Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 1
48 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
10. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
••
Viðvöran frá dönskum lögregluyfirvöld tii íslands:
Menn Abus Nidal
á N or ðurlöndum?
Sænsk o g ítölsk stjórnvöld vara við yfirvofandi
árás hryðjuverkamanna á Norðurlöndunum
Oryggis-
varsla
Lögregluvörður við bæna-
hús gyðinga í Stokkhólmi.
Reist hafa verið grindverk
um allt torgið fyrir framan
bænahúsið og lögreglu-
menn með alvæpni eru allt
í kringum það.
AP/Sfnamynd
STERKUR grunur leikur á að palestínskir skæruliðar úr liði
hryðjuverkamannsins Abus Nidal hafi komist inn á norræna
vegabréfasvæðið á síðustu dögum, skv. upplýsingum, sem Morgun-
blaðið aflaði sér í gærkvöld. íslensk yfirvöld fengu upplýsingar
um þetta frá lögregluyfirvöldum í Danmörku síðdegis í gær.
Eins og kunnugt er eru Norðurlöndin fimm eitt vegabréfasvæði
og þurfa íbúar þeirra ekki að sýna vegabréf þegar þeir fara á
milli landanna.
íranir
í rétti?
Washington, Manama, 13. janúar. AP.
Bandaríkjastjórn telur að
íranir kunni að hafa verið í
einhveijum rétti er þeir stöðv-
uðu bandariskt kaupskip í
mynni Persaflóa undir því
yfirskyni að þeir væru að
athuga hvort um borð væru
vopn, sem flytja ætti til fjand-
manna sinna í írak. Hins
vegar hefur stjórnin alvarleg-
ar áhyggjur vegna þessa at-
burðar og íhugar hvernig
brugðizt skuli við.
íranir hótuðu að sökkva
kaupskipinu, Taylor forseta,
sem er 39.000 smálestir, ef það
næmi ekki staðar. Fóru hermenn
um borð og skoðuðu farm skips-
ins, en fóru síðan frá borði.
Vegna þessa fylgdu skip úr
bandaríska flotanum kaupskip-
um inn á Persaflóann í dag.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins segir ákvæði
reglna um sjóhemað veita írön-
um „viss réttindi" til að ganga
úr skugga um hvort skip óháðra
ríkja séu notuð til að færa óvin-
inum vopn.
Þá bárust hérlendum yfírvöldum
um það upplýsingar frá alþjóðalög-
reglunni Interpol á Ítalíu í gær, að
búast mætti við aðgerðum hryðju-
verkamanna í Vestur-Evrópu á
næstu 24 tímum - sá tími er liðinn
síðdegis í dag. í skeyti Interpol segir
að sérstaklega sé ástæða til að
auka varúðarráðstafanir á Norður-
löndum, í Hollandi, Spáni og Ítalíu
auk NATO-stöðva í þessum löndum,
skv. upplýsingum Morgunblaðsins.
Lögregla á Norðurlöndum og víð-
ar í V-Evrópu hefur haft uppi sér-
stakan viðbúnað gegn hugsanlegum
árásum hryðjuverkamanna Abus
Nidal eftir að sænska leyniþjónust-
an hafði af því njósn, að menn
undir hans verkstjóm beindu aug-
um sínum sérstaklega að nokkmm
löndum í þessum heimshluta. Abu
Nidal hefur lýst ábyrgð á hendur
sér fyrir morðárásimar á flugvöll-
unum í Róm og Vínarborg um jólin,
auk fleiri árása á undanfömum
vikum og mánuðum.
Að skipan utanríkisráðuneytisins
hafa sérþjálfaðir lögreglumenn með
hríðskotabyssur staðið vakt í flug-
stöðinni á Keflavfkurflugvelli síðan
á sunnudag. Þegar fyrrgreindar
upplýsingar bárust hingað til lands
í gær var hert á þessari öryggis-
gæslu. í samtali við Morgunblaðið
sagði Geir Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra það nauðsynlegt fyrir ís-
lendinga að gera sér grein fyrir að
hættan á hryðjuverkum væri fyrir
hendi hér á landi ekki síður en
annars staðar.
Sjá ennfremur: „Sænska
leyniþjónustan hafði njósn af
hugsanlegum aðgerðum Abu
Nidals" á bls. 4, „Segja
ómögulegt að gæta hugsan-
legra fómarlamba" á bls. 20
og forystugrein í miðopnu.
Ðeilt á Thatcher í
Neðri málstofunni
Dregur Sikorsky tilboð sitt í Westland til baka?
London, 13. jnnúar. AP.
