Morgunblaðið - 03.01.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
15
Nýtt deiliskipulag fyrir
Reykjavíkurflugvöll
SKIPULAGSNEFFND Reykjavíkur
hefur samþykkt nýtt deiliskipulag
Reykjavíkurflugvallar. í bókun
meirihiuta skipulagsnefndar kemur
medal annars fram, að deiliskipulag-
ið sé að meginstefnu til byggt á sömu
forsendum og deiliskipulag flugvall-
arsvæðisins, sem samþykkt var í
borgarstjórn Reykjavíkur í janúar
1976. Ákveðnar breytingar hafi verið
gerðar en ekki veigamiklar. Borgar-
ráð hefur fjallað um þetta nýja deili-
skipulag og samþykkti að snúa mál-
inu til borgarstjórnar.
í bókun meirihluta skipulags-
nefndar segir ennfremur að deili-
skipulagið feli í sér skýra lóðaaf-
mörkun fyrir flugvallarsvæðið.
Upphaflega var stærð flugvallar-
svæðisins 196 hektarar en er,
samkvæmt deiliskipulaginu sem
nú hefur verið samþykkt, 142,5
hektarar. Þá segir ennfremur, að
nauðsynlegt sé að fá þetta deili-
skipulag staðfest til að hægt sé
að tryggja eðlilega uppbyggingu
nauðsynlegra framkvæmda þar,
svo sem byggingu nýrrar flug-
stöðvar, nauðsynlegar úrbætur á
umhverfi svo og að réttarstaða
lóðarhafa, Reykjavíkurborgar og
ríkisins sé skýr.
Teiknistofan hf. Ármúla 6, hefur
unnið að þessu deiliskipulagi í
samvinnu við Borgarskipulag,
flugmálastjóra og flugmálastjórn.
Þá hafa verið haldnir fundir með
þeim aðilum sem nota flugvöllinn
og reka þar flugstarfsemi. Sam-
kvæmt skipulaginu er gert ráð
fyrir að reisa þurfi nýjar bygging-
ar á svæðinu. Þær helstu eru:
Flugstöð, stórt flugskýli, hús fyrir
Flugbjörgunarsveitina, þjónustu-
byggingar fyrir flugvöllinn, félög
sem stunda flugrekstur og einka-
flugið. Flugminjasafn, véla- og
verkstæðismiðstöð ásamt verk-
stæðum fyrir rekstur flugvallar-
ins. Þjónustuaðstaða olíufélag-
anna og bifreiðaleiga.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Jón Hólm flaggaður inn sem sigurvegari f ískrosskeppni BÍKR. Það er orðið
langt síðan nokkrum hefur tekist að leggja hann að velli í keppni, en Volks-
wagen hans er búinn nær 200 hestafla vél.
„Var dauðhrædd-
ur í beygjunuma
happanúmerið þitt ?
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
— sagði Jón Hólm
sigurvegari í ískross-
keppni BÍKR
ÍSLANDSMEISTARINN í rally
cross, Jón Hólm, sigraöi tiltölulega
auðveldlega í ískrosskeppni Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur á Leir-
tjörn á sunnudaginn. Hann ók að
venju sérútbúinni Volkswagen-
„bjöllu". Ævar Hjartarson á Skoda
130 RS varð annar, en Birgir Vagns-
son þriðji á Cortina. Keppnin var í
lakara lagi, aðeins þrír bílar af tíu
voru í skikkanlegu ástandi til
keppni.
Það var því lítil spenna í undanriðlum
fyrir úrslitin. Keppendur óku fjóra
hringi á hringlaga braut á ís og óku
3—4 bílar í hverjum riðli. Bílarnir voru
búnir dekkjum með 2—300 skrúfum.
Það var helst púður í akstrinum hjá
Ævari og Birgi þegar þeir mættust í
undanriðlum. Þeir mættust einnig í
úrslitariðlinum, ásamt Pétri Sigurðs-
syni á Opel Kadett og Jóni Hólm á VW,
en hann hafði verið í sérflokki í undan-
riðlunum. Það kom líka á daginn að
hann.skildi andstæðinga sína eftir í
úrslitum, eftir að hafa ekið samhliða
þeim fyrstu metrana. „Ég var dauð-
hræddur við að missa bílinn í beygjun-
um, því það var orðið svo mikið íshrafl
á brautinni að dekkin gripu lítið. Þetta
hafðist þó,“ sagði Jón. Ævari tókst að
næla í annað sætið á Skodanum, ók
vel. „Ég átti smákraft í pokahorninu,"
sagði Ævar og tókst honum að halda
Birgi á Cortina fyrir aftan sig. Birgir
kvaðst hafa gert þau mistök fyrir úrslit
að þyngja bílinn. Hann náði þó þriðja
sætinu léttilega á undan Pétri á Opel-
bílnum. Lokastaða: 1. Jón Hólm VW
3.11,07 mínútur, 2. Ævar Hjartarson
Skoda 3.12,77, 3. Birgir Vagnsson Cort-
ina 3.14.52, 4. Pétur Sigurðsson Opel
3.26,95,5. Ragnar Aðalsteinsson Escort,
Magnús Sigurjónsson Escort.
Útvegsbankaskák-
mótið:
Þrír deildu
efsta sætinu
ÞRÍR skákmeistarar urðu jafnir og
efstir á Útvegsbankaskákmótinu
sem haldið var helgina milli jóla og
nýárs, Helgi Ólafsson, Guðmundur
Sigurjónsson og Karl Þorsteins.
Fjórir vorw jsfnir og efstir fyrir síð-
ustu umferö; Friðrik Ólafsson,
Helgi Ólafsson, Guömundur Sigur-
jónsson og Karl Þorsteins. Friörik
varð að sætta sig við ósigur gegn
Jóni L. Árnasyni, en Helgi, Guð-
raundur og Karl sigruðu andstæð-
inga sína.
Átján skákmenn tóku þátt í
mótinu - allir sterkustu skákmenn
landsins utan Margeir Pétursson,
Jóhann Hjartarson og Sævar
Bjarnason, sem eru erlendis. Þegar
aðeins þrjár umferðir. voru eftir
blasti sigur við Helga Ólafssyni.
Hann hafði tveggja vinninga for-
skot, en tapaði fyrir Birni Þor-
steinssyni og Friðriki Ólafssyni.
í 4.-5. sæti á mótinu urðu Frið-
rik Ólafsson og Elvar Guðmunds-
son með 13 vinninga. Jón L. Árna-
son hlaut 12% vinning og hafnaði
í sjötta sæti. í sjöunda sæti varð
Hannes Hlífar Stefánsson með 8%
vinning. Fjölmargir áhorfendur
fylgdust með mótinu.