Morgunblaðið - 03.01.1986, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
Metsölubækur fyrir jólin:
Alistair MacLean
enn í efsta sæti
METSÖLUBÓKIN í ár er eftir Alistair MacLean, Njósnir á hafinu.
Kaupþing hf. tók að sér að framkvæma könnun á sölu bóka fyrir Félag
íslenskra bókaútgefenda fyrir jólin og raunar út nóvember á nýbyrjuðu
ári. Birtur er annars vegar listi yfir 10 mest seldu bækurnar en hins
vegar yfir söluhæstu bækur í sex flokkum, sem eru: barnabækur, ungl-
ingabækur, ævisögur og viðtalsbækur, íslenskar skáldsögur, þýddar
skáldsögur og aðrar bækur.
Tíu söluhæstu bækurnar fyrir
jól ásamt höfundum voru sam-
kvæmt könnun Kaupþings:
1. Njósnir á hafinu, Alistair
MacLean.
2. Sextán ára í sambúð, Eðvarð
Ingólfsson.
3. Lífssaga baráttukonu, Inga
Huld Hákonardóttir.
4. Löglegt en siðlaust, Jón
Ormur Halldórsson.
5. Guðmundur Kærnested,
Sveinn Sæmundsson.
6. Bara stælar, Andrés Indriða-
son.
7. Stúlkan á bláa hjólinu, Rég-
ine Deforges.
8. Ekki kjafta frá, Helga
Ágústsdóttir.
9. Olíubylgjan blakka, Hamm-
ond Innes.
10. Kommisarinn, Sven Hassel.
Fimm söluhæstu barnabæk-
urnar eru: Elías á fullri ferð eftir
Auði Haralds, Gunnhildur og
Glói eftir Guðrúnu Helgadóttur,
Jólasveinabókin eftir Rolf Lind-
berg, Klukkubókin eftir Vilberg
Júlíusson og Þú átt gott Einar
Áskell, eftir Gunilla Bergström.
Fimm söluhæstu unglingabæk-
urnar eru: Sextán ára í sambúð
INNLEN-T
eftir Eðvarð Ingólfsson, Bara
stælar eftir Andrés Indriðason,
Ekki kjafta frá eftir Helgu
Ágústsdóttur, Fimm á hættuslóð-
um eftir Enid Blyton og Svalur
og Valur eftir Tome & Jan Ry.
Fimm söluhæstu ævisögurnar
eru: Lífssaga baráttukonu eftir
Ingu Huld Hákonardóttur, Lög-
iegt en siðlaust eftir Jón Orm
Halldórsson, Guðmundur Kærne-
sted eftir Svein Sæmundsson,
Minningar Huldu k. Stefáns-
dóttur eftir Huldu Á. Stefáns-
dóttur, Jónas Árnason, viðtals-
bók eftir Rúnar Arthúrsson.
Fimm söluhæstu íslensku
skáldsögurnar eru: Margsaga
eftir Þórarin Eldjárn, Skilnings-
tréð eftir Sigurð A. Magnússon,
Sögur og ljóð eftir Ástu Sigurð-
ardóttur, Sagan öll eftir Pétur
Gunnarsson og Undir merki
steingeitar eftir Snjólaugu
Bragadóttur.
Fimm söluhæstu þýddu skáld-
sögurnar eru: Njósnir á hafinu
eftir Alistair MacLean, Stúlkan
á bláa hjólinu eftir Régine De-
forges, Olíubylgjan blakka eftir
Hammond Innes, Kommisarinn
eftir Sven Hassel og Trölleykið
eftir Desmond Bagley.
í flokknum „aðrar bækur" voru
eftirfarandi söluhæstar: Stríð
fyrir ströndum eftir Þór White-
head, í austurvegi eftir Halldór
Laxness, Hvernig elska á karl-
mann eftir Alexöndru Penny,
Hlæjum hátt með Hemma Gunn
eftir Hermann Gunnarsson og
íslendingasögur útgefnar af for-
laginu Svart á hvítu.
Dalvík:
Megn óánægja
með snjómokstur
Dalvík, 30. desember.
FÖSTUDAGINN 27. desember
urðu tvö umferðaróhöpp á Ilámund-
arstaðahálsi milli Dalvíkur og Akur-
eyrar. Vegna hálku snérist sendibíll
og lagðist á hliðina og síðar um
daginn skullu tveir bílar saman.
Sem betur fer urðu engin meiðsl
á fólki en báðir bílarnir sem lentu
saman urðu óökufærir en litlar
skemmdir urðu á bílnum sem fór
á hliðina. Mjög hált var á þessum
vegarkafla og stöku snjódriftir
voru á veginum. Þar sem bílarnir
skullu saman var nýbúið að gera
mjótt ræsi í gegn um skafl og
má vafalaust rekja orsök þess
óhapps til þess hvernig snjó-
mokstri var háttað.
