Morgunblaðið - 03.01.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
fclk í
fréttum
Sexburar
í fínu formi
Hinir heimsfrægu Walton sexburar í Bretlandi urðu nýlega
tveggja ára og voru þessar myndir teknar af þeim af því
tilefni. Sexburarnir eru allt stúlkubörn, og einu sexburar í heimi
sem eru samkynja. Foreldrarnir voru búnir að reyna að eignast
börn i átta ár án árangurs, og eftir að frjósemislyf höfðu verið
notuð í ákveðinn tima, litu sexburarnir dagsins ljós.
Ríkasta
frú
í
Hollywood
Súper-maðurinn Silvester
Stallone er nú genginn út
aftur, að þessu sinni er hin danska
Gitte Nielsen sú hamingjusama.
Brúðhjónin hittust fyrst fyrir
tæpu ári í Manhattan í New York
og nú skömmu fyrir jólin var brúð-
kaupið haldið hátíðlegt og skömmu
síðar stungu brúðhjónin af í leyni-
lega brúðkaupsferð. Silvester
Stallone sem kunnur er af kvik-
myndunum um Rocky, er einn
ríkast maður Hollywood og Gitte
Nielsen þarf því ekki að kvíða
auraleysi í nánustu framtíð.
COSPER
— Þetta gekk allt ágætlega lengi vel. Ég var orðinn besti vinur
varðhundsins, en svo varð mér það á að stíga á skott kattarins.
Robert Mitchum
Hollywoodstjarnan
sem áður var tugthúslimur
Robert Mitchum, sem er sjón-
varps- og kvikmyndaáhorf-
endum að góðu kunnur, á að baki
fremur litríka fortíð. Mitchum er
kunnur fyrir lítið dálæti á ljós-
myndurum, hann á það til að rífa
af þeim myndavélar, eyðileggja
þær og gefa eigendum þeirra væna
spítalavínka. Ef til vill ekki skrýt-
ið, þegar litið er til fortíðar hans,
en hann hætti í skóla 14 ára
gamall og sat ellefu sinnum i
fangelsi fyrir alls kyns óspektir,
áður en stjarna hans sem kvik-
myndaleikara reis. Hann segir það
algjöra tilviljun að hann hafi lagt
út áþessa braut.
„Eg bjó á tímabili í Kaliforníu
með móður minni. Hún hafði séð
kvikmynd og er hún kom heim
varð henni að orði: „Fyrst þessi
hálfviti í myndinni gat leikið þá
ætti það ekki að vera neitt mál
fyrir þig.“ Kvikmyndafyrirtækið
var rétt hinum megin við hornið
og ég fór þangað og spurði hvort
ekki vantaði fólk. Þannig byrjaði
þetta og ég hef aldrei verið at-
vinnulaus upp frá þessum degi.
Og sannleikurinn er sá að ég ieik
eingöngu peninganna vegna, nýtt
hlutverk er fyrir mér staðfesting
á því að ég hafi örugga vinnu
næstu 12 mánuði og frítt fæði í
jafnmarga mánuði."
Robert Mitchum ásamt Deboru
Kerr í leikriti sem sýnt var í sjón-
varpinu nýlega og fjallaði um endur-
fundi eftir 40 ára aðskilnað.
10039
Þessar myndir voru
teknar af þeim Gittu
Nielsen og Silvester
Stallone í hinni
leynilegu brúðkaups-
ferð þeirra.
COSPSR