LEIÐTOGAR og þingmenn
brezku stjómarandstöðunnar
gerðu harða hríð að Margaret
Thatcher, forsætisráðherra, í
Neðri málstofunni í dag. Thatch-
er var krafin skýringa á afsögn
Þriðju flugvallar-
árásinni afstvrt
Rómaborií, 13. janúar. AP. Wr
Rómaborg, 13. janúar.
ÍTALSKAR orrustuþotur stugguðu við tveimur sovézkum Ilyushin-
38-flugvélum, sem stefndu til Sikileyjar, og snera þeim til Líbýu,
en þaðan komu þær. Flugvélarnar vora með sovézkum einkennis-
merkjum en hafa bækistöðvar í Líbýu, að sögn ítalskra heimilda.
ítölsku þotumar voru sendar til
móts við sovézku flugvélamar er
þeirra varð vart í ratsjám. Spenna
ríkir á Miðjarðarhafí í kjölfar
hryðjuverka á flugvöllunum í Vín
og Róm 27. desember sl. vegna
gruns um að Líbýumenn hafi stutt
ódæðismennina. Fjöldi ítalskra her-
stöðva og herstöðva NATO-ríkja er
á Sikiley og suðurhluta Ítalíu.
Að sögn Oscars Scalfaro, innan-
ríkisráðherra Ítalíu, kom í ljós við
rannsókn ódæðisins á flugvellinum
í Róm að sjálfsmorðssveit var í
þann veginn að láta til skarar skríða
á þriðja flugvellinum í Evrópu.
Tekizt hefði að vara þarlend yfír-
völd við I tæka tíð og afstýra hryðju-
verki. Ráðherrann sagði ódæðis-
mennina, sem að verki voru í Róm
og Vín, og þriðju sveitina, alla til-
heyra sömu „stóm samtökunum".
Öryggisvarzla og viðbúnaður
hefur verið aukinn víða af ótta við
hryðjuverk. í dag vömðu t.d. starfs-
menn bandaríska sendiráðsins í
Hollandi um 10.000 Bandaríkja-
menn þar í landi við hugsanlegum
hryðjuverkum.
Michaels Heseltine, varnarmála-
ráðherra, sem sagði af sér ráð-
herrastarfi vegna ágreinings í
stjórainni um sölu brezka þyrlu-
fyrirtækisins Westland. Að sögn
Financial Times kann svo að fara
að kauptilboð í Westland, sem
Heseltine vill að ekki verði tekið,
verði afturkallað.
Neil Kinnock, formaður Verka-
mannaflokksins, sagði Thatcher
hafa synjað beiðni sinni um að hún
svaraði ásökunum, sem Heseltine
hafði uppi eftir afsögn sína. „Hér
fer heigull undan í flæmingi og
bregst skyldum sínum við þessa
samkundu," sagði Kinnock. Thatc-
her tók ekki til máls í þinginu í
dag, en Kinnock hótaði að knýja
hana til svars á miðvikudag, en þá
gefst þingmönnum Verkamanna-
flokksins tækifæri til að spyija
forsætisráðherrann í þaula.
Thatcher var sökuð um að ganga
gegn þjóðarhag í Westland-málinu.
Hún var krafin skýringa á stefnu
stjómarinnar í málinu. Leon Britt-
an, viðskiptaráðherra, varði stjóm-
ina og sagði aldrei hafa komið til
þess að hún tæki afstöðu til kauptil-
boða í þyrlufyrirtækið. Aðeins hefði
verið ákveðið að ráðherrar skyldu
ekki draga taum tilbjóðenda og að
þeirri ákvörðun tekinni hefði
Heseltine sagt af sér.
Að afsögn lokinni lýsti Heseltine
stuðningi við málstað brezk-
evrópskrar samsteypu, sem gerir
tilboð í þyrlufyrirtækið, en stjóm
Westland vill taka tilboði Sikorsky-
fyrirtækisins bandaríska og ítalska
fyrirtækisins FIAT. Stjómin hefur
hvatt hluthafa í Westland til að
taka því tilboði, en hluthafafundur
er boðaður á morgun, þriðjudag.
Blaðið Financial Times skýrði frá
því í dag að Sikorsky íhugaði að
draga tilboð sitt til baka hljóti það
ekki tilskyldan stuðning hluthaf-
anna. Telur blaðið ólíklegt að tilboð
Sikorsky hljóti stuðning eigenda
75% hlutabréfa í Westland og að
svo kunni að fara að það verði
afturkallað.
Brezkir stjómmálaskýrendur era
sammála um að málið hafí dregið
úr trausti almennings á yfírvöldum
og rýrt álit á Thatcher. Vangaveltur
era jafnvel á kreiki um að málið
kunni að leiða til þess að Thatcher
dragi sig í hlé og hverfi úr ráð-
herrastóli á árinu.