Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 39
Noregur:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
39
Eiturlyfjaflóð
í fangelsunum
Osló, 10. desember. Frá Jan Erik Laure, frétUriUra MorgunblaAsins.
Norskir fangar eiga ekki í neinum erfiðleikum með að verða sér úti um
eiturlyf í fangelsinu. Algengt er, að fangaverðir geri upptækt heróín,
kókaín, amfetamín og hass og þess eru ófá dæmi, að menn, sem ekki
hafa verið í eiturlyfjum, hafi verið settir í fangelsi og komið þaðan
helsjúkir eiturlyfjaneytendur.
Lögfræðingur fanga nokkurs,
sem afplánar þungan dóm, hefur
skýrt frá því, að skjólstæðingur
hans hafi á nokkrum mánuðum
safnað saman eiturlyfjaskuld
upp rúma hálfa milljón ísl. kr. í
fangelsinu var hann talinn á að
reyna heróín og fyrr en varði gat
hann ekki án eitursins verið.
Eiturlyfjasalarnir í fangelsinu
hafa hótað að drepa hann ef
hann ekki borgar og hefur fang-
inn þess vegna beðið um að vera
settur í einangrunarklefa þar
sem hann telur sig óhultari.
Svo mikið er um eiturlyf í
fangelsunum, að fíkniefnaneyt-
endur, sem ganga lausir, koma
þangað í heimsókn til að verða
sér úti um eitrið. Er það oft of
tíðum auðveldara en að nálgast
það utan múranna.
Þessi mál eru nú mikið til
umræðu í dómsmálaráðuneytinu
enda verður ekki hjá því komist
að grípa í taumana.
Contadora-ríkin:
Friðarviðræðum
slegið á frest
Cartagena, Kólumbíu, 9. desember. AP.
VIÐRÆÐUM Contadora-ríkjanna
um frið í Mið-Ameríku hefur verið
frestað um fimm mánuði að ósk
Nicaragua, að því er utanríkisráð-
herra Kólumbíu, Augusto Ramirez
Ocampo, sagði í viðtali við AP-
fréttastofuna á laugardag.
Ramirez sagði, að „djúpstæður
ágreiningur" Bandaríkjanna og
Nicaragua hefði skemmt fyrir
friðarumleitununum.
Contadora-ríkin (Kólumbía,
Mexíkó, Venezuela og Panama)
hafa um nærri þriggja ára skeið
unnið að gerð friðarsamkomulags
fyrir Mið-Ameríku og notið til-
styrks fimm Mið-Ameríkuríkja
þ.a.l.
Öcampo sagði, að Nicaragua
hefði óskað eftir frestuninni á
þeim grundvelli, að nýjar stjórnir
tækju við stjórnartaumunum í
Guatemala og Honduras í janúar-
mánuði og í Costa Rica í apríl og
afstaða þeirra til friðarviðræðn-
anna gæti orðið önnur en stjórn-
anna, sem nú sætu við völd í þess-
um löndum.
Noregur:
Læknir fær dóm
fyrir aðgæsluleysi
Osló, 10. desember. Krá Jan Krik Laure, fréttaritara Morgunblaósins
í FYRSTA sinn í norskri sögu hefur læknir verid dæmdur fyrir að hafa átt
meó aögæsluleysi þátt í dauóa sjúklings. Var hann dæmdur í 30.000 nkr.
sekt, um 163.000 ísl. kr.
Um var að ræða mjög einfalda
nýrnasteinaaðgerð og var við hana
notað nýtt tæki að viðstöddum
fulltrúa framleiðandans. Véiin var
hins vegar tengd á rangan hátt
þannig að í stað þess að sjúga
steinana út var lofti blásið inn í
sjúklinginn, sem beið næstum því
samstundis bana.
Læknirinn hefur neitað að fall-
ast á sektardóminn og ætlar hann
að áfrýja honum með fulltingi
læknasamtakanna í Noregi. Segir
talsmaður læknasamtakanna, að
ástæðurnar fyrir þessu slysi séu
margvislegar og flóknar og þvi sé
nauðsynlegt að fá endanlega úr því
skorið.
Noregun
Unglingaskíöa-
pakki
Barnaskíða-
pakki
.4735.-
Barna-
skíða-
pakki
skíði (án stálkanta) 90—110 sm.
Öryggisbindingar, skíöaskór, skíða-
stafir, aldur 2ja til 6 ára.
Atomic-skíði m. stálköntum 90—150 sm. Caber- Unglingaskíði 130—175 sm. Atomic — Dynamic.
skiðaskór. Salomon-bindingar. Atomic-stafir. Salomon-bindingar. Caber-skór. Atomic-stafir.
Kr.
6.900.-
Kr.
6.900.-
UNGLINGASKÍÐAPAKKI
Atomic-unglingaskíði 140—175 sm. Salomon-skór st. 35—45. Salomon-bindingar 30—90 kg.
Atomic-stafir.
.11.900.-
Gönguskíða
pakki
Jarvinen-skíöí 190—215 sm. Salomon-skór st.
35—46. Salomon-bindingar. Jarvinen-stafir.
.5.900.-
Samkomulag tókst
um ríkisstyrkinn
10. deoember. Frá J.n Erik Lure, frélUrit.r. MorninbU«.in&
NORSK stjórnvöld og hagsmuna-
samtök sjávsrútvegsins hsfa náð
samkomulagi um ríkisstyrkinn á
næsta ári. Verður hann 7,25 millj-
arðar ísl. kr., næstum 3,8 milljörð-
ERLENT
um kr. lægri en sjómenn höfðu farið
fram á. Hvorttveggju eru þó ánægð-
ir með samkomulagið.
Styrkurinn veðrur um 24 millj-
ónum ísl. kr. lægri en hann er á
þessu ári og er ástæðan fyrst og
fremst sú, að ríkisstjórnin hefur
gert mjög hagstæðan samning við
Evrópubandalagið fyrir hönd sjó-
manna. 65% styrksins fara til
þeirra, sem stunda þorskveiðar en
35% til loðnu- og síldarsjómanna.
í þessari viku verður ákveðið
hvernig styrkurinn skiptist innan
þessara greina.
GÖNGUSKÍÐAPAKKI
Atomic-skíöi meö stálköntum 190—215 sm. Salomon-skíði. Salomon-bindingar. Jarvinen-stafir,
allar lengdir.
Kr.
8.500.-
A
W" _ Bikarinn
\ f Laugavegi 116 við Hlemm, símar 26690 -14390. Skólavörðustíg 14, símar 24520 -17054,