Morgunblaðið - 03.01.1986, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
25
Suður-Afríka:
Blóðug
átök um
áramótin
Jóhannesarborg, 2. janúar. AP.
NYJA árið hófst með blóðugum
átökum í Suður-Afríku og hafa sext-
án manns látið þar lífið frá áramót-
um. í nótt lctust fimm manns í
óeirðum, þar á meöal einn þegar
múgur manns réöst á lögreglubif-
reið vopnaöur grjóti og öxum. Að
sögn lögreglunnar létust flestir í
átökum svartra innbyrðis. Allt
bendir til þess að enn verði róstu-
samt í landinu árið 1986.
Á miðvikudag réðust menn af
baðströnd sem ætluð er svertingj-
um inn á baðströnd ætlaðri Ind-
verjum í Durban. Svertingjarnir
fóru þúsundum saman, eyðilögðu
bíla og létu ófriðlega. Kallað var
út varalið lögreglu og mannfjöld-
anum dreift með táragasi. Tíu
menn særðust í átökunum og lést
einn þeirra í dag af völdum sára
sinna.
í Port Elisabeth komu mörg
þúsund svertingjar til að fylgja til
grafar Molly Blackburn, hvítri
konu, sem barðist gegn aðskilnað-
arstefnunni, ásamt hvítum mönn-
um. „Hún er hermaður," kyrjuðu
svartir syrgjendur um Blackburn,
sem fórst í bílslysi á laugardag.
Winnie Mandela, eiginkona Nel-
son Mandela, hefur verið í felum
síðan á þriðjudag eftir að hún var
látinn laus gegn tryggingu. Mand-
ela var bannað af rétti að dveljast
í Jóhannesarborg og gekk bannið
í gildi 21. desember. Hún hefur
tvisvar verið handtekin síðan.
Svíþjóð 1985:
100.000
fæðingar
Stokkhólmi, 2. janúar. Frá Erik Liden, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
NÚ UM áramótin voru Svíar
8.359.000 talsins og hafði fjölgað um
16.000 frá árinu áður. 100.000 barns-
fæðingar voru í Svíþjóð á síðasta ári.
Sænskar konur geta gert sér
vonir um að verða áttræðar að
aldri og karlarnir 74 ára. Eru það
aðeins Islendingar og Japanir, sem
lifa lengur. Á árinu 1985 voru alls
93.800 manns fyrir ofan þessi ald-
ursmörk. Innflutningur fólks til
landsins hélt áfram að aukast á
síðasta ári en ekki þó frá Norður-
löndunum.
AP/Símamynd
Þessi mynd var tekin af Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, þegar hann
var að taka upp nýársboðskap sinn til Sovétmanna 28. desember.
„Minn draumur
að ógnin af kjarn-
orkustríði hverfi“
Ronald Reagan flytur sovésku
þjóðinni nýársávarp
Moskvu, New York, 2. janúar. AP.
RONALD Reagan, forseti Banda-
ríkjanna, og Mikhail Gorbachev,
leiðtogi Sovétríkjanna, óskuðu
báðir íbúum jarðarinnar heims-
friðar á nýársdag í ræöum, sem
teknar höfðu verið upp á mynd-
band og sjónvarpaö var bæði í
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um.
í ávarpi sínu til Sovétmanna
óskaði Reagan gleðilegs árs og
hvatti Sovétmenn til að vinna
með Bandaríkjamönnum að því
að gera 1986 að friðarári. Hann
lagði áherslu á að Bandaríkja-
menn bæru ekki kala til sovésku
þjóðarinnar. Reagan talaði í
fimm mínútur og er þetta fyrsta
sinni, sem Bandaríkjaforseti tal-
ar í sovéska sjónvarpinu síðan
Richard Nixon var í Moskvu 1972.
í ræðu sinni varði Reagan
geimvarnaáætlunina og sagði:
„Ef tækni þessi verður einhvern
tíma að veruleika, þá er það
draumur minn, að dag einn verði
mannkynið allt laust við ógnina,
sem því stendur af kjarnorku-
stríði.
Bæði Bandaríkjamenn og Sov-
étmenn vinna nú að rannsóknum
á nýrri varnartækni," sagði
Reagan og átti við geimvarna-
rannsóknir, sem stjórnin í Was-
hington fullyrðir að Sovétmenn
stundi einnig.
Reagan lýsti yfir ánægju sinni
með það skref, sem stigið var í
Genf í nóvenlber á síðasta ári.
