Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 1
l.tbl. 73. árg. Sovétríkin: Ávarpi Reagans misjafn- lega tekið Moskvu, 2. janúar. AP. SOVÉZKIR fjölmiölar sögöu ára- mótaboöskap Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, hafa valdið von- brigðum, en viðbrögö Moskvubúa voru á annan veg. Opinberar fréttastofur sögðu sjónvarpsávörp leiðtoga stórveld- anna, sem sjónvarpað var samtímis í löndunum tveimur, vera lið í til- raunum til að draga úr spennu. Ávarp Reagans hefði því valdið vonbrigðum þar sem Bandaríkja- menn sætu enn við sama heygarðs- hornið í mikilvægum málum, eins og það var orðað. Moskvubúar, sem spurðir voru á götum úti, voru á öðru máli. „Ljóm- andi, stórfínt," sagði einn hinna opinskárri, „Ég held Reagan sé skynsamur maður, sem skilur nauð- syn friðar og samlyndis, og hlakka til heimsóknar hans 1987.“ Sovézkir fjölmiðlar drógu upp þá mynd af Reagan allt til Genfarfundarins aö hann væri stríðsóður kúreki. Þess- um persónulegu árásum linnti eftir Genfarfundinn og virðist afstaða sovézkra þegna í hans garð hafa breytzt eftir að þeir fengu að sjá manninn tala til þeirra í sjónvarpi, fyrst frá leiðtogafundinum og nú í áramótaávarpinu. Sjá nánar um ávörp leiötog- anna á bls. 25. Afganistan: Tímatafla um brottflutning Rússa tilbúin? Islamabad, New York, 2. janúar. AP. NEW YORK TIMES skýrir frá því aö fulltrúar yfirvalda í Kabúl í Afg- anistan hafi lagt fram óformlegar tillögur um brottflutning sovézka innrásarliðsins frá Afganistan. Yfir- Völd í Pskistan segjast aldrei hsfp séð tillögur #f þessu tagj, sem sagt er #ð l#gð»r b#fi verið fyrir samn- ingamann Sameinuðu þjóðanna í viðræðum Afgana og Pakistana um deilurnar í Afganistan. Að sögn New York Times skýrðu fulltrúar Afgana Diego Cordovez, aðstoðarframkvæmdastjóra SÞ frá hugmyndum sínum varðandi brottflutning sovézka innrásar- liðsins fyrir mánuði. Þar var gert ráð fyrir brottflutningi alls her- liðsins á innan við ári. Frelsissveitirnar í Afganistan minntust innrásar Sovétmanna fyrir sex árum með gífurlegum flugskeytaárásum á sovézk skot- mörk í Kabúl, höfuðborg landsins. Að sögn vestrænna sendifulltrúa var m.a. skotið á sovézka sendiráð- ið á innrásarafmælinu, 27. des- ember. Þá kom til skotbardaga á götum Kabúl í síðustu viku. Um jól og áramót féllu a.m.k. 21 Sovét- maður í aðgerðum afganskra skæruliða í Kabúl, en víðast ann- ars staðar í landinu hafa bardagar verið með minna móti vegna vetr- arveðurs. STOFNAÐ 1913 56 SÍÐUR FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins ^ ^ ^ AP/Símamynd Fjögur glasabörn á ngársnótt Fjögur glasabörn, sem svo eru nefnd, þrír drengir og stúika, fæddust á nýársnótt á Humana-sjúkrahúsinu í London, hiö fyrsta 28 mínútum eftir miönætti. Tvö barnanna voru tekin með keisaraskurði. Hinum nýju brezku þegnum og mæönim þeirra heilsast vel, aö sögn talsmanna sjúkrahússins. ísraelar hóta mak- legum málagjöldum Tel Aviv, Washington, 2. janúar. AP. ÍSRAELAR beindu spjótum að Sýrlendingum og írönum í dag og sögðu þá bera ábyrgð á auknum skæruhernaði gegn ísrael frá Suður- Líbanon. Shimon Peres, forsætisráðherra, hótaði „maklegum“ mála- gjöldum ef skærunum linnti ekki. Árásir þessar héldu áfram í morgun er sovézkum Katyusha-flugskeytum var skotið á landamæraborgina Kiryat Shmona. I telpu, dóttur fréttastjóra AP- fréttastofunnar í Róm. Lögreglan í Vinarborg leitar nú að fjórða manninum, sem talinn er hafa tekið þátt í tilræð- inu á flugvellinum í Vín. Áður var talið að þrír menn hefðu verið að verki, en árásarmenn- irnir segja nú að sá fjórði hafi stjórnað aðgerðum. Sjá „Khadafy hótar stríðs- ástandi . . .