Morgunblaðið - 03.01.1986, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.01.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986 13 Verðmæti útfluttrar sjávarvöru er meiri nú en oft áður 320 300 280 280 240 220 200 180 180 140 120 100 ÁÆTLAÐ er aft útflutningur sjávarvöru á árinu verfti um 621 þúsund tonn aft verðmæti tæp- lega 25,3 milljaröar króna. Mælt í SDR nemur verftmæti útflutn- ingsins um 602 milljónum. Hefur ekki verift flutt út á einu ári jafn mikift aft verðmæti til aö því er segir í frétt frá Fiskifélagi ís- lands. Á árinu 1984 nam verð- mæti útflutningsins um 503 milljónum SDR, tæpum 488 milljónum árið 1983, áriö 1979 nam útflutningur sjávarafurfta um 566 milljónum SDR og um 550 milljónum árift 1980. Miðað við bráðabirgðatölur er það spá Fiskifélagsins að heildar- afli á árinu verði 1674 þúsund tonn. Miðað við þessa spá er þetta mesti heildarafli á einu ári, árið 1979 varð aflinn 1641 þúsund tonn og 1562 þúsund tonn árið 1978. Áætlað er að verðmæti afla upp úr sjó verði um 12 milljarðar 80 króna og mælt í SDR um 286 milljónir. Árið 1981 nam verð- mætið mælt í SDR um 314 millj- ónum og 1980 um 292 milljónum og skila þessi tvö ár því meiru í þjóðarbúið. Verðmætið fyrir þetta ár er áætlað og kunna tölur um það að breytast nokkuð þegar endanlegar tölur liggja fyrir. í frétt frá Fiskifélaginu segir að ætla megi að þetta ár verði annað eða þriðja bezta ár sögunnar. „Svo kann að sýnast, að útflutn- ingurinn sé meiri en aflinn gefi tilefni til,“, segir í frétt Fiskifé- lagsins. „Þetta er rétt, því birgðir hafa rýrnað verulega og má því rekja hluta af útflutningi ársins til framleiðslu fyrri ára. Það ber einnig að hafa í huga, að verð- bólga hefur verið erlendis á því tímabili, sem hér er borið saman. Því hefur SDR einingin lægra verðgildi nú en um 1980, þannig að kaupmáttur þess, sem fæst fyrir útflutninginn hefur rýrnað." Áætlað er að þorskaflinn í ár verði 319 þúsund tonn og botn- fiskur alls um 579 þúsund tonn. Loðnuaflinn á árinu er áætlaður 993 þúsund tonn. 80 40 20 O m 1Z2. 7/ // ZZ'-Z-Z 2.2 2 H 2 2 2 Z3. l 2 1 2 2 2 1 VX 7; Wm w w zWa h h h w 2:2:3 2 2:2 YAYA 7' /\ YA K-i YA 2:2 z 2:2 2 2:2:2 2 2 2 2:2 1 2 2:2i 2 2 2-2 2 2 2 2 Z3 2 2 2 i 2 2:2 z 1 2 2 2 2 71 72 73 74 73 78 77 78 78 80 81 82 83 84 85 Heildarafli 1978 -1985 SpáFÍ 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 Heildarafli þús./tonn 1.562 1.641 1.508 1.435 786 835 1.527 1.674 Botnflskur alls 478 582 659 716 690 603 565 579 Þorskur 320 360 428 461 382 294 281 319 Ýsa 41 52 48 61 67 64 47 47 Ufsi 44 57 52 55 65 56 60 56 Karfi 33 62 70 93 115 123 108 93 Steinbítur 10 10 9 8 8 12 10 10 Grálúða 11 17 28 15 28 28 30 30 Skarkoli 4 4 5 4 6 9 11 12 Annar botnfiskur 15 20 19 19 19 17 18 12 Humar, rækj a og hörpud. 