Reagan dró upp fyrir sovéska
borgara mynd af bandarísku lýð-
ræði og sagði: „Kerfið er reist á
trúnni á friðhelgi hvers manns-
lífs og rétt einstaklingsins —
málfrelsi, fundafrelsi, frelsi til
ferðalaga og trúfrelsi.
Það er okkur heilagur sann-
leikur að hver og einn sé einstakt
sköpunarverk Guðs og hver ein-
staklingur sé gæddur sínum sér-
stöku eiginleikum," sagði Reag-
an.
Ræðum leiðtoganna var sjón-
varpað samtímis af fjórum
bandarískum sjónvarpsstöðvum
og sovéska sjónvarpinu á nýárs-
dag, fyrst ræðu Reagans og því
næst ávarpi Gorbachevs. Báðar
ræðurnar voru teknar upp áður
og skipst á upptökum. I Sovét-
ríkjunum var ekki greint frá því
fyrirfram að leiðtogar austurs
og vesturs myndu flytja nýárs-
ræður í sjónvarpi, enda tíðkast
ekki að tilkynna að stjórnmála-
menn komi fram í sjónvarpi.
manna a nyarsdag sagði Mikhail
Gorbachev bandarfsku þjóðinni að
Sovétmenn myndu einskis láta óf-
reistað til að stuðla að friði og
koma í veg fyrir kjarnorkustyrjöld
milli Bandaríkjamanna og Sovét-
manna, mesta harmleik, sem hent
gæti mannkynið.
Gorbachev tók í annan streng
um friðarmál en Reagan, Banda-
ríkjaforseti, í ræðu sinni. Gor-
bachev minntist ekki sérstaklega
á geimvarnaáætlunina, en sagði:
„Það er staðreynd, að á vorum
dögum er fásinna að ætla að
tryggja öryggi sitt með nýjum
gerðum vopna. Eins og málum
er nú komið eykur hver áfangi í
vopnakapphlaupinu á hættuna
bæði í austri og vestri og fyrir
alltmannkyn.
Lífið sjálft krefst þess að við
afvopnumst og höldum frið í
geimnum. Um þetta erum við að
semja og það væri báðum aðilj-
um að skapi að þessar viðræður
beri ávöxt á þessu ári."
Gorbachev sagði að það væri
góðs viti að leiðtogarnir flyttu i
ræður sínar bæði í Sovétríkjun-
um og Bandaríkjunum og bæri
því glöggt vitni að sambúðin
milli stórveldanna hefði batnað.
„Þessar fáu mínútur, sem ég
ávarpa ykkur nú, eru mér tákn
vilja okkar til að nálgast hvorir
aðra. Þetta er árangur fundar
forseta ykkar og míns í Genf í
nóvember á síðasta ári.“
Gorbachev kvað samskipti sín
við Bandaríkjamenn hafa sann-
fært sig „um það að Bandaríkja-
menn gerðu sér einnig grein fyrir
því að þjóðirnar tvær skyldu i
aldrei heyja stríð, að átök milli
þeirra yrðu einn mesti harmleik-
ur, sem hent gæti mannkynið.
Bilið milli þjóðanna er enn
stórt og það verður erfitt að brúa
það. En við sáum í Genf að það
er hægt,“ sagði Gorbachev.
AP/Símamynd
Mikhail Gorbachev, leiötogi Sovétríkjanna, ávarpar Bandaríkjamenn.
99
Fásinna að tryggja
öryggi sitt með
nýjum yopnum“
- segir Gorbachev í ræðu til
Bandaríkjamanna
Moskvu, 2. janúar. AP.
í ÁVARPI sínu til Bandaríkja-
Tileinkum málstað friðarins
þennan fyrsta dag ársins
- sagði páfinn í nýársboðskap sínum
New York, 2. janúar. AP.
HIÐ alþjóðlega friöarár Sameinuðu
þjóöanna hófst með því, að leiðtogar
risaveldanna og Jóhannes Páll páfi
II. fluttu nýársávörp, þar sem þeir
lögöu einkum áherzlu á bræðralag
milli þjóða heims.
Við messu í Páfagarði, sem var
sérstaklega tileinkuð heimsfriðar-
degi kirkjunnar, skoraði páfinn á
mannkynið að svara hatri með
kærleika. „Vér viljum tileinka mál-
stað friðarins þennan fyrsta dag
ársins og biðja fyrir friði í heimi
vorum, sem svo miklar ógnir steðja
að,“ sagði páfinn.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
og Mikhail S. Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna fluttu hvor um sig
nýársboðskap til þjóðar hins, sem
fólu í sér áskoranir um frið.