Það sem af er vetri hefur ekki
þurft að eyða miklum tíma og
fjármunum til snjómoksturs á
leiðinni Dalvík-Akureyri sem
Vegagerðin nefnir Ólafsfjarðar-
veg. I haust var snjómokstur á
þessari leið boðinn út. Útboðið var
miðað við leiðina frá Moldhauga-
hálsi til Dalvíkur, samtals 33 km,
tvo daga í viku, mánudaga og
fimmtudaga. í þetta verk bárust
alls 9 tilboð og voru lægstu til-
boðin frá Guðmundi Hjálmars-
syni á Akureyri og Jarðverki hf.
á Dalvík. Vegagerð ríkisins tók
tilboði Guðmundar Hjálmarsson-
ar, en hann hefur aðeins yfir að
ráða einum vörubíl með tönn.
Þykir Dalvíkingum að vonum súrt
í broti að ekki var gengið til
samninga við Jarðverk hf., þar
sem þeir hafa yfir að ráða betri
og stórvirkari tækjum til snjóm-
oksturs svo og vegna þess að í
flestum tilfellum lokast leiðin
fyrst nær Dalvík og er yfirleitt
snjólítið þegar inn fyrir Fagra-
skóg kemur. Þá má og benda á
að fleiri eiga leið frá Dalvík til
Akureyrar á morgni hverjum í
sambandi við flug og flutninga
og því oft tafsamt að bíða eftir
því að leiðin sé opnuð frá Akur-
eyri.
Föstudaginn 27. desember var
leiðin rudd þar sem ekki hafði
verið rutt á fimmtudegi 26. vegna
jólanna. Þegar leiðin loksins
opnaðist um kl. 9.00 að morgni
biðu þá þegar allmargir eftir að
komast til Akureyrar til að ná
morgunfluugi frá Akureyri svo
og fólk að mæta til vinnu. Þá var
búið að opna hringveginn um
Svarfaðardal sem er um 50 km
langur og á honum töluvert meiri
snjór. Það verk var hafið kl. 4.00
að morgni, en að sögn Guðmundar
Hjálmarssonar er ekki gert ráð
fyrir því að hann hefji mokstur
fyrr en kl. 7.00 frá Akureyri. Þá
má geta þess að Vegagerðin stað-
setur á þessum vegarkafla mann
og bíl en hvaða hlutverki hann á
að þjóna vita fæstir.
Fréttaritarar
Þrír starfsmenn heiðraðir
SclfoHs, 30. desember.
VIÐ SJÖTUGSALDUR verða tímamót í lífi starfs-
manna fyrirtækja og stofnana. Á slíkum tímamótum
stóðu 3 starfsmenn Sjúkrahúss Suðurlands á dögun-
um, Sigurd Elsheim, yfirmatreiðslumaður sjúkrahúss-
ins, og tvær starfsstúlkur hans úr eldhúsinu, Sesselja
S. Sigurðardóttir og Vilborg Bjarnfreðsdóttir.
Starfsfólk sjúkrahússins hélt þeim veislu sl.
föstudag, 27. desember, stjórn sjúkrahússins færði
þeim bókagjafir sem viðurkenningarvott fyrir vel
unnin störf og ávörp voru flutt.
Við starfslok verður ljósara, en áður að í hverju
starfi gegnir fólk lykilhlutverki á sínu sviði, við
hvað svo sem starfað er.
Á meðfylgjand mynd eru þau þrjú sem hættu
störfum ásamt Þorsteini Kristensen, yfirmat-
reiðslumanni, Hafsteini Þorvaldssyni, forstöðu-
manni og Allan Magnússyni, formanni sjúkrahús-
stjórnar.
SigJón.
Kjömefnd Alþýðubandalagsins:
Oskaði eftir þátttöku
Kristínar og Össurar
KJÖRNEFND Alþýðubandalagsins í Reykjavík hefur birt lista yfir þá sem
taka þátt í forvali Alþýðubandalagsins vegna borgarstjórnarkosninga í
Reykjavík. Kjörnefndin birti um miðjan desember sl. lista yfir þá 16 aðila
sem þá höfðu verið tilnefndir, en til viðbótar hafa nú þau Arnór Pétursson,
Konráð K. Björgólfsson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Lena M. Rist, Skúli Thor-
oddsen og Össur Skarphéðinsson verið tilnefnd.
