Morgunblaðið - 03.01.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
31
Nemendurnir á skipstjórnarbraut í Dalvíkurskóla.
Dalvík:
20 nemendur á skipstjórnarbraut
Dalvík, 30. desember.
Á SÍÐASTLIÐNU hausti hófu 20 nemendur nám á
skipstjórnarbraut viö Dalvíkurskóla. Nemendur þessir
skiptast á réttindanámskeið og 1. stigs nám í skip-
stjórnarfræðum. Réttindanámskeið þessi eru haldin
fyrir menn sem verið hafa á undanþágum við skip-
stjórn á undanförnum tveimur árum.
Nemendur þessir koma frá flestum útgerðar-
stöðvum á Norðurlandi allt frá Blönduóss og austur
til Grenivíkur. Á Dalvík hefur verið starfrækt 1.
stigs skipstjórnarnám frá árinu 1981 og hefur
nemendafjöldi ekki áður verið jafnmikill. Sú um-
ræða sem fram hefur farið um menntun skipstjórn-
armanna og þær undanþáguveitingar sem viðgeng-
ist hafa á undanförnum árum á ekki síst þar hlut
að máli.
Réttindanámi undanþágumanna lauk þann 19.
des. með prófum og öðluðust nemendur þá 80 tn.
skipstjórnarréttindi. Eiga þeir síðan þess kost að
afla sér meiri menntunar og ljúka námi er gefur
200 tn. skipstjórnarréttindi. Auk bóklega námsins
sem er allviðamikið hafa nemendur sótt námskeið
í meðferð og notkun slökkvitækja og annars örygg-
isbúnaðar í sambandi við eldvarnir og hafa í því
sambandi heimsótt Slippstöðina á Akureyri þar
sem Birgir Björnsson öryggisfulltrúi leiðbeinandi
nemendum. Þá hefur slökkviliðsstjórinn á Dalvík
Sigurður Jónsson leiðbeint um meðferð reykköfun-
artækja.
Til að uppfylla kennslukröfur hafa verið fengnir
kennarar frá Akureyri til kennsiu í sjórétti er
Ásgeir Pétur Ásgeirsson lögfræðingur og tækja-
kennslu annast Birgir Aðalsteinsspn^loftskeyta-
maður.
Að þessu sinni luku 10 nemendur réttindanámi
frá skólanum nú í desember en aðrir 10 halda áfram
námi á fyrsta stigi og ljúka í vor. Hæstu meðalein-
kunn í réttindanáminu hlaut Símon Páll Steinsson
frá Dalvík 9,50 en næstur honum var Jón Gunnar
Jósefsson frá Skagaströnd með 9,41. Gert er ráð
fyrir því að allir þeir sem luku nú 80 tn. skipstjórn-
arnámi mæti að hausti til framhaldsnáms.
Aðstaða fyrir aökomunemendur er mjög góð á
Dalvík því þar er nýleg heimavist sem byggð var
vegna nemenda úr nágrannabyggðum sem ljúka
skyldu grunnskólanámi í Dalvíkurskóla. Heima-
vistin hefur ekki verið fullnýtt og hefur því skapast
rými fyrir nemendur í framhaldsdeild skólans.
Fréttaritarar
í kennslustund.
Árbók þjóðkirkjunnar
kemur út í
ÞJÓÐKIRKJAN hefur sent frá sér Árbók sína fyrir
árið 1985. Er það í fyrsta sinn sem kirkjan gefur út
slíka bók. Hún hefur að geyma yfirlitsræðu biskups á
Leiðrétt gamanvísa
NOKKUR orð féllu niður við birtingu gamanvísna
Árna Helgasonar, „Við áramót 1985—1986“ á bls.
2b í áramótablaði Morgunblaðsins. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum og upphafið birt hér á eftir:
Enn er égkominn með árið að baki
ogáleitna spurning, hvað við okkur taki?
Við ökum á framtíðar útvegum duidum
og allt erað farast í tapi og skuldum.
A verslunargötunni er víðast h var bratti,
hún velturá sölu- ogfasteignaskatti.
