Morgunblaðið - 14.01.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
Bruninn í Kópavogshæli:
Ógætileg meðferð elds
' Morgunblaðið/JúlÖ8
Það tók aðeins nokkrar mínútur að ná fólkinu út af deildinni eftir að lögreglan og slökkviliðið kom á
vettvang’. Þessi mynd var tekin þegar verið var að bera síðustu vistmennina út.
EINN maður lést af völdum
reyks í eldsvoðanum á Kópavogs-
hælinu i gærmorgun. Hann svaf
í næsta herbergi við það sem
eldurinn kom upp í og lést þar
í rúmi sínu. Hann hét Guðmund-
ur Guðmundsson og var 60 ára
að aldri. Guðmundur hafði verið
á hælinu í rúm 7 ár. Flestir vist-
manna í deild þeirri þar sem
eldurinn kom upp fengu reyk-
eitrun og voru fimm þeirra langt
leiddir af súrefnisskorti, og þar
af var ein kona mjög veik. Fólkið
hresstist er á leið daginn og er
nú ekkert þeirra talið í lífshættu,
að sögn Guðmundar Eyjólfssonar
læknis á Borgarspítalanum.
Enginn vistmanna hlaut bruna-
sár.
Tilkynnt kl. 05.58
Það var klukkan 05.58 sem lög-
reglunni í Kópavogi barst tilkynn-
ing um að eldur væri laus í einu
húsi á lóð Kópavogshælis. Tilkynn-
ingin barst frá konu í Amamesi sem
sá yfír Kópavoginn hvar eldtungur
komu út úr suðurglugga á einni
svefnálmunni. Ailt tiltækt lið
Slökkviliðs Reykjavíkur var þegar
kvatt á staðinn ásamt lögreglu og
sjúkrabifreiðum.
Greiðlegfa gekk að
ná fólkinu út
„Við vomm komnir á staðinn
tæpum tveimur mínútum eftir að
tilkynningin barst og slökkviliðið
kom skömmu síðar," sagði Ægir
Einarsson, aðstoðarvarðstjóri
Kópavogslögreglunnar. „Húsið var
læst þegar okkur bar að, en vakt-
maður á næstu deildum kom strax
að og opnaði fyrir okkur. Við byij-
uðum að flytja fólkið út sem fjærst
var eldsupptökunum, því við gátum
ekki með nokkm móti brotist inn í
reykmökkinn þar sem hann var
mestur. Við höfðum náð að flytja
tvo vistmenn út þegar slökkviliðið
kom og þá fóm reykkafarar inn á
ganginn þar sem reykurinn var
mestur," sagði Ægir.
„Við gerðum okkur strax grein
fyrir því að yfírborðseldur var tak-
markaður við eitt herbergi og að
auðvelt yrði að ráða niðurlögum
hans. Hins vegar var reykur mikill
og við sendum strax þijá reykkaf-
ara inn til að ná fólkinu út,“ sagði
Amþór Sigurðsson, varðstjóri
Slökkviliðsins. „Greiðlega gekk að
ná fólkinu út, og var það flutt í
skyndi á slysadeild Borgarspítalans.
Það hafa ekki liðið meira en 15—20
mínútur frá því að tilkynning barst
þar til fólkið var komið undir lækn-
ishendur og það tók aðeins nokkrar
mínútur að slökkva yfírborðseld-
inn," sagði Amþór. Fólkinu var
dreift á þijá spítala, Borgarspítal-
ann, Landspítalann og Landakot.