En þrátt fyrir þessar friðarhvatn-
ingar einkenndist fyrsti dagur árs-
ins 1986 af ofbeldi og ófriði á mörg-
um þeim heimssvæðum, sem verið
hafa vettvangur átaka að undan-
förnu. Á Norður-írlandi sprengdu
hryðjuverkamenn úr röðum írska
lýðveldishersins sprengju með þeim
afleiðingum, að tveir lögreglumenn
biðu bana og sá þriðji særðist.
í Suður-Afríku voru 11 blökku-
menn drepnir í mótmælaaðgerðum
gegn aðskilnaðarstefnunni á gaml-
árskvöld og nýársdag. Þá var það
haft eftir sjónarvottum, að lögregl-
an hefði sært 10 blökkumenn
skotsárum í Durban, er þúsundir
ungmenna fóru með ólátum um
baðströnd þar í grenndinni, sem
eingöngu var ætluð fólki af ind-
verskum uppruna.
Á Filippseyjum biðu 15 manns
bana og yfir 600 særðust, er fólk fór
um stræti, brenndi bíldekk og
sprengdi heimatilbúnar sprengjur.
Hátíðahöld og skemmtanir í til-
efni áramótanna fóru þó vel fram á
mörgum kunnum stöðum heims, allt
frá Torgi hins himneska friðar í
Peking, þar sem námsmenn héldu
uppi dansi, til strandarinnar við Rio
de Janeiro, þar sem logandi kertum
var komið fyrir og til Trafalgartorgs
í London, þar sem 60.000 manns
komu saman og heldu upp á áramót-
in með drykkju, söng og dansi.
Á Trafalgartorgi lauk hátíðahöld-
unum með því, að 124 manns voru
handteknir og 300 manns urðu fyrir
meiðslum. Enginn slasaðist þó al-
varlega og flestir þeirra, sem settir
voru í steininn, fengu að fara heim
með áminningu.
í Darmstadt í Vestur-Þýzkalandi
biðu tveir menn bana, er þeir hugð-
ust sprengja heimatilbúna sprengju
í tilefni áramótanna. Á Ítalíu slös-
uðust 459 manns á gamlárskvöld og
nýársnótt og var það færra en
Jóhannes Páll páfi II
undanfarin ár. Mörg slysanna urðu
í Napólí, þar sem 10 manns voru
fluttirásjúkrahús.
Á smáeyjunni Aruba á Kariba-
hafi voru þessi áramót markverðari
en önnur sökum þess, að nú fékk
eyjan í fyrsta sinn sína eigin stjórn,
eftir að hún sagði skilið við Antilles-
eyjarnar, sem lúta Hollendingum.
Fáni Aruba var dreginn að húni í
fyrsta sinn, en hann er með rauðri
stjörnu á bláum fleti með tveimur
gulum, láréttum línum neðst.
Hollenzkt herskip var í höfninni
og skaut þaðan af fallbyssum sínum,
en íbúarnir á Aruba létu ekki sitt
eftir liggja og skutu óspart á loft
alls konar flugeldum.
Víða um lönd mátti lesa í blöðum,
hvers vænzt skuli af fólki á árinu
1986. Þannig sagði í leiðara á forsíðu
í Dagblaði alþýðunnar, blaði kín-
vcrska kommúnistaflokksins, að
Kina muni einbeita sér að því að
treysta og styrkja efnahagsumbæt-
urnar þar í landi á þessu ári. Skor-
aði blaðið á meðlimi flokksins að
vinna ákaft að því að koma á nútíma
umbótum í landinu.
í Portúgal sagði Antonio Ram-
alho Eanes forseti landsmönnum
sínum, að árið 1986 yrði „ekki auð-
velt ár“. Hann kvaðst samt vona,
að nýafstaðnar þingkosningar þar í
landi, sem fóru vel fram, hefðu
sannað „pólitískan þroska" þjóðar-
innar, en nú er áratugur liðinn síðan
Portúgalir tóku aftur upp þingræði
eftir hálfrar aldar einræði.
Yasuhiro Nakasone, forsætisráð- .
herra Japans, sagði í áramótaræðu i
sinni, að Japanir myndu vinna að j
því á þessu ári að koma í veg fyrir
heimskreppu og leitast við að bæta
samskiptin við Sovétríkin.