Lifa menn áfram á hakki oghokri
eða hrærast og tímgast ísukki og okri?
fyrsta sinn
Prestastcfnu um starf kirkjunnar á síöasta ári, sagt
er frá umræðum og ályktunum Kirkjuþings og Presta-
stefnu og athyglisvcrðustu málum ársins í kirkjulegu
tilliti.
Margþættar upplýsingar um kirkjuleg efni er að
finna í Árbókinni. M.a. er listi yfir allar nefndir á
vegum kirkjunnar, félög og stofnanir tengdar henni,
með upplýsingum um starfsemi þeirra. Þá er listi
yfir sóknir, prestaköll og presta landsins, greint
frá erlendum samskiptum kirkjunnar og yfirlit er
birt úr starfsskýrslum presta. Ýmislegt annað
upplýsingaefni er í Árbókinni. Árbók kirkjunnar
1985 kemur að þessu sinni út sem 4. hefti Kirkjurits-
ins 1985. Hún er 84 síður að stærð. Ritstjórn hefur
annast fréttafulltrúi kirkjunnar, sr. Bernharður
Guðmundsson. Árbókin er send öllum áskrifendum
Kirkjuritsins, en hana er einnig að fá í Biskups-
stofu, Suðurgötu 22, Reykjavík, og í þjónustumiðstöð
kirkjunnar, Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, Reykja-
vík.
(FrcUatilkynninR)
Nýtt verð ákveðið
á loðnu til bræðslu
Á FUNDI Verölagsráös sjávarútvegs-
ins 30. desember var ákveðið nýtt
lágmarksverð á loðnu veiddri til
bræðslu. Verðið er 830 krónur fyrir
hvert tonn og gildir frá 1. janúar til
10. febrúar næstkomandi. Loönuverð
hækkar nokkuð frá síðustu verð-
ákvöröun. Það var 1400 krónur fyrir
hvert tonn miðað við samtölu fitu
og þurrefnis er nemur 31%, en nú
er samtala miðuð við 24%.
Verðið er miðað við samtölu
fitu- og þurrefnisinnihalds er
nemur 24%. Verðið breytist um
kr. 90 til hækkunar eða lækkunar
fyrir hvert 1% sem samtalan
breytist frá viðmiðun og hlutfalls-
lega fyrir hvert 0,1%. Ennfremur
greiði kaupendur kr. 2,50 fyrir
hvert tonn til reksturs Loðnu-
nefndar.
Samtala fitu- og þurrefnis-
magns hvers loðnufarms skal ák-
vörðuð af Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaöarins eftir sýnum, sem tekin
skulu sameiginlega um borð í
veiðiskipi af ful.ltrúa veiðiskips og
fulltrúa verksmiðju.
Verðið er miðað við loðnuna
komna í löndunartæki verksmiðju.
Ekki er heimilt að blanda vatni
eða sjó í loðnuna við löndun og
óheimilt er að nota aðrar löndun-
ardælur en þurrdælur.
Verðið er uppsegjanlegt með
þriggja daga fyrirvara frá 20.
janúar 1986.
Álfabrenna
ÁLFABRENNA veröur á Fáks-
velli á Víðivöllum laugardaginn
4. janúar kl. 16.00.
Margt verður til skemmtun-
ar. Álfakóngur og álfadrottn-
ing mæta á staðinn ásamt fríðu
föruneyti. Grýla og Leppalúði
verða einnig á ferð, jólasveinar
og hvað eina. Flugeldasýning
verður einnig. Kaffiveitingar
verða í nýja félagsheimilinu á
eftir.
Nýársdansleikur verður um
- kvöldið á vegum Fáks í félags-
heimilinu.
(FrétUlilk jnníng)
*
Alpönnur framleiddar
fyrir erlendan markað
ÍSLENZKA álfélagið hf. og Alpan
hf., Reykjavík, gerðu þann 20. des-
ember 1985 með sér samning, er
tekur gildi frá og með 1. janúar
1986 og gildir til 31. desember 1988.
Ríkisútyarpið:
Afnotagjald
hækkar um 15%
AFNOTAGJALD útvarps og sjón-
varps hækkar um 15% nú um ára-
mótin frá því sem var við síðasta
gjalddaga í september sl. Ennfrem-
ur verður tekin upp sú nýbreytni að
innheimta afnotagjöld fjórum sinn-
um á ári í stað tvisvar áður.