“ábls. 26. ísraelar klöguðu einnig Frels- isfylkingu Palestínumanna (PLO) fyrir Öryggisráði SÞ í dag vegna árása palestínskra hryðjpverkamanna á flugvölL Indland: 71 maður króknar TVEIR TUGIR manna króknuðu úr kulda í noröur- og austurhluta Ind- lands um jól og áramót og er þá vitaö um 71, sem beðið hefur bana í kuldahreti, sem hrellt hefur íbúa ríkjanna Uttar Pradesh og Bihar í mánuð. f nærfellt mánuð hafa skipzt á nístingskuldi og votviðri í norður- hluta Uttar Pradesh og Bihar. í Uttar Pradesh hafa 15 manns beðið bana af völdum kaldviðris, 47 í Bihar, og síðustu tvær vikurn- ar hafa svo a.m.k. níu manns týnt lífi i snjókomu og fái viðri í Kash- mir. Flestir þeirra, sem biðu bana í Kashmir, létust er þök eða hús hrundu vegna snjóþyngsla. unum í Róm og Vín um jólin, þar sem 19 manns biðu bana og 120 særðust. „Uppsprettu hryðjuverka Palestínumann# er að finna í PLO, sejn eru reiðu- búin að myrða fólk ajlra þjóða í baráttu sinni gegn ísrReium,“ sagði talsmaður utanríkisráðu- neytisins er hann skýrði frá mótmælunum, sem borin hafa verið upp við Öryggisráðið. Talið hefur verið víst að ísra- elar hefni ódæðanna í Róm og Vín með einhverjum hætti, t.d. með árás á Líbýu, og eru Banda- ríkjamenn sagðir hafa sam- þykkt aðgerð af því tagi. Khad- afy Líbýuleiðtogi, sem sagður er hýsa forsprakka hryðju- verkamannanna, sem voru að verki á flugvöllunum tveimur, hótaði gagnaðgerðum. Hann bar af sér aðild að morðárásunum í Vín og Rómaborg en sagði gjörð- ir hryðjuverkamannanna „helg- ustu aðgerðir á jörðu“. Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, var inntur álits á yfirlýsingum Khadafys en sagðist ekki „svara gauk sem fyndist fínt að drepa 11 ára stúlku". Hryðjuverka- mennirnir myrtu m.a. 11 ára Bretar ætluðu að ráðast á London, 2. janúar. AP. BRETAR ráögeröu aö stööva hugsanlega innrás ísracla í Jórd- aníu áriö 1955 meö loftárásum á borgirnar Jerúsalem, Tel Aviv og Haifa, samkvæmt 30 ára leyni- skjölum, sem engin leynd hvílir lengur yfir. I skjölunum kemur fram ítar- leg árásaráætlun á þrjár helztu borgir ísraels ef ísraelar réðust inn í Jórdaníu vegna hemaðar Palestínuskæruliða þaðan. Skjöl- in sýna að brezki herinn bjóst við árás af þessu tagi. Bretar töldu það skyldu sína að koma Jórdönum til hjálpar ef á þá væri ráðizt vegna samnings ríkj- anna um hernaðarsamvinnu. Auk loftárása var ætlunin að brezkar sjóliðssveitir tefðu framrás ísraela með því að leggja til atlögu við þá á landi. 1 tilkynningu varnarmála- ráðuneytisins í London til yfir- ísrael manna brezku herjanna í Mið- austurlöndum sagði að tjón á mannvirkjum og manntjón yrði þolað en að stranglega þyrfti að virða friðhelgi helgra dóma og guðshúsa. Stjórnendur brezka hersins álitu að Jórdaníuher yrði ger- sigraður á stuttum tíma. Því var ætlunin að brezk herskip tefðu innrás með árás á skotmörk í ísrael, víkingasveitir yrðu settar á land í Aqaba, hafnarborg Jórd- aníu við Rauðahaf, og hersveitir senda landleiðina um Irak til að halda aftur af ísraelum við ána Jórdan. Til þessa kom ekki þar sem aldrei varð neitt úr innrás ísraela, en ári seinna brauzt Súezstríðið út. Á sama tíma og Bretar ráðgerðu árás á ísreal seldu Bretar ísraelum vopn í stórum stíl, að sögn The Times.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.