeir
sér rétt til að taka ekki við endur-
sendri bók hvers mánaðar ef
klúbbfélagi hefði ekki sent til-
kynningu þess efnis að hann vildi
ekki fá bókina. Frestur var gefinn
20 daga frá útkomu hvers frétta-
bréfs en að þeim tíma liðnum gætu
félagar ekki endursent bókina sem
fyrr segir.
Nú er því svo farið að tilkynn-
ingar frá bókaklúbbnum vilja
gleymast vegna annarra og veiga-
meiri greiðslna sem inna ber af
hendi, auk þess sem félagi getur
verið staddur erlendis um lengri
eða skemmri tíma meðan frestur-
inn líður. En þessar afsakanir eru
ekki teknar gildar hjá bókaklúbb-
unum og byggja þannig afkomu
sína að nokkru leyti á gleymsku
og önnum félaga sinna.
Viðskiptahættir sem þessir eru
afar sérkennilegir enda tíðkast það
í hvers konar verðlistum og til-
boðum sem send eru inn á heimili
fólks að sé þeim ekki svarað þá fær
maður ekki vöruna. Þannig fyndist
mér eðlilegt að bók hvers mánaðar
væri ekki send þeim sem ekki
sinntu tilboði bókaklúbbanna."
Svarað: Þar sem ekki kemur
fram hjá félaga í hvaða bókaklúbbi
hann er i, snéri Velvakandi sér til
Antons Arnar Kærnested fram-
kvæmdastjóra Bókaklúbbs Al-
menna bókafélagsins og fer svar
hans hér á eftir:
Ágæti Velvakandi.
Um leið og ég verð við ósk þinni
um að svara ofanrituðu bréfi, vil
ég taka skýrt fram, að hér svara
égaðeins fyrir hönd Bókaklúbbs
Almenna bókafélagsins, þó í ofan-
rituðu bréfi komi ekki ákveðið
fram, hvort bréfritari sé í BAB eða
í öðrum bókaklúbbi.
Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins var stofnaður 1974, og allt
frá stofnun klúbbsins hafa gilt
sömu reglur (sjá meðf. ljósrit), og
satt best að segja hefur reksturinn
gengið mjög vel. En þó hefur á
síðustu tveimur árum sigið heldur
á ógæfuhliðina, og er ástæðan sú,
að hluti félagsmanna hefur tekið
sér það bessaleyfi að virða afþökk-
unarregluna að engu og skila til
baka þeim bókum sem þeir hafa
af einhverjum ástæðum ekki viljað
eiga.
Allir sanngjarnir menn hljóta
að sjá að slíkt er ekki hægt sökum
þess kostnaðar sem á bak við
hverja sendingu liggur. Ljóst er,
að þetta þýðir' hækkandi verð til
þeirra þúsunda félaga sem virða
reglur þess bókaklúbbs, sem þeir
af fúsum og frjálsum vilja gengu
í á sínum tíma.
Leitt þykir mér að sjá að bréfrit-
ari telji greiðslur til bókaklúbb-
anna eitthvað ómerkilegri en ann-
að sem hann þarf að standa skil á
í viðskiptum, en þetta er hans mat
og hann um það.
Ef þessi bréfritari er á annað
borð félagi í BAB, þá vísa ég á bug
ásökunum um sérkennilega við-
skiptahætti, þessi ágæti maður
átti að gera sér grein fyrir, hvað
hann væri að gera með ósk um
inngöngu í bókaklúbbinn, en auð-
vitað er þetta fyrirkomulag ekki
hentugt fyrir alla. Ef fólk af ein-
hverjum ástæðum treystir sér ekki
til að afþakka þær bækur sem það
vill ekki fá, eftir að hafa fengið
greinargóðar upplýsingar um bók-
ina, efni hennar, stærð og verð í
fréttabréfinu hverju sinni, þá ein-
faldlega hentar þetta ekki viðkom-
andi aðila. En það verður hann að
gera upp við sjálfan sig, en ekki
kenna öðrum um hvernig til tekst.