Vaktmenn urðu ekki
varir við eldinn
Eldurinn kom upp í Deild 8, sem
svo er kölluð, í herbergi sem vísar
út á Kópavoginn í öðmm enda húss-
ins. Að sögn þeirra Bjöms Gests-
sonar forstöðumanns á Kópavogs-
hæli og Ragnhildar Ingibergsdóttur
yfírlæknis, er þetta opin deild fyrir
minna vangefið fólk, sem er sjálf-
bjarga um daglegar þarfír undir
eftirliti. Á deildinni em að jafnaði
15 manns, en einn vistmanna var
á sjúkrahúsi, svo þessa nótt vom
vistmenn aðeins 14, allt fullorðið
fólk. Tveir vaktmenn annast þessa
deild og þijár aðrar á nætumar,
en alls em níu manns á næturvakt
á hælinu öllu. Deildimar fjórar
liggja í röð og er innangengt á
milli þeirra. Hvomgur vaktmann-
anna varð eldsins var fyrr en lög-
reglan kom á staðinn. Annar þeirra
er Bergsveinn Jóhannsson. Hann
hefur starfað á Kópavogshæli í 15
ár. „Ég gerði mér fyrst grein fyrir
því að eldur væri laus þegar ég sá
lögreglu og slökkvilið koma á stað-
inn,“ sagði Bergsveinn. „Ég gæti
aðallega deilda 9 og 10 og var þar
um nóttina. Yfírleitt hef ég sam-
band við hinn vaktmanninn nokkr-
um sinnum á nóttu, en ekki í þetta
sinn, því við þekktumst ekki. Konan
sem venjulega er á vakt með mér
var veik og þessi var í afleysingum,"
sagði hann. Bergsveinn sagði að
það væri ófremdarástand að hafa
ekki reykskynjara á hælinu. „Ein
manneskja þarf að gæta tveggja
húsa og það er nógu langt á milli
þeirra til þess að maður veit ekkert
hvað er að gerast í því húsi sem
Eldurinn kom upp í herbergi í
enda svefnálmunnar. Yfirborðs-
eldur var aldrei mikill og tókst
slökkviliðinu að ráða niðurlögum
eldsins á fáeinum mínútum.
maður er ekki í þá stundina," sagði
Bergsveinn. Hinn vaktmaðurinn
mun hafa verið staddur í Deild 7
þegar eldurinn kom upp.
Eldsupptök
Rannsóknarlögreglan vinnur enn
að rannsókn á upptökum brunans,
en samkvæmt upplýsingum Helga
Daníelssonar lögreglufulltrúa er lík-
legast að upptökin megi rekja til
þess að óvarlega hafí verið farið
með eld. í brunarústunum fundust
meðal annars leyfar af einnota
kveikjara. Ein kona bjó í herberginu
þar sem eldurinn kom upp, og er
henni ekki leyft að nota eldfæri
nema undir eftirliti. Andlegt ástand
konunnar er með þeim hætti að
erfíðlega gengur að yfírheyra hana.
Ekkert eldvarnarkerfi
Ekkert eldvamarkerfí er í Kópa-
vogshælinu og uppfyllir hælið ekki
kröfur brunamálareglugerðar frá
árinu 1979. Að sögn þeirra Bjöms
Gestssonar og Ragnhildar Ingi-
bergsdóttur hefur margoft verið
farið fram á ijárveitingu til að setja
slíkt kerfí upp, en hún ekki fengist.
Þórir Hilmarsson, forstöðumaður
Bmnamálastofnunar ríkisins, sagði
að stofnunin hefði lengi haft
áhyggjur af aðbúnaðinum á Kópa-
Lögreglumenn með hríðskotabyssur á Keflavíkurflugvelli í framhaldi af útvarpsfréttum um helgina:
Sænska leyniþjónustan hafði njósn af
hugsanlegum aðgerðum Abu Nidals
GÆSLA alvopnaðs hóps sérþjálfaðra lögreglumanna í flugstöðinni
á Keflavíkurflugvelli var hert í gærkvöld þegar nýjar upplýsingar
bárust frá ítaliu og Danmörku um hugsanleg hryðjuverk palestínskra
skæruliða á Norðurlöndum. Akvörðun um að hafa vopnaða verði
við hverja komu og brottför flugvéla á vellinum var tekin af utan-
rikisráðuneytinu á sunnudaginn í framhaldi af fréttum, sem bárust
hingað til lands um auknar öryggisráðstafanir á flugvöllum í Sví-
þjóð, Noregi, Danmörku og Hollandi. í þessum löndum var öryggis-
gæsla hert á flugvöUum um helgina eftir að sænska leyniþjónustan
hafði njósnir af því að hermdarverkamenn undir verkstjórn Abu
Nidals beindu nú augum sínum að þessum stöðum, að sögn Hjalta
Zóphaníassonar, deildarstjóra í dómsmálaráðuneytinu. Abu þessi
Nidal er eftirlýstur um allan heim fyrir fjölda hryðjuverka og er
hann talinn hafa verið leiðtogi skæruliðanna, sem drápu tugi manna
á flugvöllum Rómar og Vinarborgar um jólin.