18 18 21 21 24 31 42 45 Síld 37 45 53 40 57 59 50 50 Loðna 967 964 760 641 13 133 865 993 Annað 62 32 15 17 2 9 5 7 Mosfellshreppur hafnar forkaupsréttarboðum: Reykjavíkurborg kaupir land í Úlfarsfelli og Ulfarsá HREPPSNEFND Mosfellshrepps samþykkti á fundi sínum á laug- ardaginn síðastliðinn aft afsala sér forkaupsrétti á landi Úlfars- Akureyri: Hanna lögn á sjónvarps- kapalkerfi Akureyri, 29. desember. VERIÐ er að hanna iögn á kapal- kerfl fyrir sjónvarp um Akureyrarbæ. Þaft eru nokkrir af cigendum Vídeó- lundar, ásamt fleiri einstaklingum sem að því standa — og hafa þeir í huga að bjóöa bæjarbúum að kaupa inntak í hús sín, þegar þar að kemur. „Það opnast margar nýjar leiðir þegar útvarp verður gefið frjálst. Ég er sannfærður um að við hér á Akureyii viljum koma af stað einhvers konar myndsendingum í bænum — en við erum vakandi bæði fyrir útvarpi og sjónvarpi," sagði Steindór Steindórsson í samtali við Morgunblaðið á Akur- eyri. Eftir er að ganga frá ýmsum réttindum varðandi hugsanlegar útsendingar. Viðmælandi Morgun- blaðsins sagði bæjarbúa geta spar- að sér stórfé ef þeir yrðu aðilar að kapalkerfinu — „menn spara sér þá loftnet og ýmsan annan búnað. Það verður vitanlega mun ódýrara að eitt loftnet — einn móttakari — verði fyrir allan bæinn en að hver og einn fjárfesti íslíkumbúnaði." Fyrirtækið Vídeólundur, sem sendir sjónvarpsefni í kapalkerfi um Lundahverfi, hefur nú fest kaup á móttökudiski, til að taka á móti sendingum gervihnattar — og hefur þeim sem ná útsendingum fyrirtækisins verið boðið að kaupa hlut í þeim móttökudiski. fells I og hluta úr landi Úlfarsár, jöröinni Víðimýri. Þar með tók gildi kaupsamningur Reykjavík- urborgar og Sigurjóns Ragnars- sonar annars vegar og Sigrúnar E. Gunnarsdóttur hins vegar um kaup borgarinnar á umræddu landi, en kaupsamningar þessir höfðu áður verift samþykktir í borgarráði í byrjun desember. Land það sem hér um ræðir er annars vegar um 80 hektara land að Úlfarsfelli I og um 22 hektara spilda úr landi Úlfarsár, jörðinni Víðimýri. Kaupverð þessara 102 hektara er samtals um 35 milljón- ir króna. Á fundi hreppsnefndar Mos- fellshrepps á laugardaginn voru felldar tillögur um að gengið yrði inn í forkaupsréttarboðin með 4 atkvæðum gegn 3. Fulltrúar D listans lögðu fram eftirfarandi tillögu, sem samþykkt var meft 4 atkvæðum gegn 1 varðandi for- kaupsréttarboðið á Úlfarsfelli I og meö 4 atkvæðum gegn 2 varð- andi forkaupsréttarboðið á Víði- mýri: „Með vísan til núgildandi aðalskipulags Mosfellshrepps teljum teljum við ekki raunhæft að binda fjármuni sveitarsjóðs í landakaupum sunnan í Úlfarsfelli og leggjum þar með til að for- kaupsrétti verði hafnað." Haukur Níelsson og Aðalheiður Magnúsdóttir báru fram eftirfar- andi tillögu: „Vegna ásælni Reykjavíkurborgar í lönd sunnan Úlfarsfells leggjum við til að hreppsnefnd og skipulagsnefnd skoði sameiginlega hugsanlega breytingu hreppamarka og reyni að meta áhrif þess á byggðaþróun Mosfellshrepps. Jafnframt leggj- um við til að hafnar verði viðræð- ur við Reykjavíkurborg um hugs- anlegar breytingar á lögsögu- mörkum sveitarfélaganna." Til- lagan var samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum. Haraldsdótör looriW»Ml' infjöi ReyN»,í'd tta{aar«ó^ur: — cHt- stadit*. KeyKiaviV. relðhom. ! Hetvfcste belst ígSsKi VSS&P \ * ^ DANSSKÓU AVÐAR HARALDS S: 73626 og 11007

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.