Að sögn Theódórs Georgssonar,
innheimtustjóra Ríkisútvarpsins,
er afnotagjald hljóðvarps fyrir
næstu þrjá mánuðina 380 krónur,
fyrir svart/hvítt sjónvarp 1.210
krónur og 1.525 krónur fyrir lita-
sjónvarp. Síðast voru þessi gjöld
hækkuð 1. mars á liðnu ári.
♦ ♦ »
Orgeltónleikar
í Dómkirkjunni
í KVÖLD kl. 20.30 verða orgeltón-
leikar haldnir í Dómkirkjunni í
Reykjavík.
Þetta eru sjöundu Bach-tónleik-
arnir af fimmtán, sem haldnir eru
á vegum Félags íslenskra organ-
ieikara, Kirkjukórasambands ís-
lands og Söngmálastjóra þjóð-
kirkjunnar í tilefni af ári tónlist-
arinnar og 300 ára afmælis Bachs
1985.
Verkin sem flutt verða eru, sem
áður sagði, eftir J.S. Bach og tengj-
ast öll jólahátíðinni.
Flytjendur eru: Björn Sólbergs-
sson, Friðrik V. Stefánsson, Glúm-
ur Gylfason, Kjartan Sigurjóns-
son, Ölafur Sigurjónsson, Reynir
Jónasson og Sighvatur Jónasson.
Aðgangur er ókeypis.
(KrélUtilkjniiing fr» s&ngmálastjóra.)
Einangrunar-
rúlla fannst í
Breiðholti
FIMMTUDAGINN 5. desember
síðastliðinn fannst stór fiberglas
einangrunarrúlla í Breiðholti.
Eigandi rúllunnar getur snúið sér
til rannsóknardeildar lögreglunn-
aríHafnarfirði.
Samningurinn er þess efnis, að
Alpan hf. kaupir álhleifa af ÍSAL,
150 tonn árið 1986, vaxandi í 900
tonn árið 1988.
Álið mun Alpan hf. nota til
framleiðslu á álpönnum, og er
fyrirhugað að framleiðslan verði
aðallega seld á erlendum mörkuð-
um. Gert er ráð fyrir, að starfsemi
fyrirtækisins komist í fullan gang
í byrjun febfrúar 1986 og munu
þá væntanlega starfa um 20 manns
hjá því. Fyrirtækið hefur reist
verksmiðju á Eyrarbakka. Fram-
kvæmdastjóri Alpan hf. er Andrés
B. Sigurðsson.
(FrétUtilkynning)
Bifreið stolið
AÐFARANÓTT laugardagsins 27.
desember síðastliðinn var bifreið-
inni G-21067, sem er rauð Datsun-
stationbifreið, stolið frá Esjugrunni
33 á Kjalarnesi.
Þeir sem kunna að vita hvar
bifreiðin er niðurkomin eru vin-
samlega beðnir að snúa sér til
lögreglunnar í Hafnarfirði.
Skemmti-
dagskrá í
Naustinu
Veitingastaðurinn Naustið efnir
til margháttaðra skemmtiatriða á
næstunni. Fyrsta skemtidagskrá
Naustsins hefst í dag, fóstudaginn
3. janúar, og heitir „ÚR GULL-
KISTU EYJAMANNA“.
Þar verða flutt lög og ljóð eftir
Eyjamenn í flutningi þeirra
bræðra Helga og Hermanns Inga
Hermannssona.
Þrettándagleði verður sunnu-
daginn 5. janúar. Um skemmtiat-
riðin sjá: Jónas Þ. Dagbjartsson
og Jónas Þórir, Helgi og Hermann
Ingi, Vínarhljómsveit Þorvaldar
Steingrímssonar og Dixieland-
hljómsveit Björns R. Einarssonar,
en hana skipa Björn R. á básúnu,
Guðmundur R. á trommur, Þor-
valdur Steingrímsson á clarínett,
Jónas Þ. Dagbjartsson á cornet og
Jónas Þórir á píanó.
Sunnudagsjass verður í Naust-
inu fram á vor þar sem Djassnaut-
in spila ásamt gesti. Fyrsti gestur-
inn verður gítarleikarinn Ólafur
Gaukur.