I fréttatilkynningu frá Alþýðu-
bandalaginu segir: „Vegna skrifa
DV og Morgunblaðsins um tilnefn-
ingu kjörnefndar ABR til forvals
vegna borgarstjórnarkosninga vill
kjörnefnd taka fram að nefndin
fór þess ítrekað á leit við Kristínu
Á. Ólafsdóttur og Össur Skarp-
héðinsson að þau tækju sæti á lista
kjörnefndar sem birtur var um
miðjan desember. Þau gáfu nefnd-
inni ekki samþykki sitt og voru
þar af leiðandi ekki á þeim lista.
Kjörnefndin fagnar hinum nýja
tilnefningum sem borist hafa.*'
Samkvæmt nýja listanum taka
22 þátt í forvali Álþýðubandalags-
ins í Reykjavík. Þau eru Anna
Hildur Hildibrandsdóttir, skrif-
stofumaður, Arnór Pétursson
skrifstofumaður, Björk Vilhelms-
dóttir nemi, Erlingur Viggósson
skipasmiður, Gísli Sváfnisson
kennari, Guðmundur Þ. Jónsson
borgarfulltrúi, Guðni Jóhannesson
verkfræðingur, Guðrún Ágústs-
dóttir borgarfulltrúi, Helga Sigur-
jónsdóttir kerfisfræðingur, Jó-
hannes Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna, Konráð K.
Björgólfsson sjómaður, Kristín Á.
Ólafsdóttir varaformaður Alþýðu-
bandalagsins, Lena M. Rist kenn-
ari, Margrét Óskarsdóttir verka-
kona, Pálmar Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Iðnnemasambands
íslands, Sigurjón Pétursson borg-
arfulltrúi, Sigurður Einarsson
verkamaður, Sigurður G. Tómas-
son fulltrúi, Skúli Thoroddsen
lögfræðingur, Tryggvi Þór Aðal-
steinsson framkvæmdastjóri
MFA, Þorbjörn Broddason lektor
og Össur Skarphéðinsson ritstjóri
Þjóðviljans.
Kristján Valdimarsson skrif-
stofustjóri Alþýðubandalagsins
sagði að þeir sem tækju þátt í
forvalinu byðu sig ekki fram í
ákveðið sæti. Sá háttur verður
hafður á í forvalinu að merkt
verður við frambjóðendur í núm-
eraröð frá nr. 1-7.
Forvalið er ekki bindandi. Kjör-
nefndin heldur forvalið og síðan
gerir hún tillögur um endanlegan
lista á grundvelli forvalsins til fé-
lagsfundar sem hefur endanlegt
vald til að breyta honum.
Sveinafélag rafeindavirkja:
Boðuðu verkfalli
Málinu vísað til félagsdóms
Fjármálaráöuneytið fór fram á
þaö viö Sveinafélag rafeindavirkja á
mánudaginn aö það frestaði boöuðu
verkfalli sem átti aö hefjast 2. jan-
úar og vísaði máli sínu til félags-
dóms.
Stjórn og trúnaðarráð Sveinafé-
lags rafeindavirkja efndu til fund-
ar 1. janúar ásamt fjármálaráðu-
neytinu og var þá samþykkt að
bera þann ágreining sem uppi er
um lögmæti boðaðs verkfalls raf-
eindavirkja undir félagsdóm hið
fyrsta; að frestun á boðuðu verk-
falli hafi ekki áhrif á afstöðu
manna til giidis bréfa starfsmanna
frá 30. september (uppsagnarbréf-
anna) og í þriðja lagi að meðan
málið er í félagsdómi frestast
boðað verkfall en tekur gildi án
sérstakrar boðunar nema niður-
staða félagsdóms komi í veg fyrir
slíkt.
Helgi Gunnarsson starfsmaður
Sveinafélags rafeindavirkja sagði
að þegar þetta hafði verið sam-
þykkt hefði félagið beint þeim til-
mælum til þeirra sem sagt höfðu
upp störfum að þeir mættu til
vinnu og ynnu þar til úrskurður
félagsdóms um lögmæti boðaðs
verkfalls lægi fyrir. Almennur fé-
frestað
lagsfundur var haldinn Sveinafé-
lagi rafeindavirkja í gær, fimmtu-
dag, þar sem þessi niðurstaða var
kynnt.
Helgi Gunnarsson sagði að ekki
hefðu allir verið ánægðir með
niðurstöðuna, en menn teldu það
skynsamlegustu lausnina að fara
með málið fyrir félagsdóm. Hann
sagði að enn væri ekki ljóst hvort
félagsdómur vildi taka þetta
flókna mál að sér, en ef hann vísaði
málinu frá kæmi strax til boðaðs
verkfalls.
Helgi sagði að vænta mætti
niðurstöðu félagsdóms innan hálfs
mánaðar.