Fyrstu fréttir
úr útvarpinu
„Við fengum fyrstu fréttir af
þessu í gegnum útvarpið á laugar-
daginn," sagði Hjalti. „Þá höfðum
við samband við Interpol og spurð-
úmst fyrir um hvort við ættum von
á samskonar aðvörun og þessar
nágrannaþjóðir okkar en það var
ekki. Á sunnudag fengum við upp-
lýsingar um efni þess skeytis, sem
hafði farið á milli lögregluyfirvalda
í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og
Hollandi og í dag (mánudag) feng-
um við afrit af þessu skeyti.“
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra sagðist í samtali við Wm.
Morgunblaðsins ekki telja rétt að
gefa upp nokkuð tira heimildir þær,
er ráðuneytið byggir aðgerðir sínár
á, „eða hvað veldur andvara í þéss-
um eftium". Hann sagðist álíta
nauðsynlegt, „að við gerum okkur
grein fyrir því að hættan er fyrir
hendi hér rétt eins og í nágranna-
löndum okkar. Það er því mikilvægt
að við gerum ráðstafanir gegn
hugsanlegri hættu ekki síður en
aðrir, því við getum ekki treyst
því að sleppa alltaf undan ofbeldis-
og hryðjuverkum, eins og þeim sem
verið er að fremja annars staðar.
Það er gjaman ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur og því væri
ekki óeðlilegt að þessir menn færu
að hugsa sér til hreyfings ef þeir
vissu að hér væru engar varúðar-
ráðstafanir. En það er rétt að það
komi fram, að við höfum áætlanir
um ákveðnar ráðstafanir til að
mæta ofbeldisverkum eins og þeim,
sem við höfum fengið fregnir af að
undanfömu," sagði utanríkisráð-
herra.
Sérþjálfaðir hjá
Víkingasveitinni
Það eru lögreglumenn úr lög-
MorgunblaðiB/Einar Falur
Lögregluþjónn við öryggisgæzlu
á Keflavíkurflugvelli ígær.
regluliði Keflavíkurflugvallar —
sem heyrir undir utanríkisráðuneyt-
ið — er nú standa vörð í flugstöð-
inni, gráir fyrir jámum. Auk þeirra
hafa verið kvaddir til lögreglumenn
úr Víkingasveit Reykjavíkurlög-
reglunnar. Af öiyggisástæðum
hefur ekki verið látið uppskátt um
hversu margir lögreglumenn annast
öryggisgæsluna, hversu Iengi henni
verður haldið áfram eða annað um
vinnubrögð eða skipulag öryggis-
gæslunnar. „Þessi vakt er ótíma-
bundin. Það ræðst af þróun mála
hversu lengi henni verður haldið
áfram,“ sagði Sverrir Haukur
Gunnlaugsson, skrifstofustjóri
vamarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, í samtali við blm.
Morgunblaðsins.
Sérþjálfuðu lögreglumennimir á
Keflavíkurflugvelli hafa hlotið sér-
staka skólun hjá Víkingasveit
Reykjavíkurlögreglú'nnar og æfa
reglulega með henni, að sögn Sverr-
is Hauks. Hann sagði að á undan-
fömum tvéimur árum hefði af hálfu