Að endingu vil ég nota þetta
tækifæri til að þakka öllum okkar
trúu og dyggu félagsmönnum
samstarf á liðnum árum og taka
fram, að sameiginlegt bréfspjald
þessara þriggja bókaklúbba var
sent af illri nauðsyn, en að sjálf-
sögðu mun a.m.k. Bókaklúbbur AB
hér eftir sem hingað til taka við
endursendum bókum, ef um gall-
aða bók er að ræða, eða mistök af
okkar hálfu, en því miður þá erum
við sem hér störfum aðeins mann-
leg og gerum stundum mistök, sem
við erum auðvitað fús að leiðrétta.
Við munum eftirleiðis sem hingað
til reyna að finna lausn á öllum
þeim vandamálum, sem kunna að
koma upp í viðskiptum okkar, á
þann veg að báðir megi vel við una.
Meðkveðju,
Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins
Anton Örn Kærnested.
iFélagsreglur
I Dókakhibbur AD er stoínaður með þ«ð fyrir augum að geía félögum Almonna bókafélagsins kost á
I íjölbreyttu úrvall bóka á betra verði en yfirleitt gorist ó almeniium bókamatkaði.
iFélagar verða að hafa náð lögrroðisaldri. Rátt til kaupa á bókum klúbbsins eign aðeins skrádir félagar
■ Bókaklúbbs AD. Nýjlr félagar geta aðeins fengið félagsrétt með sérstakri bókakaupskyldu.
I Bókaklúbbur AB gefur út 11 bækur árlega. Fólagsbækur koma út mánaðarlega f»ó ekki I desember.
' Um það bil einum mánuði áður en hver félagsbók kemur út er íélögum Dóknklúbbs AB sent Fréttabréf
AB. þar sem bókin og höfundur hennnr verða kynnt, greint frá verði bókarinnar, stærð henuar, ofl.
Félagar Bókaklúbbs AB eru ekki skyldugir að kaupa neina sérstaka bók. Félagar geta afþakkað félags-
I bækur með þvf að senda Bókaklúbbi AB sérstakan svarseðil, sem prentaður er f hverju Fréttabréfi AB.
| eða hringja 1 sima 25360.
f Félagar Bókaklúbbs AB geta valið sér aðra bók en þá, sem boðin er hverju sinni i Fréttabréfi. Velja má
' bókina eftir skrá, sem birt er i Fréttabréfinu. Þá geta félagar keypt bækur til viðbótar samkvæmt sértil-
boði. sem veitt verður öðru hverju.
Ef bók er afþðkkuð, eða ðnnur valin 1 hennar stað, eða aukabækur pantaðar, þarf fyrmefndur svarseðill
að eionast þá félagsbók sein kynnt er i Fréttabréfinu. Félagsbókin vetður þá seiul i pósti með póst
glróseðli. Félaginn gteiðit siðan póstgfróseðilinn i næsta pósthúsi eða bankastofnun
Sú eina skylda er lögð á herðar nv|um félögum Bókaklúbbs AB að þeir kaupi einliverjar 4 bækur
fyrstu 18 mánuðina, sem þeir eru liMi.gar. Félagsgjöld eru engin. Askriftaigjald Fróttnbréfsins er ekkert. •'
Félagar Bókaklúbbs AB geta sagt upp félagsréltindum ilnum með þvi að segja sig skrifiega úr
klúbbnum með eins mánaðar fyrirvara. Sami uppsagnarfreatur gildir fyrir nýja félaga, en þó aðeins að
þeir hafi lokið kaupum á fjórum bókum innan átján mánaða.
Datsun Kingcap árg. ’83
Yfirbyggóur, vökvastýri, 5 gíra.
Verö 780 þús.
Range Rover árg. 79
4ra dyra. Ekinn 32.000 km. Verö 1180 þús.
Mercedes Benz E árg. 79
Sjálfskiptur, vökvastýri, velúr-innréttingar,
sportfelgur, grænsanz. Verö 680 þús.
Mitzubishi S. Turbo árg. ’83
Vökvastýri. Verö 780 þús.
]anuar.
skó'Ín°dU^rnydag^er
***?!> ##'**
.mendur g ,2i
arPe7 30 mntökuP^
janúar og
re.tajafnan^^fuSstu
«. a,T"Jífiðlanun’
írá R'iara
MALASKOLINN
Ananaustum 15